Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Flugvarpið

News IS ↓ 162 episodes

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.

Author

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Category

News

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#162 – Flughátíðin Allt sem flýgur á Hellu – einn af hápunktum flugsumarsins – margir viðburðir víða um land - Edda Ingibjörg Eggertsdóttir og Matthías Sveinbjörnsson 08.07.2026

Árleg flughátíð Flugmálafélags Íslands verður helgina 10. til 12. júlí n.k. og af því tilefni er spjallað við þau Eddu Ingibjörgu Eggertsdóttur varaforseta og Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélagsins. Rætt er um dagskrá hátíðarinnar í ár og við hverju megi búast ásamt því að spjalla almennt um einkaflugið og stöðu mála í grasrót flugsins á Íslandi. Þau Edda Ingibjörg og Matthías segja lík...

#161 – Þyrluflugið mikilvægur þáttur í ferðaþjónstunni - Sameining HeliAir og Reykjavik Helicopters lofar góðu – Friðgeir Guðjónsson 03.07.2026

Rætt er við Friðgeir Guðjónsson framkvæmdastjóra sameinaðs þyrlufélags HeliAir Iceland og Reykjavik Helicopters. Farið er yfir aðdragandann að sameiningu félaganna nú í vor og hvernig gengur hjá nýju félagi. Friðgeir segir þyrlubransann engu líkann, þar fái viðskiptavinir stúkusæti til að skoða íslenska náttúru og rík eftirspurn sé eftir því að komast á afskekkta staði þar sem þögnin ríkir. Hann s...

#160 – „Flugið er lífsstíll“ – Stórveldið í Kópavogi með risaþotur um allan heim - Valdir kaflar úr upptöku frá „Live podcast“ viðburði Air Atlanta í tilefni 40 ára afmælis félagsins. 15.06.2026

Það var fjölmenni sem mætti á „live podcast“ viðburð í tilefni af 40 ára afmæli Air Atlanta á þessu ári sem haldinn var í Cafe Atlanta 28. maí 2026. Í þessum þætti er búið að klippa saman viðtalsefni frá kvöldinu en þennan dag var einmitt tilkynnt um viðskipti lykilstjórnenda Atlanta og Atlas flugfélagsins. Atlas kaupir 49% í Atlanta og núverandi stjórnendur Air Atlanta eignast 51%. Í ljósi þessar...

#159 – „Þetta er náttúrulega bara della“ – einstakur ferill í atvinnuflugi í meira en hálfa öld – flaug fyrstu Twin Otter vélinni til Íslands en besta tímabilið var í Þýskalandi – Ómar Ólafsson 03.06.2026

Ómar Ólafsson flugstjóri á að baki langan og stórmerkilegan feril í fluginu. Hann fór í flugnám um miðjan sjöunda áratuginn og hefur sinnt ótrúlega fjölbreyttum störfum á langri starfsævi hjá fjölda flugfélaga. Má þar nefna Flugfélagið Þór í Keflavík, flugþjónustu Björns Pálssonar, Vængi, Arnarflug, Transwede ab í Stokkhólmi, Sudflug GmbH og Condor í Þýskalandi. Að loknum atvinnuflugmannsferli réð...

#158 – ”Live podcast” - Viðburður Icelandair og Flugvarpsins – upptaka frá 7. maí 2026 – Linda Gunnarsdóttir, Snorri Tómasson og Guðbergur Ólafsson 20.05.2026

Upptaka frá ”live podcast” viðburði Icelandair sem haldinn var í samvinnu við Flugvarpið 7. maí 2026. Rætt er við þau Lindu Gunnarsdóttur director chief pilots office, Snorra Tómasson director network and scheduling og Guðberg Ólafsson manager operations control center. Spjallað er um starf þeirra hjá Icelandair og hvernig mismunandi deildir félagsins vinna í sameiningu við að halda tengimiðstöðin...

