Jóhannes Bjarni Guðmundsson
Flugvarpið
Fjallað er um flugmál á Íslandi, viðburði, málefni og áhugavert fólk tekið tali. Jói Baddi hefur langa reynslu sem atvinnuflugmaður og flugkennari og starfaði einnig um tíma við fjölmiðla. Flugvarpið er þannig góður farvegur til að sameina þetta tvennt - flugið og fjölmiðlun.
Author
Jóhannes Bjarni Guðmundsson
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 8, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
#112 – Langtímamarkmið í uppbygginu flugáætlunar Icelandair – flotabreytingar, árstíðarsveiflan og þróun KEF sem tengimiðstöðvar – Tómas Ingason 02.05.2025 1:23:18
Í þættinum er rætt við Tómas Ingason framkvæmdastjóra tekju-, þjónustu- og markaðssviðs Icelandair. Nú fer í hönd umfangsmesta áætlun í sögu félagsins og markmiðið er að draga úr árstíðarsveiflunni og auka flugið utan háannatíma. Tómas fer hér m.a. yfir þá breytingu sem er að verða á félaginu með nýjum og langdrægari flugflota, samkeppnina við bæði stóru flugfélögin yfir Atlantshafið og ekki síður...
#111 - Reykjavíkurflugvöllur undir hæl borgarinnar – nýjar skipulagsreglur í vinnslu – borgin vill einkaþotur og þyrlur burt og takmörk í starfsleyfið – Viðar Jökull Björnsson flugvallarstjóri BIRK. 28.04.2025 52:14
Í þessum þætti er rætt við Viðar Jökul Björnsson flugvallarstjóra á Reykjavíkurflugvelli og umdæmisstjóra ISAVIA á Suðurlandi. Á Reykjavíkurflugvelli vinna hundruð manna í sérhæfðum störfum. Völlurinn er miðstöð fyrir Landhelgisgæslu Íslands og er mikilvægasti völlurinn fyrir sjúkraflug í landinu ásamt því að gegna hlutverki sem varaflugvöllur og þar er líka miðstöð fyrir kennsluflug og einkaflug....
#110 – „Það verður að vera vit í vitleysunni“ – Sögur af STOL operation á Grænlandi og ræningjunum með rauða stélið – Jóhann Skírnisson 17.04.2025 3:34:32
Rætt er við Jóhann Skírnisson fyrrverandi flugstjóra hjá Flugfélagi Norðurlands FN, og síðar Flugfélagi Íslands. Hann rifjar upp magnaðar sögur af STOL (Short Take Off and Landing) flugi á Grænlandi þar sem oft var farið að ystu mörkum bæði flugvéla og manna til að láta hlutina ganga upp. Í STOL flugi var flogið á mjög lágum hraða í lítilli hæð og því lítið rúm fyrir mistök eða ónákvæmni. Jóhann e...
#109 – WOW air var í raun löngu gjaldþrota – 6 ár frá falli flugfélagsins – Stefán Einar Stefánsson 20.03.2025 59:00
Rætt er við Stefán Einar Stefánsson rithöfund og blaðamann á Morgunblaðinu um fall WOW air, en um þessar mundir eru 6 ár liðinn frá því félagið fór í þrot. Stefán Einar hefur á síðustu vikum skrifað áhugaverðar greinar um síðustu mánuðina fyrir fall félagsins sem varpa nýju ljósi á atburðarásina. Stefán Einar er einnig höfundur bókarinnar WOW Air – ris og fall flugfélags sem kom út skömmu eftir að...
#108 – VAFFÞOTAN - Bylting í hönnun farþegaþotu – „Blended wing-body aircraft“ – Nína Jónsson – síðari hluti. 13.03.2025 51:39
Hér fer síðari hluti viðtals við Nínu Jónsson varformann stjórnar Icelandair Group um feril hennar hjá sumum af stærstu flugfélögum heims. Nína er ráðgjafi hjá Jetzero í Kaliforníu þar sem unnið er að byltingarkenndu þróunarverkefni um smíði nýrrar gerðar farþegaþotu sem kölluð er „blended wing-body aircraft“ eða vaffþotan. Nína segir að þarna gæti komið vélin sem Boeing ákvað á sínum tíma að smíð...
