Gímaldið

Gímaldið

News IS ↓ 108 episodes

Hlaðvarpsþjónusta Gímaldsins 🧡

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: gimaldid.is

Author

Gímaldið

Category

News

Podcast website

gimaldid.is

Latest episode

Nov 19, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 10M+ downloads · 4.7+ rating iOS soon

Episodes

Flokkaflakk, fjárlög og „man flu“ á Alþingi 19.11.2026

Ingvar Þóroddsson yfirgaf Viðreisn í vikunni og gekk til liðs við Sjálfstæðisflokkinn. Hann er þriðji þingmaðurinn sem yfirgefur flokk sinn eða þingflokk í stjórnarmeirihlutanum á fáum mánuðum, en sá eini sem gengur til liðs við stjórnarandstöðuflokk. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir fara yfir flokkaskiptin og hvað þau þýða fyrir ríkisstjórnina og Viðreisn. Í þættinum: 25 þingmenn haf...

Formaður Afstöðu: Hræðsluáróður og stefnuleysi í fangelsismálum 13.11.2026

Nýtt fangelsi á Stóra-Hrauni á að kosta 28,9 milljarða króna, meira en fjórfalt það sem áætlað var árið 2023. Fyrsta skóflustungan var tekin á dögunum og fullbyggt á fangelsið að rúma 128 fanga. Formaður Afstöðu segir fangelsið byggt á röngu mati á þörfinni og sakar greiningardeild ríkislögreglustjóra um hræðsluáróður. En hvað þarf til að fangelsisvist skili raunverulegri betrun? Erla Hlynsdóttir...

Hver er að biðja um allar þessar verslanir og lengda afgreiðslutíma? 12.11.2026

Matarverð heldur áfram að hækka þrátt fyrir boðaðar lækkanir matvörurisanna. Dagvöruvísitalan hækkaði um 0,33% frá ágúst til október, mest í Bónus eða um 0,49%, og skýrist hækkunin einkum af kjöti og mjólkurvörum. Hagar og Nettó boðuðu tveggja prósenta lækkanir og Krónan frysti verð á 647 vörum til áramóta, en dramatískar lækkanir hafa ekki orðið. Matvörur hér eru þær dýrustu af 27 Evrópulöndum sa...

Sigurður Ingi: „Þetta fór fram hjá mér og fram hjá þinginu“ 11.11.2026

Í þessum þætti er sögð saga lagaákvæðis sem fór undir radarinn á þinginu og varð að lögum án þess að neinn yrði þess var, hvorki ráðherrann sem lagði það fram né þingheimur sem gerði það að lögum. Ákvæðið er rót þess storms sem nú ríkir um stjórn Landsvirkjunar en með því var gerð breyting á því hvernig skipað er í stjórnir stærstu ríkisfyrirtækja landsins. Í þættinum er einnig rætt við ráðherrann...

Hallgrímur Helgason: Ónæmur fyrir hakkavélinni 07.11.2026

Hallgrímur Helgason rithöfundur hefur átt gott ár erlendis og er orðin stórstjarna í Noregi með sextíu kílóa þríleikinn sinn. Hann hefur verið lengst allra höfunda á topp tíu metsölulistum þar í landi allt frá því í byrjun þessa árs. Hann segist aldrei hafa búist við þessum viðtökum en hann hafi alltaf dreymt um að loka hringnum með útgáfu þríleiksins í Noregi einkum í ljósi þess hversu mikið er f...

Hetjur kosninganæturinnar og síðustu tvö ár Trumps 05.11.2026

Demókratar stýra senn báðum deildum Bandaríkjaþings eftir sigur í þingkosningunum 3. nóvember. Sigurinn var mun stærri en spáð hafði verið og repúblikanar eru í sárum. Hvað þýðir þetta fyrir síðustu tvö ár Donalds Trump í embætti, og breytir það einhverju hérna megin við Atlantshafið? Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Karen Kjartansdóttur um niðurstöðurnar, hetjur kosninganæturinnar og stöðu Trumps. Að...

