Jóhannes Bjarni Guðmundsson
Flugvarpið
Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.
Author
Jóhannes Bjarni Guðmundsson
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#87 – Íslenska flugævintýrið er enn í dag – Flugþjóðin – Kristján Már Unnarsson 28.08.2024 50:31
Rætt er við Kristján Má Unnarsson frétta- og dagskrárgerðarmann um nýja sjónvarpsþáttaröð sem hann hefur umsjón með og er að hefja göngu sína á Stöð 2 í september. Þættirnir heita Flugþjóðin og þar fá áhorfendur innsýn í þessa stóru atvinnugrein okkar Íslendinga í dag bæði hérlendis og ekki síður útrás íslenska fluggeirans á erlendri grundu. Kristján er sjálfur lærður einkaflugmaður og segir hér f...
#86 - Risaflugfélagið RiyadhAir í bígerð – flugmannslíf í miðausturlöndum – Hannes Ingi Guðmundsson 08.08.2024 1:18:24
Hannes Ingi Guðmundsson þjálfunarflugstjóri RiyadhAir segir hér frá atriðum á merkilegum ferli sínum og þáttöku í því stóra verkefni við að koma rekstri RiyadhAir af stað á næstu mánuðum. Áætlanir félagsins eru að stækka mjög hratt á allra næstu árum og hefur félagið nú þegar yfir 70 B787 Dreamliner flugvélar í pöntun frá Boeing verksmiðjunum. Hannes Ingi gefur hlustendum innsýn í líf flugmannsins...
#85 - TERN systems - þróa gervigreind við stjórn flugumferðar - Magnús Már Þórðarson 03.08.2024 50:16
Rætt er við Magnús Má Þórðarson framkvæmdastjóra hjá Tern systems sem sérhæfir sig í að hanna og framleiða hugbúnað fyrir stjórnun flugumferðar. Fyrirtækið hyggst nýta tækifæri í tæknibyltingu með gervigreind og hlaut nýverið 95 milljóna króna styrk úr rannsóknar- og nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins SESAR til að þróa gervigreindarlausn sem ætlað er að auka flugöryggi. Magnús Már segir hér frá þes...
#84 – Nýr Flugskóli Íslands – vilja efla flugnám og fá því sess í menntakerfinu – Sölvi Þórðarson 27.07.2024 1:09:58
Rætt er við Sölva Þórðarson skólastjóra og einn af eigendum Flugskóla Íslands sem auglýsir nú atvinnuflugnám í samstarfi við Sevenair flugskólann í Portúgal. Sölvi hefur ásamt fleirum rekið skóla undir nafninu Icelandic Aviation Training í nokkur ár þar sem fókusinn hefur aðallega verið að þjónusta flugrekendur bæði hér heima og erlendis með tegundaráritanir og síþjálfun flugáhafna. Nú hefur skóli...
#83 – Airbus innleiðing Icelandair – flughermir staðfestur – Guðmundur Tómas Sigurðsson 26.06.2024 44:29
Rætt er við Guðmund Tómas Sigurðsson ábyrgðarmann þjálfunar flugáhafna hjá Icelandair um innleiðingu á Airbus flota hjá félaginu. Fyrsta Airbus vélin er áætluð í nóvember og þjálfa þarf 70-80 flugmenn strax næsta vetur fyrir þær 4 flugvélar sem áætlað er að taka í rekstur fyrir sumarið 2025. Nú hefur verið skrifað undir kaup á nýjum Airbus flughermi sem tekinn verður í notkun á næsta ári, en það t...
#82 – „Eins og sjálf náttúran fyndi til“ – mannskæðu slysin á DC-3 – Þristurinn 80 ára – 3. hluti 05.06.2024 46:41
Hér fer þriðji hluti í samantekt Flugvarpsins um DC-3 flugvélar á Íslandi í tilefni af 80 ára afmæli fyrstu DC-3 flugvélar Íslendinga. Rifjuð eru upp þrjú mannskæð flugslys sem urðu á þessari tegund flugvélar hérlendis. Tvö þeirra þar sem sérstaklega djúpt skarð var höggvið í íbúafjölda landsins á sínum tíma því þar var um að ræða tvö af mannskæðustu flugslysum sem orðið hafa hér á landi. Hið fyrr...