#107 - Fædd inn í flugið í Lúx og hefur staðið í stafni stærstu flugfélaga heims – varaformaður Icelandair Group – Nína Jónsson – Fyrri hluti. 12.03.2025 1:03:04
Rætt er við Nínu Jónsson varaformann stjórnar Icelandair Group en hún á að baki langan og stórmerkilegan feril í fluginu. Nína ólst upp í iðandi flugævintýri Íslendinga í Lúxemborg á áttunda áratugnum og fór í framhaldi af því til Bandaríkjanna að læra til atvinnuflugmanns. Fjöldagjaldþrot flugfélaga varð til þess að hún hélt áfram námi og lauk MBA gráðu frá Rensselaer Polytechnic Institute og B.S...
#106 – Leiguflugið – Air broker Iceland – Næg verkefni og vantar flugvélar - Ásgeir Örn Þorsteinsson og Einar Hermannsson 07.03.2025 38:02
Rætt er við Ásgeir Örn Þorsteinsson og Einar Hermansson sem eiga og stýra nýju fyrirtæki sem heitir Air broker Iceland og er leigumiðlun með flugvélar og þyrlur. Þeir hafa báðir langa og miklar reynslu í störfum við flugið hérlendis síðustu áratugina sem nýtist vel í að afla og sinna margvíslegum leiguverkefnum fyrir kúnna hvaðanæva úr heimunum. Þeir segja verkefnin vera margvísleg og eftirspurnin...
#105 – Þakklátur fyrir áratuga feril í björgunar- sjúkra og eftirlitsflugi – Jakob Ólafsson 04.03.2025 1:17:15
Jakob Ólafsson fyrrverandi flugstjóri á þyrlum og flugvélum Landhelgisgæslunnar segir hér frá ýmsu áhugaverðu sem á daga hans dreif á áratugaferli sem atvinnuflugmaður, lengst af í björgunar- og sjúkraflugi fyrir Landhelgisgæslu Íslands og síðustu árin í gæsluflugi fyrir Frontex. Jakob var einnig flugmaður um tíma hjá flugfélaginu Erni á Ísafirði um það leyti þegar hörmuleg slys urðu hjá félaginu...
#104 – PLAY breytir um kúrs – ætla snúa við taprekstri með útleigu véla og nýjum áherslum í KEF– Einar Örn Ólafsson 25.02.2025 1:03:16
Rætt er við Einar Örn Ólafsson forstjóra lággjaldaflugfélagsins PLAY í tilefni af ársuppgjöri félagsins fyrir 2024. Tap af rekstrinum var rúmir 4 milljarðar króna á árinu en að teknu tilliti til niðurfærslu á yfirfæranlegu skattalegu tapi nemur heildartapið um 9 milljörðum. Forstjórinn er samt brattur fyrir komandi mánuði en segir það taka tíma að breyta kúrsinum á félaginu eins og boðað hefur ver...
#103 – Um flókið viðhald flugvéla – tæknisvið Iceair með verkefni í öllum heimsálfum – Leifur Guðmundsson 14.02.2025 1:07:18
Rætt er við Leif Guðmundsson tæknistjóra Icelandair en hann hefur starfað í tækni- og viðhaldsmálum í fluginu allt frá því hann lauk námi í flugvirkjun árið 1998. Flugflotinn sem tæknisvið Icelandair sinnir í dag telur yfir 50 flugvélar út um allan heim og verkefnin eru í öllum heimsálfum. Leifur segir hér m.a. frá því hvernig flókið viðhald á flugvélum er skipulagt, hvað fer í gang þegar flugvél...
#102- V-ONE - íslenskt hugvit í þjálfun flugmanna – Kristinn Páll Guðmundsson og Össur Brynjólfsson 08.02.2025 56:16
Rætt er við þá Kristinn Pál Guðmundsson og Össur Brynjólfsson sem stofnuðu ásamt þremur öðrum fyrirtækið V-ONE þegar kóvid gekk yfir. Stofnendur félagsins sem allir hafa yfirgripsmikla reynslu og þekkingu í þjálfun flugmanna settu á fót flugskóla til að þjónusta erlend flugfélög. Nú örfáum árum síðar hefur fyrirtækið markað sér gott orðspor á alþjóðlegum vettvangi og stærstu kúnnar þess eru flugfé...
#101 – Spá hagnaði í ár eftir tap á "24 – LIVE frá MidAtlantic í höllinni – Bogi Nils Bogason 31.01.2025 26:17
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair í tilefni af uppgjör félagsins fyrir árið 2024. Icelandair tapaði um 2,5 milljörðum króna á síðasta ári sem í takti við spá stjórnenda félagsins. Tekjur félagsins jukust um 10 af hundraði í fjórða ársfjórðungi og afkoman batnaði töluvert miðað við sama ársfjórðung 2023. Félagið spáir hagnaði á árinu 2025 uppá 5-8 milljarða króna, sem er þó töluver...