#157 – Samantekt frá fundi Flugmálafélagsins um Reykjavíkurflugvöll og flugið í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. 16.05.2026

Flugmálafélag Íslands stóð fyrir fundi um Reykjavíkurflugvöll og flugið í aðdraganda sveitastjórnarkosninga. Fulltrúar allra framboða sem bjóða fram í höfuðborginni mættu, hlustuðu á erindi og greindu frá afstöðu sinni og síns flokks. Þessi þáttur er stutt samantekt frá þessum fundi og samanstendur af inngangsorðum frá Matthíasi Sveinsbjörnssyni forseta Flugmálafélagsins, á eftir honum fer Viðar J...

#156 – Efast um heimildir heilbrigðiseftirlits borgarinnar til að setja hömlur á starfsemi flugvallarins - Rætt um skipulagsmál RKV og KEF og af hverju er Malta vinsæl? – Karl Alvarsson 13.05.2026

Karl Alvarsson er fyrrverandi flugumferðarstjóri og lögfræðingur og hefur unnið ýmis sérfræðistörf tengd fluginu. Hann er í dag formaður Fagráðs um flugmál sem er innviðaráðherra til ráðuneytis í málaflokknum og er þar að auki formaður skipulagsnefndar fyrir Keflavíkurflugvöll. Í þættinum er rætt við Karl um skipulagsmálin, þá einkum í Reykjavík. Karl gagnrýnir að alþjóðaflugvöllurinn í höfuðborgi...

#155 – Flugfreyja, leikkona, leiðsögumaður og uppistandari með ólæknandi ferðabakteríu – „Samskipti við fólk eru mínar ær og kýr“ segir Helga Braga í spjalli um flugfreyjustarfið, leiklistina o.fl. – Helga Braga Jónsdóttir 04.05.2026

Rætt er við Helgu Brögu Jónsdóttur flugfreyju og eina þekkturstu leikkonu landsins. Hún hefur verið í ferðabransanum í um 40 ár, vann um skeið hjá Ferðaskrifstofu Íslands og hóf flugfreyjuferil sinn hjá Iceland Express árið 2011, áður en hún fór til WOW air og síðar Icelandair þar sem hún starfar í dag. Helga Braga segir hér stuttlega frá ýmsu á sínum langa ferli og rifjar upp skemmtileg atvik og...

# 154 - Umhverfisskattar ógna tengimiðstöð flugs um Ísland. ESB vinnur að endurskoðun á ETS kerfinu. Flugvarpið rýnir í skýrslu sem íslensk stjórnvöld sendu til ESB sem innlegg í þessa vinnu og rætt er við Sigurberg Björnsson fulltrúa innviðaráðuneytisins 28.04.2026

Í þættinum er fjallað um ETS viðskiptakerfið og áhrif þess á flugrekstur í Evrópu og ekki síst hér á Íslandi. Rýnt er í skýrslu sem íslensk stjórnvöld sendu í samráðsgátt Evrópusambandsins sem innlegg Íslands í vinnu við endurskoðun á ETS kerfinu. Rætt er við Sigurberg Björnsson fulltrúa innviðaráðuneytisins í Brussel en hann hefur á síðustu árum unnið að því að greina áhrif ETS kerfisins á flug o...

#153 – Sérfræðingur í skipulagningu á viðhaldi flugvéla – er ein fárra kvenna í stétt flugvirkja á Íslandi – Guðrún Hrefna Kolbeinsdóttir 21.04.2026

Rætt er við Guðrúnu Hrefnu Kolbeinsdóttur flugvirkja hjá Icelandair um hennar starf við skipulagningu á viðhaldi flugvéla sem hún hefur starfað við í á annan áratug. Guðrún Hrefna segir líka frá því hvernig það kom til að hún fór í flugvirkjanámið á sínum tíma til Danmerkur og hvernig hún fann sína fjöl þar þrátt fyrir að hafa aldrei í bernsku haft sérstakan áhuga á að gera við og laga hluti. Guðr...