Demókratarnir sem geta breytt öllu 02.11.2026

Þingkosningar standa fyrir dyrum í Bandaríkjunum. Úrslit þeirra munu ráða miklu um valdsvið Donalds Trump á síðari hluta kjörtímabils hans. Stríðsrekstur forsetans og tollastefna hefur komið verst niður í fylkjum sem venjulega styðja Repúblikana og í mörgum þeirra ríkir nú mikil spenna. Líklegt er talið að Demókratar gætu náð yfirhöndinni í báðum deildum Bandaríkjaþings. Eyrún Magnúsdóttir ræðir v...

Fjölmiðill verður ekki til úr engu 30.10.2026

Gímaldið er eins árs. Á þessum tíma hafa komið út 100 hlaðvarpsþættir, mörg hundruð greinar og bókarkaflar, og nú kemur fréttabréf alla virka morgna. Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir, Erla Hlynsdóttir og Helga Arnardóttir líta yfir fyrsta árið og ræða hvaða skref Gímaldið tekur næst. Í þættinum: Erla rifjar upp mál starfsmanns Útlendingastofnunar sem birti trúnaðarupplýsingar um umsækje...

Andri Snær: Hjartsláttartruflanir af völdum náttúruverndar 24.10.2026

Andri Snær Magnason hefur ekkert alltaf ætlað sér að bera kyndilinn í náttúruvernd en með bókum sínum Draumalandið og Um tímann og vatnið og samnefndum heimildarmyndum í kjölfarið hefur hann orðið einn af áhrifamestu kyndilberum í þessum málaflokki og vakið fólk um allan heim til vitundar um náttúruvernd, loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra fyrir náttúru og samfélög. Ekki síst hefur hann ver...

Jón Gnarr, Dagur B. og frelsið í áhrifaleysinu 20.10.2026

Af hverju gat Jón Gnarr ekki verið áfram í þingflokki Viðreisnar og látið til sín taka sem óbreyttur þingmaður? Og hvað ætlar ríkisstjórnin sér með verðtryggðu lánin? Eyrún Magnúsdóttir, Helga Arnardóttir og Aðalheiður Ámundadóttir ræða um Viðreisn og verðtrygginguna. Meðal efnis í þættinum: Jón Gnarr yfirgefur þingflokk Viðreisnar en ekki flokkinn. Er staða hans sambærileg við stöðu Dags B. Egger...

Feður í fangelsi - Kvíðinn fyrir að koma aftur heim 15.10.2026

Hvernig er að taka á móti börnunum sínum í heimsókn í fangelsi, og hvernig er að snúa aftur í foreldrahlutverkið að afplánun lokinni? Á Íslandi eru ekki til upplýsingar um hversu mörg börn eiga foreldri í fangelsi, þótt slíkar tölur séu til í nágrannalöndunum. Þá hafa rannsóknir á foreldrum í fangelsum að miklu leyti snúist um mæður, en feður hafa síður fengið rödd. Árni Sveinsson starfaði í átján...

Sirkabát #18 - PISA er ekkert venjulegt próf 10.10.2026

Er PISA-könnunin stærsta skákmót í heimi? Niðurstöður PISA 2025 sýna að færni íslenskra grunnskólanema hefur aldrei mælst minni. En hvernig virkar PISA-könnunin í raun og veru og hvað má lesa úr niðurstöðunum? Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson og Georg Gylfason rýna í landsskýrslu PISA sem kom út nýverið, ræða flókna tölfræði sem býr að baki og velta því upp hvaða ályktanir er hægt að draga þegar...