#100 – Hæðir og lægðir í fluginu - spjall við formann FÍA í tilefni dagsins – Jón Þór Þorvaldsson 26.01.2025 1:19:25
Rætt er við Jón Þór Þorvaldsson flugstjóra og formann í Félagi íslenskara atvinnuflugmanna í tilefni af þætti númer 100. Farið er vítt og breitt yfir sviðið og meðal annnars spjallað um stéttarfélagið, kjarasamninga framundan, Reykjavíkurflugvöll, pólitík og almennt um hæðir og lægðir í flugiðnaðinum. Jón Þór var nýtekinn við embætti formanns þegar ósköpin dundu yfir flugheiminn vegna kóvid farald...
#99 – Ný mið á nýjum flugvélum og framtíðin björt – ótækt ástand í RKV – Guðmundur Tómas Sigurðsson 15.01.2025 52:02
Rætt er við Guðmund Tómas Sigurðsson nýráðinn flugrekstrarstjóra Icelandair um ýmsar stórar áskoranir framundan í rekstrinum. Endurnýjun flugflota félagsins er hafin og nú þarf að ákveða hvort áfram eigi að reka breiðþotur eða eingöngu mjóþotur í framtíðarleiðarkerfi Icelandair. Guðmundur Tómas fer yfir óásættanlega stöðu á Reykjavíkurflugvelli og útskýrir hvers vegna hindranir í útreiknuðum flugf...
#98 – 2024 gert upp og spáð í 2025 – Örnólfur Jónsson og Matthías Sveinbjörnsson 03.01.2025 1:37:06
Í þessum áramótaþætti er farið yfir helstu fréttir úr fluginu á árinu 2024 og spáð í spilin fyrir 2025. Rætt er við tvo sérfræðinga í flugmálum; þá Matthías Sveinbjörnsson forseta Flugmálafélags Íslands sem jafnframt er verkfræðingur og fyrrum forstöðumaður tekjustýringar hjá Icelandair og Örnólf Jónsson flugstjóra og stjórnarmann í FÍA sem er líka hagfræðimenntaður og löggiltur endurskoðandi. Far...
#97 – Ekki í baksýnisspeglinum – yfirflugstjóri PLAY - stéttarfélagið ÍFF – Jóhann Óskar Borgþórsson 23.12.2024 1:08:17
Rætt er við Jóhann Óskar Borgþórsson flugstjóra hjá Play og fyrrverandi yfirflugstjóra félagsins, um hans merkilegan feril, starfið og breytingar framundan hjá Play. Eftir meira en áratug sem flugmaður og flugstjóri hjá Icelandair tók Jóhann Óskar stökkið árið 2017, sagði upp störfum og réð sig sem flugstjóra til Wow sem fór síðan í gjaldþrot tæpum tveimur árum síðar. Eftir það tók við ævintýri á...
#96 – Nýir tímar – Airbus í stað Boeing 757 hjá Icelandair – Kári Kárason 05.12.2024 46:29
Rætt er við Kára Kárason flugstjóra og „fleet chief“ á Airbus hjá Icelandair um nýju flugvélategundina. Fyrsta Airbus flugvélin í flota félagsins er nýkomin til landsins og von er á þremur til viðbótar fyrir vertíðina næsta sumar. Kári segir hér frá innleiðingarferlinu, þjálfunarmálum og ræðir um muninn á því að fljúga eldri Boeing flugvélum og hinni nýju Airbus.
#95 - Kosningafundur Flugmálafélags Íslands 2024 – samantekt 26.11.2024 2:19:27
Þáttur #95 er samantekt Flugvarpsins frá kosningafundi Flugmálafélags Íslands um flugmál sem haldinn var 19. nóvember 2024. Þar var fulltrúum frá framboðum til Alþingiskosninga boðið að mæta og skýra frá stefnu og áherslum sínum í flugmálum. Auk almennra stefnumiða í flugmálum voru framboðin spurð um menntamál flugsins, Reykjavíkurflugvöll og framtíð hans og rekstrarform ISAVIA svo eitthvað sé nef...