#152 – AVIANS tekur við af ISAVIA ANS. Ísland í leiðtogahlutverki í flugleiðsöguþjónustu á Norður-Atlantshafinu. Framkvæmdastjórinn segir metnað um að auka sveigjanleika og bæta þjónustuna við flugið. - Kjartan Briem. 17.04.2026

Rætt er við Kjartan Briem framkvæmdastjóra AVIANS dótturfyrirtækis ISAVIA, en fyrirtækið annast flugleiðsöguþjónustu á íslenska flugstjórnarsvæðinu, sem er eitt hið stærsta í heimi. Kjartan segir frá breytingum sem orðið hafa í tækni og þjónustu á liðnum árum og ræðir þær áskoranir sem blasa við. Unnið er að því að fjölga í hópi flugumferðarstjóra til að tryggja að ekki verði skortur sem komi niðu...

#151 – Icelandair vill kaupa 49% í flugfélaginu Fly Play Europe á Möltu – meiri sveigjanleiki og ný tækifæri segir forstjórinn - Bogi Nils Bogason 01.04.2026

Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af viljayfirlýsingu sem félagið hefur skrifað undir um að hefja viðræður um möguleg kaup á 49% hlut í félaginu Fly Play Europe, sem er skráð á Möltu og er með flugrekstrarleyfi þar. Félagið var stofnað af íslenska flugfélaginu Play þegar það var í rekstri og er í eigu íslenskra fjárfesta, þar á meðal lífeyrissjóða. Bogi Nils fer yfir hve...

#150 - Mikil eftirspurn eftir Grænlandsflugi Norlandair – 7 flugvélar í rekstri og tækifærin mörg – þörf á uppbyggingu víðar en í Keflavík – Arnar Friðriksson 30.03.2026

Rætt er við Arnar Friðriksson framkvæmdastjóra flugfélagsins Norlandair um starfsemi félagins sem er með höfuðstöðvar sínar á Akureyri. Félagið er með 7 flugvélar í rekstri og flug félagsins er gríðarlega mikilvægt ekki bara fyrir Akureyringa heldur landsmenn alla. Félagið er með sjúkraflugsvakt allan sólarhringinn allt árið um kring, sinnir áætlunarflugi innanlands og síðast en ekki síst sinnir þ...

#149 – Rétt þjálfun, hæfni og skilningur flugmanna getur skilið á milli feigs og ófeigs segir „guðfaðir” UPRT þjálfunar. Sj´álfvirkni, háþróuð kerfi og minna handflug kalla á nýjan nálgun í þjálfun – Dr. Sunjoo Advani 23.03.2026

Í þættinum er rætt við Dr. Sunjoo Advani forstjóra og stofnanda IDT (International Development of Technology) sem Boeing hefur kallað guðfaðir UPRT (Upset Prevention and Recovery Training) þjálfunar í heiminum. Tilefni heimsóknar Dr. Sunjoo til Íslands að þessu sinni er samstarf IDT og þjálfunardeildar Icelandair. Hann segir að rétt þjálfun flugmanna sé meginatriðið í að koma í veg fyrir slys eins...

#148 – Ólíklegt að eignir þrotabús flugfélagins Play dugi fyrir forgangskröfum uppá um 1 milljarð – kröfurnar í heild um 20 milljarðar - Arnar Þór Stefánsson 19.03.2026

Rætt er við Arnar Þór Stefánsson hæstaréttarlögmann og skiptastjóra þrotabús flugfélagsins Play. Farið er yfir stöðuna í þrotabúinu eftir fall félagsins og þá vinnu sem skiptastjórar hafa unnið til þessa. Heildarkröfur í þrotabúið nema um 20 milljörðum króna, eignir eru afar takmarkaðar og þess vegna ólíklegt er að fáist upp í forgangskröfur. Rætt er um skuldabréfaútboð Play skömmu fyrir gjaldþrot...

