Jóhannes Bjarni Guðmundsson
Flugvarpið
Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.
Author
Jóhannes Bjarni Guðmundsson
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#62 – Flughátíð í Reykjavík 3. júní “23 – Listflugmenn, fólkið og flugvélarnar 31.08.2023 1:19:20
Samantekt frá flugdeginum á Reykjavíkurflugvelli 3. júní 2023. Rætt er við nokkra sem komu að skipulagningu og dagskrá hátíðarinnar m.a. listflugmennina Snorra Bjarnvin Jónsson og Luke Penner. Fjölmargir gestir nýttu tækifærið til að skoða gamlar og nýjar flugvélar, sjá ýmsan búnað sem tilheyrir flugvallarekstri og fræðast um leið um flugið, en þetta var í fyrsta sinn í 4 ár sem flugdagur er haldi...
#61 – Forystumaður í fluglækningum á Íslandi – Þengill Oddsson 24.08.2023 1:35:36
Rætt er við Þengil Oddsson yfirlækni á heilbrigðisskor Samgöngustofu, en hann á að baki magnaðan áratuga feril í bæði flugi og lækningum og er sá sem leitað er til þegar upp koma vafamál varðandi heilbrigðisvottorð fyrir flugáhafnir. Þengill sinnir alþjóðlegu samstarfi fyrir hönd Íslands og þekkir vel hvaða mál eru þar helst til umræðu og hvaða breytingar eru í farvatninu eins og varðandi hámarksa...
#60 – Ásókn í flugnám hrundi - 4 byrjuðu í janúar og áhugi að aukast á ný - Óskar Pétur Sævarsson 12.05.2023 57:48
Rætt er við Óskar Pétur Sævarsson forstöðumann Flugakademíu Íslands um stöðu atvinnuflugnáms í dag og horfurnar framundan. Á kóvid tímanum hrundi aðsókn í atvinnuflugnám hérlendis eins og víðar um heim. Nú þegar atvinnugreinin er að taka all hressilega við sér á nýjan leik gæti blasað við skortur á sérhæfðu starfsfólki sem fylgir auknum umsvifum flugfélaganna. Óskar Pétur telur nauðsynlengt að kom...
#59 – Airbus vann Boeing í keppninni um Icelandair – Bogi Nils Bogason 05.05.2023 44:49
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um þá ákvörðun félagsins að semja við Airbus í stað Boeing varðandi endurnýjun flugflotans. Skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu um kaup á allt að 25 Airbus XLR vélum og er ætlunin að innleiðing á LR vélum byrji árið 2025. Bogi ræðir einnig afkomu félagsins á fyrsta ársfjórðungi, horfurnar framundan og ýmsar áskoranir sem við blasa.
#58 – Tekjur Play og Iceair hækka – eftirspurnin mikil - Co2 skatturinn kemur – Hans Jörgen Elnæs 26.04.2023 55:38
Rætt er við norska fluggreinandann Hans Jörgen Elnæs um stöðu og horfur á evrópskum flugmarkaði og einkum stöðu íslensku flugfélaganna Icelandair og Play. Tekjur þeirra og sætanýting hefur verið afar góð síðustu mánuði og íslensku félögin hafa líkt og fleiri verið að auka verulega framboð á ferðum og kynna nýja áfangastaði. Hans Jörgen segir allt útlit fyrir að eftirspurnin eftir flugi á Atlantsha...
#57 – EDA Live – „Lucky“ með blóðbragð í munni og rák í brók – Einar Dagbjartsson 17.04.2023 1:18:20
Rætt er við Einar Dagbjartsson flugstjóra frá Grindvík sem á skrautlegan og merkilegan feril í fluginu og lífinu almennt. Einar segir frá uppvextinum suður með sjó og hvernig hann leiddist út í að læra atvinnuflugið sem hann hefur starfað við í um 40 ár með hléum. Einar hefur barist við bakkus og sigrast á þunglyndi og liðsinnir í dag öðrum sem glíma við erfiðleika af þeim toga. Þátturinn var teki...