#94 – Sykursýkin og baráttan fyrir að fljúga – Þristavinir, Norlandair o.fl.– Tómas Dagur Helgason 18.11.2024 1:30:50
Tómas Dagur Helgason segir hér frá fjölbreyttum ferli í fluginu. Það varð honum mikið áfall að missa heilbrigðisvottorðið og þar með flugréttindin vegna sykursýki fyrir um áratug síðan, en hann hefur æ síðan barist ötullega fyrir því að fá reglum breytt í Evrópu í þá átt að heimila sykursjúkum að fljúga að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Hann hefur haldið ótrauður áfram í fluginu og flýgur í dag ei...
#93 – Lakari afkoma Iceair en bjartara framundan – Bogi Nils Bogason 23.10.2024 59:59
Rætt er við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair um uppgjör félagsins eftir fyrstu 9 mánuði ársins 2024. Tekjur félagsins dragast verulega saman og hagnaðurinn var tæpum tveimur milljörðum króna lakari miðað við sama tíma í fyrra eða 9,5 milljarðar. Bogi ræðir hér um síkvikar breytingar á samkeppnisumhverfinu í Keflavík, betri árangur í frakflutningum og góða afkomu af leiguflugi á vegum Loftlei...
#92 – Til taks - Þyrlusaga LHG – fyrstu 40 árin – Benóný, Júlíus og Páll. 16.10.2024 39:13
Rætt er við þá Benóný Ásgrímsson, Júlíus Ó. Einarsson og Pál Halldórsson en þeir eru höfundar nýrrar bókar sem heitir Til taks – þyrlusaga Landhelgisgæslu Íslands – fyrstu 40 árin. Í þættinum er farið yfir aðdraganda þess að þeir réðust saman í þessi skrif og stiklað á nokkrum þáttum úr efni bókarinnar.
#91 – Flugöryggismálin og RFSS – BIRK og Hvassahraunið - Jón Hörður Jónsson og Matthías Arngrímsson 06.10.2024 1:10:22
Flugöryggismál eru viðfangsefni þessa þáttar. Rætt er við þá Jón Hörð Jónsson formann Öryggisnefndar Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Matthías Arngrímsson skólastjóra Geirfugls og nefndarmann í ÖFÍA um ýmislegt sem hæst ber í flugöryggismálum um þessar mundir. Tilefnið er árleg flugöryggisráðstefna – Reykjavik Flight Safety Symposium sem haldin verður 10. október n.k. og í þættinum er tæpt á h...
#90 – Enn þrengt að Reykjavíkurflugvelli – bara hnignun og engar lausnir – Sigrún Björk Jakobsdóttir 28.09.2024 47:04
Sigrún Björk Jakobsdóttir er framkvæmdastjóri innanlandsflugvalla hjá ISAVIA og ræðir í þessum þætti um þau fjölmörgu verkefni sem hún er að fást við. Um innanlandsflugvellina á Íslandi fara um 700 þúsund farþegar á ári og þrátt fyrir smæðina er kerfið afar mikilvægt fyrir alla landsmenn, en um leið brothætt að sögn Sigrúnar. Hún gagnrýnir hvernig stöðugt er þrengt að Reykjavíkurflugvelli og skilu...
#89 – Umsvif Air Atlanta aldrei meiri - 17 breiðþotur um allan heim – Baldvin Már Hermannsson 14.09.2024 1:03:11
Rætt er við Baldvin Má Hermannsson forstjóra Air Atlanta um starfsemi fyrirtækisins og hvernig það hefur vaxið og dafnað á allra síðustu árum. Flugfélagið var eitt fárra sem var á fullu í covid faraldrinum og á undraskömmum tíma tókst að auka vægi fraktflugs mjög hratt þegar botninn datt úr farþegafluginu. Atlanta er í dag með 11 Boeing 747 breiðþotur í fraktflutningum um allan heim og að auki 6 B...
#88 - Stórframkvæmdir ISAVIA í KEF og farþegum fjölgar – Sveinbjörn Indriðason 05.09.2024 1:16:47
Rætt er við Sveinbjörn Indriðason forstjóra ISAVIA en fyrirtækið er í lykilhlutverki í flugmálum landsins með rekstri og uppbyggingu á innviðum fyrir flugið. Sveinbjörn fer yfir reksturinn á Keflavíkurflugvelli, áskoranir með auknum fjölda farþega, einkum tengifarþega, stórframkvæmdir og vöxtinn framundan þrátt fyrir að ferðamönnum til Íslands fjölgi minna en áætlanir gerðu ráð fyrir. Sala á fríhö...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.