#147 – Mildi að varaflugvellirnir virkuðu þann 26. febrúar 2026 – samantekt um veðrið, flugreksturinn, flugvellina og fólkið - Einar Sveinbjörnsson, Ásgeir Gunnar Stefánsson og Sigrún Björk Jakobsdóttir 04.03.2026

Í þættinum er fjallað um atburðina þann 26. febrúar þegar veðurskilyrði í Keflavík breyttust undraskjótt sem olli því að margar farþegaþotur og fleiri flugvélar urðu frá að hverfa og neyddust til að lenda á sínum varaflugvöllum í Reykjavík og á Akureyri og á Egilsstöðum. Varaflugvellirnir sönnuðu svo sannarlega gildi sitt þennan dag og á allt starfsfólk í fluginu sem að kom mikið hrós skilið fyrir...

#146 – Komu til Afríku áður en þau komu til Akureyrar. Flugsystkynin Anna María og Róbert Magnús spjalla um ferilinn og Air Atlanta sem er að fá 19. breiðþotuna og þjálfa nýja flugmenn. - Anna María Kristmundsdóttir og Róbert Magnús Kristmundsson. 27.02.2026

Gestir þáttarins eru systkynin Anna María og Róbert Magnús Kristmundsbörn sem hafa bæði áratuga reynslu úr flugheimunum, hún sem flugfreyja og hann sem flugstjóri. Bæði fengum þau “flugbakteríuna” í vöggugjöf því faðir þeirra Kristmundur Magnússon var loftskeytamaður og síðar flugstjóri fyrir ýmis flugfélög víðs vegar um heiminn. Anna María hóf sinn feril í fluginu hjá Air Atlanta en starfar í dag...

#145 - Skipulagsvald borgarinnar yfir Reykjavíkurflugvelli í öngstræti. Borgin vill starfsemina burt 2032 án tillits til þjóðarhagsmuna. Spjallað við Njál Trausta alþingismann um innanlandsflugvellina, samgönguáætlun o.fl. - Njáll Trausti Friðbertsson 19.02.2026

Í þættinum er rætt við Njál Trausta Friðbertsson alþingismann og flugumferðarstjóra um ýmis atriði sem tengjast fluginu í nýrri samgönguáætlun og nú er í meðförum Alþingis. Njáll Trausti hefur fylgst vel með flugmálum á síðustu árum og verið ötull talsmaður uppbyggingar á flugvöllum landsins, einkum til að auka flugöryggi. Í nýlegri umsögn Reykjavíkurborgar um samgönguáætlun er varað við allri upp...

#144 – Heillaðist af fluginu og stýrir nú flugumferð á Reykjavíkurflugvelli. Vill efla samtalið við flugmenn til að auka skilning milli hópa. Aníta Eik Kjartansdóttir 14.02.2026

gestur þáttarins er Aníta Eik Kjartansdóttir en hún lauk námi í flugumferðarstjórn árið 2024 og starfar í dag í turninum á Reykjavíkurflugvelli. Hún heillaðist snemma af fluginu og segir í þessum þætti frá flugumferðarstjóranáminu og uppbyggingu þess. Þá fer hún yfir ýmislegt sem tengist starfinu í dag og gefur þannig hlustendum smá innsýn í starf flugumferðarstjórans í turninum á Reykjavíkjurflug...

#143 – Margt jákvætt í rekstri Icelandair þrátt fyrir tap uppá 1,2 milljarða eftir skatta í fyrra. Umhverfisskattar og gjöld um 5 milljarðar hjá Icelandair 2025. Töf er á afhendingu hjá Airbus og lausir kjarasamningar skapa óvissu. Bogi Nils Bogason 06.02.2026

Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af uppgjöri félagisns fyrir árið 2025 sem nú er búið að birta. Þrátt fyrir sterkan fjórða ársfjórðung, góða stundvísi og góða sætanýtingu hjá félaginu þá er niðurstaðan sú að EBIT tapið nam 2,2 milljörðum króna og tap eftir skatta um 1,2 milljörðum. Rætt er um stöðu félagsins og horfurnar framundan, umhverfisskatta, kjarasamninga, flotam...