# 81 – Spennið beltin! Heiðkvika og ókyrrð, flugveðrið og spárnar – Einar Sveinbjörnsson 29.05.2024 45:20
Rætt er við Einar Sveinbjörnsson veðurfræðing um ókyrrð í flugi eins og heiðkviku (clear air turbulence), sem nýleg dæmi sýna að geta valdið stórslysum um borð í flugvélum. Hvar og hvernig myndast heiðkvikan og hvað veldur því hversu mikil hún verður? Eru varasamar aðstæður og öfgar í veðrinu að aukast með breyttu veðurfari og hitastigi? Einar reynir að svara þessum spurningum og fleirum, en hann...
#80 - Útskrifuð úr háskóla háloftanna – flugfreyja í 40 ár – Guðrún Gunnarsdóttir 22.05.2024 57:35
Rætt er við Guðrúnu Gunnarsdóttur flugfreyju til 40 ára um ferilinn og starfið. Guðrún ætlaði eins og margir aðrir rétt að prófa flugfreyjustarfið en ílentist í rúm 40 ár. Hún rifjar hér upp ýmis áhugaverð atvik á löngum ferli, allt frá stórkostlegum ferðum til Suðurskautslandsins og til óþægilegra og erfiðra flugferða í vondum veðrum. Guðrún myndi hiklaust velja sama framtíðarstarfið aftur enda h...
#79 – Stýrði varðskipum, flugvélum, þyrlum og breiðþotum – Bogi Agnarsson 09.05.2024 1:10:59
Bogi Agnarsson flugstjóri segir hér frá atriðum á stórmerkum ferli sínum fyrst hjá Landhelgisgæslu Íslands og síðar hjá Air Atlanta á B747 jumbó. Bogi rifjar hér m.a. upp fræknar björgunarferðir við erfiðar aðstæður á gömlu Dauphin þyrlu gæslunnar TF-SIF og hvernig flugreksturinn tók gríðarlegum stakkaskiptum á níunda áratugnum með tilkomu nýrra tækja, betri verkferla og aukinni þjálfun. Bogi söðl...
#78 – Vöxtur Norlandair – Grænlandsflug, sjúkraflug o.fl. - Friðrik Adolfsson 03.05.2024 28:03
Rætt er við Friðrik Adolfsson framkvæmdastjóra og einn af eigendum Norlandair á Akureyri, en hann lætur senn af störfum eftir 50 ár í fluginu. Hann skilar öflugu búi því Norlandair hefur vaxið stöðugt og rekstur félagsins gengur vel. Meginstoðirnar í rekstrinum eru Grænlandsflug, áætlunarflug á smærri staði innanlands og nú síðast sjúkraflugið, sem félagið tók yfir um síðustu áramót. Friðrik segis...
# 77 – Landgræðsluflugið á DC-3 – Þristurinn 80 ára – 2. hluti – Sveinn Runólfsson 26.04.2024 33:41
Annar hluti í samantekt Flugvarpsins um DC-3 í tilefni af 80 ára afmæli Þristsins. Rætt er við Svein Runólfsson fyrrverandi Landgræðslustjóra um Landgræðsluflugið á DC-3 sem stóð yfir í rúm 30 ár og breytti ásýnd landsins mjög víða til hins betra, enda einn öflugasti áburðardreifari sem notaður hefur verið. Sveinn hefur yfirgripsmikla þekkingu á starfsemi Landgræðslunnar og þekkir einnig vel einst...
#76 – Gjaldþrot Flugakademíu Íslands – Jón B. Stefánsson 23.04.2024 34:16
Rætt er við Jón B. Stefánsson stjórnarformann Keilis og Flugakademíu Íslands um gjaldþrot Flugakademíunnar. Jón fer yfir stöðuna varðandi uppgjör fyrrverandi nemenda við skólann og áætlanir um uppgjör þeirra skulda en sumir eiga enn inni peninga fyrir óflogna flugtíma. Hann segir það vinnulag að láta nemendur greiða fyrirfram fyrir flugnámið hafi reynst félaginu um megn þegar aðsóknin í skólann mi...
