Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Flugvarpið

News IS ↓ 162 episodes

Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.

Author

Jóhannes Bjarni Guðmundsson

Category

News

Podcast website

soundcloud.com

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

#137 – Fékk fyrsta flugmannsstarfið á þotu hjá Icelandair, en valdi að snúa aftur heim og flýgur nú hjá KLM út frá Schiphol. Spjallað um flugmannsstarfið hér og þar - Lennart Keizer 15.12.2025

Rætt er við Lennart Keizer flugmann á Boeing 737 hjá KLM, en hann byrjaði sinn flugmannsferil hjá Icelandair árið 2017 þegar Icelandair réð nokkurn hóp erlendra flugmanna til starfa hjá félaginu. Lennart flutti aftur til heimalandsins í fyrra þegar honum bauðst vinna hjá KLM og er í dag með heimahöfn á Schiphol í Amsterdam, þar sem viðtalið var tekið upp. Lennart lærði flugvirkjun og verkfræði og...

#136 – Það gerist all mannlegt um borð í flugvél og farþegarnir ekki alltaf á leið í skemmtiferð – þakklát fyrir draumastarfið sem flugfreyja í nær hálfa öld - Björg Jónasdóttir 08.12.2025

Rætt er við Björgu Jónasdóttur fyrrverandi flugfreyju hjá Icelandair, Flugleiðum og þar áður Loftleiðum um flugfreyjustarfið og ýmsa atburði á hennar langa og fjölbreytta flugferli. Björg hóf störf árið 1972 þegar hún var aðeins tvítug að aldri. Hún segir meðal annars frá fyrstu flugferðunum á DC-8, lærdómsferlinu að vinna í pílagrímaflugi á sjöunda áratugnum, leiguflugi á ýmsum fáförnum og framan...

#135 - Vinir Gunnfaxa – landssöfnun til að koma þristinum Gunnfaxa á samgöngusafnið á Skógum – Snorri og Jón Karl Snorrasynir 30.11.2025

Rætt er við bræðurna Snorra og Jón Karl Snorrasyni um landssöfnun sem nú er í gangi til að bjarga flugvélaflaki þristsins Gunnafaxa af Sólheimasandi. Þeir bræður hafa á undanförnum vikum unnið að verkefninu ásamt Ólafi Eggertssyni bónda á Þorvaldseyri. Gunnfaxi var í eigu Þristavinafélagsins og hafði verið í geymslu í skýli á Keflavíkurflugvelli um árabil. Eigendafélag Sólheimasands keypti vélina...

#134 – Dýrkeyptur metnaður Evrópu í loftlagsmálum – Ísland ber langhæsta kostnað allra landa í Evrópu sem kemur illa niður á íslenskum flugrekstri - Heiða Njóla Guðbrandsdóttir 25.11.2025

Rætt er við Heiðu Njólu Guðbrandsdóttur verkfræðing og forstöðumann hjá Icelandair um þann gríðarlega kostnað sem fellur á íslensk flugfélög í formi umhverfisskatta- og gjalda, en hún er sérfræðingur í margs konar kerfum sem sett hafa verið á flugfélögin í nafni loftlagsmála. Heiða Njóla útskýrir í þættinum hvernig ETS viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir virkar og hver þróunin he...

#133 – Hagur allra að rekstur Icelandair verði arðbær aftur segir flugmaðurinn og fyrrum forstjóri Play sem nú er framkvæmdastjóri flugrekstrar Icelandair – Arnar Már Magnússon 20.11.2025

Rætt er við Arnar Má Magnússon nýjan framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs Icelandair, en hann tók nýlega við stöðunni samhliða skipulagsbreytingum sem gerðar voru hjá félaginu til að einfalda yfirstjórnina. Arnar Már er atvinnuflugmaður og hefur að auki langa reynslu af flugrekstri. Hann var forstjóri Play og einn af stofnendum þess, var yfirflugstjóri og flugrekstrarstjóri hjá WOW og þar áður starf...

#132 – Alvarleg flugatvik geta verið undanfari slysa – rætt um flugslysarannsóknir og rýnt í alvarlegt atvik yfir Íslandi sem draga má mikinn lærdóm af - Ragnar Guðmundsson 12.11.2025

Rætt er við Ragnar Guðmundsson flugvélaverkfræðing og rannsakanda hjá flugsviði Rannsóknarnefndar samgönguslysa um fjölgun alvarlegra flugatvika á síðustu árum. Þá hefur fjölgun alvarlegra flugumferðaratvika á síðustu misserum orðið tilefni til sérstakrar umræðu á fundum RNSA og Samgöngustofu og ýmsar tillögur í öryggisátt eru þegar komnar til framkvæmda. Ragnar hefur starfað í yfir 25 ár í flugin...