#56 – Skortur á starfsfólki gæti hamlað vexti – kynna þarf og efla flugnám – Matthías Sveinbjörnsson 24.03.2023 1:04:23
Rætt er við Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélags Íslands um uppganginn sem nú er í fluginu eftir nokkur mögur ár. Fyrirtækin eru farin að keppa um starfsfólk, einkum í sérhæfðari störfin. Aðsókn að námi tengdu flugi minnkaði í heimsfaraldrinum og gæti dregið dilk á eftir sér. Fjallað er um byltinguna sem er að verða í orkuskiptum í fluginu og yfirvofandi kolefnisskatt á flugleiðina til l...
#55 - Fyrsta flugkona Íslands – ruddi brautina en fékk ekki tækifæri - Erna Hjaltalín 27.02.2023 25:28
Fjallað er um Ernu Hjaltalín fyrstu flugkonu Íslands sem talin er ein merkasta kona íslenskrar flugsögu. Hún var önnur af sínum kynsystrum til að taka einliðaflugpróf, en fyrsta konan til að taka einkaflugmannspróf, atvinnuflugmannspróf og til að fá réttindi loftsiglingafræðings. Skyggnst er í gamlar og takmarkaðar heimildir um Ernu frá uppvaxtarárum hennar á Siglufirði og hennar baráttu lýst í st...
#54 – Forstjóri og flugstjóri á umrótartímum; Arnarflug – Íslandsflug o.fl. – Gunnar Þorvaldsson 26.01.2023 1:15:34
Gunnar Þorvaldsson flugstjóri og fyrrum framkvæmdastjóri er gestur í þætti #54, en hann hefur haft aðkomu að óvenju mörgum flugfélögum á sínum langa ferli. Fyrst með stofnun Austurflugs á Egilsstöðum ásamt vini sínum Sigurði Aðalsteinssyni og í framhaldinu hjá Loftleiðum, Flugstöðinni h.f, Air Viking, Arnarflugi og Íslandsflugi. Gunnar tæpir hér á nokkrum atriðum á löngum og stórmerkilegum ferli o...
#53 – Vertíð í þjálfun - metfjölgun flugáhafna Iceair – Guðmundur Tómas Sigurðsson 19.01.2023 44:37
Rætt er við Guðmund Tómas Sigurðsson ábyrgðarmann þjálfunar flugáhafna hjá Icelandair um vertíðina sem nú stendur yfir. Útlit er fyrir met í fjölda þeirra sem fara í þjálfun á þessu ári hjá félaginu og 3 flughermar í Hafnarfirði anna ekki þörfinni þegar mest lætur. Guðmundur Tómas segir hér frá áhugaverðri starfsemi í þjálfunarsetrinu í Hafnarfirði, áskorunum framundan og væntanlegri mönnunarþörf...
#52 – Andleg heilsa, peer support og áhrif covid – Jóhann Pétur Wium Magnússon 10.01.2023 55:17
Rætt er við Jóhann Pétur Wium Magnússon flugsálfræðing um andlega heilsu þeirra sem starfa við flugið og kröfur þar um. Aukin umræða og vitund um nauðsyn andlegrar hreysti hefur breytt miklu á allra síðustu árum og samhliða hefur reglum verið breytt til að skapa þeim sem glíma við andlega vanlíðan úrræði til að leita sér hjálpar. Fjallað er um m.a. „peer support programs“ og áhrif Covid faraldursi...
#51 - ISAVIA, endurheimtin í KEF og vöxturinn framundan – Sveinbjörn Indriðason 17.11.2022 1:35:02
Sveinbjörn Indriðason forstjóri ISAVIA fer vítt yfir sviðið um fjölmörg og krefjandi verkefni félagsins. Reksturinn í Keflavík, stækkunaráform og þróun vallarins á næstu árum. Vel yfir 6 milljónir farþega fara um völlinn á þessu ári og í vetur munu fleiri flugfélög fljúga til Keflavíkur en nokkru sinni áður yfir vetrartímann. Sveinbjörn ræðir einnig ýmis atriði sem varða innanlandsflugvelli á Ísla...