Af hverju teljast hlaðvörp fjölmiðlar? 08.10.2026

Deilt hefur verið um skilgreiningu á því hvað telst fjölmiðill. Af hverju teljast hlaðvörp fjölmiðlar samkvæmt skilgreiningu fjölmiðlanefndar og af hverju eru fjölmiðlamenn eða hlaðvarparar ekki endilega blaðamenn?  Þetta eru hugtök sem margir rugla saman enda ekki furða því hlaðvarpssenan hefur aldrei verið sterkari í íslensku fjölmiðlaumhverfi. Í þessum þætti verður gerð tilraun til að skýra af...

Kristrún: „Ég er ekki kosin til að verja ríkiskerfið“ 04.10.2026

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er gestur Hálftímans, nýs þáttar Gímaldsins um pólitík. Hún ræðir við Aðalheiði Ámundadóttur um pólitískar skoðanir sínar og hvort hún skilgreini sig til vinstri eða hægri; um endurreisn Samfylkingarinnar, hvort flokkurinn hafi færst til hægri og hvort vinstrið sé horfið af Alþingi. Kristrún hefur lengi verið með stöðu jafnaðarmannaflokka á heilanum og telur...

Skuggastríð, svartir listar og ógnin frá Rússlandi 01.10.2026

Í byrjun ágúst hæfði dróni með sprengiefni flutningavél á flugvellinum í Leipzig og þýsk stjórnvöld sögðu Rússa bera ábyrgð. Síðan þá höfum við ítrekað heyrt af svipuðum atvikum, nú síðast þegar rússnesk flugvél rauf lofthelgi Finnlands. Evrópskar leyniþjónustur telja að ógnin frá Rússlandi sé komin á nýtt stig. Þótt Rússar hafi ekki lýst yfir stríði gegn neinu ríki Evrópusambandsins þá er Evrópa...

Verðtryggðu lánin sem aldrei lækka: Fréttaskýring á mannamáli 28.09.2026

Ert þú lántakandi á verðtryggðu láni með stökkbreyttan höfuðstól eftir þráláta verðbólgu síðustu ár og viltu skilja af hverju það hækkar bara og hækkar? Veltirðu fyrir þér hvenær og hvernig verðtryggða lánið þitt lækkar einhvern tímann? Í þessari umfjöllun er útskýrt á mannamáli hvernig síhækkandi vísitala hefur langvarandi áhrif á höfuðstól verðtryggðra lána, hvernig þau eru reiknuð og hvað þarf...

Ólafur Þ: „Við erum Vestur-Evrópumeistarar í misvægi atkvæða“ 19.09.2026

Ísland stendur verr að vígi en flest ríki Vestur-Evrópu þegar kemur að jöfnu atkvæðavægi, að mati Ólafs Þ. Harðarsonar, prófessors emeritus í stjórnmálafræði, sem leiddi starfshóp um breytingar á kosningakerfinu. Aðalheiður Ámundadóttir ræðir við hann um áhrif ójafns atkvæðavægis á stjórnmálin, um tillögur hópsins og möguleg áhrif þeirra. Hópurinn leggur til að 36 þingmenn verði kjördæmakjörnir, s...

Þjóðin sem kann ekki að geyma leyndarmál 18.09.2026

Ísland þarf að ráða við það að vernda mikilvægar upplýsingar. Frumvarp um ný öryggislög verður lagt fram í vetur í því skyni að aðrar þjóðir viti hver hefur hvaða öryggisvottun á okkar her- og leyniþjónustulausa landi. Þingstörf eru hafin eftir viðburðaríkt sumar og forystumenn stjórnarandstöðunnar setja sig í stellingar fyrir veturinn. Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir fara yfir fyrst...

Ekkert óveðursský yfir Alþingi 14.09.2026

Í fyrsta þætti Hálftímans, nýs þáttar Gímaldsins um stjórnmál, ræðir Aðalheiður Ámundadóttir við Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta Alþingis, um þingstörfin framundan. Þórunn kannast ekki við ófrið sem boðaður hefur verið á haustþingi og finnur ekki fyrir honum innanhús á Alþingi. Hún ræðir hótanir og aðkast í garð þingmanna, starfið á Alþingi og hvernig hún býr sig undir erfiðar umræður í þingin...