#131 – Getur vont skap valdið flugslysum? Spjall um andlega heilsu og flugöryggi - Jóhann Pétur Wium Magnússon 31.10.2025

Rætt er við Jóhann Pétur Wium Magnússon flugsálfræðing í tilefni af áhugaverðu erindi hans á flugöryggisráðstefnunni Reykjavik Flight Safety Symposium sem haldin var nýverið. Geðheilbrigðismál hafa á síðustu árum fengið meiri athygli í fluginu eins og víða annars staðar. Nýjar reglur hafa verið settar um eftirlit og flugrekendum einnig gert að hafa úrræði til staðar fyrir sitt starfsfólk. Jóhann P...

#130 – Nauðsynlegt að snúa við ósjálfbærum rekstri Icelandair – vonbrigði eftir Q3 og útlit fyrir tap af árinu í heild - Bogi Nils Bogason 23.10.2025

Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af uppgjöri félagsins eftir fyrstu 9 mánuði ársins 2025. Þrátt fyrir auknar tekjur og ýmis jákvæð teikn í rekstrinum olli rekstrarniðurstaðan vonbrigðum og spáð er tapi á rekstri félagsins í árslok. Eftir 8 ár af ósjálfbærum rekstri segir forstjórinn nauðsynlegt að snúa rekstrinum við eigi síðar en á næsta ári. Hann segir nauðsynlegt að...

#129 - Flugvarpið 5 ára - upptaka frá afmælisviðburði í Sykursalnum 14. október 2025. 18.10.2025

Hér er á ferðinni upptaka frá afmælisviðburði Flugvarpsins í tilefni af 5 ára afmæli hlaðvarps Íslendinga um flugmál. Ljúfir tónar jasskvintetts Jóns Harðar flugstjóra tóku á móti gestum og á sviðinu var tekið hressilegt spjall um flugmálin við nokkra frábæra viðmælendur og sögur sagðar. Fyrst stigu á sviðið tveir menn sem hafa með orðum og gerðum verið mikið í umræðunni síðustu vikurnar, þeir Jón...

#128 – PLAY á Íslandi gjaldþrota – tilfærslan til Möltu og breytt staða á flugmarkaðnum - Hans Jørgen Elnæs 04.10.2025

Rætt er við norska flugreinandann Hans Jørgen Elnæs um gjaldþrot Play og síbreytilega stöðu á flugmarkaðnum í Evrópu. Hann segir það hafa komið á óvart að Play hafi farið í þrot svo skömmu eftir endurfjármögnun íslenska félagsins. Markaður fyrir Airbus flugvélar af þeirri gerð sem Play notaði er góður að mati Hans Jørgen og verður forvitnilegt að sjá hvaða leiðir eru færar fyrir leigusala vélanna...

#127 –Flugfélagið Bláfugl gjaldþrota eftir margra ára dómsmál – átakamálin sum svipuð og í umræðunni núna um fall PLAY. Karl Ó. Karlsson lögmaður fer yfir ýmsa anga í Bláfuglsmálinu. 30.09.2025

Rætt er við Karl Ó. Karlsson lögmann FÍA og sérfræðing í vinnurétti um áralangar deilur Bláfugls og Félags íslenskra atvinnuflugmanna fyrir dómstólum, eftir að 11 flugmönnum Bláfugls var sagt upp störfum og verktakaflugmenn ráðnir í þeirra stað á mun lægri kjörum. Bláfugl skilaði inn íslensku flugrekstrarleyfi árið 2024 og var lýst gjaldþrota fyrr á þessu ári. Karl segir frá stöðu málsins núna og...

#126 – Nauðlendingin á Sólheimasandi enn í fersku minni, segir flugmaðurinn Gregory Fletcher. Ótrúlegt afrek að svífa ísaðri Douglas vélinni langa leið og lenda giftusamlega á sandinum. 23.09.2025

Rætt er við Gregory Fletcher flugmanninn sem nauðlenti Douglas C-117D flugvél bandaríska sjóhersins á Sólheimasandi í nóvember 1973. Fletcher sótti Ísland heim nýverið og fór þá á staðinn aftur í fyrsta sinn í rúma hálfa öld. Af því tilefni sló Flugvarpið á þráðinn til hans, til að heyra hans sögu af þessu einstaka afreki þar sem Douglas vélinni var svifið úr erfiðum veðurskilyrðum yfir Vatnajökli...