#75 – Þarfasti þjónninn - Þristurinn DC-3, 80 ára – 1. hluti. 18.04.2024 52:16
Samantekt um hina sögufrægu flugvél DC-3 á Íslandi í tilefni af 80 ára afmæli fyrstu vélar af þeirri gerð, sem nú er varðveitt á Flugsafni Íslands. Í þessum þætti er farið yfir atriði úr sögu Þristsins á Íslandi og birt eru viðtalsbrot úr kvikmyndinni Íslenskir atvinnuflugmenn við flugstjórana Snorra Snorrason, Henning Bjarnason og Geir Gíslason. Einnig er rætt við Sverri Þórólfsson flugstjóra um...
#74 – Lifandi saga flugsins varðveitt og kynnt - Flugsafn Íslands - Steinunn María Sveinsdóttir 06.04.2024 1:05:07
Rætt er við Steinunni Maríu Sveinsdóttur safnstjóra Flugsafns Íslands. Flugsafnið hefur vaxið og dafnað á síðustu árum og stór verkefni blasa við á næstunni, en safnið fagnar 25 ára afmæli í vor. Steinunn segir hér frá fjölmörgum áhugaverðum verkefnum til þessa og hvernig ætlunin er að þróa starf safnsins enn frekar í þá átt að ekki eingöngu að varðveita muni og sögu heldur einnig að opna heim flu...
#73 – Þyrluflugið í örum vexti - vannýtt tæki m.a. til sjúkraflutninga – Reynir Freyr Pétursson 19.03.2024 1:24:36
Reynir Freyr Pétursson þyrluflugstjóri og flugrekstrarstjóri HeliAir Iceland ræðir um stöðu þyrluflugs á Íslandi og tækifærin framundan. HeliAir Iceland er nýtt fyrirtæki sem sinnir margs konar spennandi verkefnum í að flytja bæði fólk og vörur fyrir innlenda og ekki síst erlenda kúnna. Reynir Freyr hefur áratuga reynslu af þyrluflugi hérlendis og fer m.a. yfir erfiða samkeppni á þessum markaði se...
#72 – Icelandair í góðri stöðu til sóknar, en breytinga þörf í KEF - Guðmundur Hafsteinsson 09.03.2024 1:18:36
Guðmundur Hafsteinsson stjórnarformaður Icelandair Group fer hér vítt og breitt yfir málefni Icelandair og áskoranir í rekstri félagsins. Aðalfundi Icelandair er nýlokið þar sem Guðmundur var endurkjörinn formaður stjórnar. Hann segir félagið mjög vel í stakk búið til að takast á við spennandi tíma framundan og grípa tækifærin sem gefast. Farið er yfir flotamálin, gengi félagsins á markaði og harð...
#71 – Ágjöf en aldrei uppgjöf – Mýflug/Ernir, Sjúkraflugið o.fl. – Leifur Hallgrímsson 18.01.2024 1:08:11
Rætt er við Leif Hallgrímsson sem á einstaka sögu í flugrekstri á Íslandi. Hann stofnaði Mýflug árið 1985 til að sinna, útsýnis- leigu- og kennsluflugi frá flugvellinum í Reykjahlíð – í sinni heimasveit. Það hafa verið mikil tíðindi í rekstri Mýflugs síðustu misserin. Félagið keypti um þriðjungshlut í flugfélaginu Erni og um síðustu áramót missti Mýflug samning um sjúkraflug við ríkið, sem verið h...
#70 – Icelandair aldrei stærra en 2023 – Airbus, ráðningar, cadettar og eldgos – Linda Gunnarsdóttir 29.12.2023 1:12:58
Linda Gunnarsdóttir yfirflugstjóri Icelandair segir hér frá met umsvifum félagsins á þessu ári og fyrirhugaðri stækkun. Boeing vélum verður fjölgað fyrir næsta sumar og þjálfun er að hefjast á Airbus á næstu vikum. Linda ræðir ráðningar á flugmönnum, cadet prógram og hvernig félagið reynir að takast á við ýmis krefjandi verkefni sem komið hafa upp á þessu ári.
#69 – Nautn að laga það sem var bilað – flugvirki og fallhlífarstökkvari – Hannes S. Thorarensen 22.12.2023 52:28
Rætt er við Hannes S. Thorarenssen flugvirkja sem unnið hefur fyrir fjölda íslenskra og erlendra flugfélaga í gegnum árin. Hann var í áratug bæði flugvirki og flugmaður á DC 3 í landgræðsluflugi og er enn að sinna viðhaldi á Þristinum þótt vélin sé nú eingöngu safngripur. Hannes segir hér frá sínum merkilega ferli í fluginu og einstakri sögu af því þegar hann stökk úr fallhlíf á Grænlandi til að ú...