Margrét Einarsdóttir: „Ef við viljum vera aðilar að EES þá þurfum við að innleiða þessa bókun“ 11.09.2026

Hvað gerist ef við klárum ekki að innleiða bókun 35? Margrét Einarsdóttir lagaprófessor og sérfræðingur Evrópurétti er í viðtali við Gímaldið og fer yfir þessa umtöluðu bókun. Umræður um Bókun 35 við EES – samninginn hafa verið fyrirferðarmiklar að undanförnu. Íslendingar hafa skuldbundið sig til að innleiða þessa bókun en ekki staðið við það.  Margrét segir mikilvægt að þingið innleiði Bókun 35 s...

Aðalheiður Ámundadóttir: Skýrleiki í pólitíska glundroðanum 04.09.2026

Gímaldið er á fleygiferð. Sífellt fleiri hlusta og lesa, og við finnum fyrir vaxandi áhuga á því sem við höfum fram að færa. Núna í haust viljum við segja betur frá því sjálf fyrir hvað Gímaldið stendur, hvert við stefnum og hvers vegna. Af því tilefni verða birt hér á þessum vettvangi nokkur viðtöl sem við sem stöndum að Gímaldinu tökum hvert við annað.  Í þessum þætti ræðir Eyrún Magnúsdóttir vi...

Pólitísk ábyrgð og eftirmál baráttunnar 01.09.2026

Eyrún Magnúsdóttir og Aðalheiður Ámundadóttir gera upp þjóðaratkvæðagreiðsluna, aðdraganda hennar og möguleg eftirmál. Þær rýna í hliðstæðurnar við Brexit, baráttuaðferðir fylkinganna, pólitíska ábyrgð í kjölfar niðurstöðunnar og allt sem ekki má gleymast í uppgjöri umræðunnar. Umræðuefni og spurningar sem varpað er fram í þættinum: Á Kristrún að henda inn handklæðinu og skilja stjórnarandstöðuna...

Brexit stundin runnin upp 28.08.2026

Íslenska þjóðin tekst á við fjórðu þjóðaratkvæðagreiðsluna á þessari öld á laugardag. Umræðan hefur verið bæði góð og slæm, en núna á lokasprettinum er ljóst að Brexit-augnablikið er runnið upp. Ósönnum fullyrðingum er haldið á lofti sem aldrei fyrr. Eyrún Magnúsdóttir, Aðalheiður Ámundadóttir og Helga Arnardóttir fara yfir stöðuna á lokaspretti baráttunnar. Þær ræða kappræður, skoðanakannanirnar,...

Benedikt Gíslason: Áhættan öll hjá þeim sem tekur verðtryggða lánið en lánveitandinn varinn 27.08.2026

Verðtryggingin er úrelt og barn síns tíma segir Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka sem telur hana flækja allan bankarekstur og vill draga verulega úr vægi hennar, jafnvel afnema að fullu. Hann segir þráláta verðbólgu afleiðingu þess að bankarnir geri upp í tveimur myntum, óverðtryggðum og verðtryggðum. Áhættan sé alfarið sett á lántakann en ekki lánveitandann og henni sé dreift ójafnt á mil...

Já-ið yrði innblástur fyrir Norðmenn 25.08.2026

Herdís Sigurgrímsdóttir stjórnmálafræðingur bjó um árabil í Noregi og hefur fylgst grannt með umfjöllun um íslensku þjóðaratkvæðagreiðsluna þar í landi. Sú umræða fer ekki endilega fram á kaffistofum en stjórnkerfið, einkum norska utanríkisráðuneytið, setur sig í stellingar fyrir niðurstöðuna. Eyrún Magnúsdóttir ræðir við Herdísi um stöðuna í norskri pólitík og um það hvort Norðmenn eru eitthvað a...

Listen to the Gímaldið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.