#50 – Svaðilfarir, erfiðleikar og átök í þyrlurekstri LHG – Benóný Ásgrímsson og Páll Halldórsson 02.11.2022 59:48
Rætt er við tvo af reynslumestu þyrluflugstjórum Íslands þá Benóný Ásgrímsson og Pál Halldórsson um þyrlurekstur Landhelgisgæslunnar. Báðir tóku þeir þátt í að endurskipuleggja allt starf þyrlusveitar gæslunnar frá grunni eftir mannskætt slys sem varð á TF-RÁN í Jökulfjörðum árið 1983. Benóný og Páll segja hér frá ýmsum erfiðleikum og átökum við að byggja upp þyrlurekstur LHG og frá sínum einstaka...
#49 - Ein ánægjulegasta endurminningin þegar hreyfillinn sprakk– Gunnar Arthursson 12.10.2022 1:24:59
Rætt er við Gunnar Arthursson flugstjóra sem lenti í frægri svaðilför á Fokker F-27 flugvél þegar annar hreyfillinn sprakk skömmu eftir flugtak frá Ísafjarðarflugvelli árið 1982. Gunnar segir frá þessu atviki og frá ýmsu áhugaverðu af sínum langa atvinnuflugmannsferli sem spannar yfir 40 ár. Hann upplifði m.a. ótrúlegar breytingar á vinnustað frá DC3 til Boeing 757/767, en Gunnar hætti störfum sem...
#48 – Icelandair í sterkri stöðu eftir krísuástand síðustu ára – Bogi Nils Bogason 26.09.2022 56:53
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um framtíðarplönin og viðsnúning í rekstri félagsins. Hann segir ótrúlegt afrek starfsfólksins að hafa komið félaginu á þann stað sem það er í dag á undraverðum tíma. Lausafjárstaða félagsins er sterk og uppbygging framundan eftir krísur síðustu árin. Rætt er um kjarasamninga framundan, flotamálin, innanlandsflugið og hvernig félaginu var forðað a...
#47 – Svefnheilsa og „Just Culture“ – Reykjavik Flight Safety Symposium 22.09.2022 35:40
Rætt er við dr. Erlu Björnsdóttur sálfræðing og sérfræðing í svefnrannsóknum og Ingvar Tryggvason flugstjóra og fyrrum formann Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Þau eru bæði fyrirlesarar á Reykjavik Flight Safety Symposium sem haldið er í sjötta sinn í ár. Erla ræðir um mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan og árangur og Ingvar segir frá innleiðingu sanngirnismenningar eða „Just Cul...
#46 – Evidence Based Training umbyltir þjálfun flugáhafna – Davíð Ásgeirsson 27.08.2022 1:08:23
Rætt er við Davíð Ásgeirsson flugstjóra og eftirlitsmann hjá bresku flugmálastjórninni, en hann hefur á síðustu árum sérhæft sig í Evidence based training (EBT)eða hæfnimiðaðri þjálfun flugáhafna. Þar er um að ræða algjöra kúvendingu í allri nálgun og viðmiðum fyrir endurmenntun og síþjálfun flugmanna. Farið er aðeins yfir litríkan feril Davíðs í fluginu, þegar hann var m.a. hjá EasyJet og síðar W...
#45 - Erfiður tími að baki, nýjar áskoranir en bjart framundan – Þ. Haukur Reynisson 24.06.2022 1:12:39
Rætt er við Þórhall Hauk Reynisson flugrekstrarstjóra Icelandair um gríðarlegar áskoranir í rekstrinum síðustu árin og um stöðu félagsins í dag og horfurnar framundan. Haukur eins og hann er kallaður rifjar einnig upp áhugaverða tíma á ferlinum eins og þegar hann hóf sinn feril sem flugmaður hjá Flugfélaginu Erni á Ísafirði og sinnti þar fjölbreyttum verkefnum, allt frá sjúkra- og póstflugi um Ves...