#68 RFA nýr flugskóli – þarf samstarf allra til að efla atvinnuflugskennslu – Hjörvar og Bragi 20.11.2023 50:39
Rætt er við flugmennina og feðgana Hjörvar Hans Bragason og Braga Sigþórsson sem nú reka Flugskóla Reykjavíkur (RFA.) Skólinn er nú sá eini sem kennir til atvinnuflugmannsréttinda hérlendis eftir að Flugakademía Keilis hætti rekstri. Þeir segja það alls ekki sjálfgefið að þessi rekstur gangi nema gott samstarf náist við flugfélögin, stjórnvöld og lánastofnanir. Rætt er um ýmis mál sem tengjast flu...
#67 – PLAY í plús á Q3 – vetur nálgast og hægja á vexti - Birgir Jónsson 03.11.2023 1:06:01
Rætt er við Birgi Jónsson forstjóra Play í tilefni af árshlutauppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung 2023 þar sem félagið skilar í fyrsta sinn hagnaði eftir skatta. Flugfélagið Play hefur stækkað hratt, er með 10 flugvélar í rekstri og krefjandi vetur framundan þar sem spáð er taprekstri fyrir árið í heild. Farið er yfir stöðu félagsins og rýnt í nokkra þætti úr árshlutauppgjörinu. Þá er fjallað um bro...
#66 – Frábær Q3 og horfur góðar - basl í fraktinni – Bogi Nils Bogason 20.10.2023 42:23
Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair fer yfir stöðu félagsins eftir öflugt uppgjör 3. ársfjórðungs og horfurnar framundan. Icelandair skilaði yfir 11 milljörðum króna í hagnað eftir skatta á 3. ársfjórðungi og bókunarstaða í farþegafluginu er góð. Fraktstarfsemin gengur hins vegar illa og áskorun verður að snúa þeim rekstri á réttan kjöl. Þá blasa við ýmsar kostnaðarhækkanir og áskoranir í rekst...
#65 – Flugmannaskortur yfirvofandi? - The Mentour Pilot – Petter Hörnfeldt 14.10.2023 52:00
Rætt er við Petter Hörnfeldt sem heldur úti viðamikilli útgáfu á youtube til að kynna og fræða áhorfendur um flugmál. Petter var gestur á Reykjavik Flight Safety Symposium á vegum ÖFÍA þar sem hann fór yfir stöðuna og horfur framundan út frá flugmannsstarfinu. Hann telur yfirvofandi mikinn skort á flugmönnum á allra næstu árum og segir frá því hvernig hann telur að flugfélögin og skólar þurfi að m...
#64 – RFSS – Flugnám, fíkniefnaskimanir og kulnun – Högni Björn Ómarsson 07.10.2023 39:36
Rætt er við Högna Björn Ómarsson flugstjóra og ritara FÍA í tilefni af Reykjavík Flight Safety Symposium, ráðstefnu ÖFÍA sem haldin verður í sjöunda sinn nú október. Á dagskrá ráðstefnunnar í ár verða margir áhugaverðir fyrirlesarar sem fjalla munu um fjarturna, flugnám og flugkennslu, streitu og kulnun, fíkniefnaskimanir og losunarheimildir. Högni gerir hér lítillega grein fyrir fyrirlesurum og s...
#63 – Loftlagsmál og orkuskipti lykilatriði í rekstri næstu árin – Heiða Njóla Guðbrandsdóttir 21.09.2023 51:11
Rætt er við Heiðu Njólu Guðbrandsdóttur aðstoðarframkvæmdastjóra rekstrarsviðs hjá Icelandair um umfang rekstrarins á nýliðnu sumri og áætlanir félagsins um vöxt á næsta ári. Heiða Njóla fer einnig yfir nýjustu tækni sem er að halda innreið sína í orkuskiptum í fluginu, einkum með notkun vetnis og sjálfbæru þotueldsneyti, sem gæti skipt sköpum í rekstri flugfélaga á næstu árum. Hún skýrir einnig f...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.