#125 – Íslenskt hugvit í þróun nýrra tæknilausna á flugvöllum – bylting í nýrri hönnun flugbrautarljósa - Velocity Airport Solutions - Frosti Heimisson 16.09.2025

Rætt er við Frosta Heimisson eiganda og framkvæmdastjóra Velocity Airport Solutions sem hefur náð eftirtektarverðum árangri í að hanna ljósabúnað fyrir flugvelli. Frosti á sinn bakgrunn í fluginu hérlendis, starfaði um tíma hjá ISAVIA og TERN og hefur á síðustu árum náð að hasla sér völl í fremstu röð þeirra sem geta boðið nýstárlegar lausnir fyrir margs konar tæknibúnað á flugvöllum. Fyrirtæki ha...

#124 - Þjálfunaraðstaða á heimsmælikvarða – nýr Airbus 320 flughermir kominn í gagnið í þjálfunarsetrinu í Hafnarfirði – Ásgeir Bjarni Lárusson 04.09.2025

Rætt er við Ásgeir Bjarna Lárusson framkvæmdastjóra CAE Icelandair training í Hafnarfirði um breytingar á starfseminni í tengslum við nýjan flughermi af gerðinni Airbus 320. Nýi hermirinn hefur nú hlotið alla formlega vottun frá eftirlitsaðilum og er tilbúinn til notkunar. Ásgeir Bjarni fer yfir þetta ferli og segir frá öflugri starfsemi í þjálfunarsetrinu sem hann hefur stýrt síðustu árin, en han...

#123 – Styrkur KEF að njóta velvildar nærsamfélagsins - áskorun að taka við síauknum fjölda farþega og samtímis að bæta þjónustuna - Anna Björk Bjarnadóttir 30.08.2025

Rætt er við Önnu Björk Bjarnadóttur framkvæmdastjóra þjónustu og rekstrar ISAVIA á Keflavíkurflugvelli en undir hennar svið falla mörg fjölbreytt verkefni á flugvellinum. Má þar nefna hreinsun og viðhald flugbrauta, turninn í Keflavík, öryggisleit, flugvernd og margs konar þjónusta við farþega. Anna Björk fer í þættinum vítt og breitt yfir verkefnin í Keflavík og hvernig ISAVIA hefur breytt sinni...

#122 – Oft erfið aðkoma að slysstað þar sem vinir manns höfðu farist - brautryðjandi í flugslysarannsóknum á Íslandi– Skúli Jón Sigurðarson 23.08.2025

Í þættinum er rætt við Skúla Jón Sigurðarson sem var brautryðjandi í flugslysarannsóknum á Íslandi um áratuga skeið. Hann vann ötullega að flugöryggismálum í gegnum störf sín hjá Flugmálastjórn Íslands þar sem hann hóf störf árið 1965 og tók síðar þátt í að setja á fót Rannsóknarnefnd flugslysa. Í um 35 ár vann Skúli Jón fórnfúst starf í að rannsaka orsakir næstum allra flugslysa sem urðu hérlendi...

#121 – Ísland hefur gefið mér allt segir Jose flugstjóri hjá Atlanta sem kom frá Hondúras til Íslands og lærði flug – Jose Alvarado 15.08.2025

Rætt er við Jose Alvarado flugstjóra hjá Air Atlanta í þessum þætti, en hann á stómerkilega sögu að baki og hefur á sinni starfævi unnið fyrir fjölda flugfélaga um allan heim og einnig fyrir öll stærstu íslensku flugfélögin, Icelandair, WOW, Play og Air Atlanta. Jose segir frá uppruna sínum og fjölskylduaðstæðum í Hondúras þaðan sem hann flutti ungur að árum ásamt íslenskri kærustu og saman fengu...

#120 – Útköll í fjölbreytt og krefjandi verkefni í þyrlusveit Landhelgisgæslu Íslands – samhent sveit sem í eru 12 flugmenn og þar af er ein kona - Brynhildur Ásta Bjartmarz 08.08.2025

Brynhildur Ásta Bjartmarz þyrluflugmaður segir hér frá ýmsum áhugaverðum hliðum á starfinu en hún er eina konan í 12 manna hópi þyrluflugmanna Landhelgisgæslu Íslands. Hún segir frá nokkrum af þeim fjölbreyttu verkefnum sem hún og kollegar hennar í flugsveit LHG fást við, ræðir kosti og galla vinnunar og fer yfir ýmis erfið útköll sem hún hefur tekist á við. Brynhildur hefur líka starfað að kjaras...

#119 – Takmarkanir í flugstjórnarþjónustu ISAVIA í sumar vegna manneklu – flugumferðarstjórar þrýsta á nýjan kjarasamning - Arnar Hjálmsson formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra fer yfir stöðuna 31.07.2025

Rætt er við Arnar Hjálmsson formann Félags íslenskra flugumferðarstjóra um stöðu mála í stéttinni. Nokkuð hefur verið um tafir í flugumferð í sumar vegna manneklu á starfsstöðvum flugumferðarstjóra þegar ekki fæst fólk í aukavinnu. Síðasti kjarasamningur flugumferðarstjóra rann út í upphafi þessa árs og deilan er hjá ríkissáttasemjara. Arnar segist samt vongóður um að úr þessari stöðu rætist fljót...