#142 - Ferðarof eða raskanir á flugi eru flugfélögunum dýr – AVILABS er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki sem þjónar flugfélögum um allan heim þegar flug raskast – varð til eftir fall WOW og stækkar hratt – Sveinn Akerlie 22.01.2026

Rætt er við Svein Akerlie stofnanda og forstjóra Avilabs sem er öflugt íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki og sérhæfir sig í þjónustu við farþega þegar raskanir verða á flugi eða það sem kallast ferðarof. Í desember s.l. urðu raskanir á meira en 700 þúsund flugferðum vítt og breitt um heiminn sem kallar á skjóta úrlausn mála fyrir milljónir farþega og þar liggur markaðurinn fyrir lausnir frá AVILABS. Kos...

#141 – Áramótaspjall – rætt um fréttir og viðburði í fluginu á árinu 2025 og hvað sé framundan á nýju ári – Kristján Már Unnarsson og Matthías Sveinbjörnsson fara yfir málin. 10.01.2026

Þáttur #141 er kominn í loftið. Í þessum áramótaþætti er farið yfir ýmsar helstu fréttir úr fluginu á árinu 2025 og spáð í útlit og horfur fyrir 2026. Gestir þáttarins þekkja vel til í flugmálum þeir Kristján Már Unnarsson fréttamaður og Matthías Sveinbjörnsson forseti Flugmálafélags Íslands. Rætt er um Icelandair og flotamálin, fall Play og fækkun flugfélaga, nýjan ráðherra flugmála, pólitíkina k...

#140 Gamlársdagur á Reykjavíkurflugvelli – spjallað við nokkra flugmenn á rölti um Fluggarða á síðasta degi ársins 2025. 02.01.2026

Þáttur #140 var tekinn upp á gamlársdag 2025 í Fluggörðum, en rík hefð er fyrir því að flugklúbbar þar eins og víðar á landinu bjóði gestum í kaffi og kökur í lok ársins. Í veðurblíðunni voru líka margir sem nýttu daginn til að viðra sig og fara í flugtúr. Viðmælendur (sem voru óvænt teknir tali) í þessum þætti eru: Bragi Sigþórsson hjá Flugskóla Reykjavíkur, Einar Dagbjartsson flugstjóri á TF-KAF...

#139 – Farþegum um KEF fækkar annað árið í röð – tengifarþegum fækkar mest – forstjóri ISAVIA vill halda dampi í gegnum lægðina og vera tilbúinn þegar farþegum fjölgar á ný - Sveinbjörn Indriðason 23.12.2025

Rætt er við Sveinbjörn Indriðason forstjóra ISAVIA um reksturinn á Keflavíkurflugvelli í tilefni af nýrri farþegaspá fyrir árið 2026. Spáin gerir ráð fyrir töluverðri fækkun farþega um völlinn og munar þar mestu um 15% færri tengifarþega. Sveinbjörn segir að þessi fækkun muni hægja á framkvæmdum á vellinum, tekjurnar minnki á sama tíma og kostnaður hækkar sem hefur áhrif á afkomuna. Hann leggur sa...

#138 – Icelandair auglýsir eftir flugmönnum – margar umsóknir nú þegar og félagið mun geta valið úr hópi reynslumikilla flugmanna - Linda Gunnarsdóttir 18.12.2025

Rætt er við Lindu Gunnarsdóttur yfirflugstjóra Icelandair um fyrirhugaðar ráðningar flugmanna í millilandaflug félagsins. Á annað hundrað flugmenn misstu vinnuna þegar Play fór í þrot í haust og nú auglýsir Icelandair eftir fólki með reynslu á þotu. En hvað á að ráða marga og hvaða vélum eiga þeir að fljúga? Linda svarar þessum spurningum og fleirum í þættinum þar sem farið er stuttlega yfir ferli...

Listen to the Flugvarpið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.