#44 - Frelsið í fisfluginu heillar – Jónas Sturla Sverrisson 16.06.2022 44:36
Jónas Sturla Sverrisson segir hér frá starfsemi Fisfélags Reykjavíkur og gríðarlegum uppgangi í greininni. Sífellt fleiri sækja í fisflugið frekar en einkaflug af ýmsum ástæðum og njóta þannig frelsisins að fljúga um landið. Jónas hefur langa reynslu af fisflugi og fræðir hlustendur m.a. um reglur sem gilda um þessa grein flugsins og um baráttu fyrir tilvist félagsins m.a. innan þjóðgarða.
#43 – Lifði mannskætt flugslys en aldrei hræddur – Páll Stefánsson 12.05.2022 1:17:31
Rætt er við Pál Stefánsson fyrrverandi flugstjóra um langan og merkilegan feril hans í fluginu og um aðkomu hans að námskeiðshaldi fyrir fólk með flughræðslu sem hann hefur unnið við í um aldarfjórðung. Páll lifði af flugslysið sem varð á Mykinesi í Færeyjum árið 1970, þá sem ungur atvinnuflugmaður. Þrátt fyrir slysið hélt hann ótrauður áfram og hefur í gegnum bæði blómlega og róstursama tíma í fl...
#42 – Flughræðslan og ráð við henni – Álfheiður Steinþórsdóttir 10.05.2022 27:36
Rætt er við Áfheiði Steinþórsdóttur sálfræðing sem hefur lengi aðstoðað fólk við að vinna bug á flughræðslu. Hún segir mikinn árangur hafa náðst á námskeiðum sem haldin hafa verið á vegum Icelandair á fyrir þá sem vilja læra njóta þess að fljúga. Mörg hundruð manns hafa sótt slík námskeið á undanförnum árum. Rætt er við Álfheiði um hvað veldur kvíða og flughræðslu og hvernig megi vinna bug á hræðs...
#41 – NICEAIR – Til útlanda beint frá AEY - Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson 13.04.2022 1:02:29
Rætt er við Þorvald Lúðvík Sigurjónsson flugmann og athafnamann á Akureyri um hið nýstofnaða félag NiceAir. Þorvaldur Lúðvík hefur verið að fjúga allt sitt líf og fengið útrás fyrir því áhugamáli með ýmsu móti. Nú leiðir hann nýtt fyrirtæki sem stofnað er til að standa í fyrsta sinn að reglubundnu áætlunarflugi milli Akureyrar og annarra landa. Þorvaldur Lúðvík segir frá undirbúningi og viðskiptam...
#40 – Flugumferðarstjórn og ör tækniþróun – Guðmundur Karl Einarsson 05.04.2022 57:54
Sérhæft starf flugumferðarstjóra er til umfjöllunar í þessum þætti þar sem rætt er við Guðmund Karl Einarsson vaktstjóra í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík. Hann segir hér frá starfi flugumferðarstjóra sem hann hefur sinnt í tæp 20 ár og veitir hlustendum innsýn í vinnuna í flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík. Guðmundur hefur tekið virkan þátt í margs konar þróunarvinnu á síðustu árum og þekkir...
#39 – Sóknarhugur og uppbygging Icelandair á ný – Jens Bjarnason 24.01.2022 58:44
Rætt er við Jens Bjarnason framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Icelandair um uppbyggingu félagsins sem nú stendur yfir. Jens segir félagið í sóknarhug og menn vilji vanda sig við að endurreisa og stækka fyrirtækið. Hann hefur verið viðloðandi flugrekstur áratugum saman og gengt ýmsum störfum fyrir Icelandair og fleiri á sínum ferli. Jens er doktor í verkfræði, með óbilandi áhuga á flugi og er bjartsýnn...
#38 – PLAY – með lægra verð á krefjandi markað - Birgir Jónsson 13.01.2022 1:12:30
Birgir Jónsson forstjóri flugfélagsins Play segir hér frá stofnun félagsins og sinni aðkomu að hinu nýja íslenska lággjaldaflugfélagi. Hann trúir því að félagið geti vel þrifist á krefjandi flugmarkaði ólíkt forverum sínum, ef rétt er staðið að málum. Birgir ræðir hér um stöðu félagsins og horfurnar framundan, ýmis deilumál sem komið hafa upp síðustu mánuði, hrekur ýmsar kjaftasögur úr bransanum o...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.