#118 – Ástríða fyrir starfinu einkennir fólk í fluginu segir framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Icelandair – góð stundvísi (OTP) er eftirsóknarverð og gefur sýn á hvernig reksturinn gengur en flugöryggið er í fyrsta sæti - Sylvía Kristín Ólafsdóttir 14.07.2025

Rætt er við Sylvíu Kristínu Ólafsdóttur framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Icelandair sem er lang fjölmennasta og stærsta svið innan fyrirtækisins. Undir hennar stjórn hefur náðst góður árangur á mörgum sviðum rekstrarins eins og að lækka einingakostnað, framúrskarandi stundvísi og vel heppnuð innleiðing á Airbus flugvélum. Eins og venjulega eru stöðugt nýjar áskoranir í rekstrinum bæði hér heima og e...

#117 – Flugmálaráðherra í spjalli - vill efla Ísland sem flugþjóð og bæta samkeppnishæfni íslenskra flugfélaga – stendur vörð um Reykjavíkurflugvöll og vill nýja flugstöð – Eyjólfur Ármannsson 04.07.2025

Rætt er við Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra og ráðherra flugmála á Íslandi. Farið er vítt og breitt yfir sviðið um málefni flugsins og m.a. rætt um varaflugvallagjaldið og uppbyggingu flugvallakerfisins, málefni innanlandsflugsins og Reykjavíkurflugvallar, ISAVIA og uppbyggingu í Keflavík, menntamál flugsins og almennt um stefnu stjórnvalda í þessari stóru atvinnugrein okkar. Eyjólfur hefur vaki...

#116 - Flugnámið – olnbogabarn í íslensku menntakerfi en breytingar í vændum – Anna Elvíra Herrera Þórisdóttir og Haukur Gunnarsson 19.06.2025

Rætt er við Önnu Elvíru Herrera Þórisdóttur og Hauk Gunnarsson um stöðu atvinnuflugnáms á Íslandi. Námið hefur um langt skeið verið olnbogabarn í kerfinu og menntunin ekki verið metin að neinu leyti til eininga á háskólastigi eins og víða tíðkast í skólum í nágrannalöndunum. Nú hillir undir breytingar og allt útlit fyrir að Háskólinn á Bifrös muni í fyrsta sinn bjóða nám þar sem atvinnuflugmannssk...

#115 – Svífa hljóðlaust um loftin blá undir afli náttúrunnar - Svifflugið er heillandi sport, ódýrt en krefjandi - Steinþór Skúlason og Stefán Árni Þorgeirsson 11.06.2025

Svifflugfélag Íslands stendur fyrir kynningarátaki til að vekja athygli á Sviffluginu og hvetja fólk til að prófa þetta stórmerkilega sport. Félagið býr að glæsilegri aðstöðu uppi á Sandskeiði rétt austan við Reykjavík. Í þættinum er rætt við svifflugmennina Steinþór Skúlason og Stefán Árni Þorgeirsson um þetta merkilega og sögulega sport, aðstöðuna á Sandskeiði og farið er yfir ýmis praktíst atri...

#114 – Flugsumarið - flugsýningar, viðburðir, vélflugið og nauðsynleg endurnýjun í grasrót flugsins – Matthías Sveinbjörnsson og Steinunn María Sveinsdóttir 06.06.2025

Rætt er við þau Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélags Íslands og Steinunni Maríu Sveinsdóttur safnstjóra Flugsafns Íslands á Akureyri um flugsýningar og ýmsa fjölbreytta viðburði sem eru á döfinni í sumar bæði fyrir sunnan og norðan. Farið er yfir margs konar fjölbreytt starf í grasrót flugsins um allt land og hvernig margir vinna gríðarlega mikið og óeigingjarnt starf til að viðhalda og...

#113 – Play umbyltir rekstrinum með nýju flugrekstrarleyfi á Möltu – kjarasamningar í höfn við flugmenn – Andri Geir Eyjólfsson 02.06.2025

Rætt er við Andra Geir Eyjólfsson framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs Play um nýtt rekstrarmódel félagsins sem nú er að taka á sig mynd í kjölfar þess að félagið fékk nýtt flugrekstrarleyfi á Möltu. Þar fetar Play í fótspor margra annarra flugfélaga sem nýta sér hagstæðara rekstrarumhverfi á Möltu og samnýta um leið fólk og tæki á milli flugfélaganna. Play hefur nýlega náð kjarasamningum við flugme...

Listen to the Flugvarpið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.