Brotkast ehf.
Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir
Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter. Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Spjallið með Frosta Logasyni | S03E43 | Pólitísk rétthugsun hefur tekið mikið pláss á RÚV 21.11.2025 5:46
Ingvar Smári Birgisson, lögmaður og stjórnarmaður hjá Ríkisútvarpinu, hefur viðrað hugmyndir um að gerð yrði skoðun á hlutleysi RÚV. Í þessu viðtali ræðir hann um afhjúpanir á hlutdrægni BBC og ber saman hliðstæður í fjölmiðlum á Íslandi. Einnig ræðum við útlendingamál og tíma hans í dómsmálaráðuneytinu þegar hann var aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast...
Hluthafaspjallið | S02E36 | Hörð lending framundan í hagkerfinu? 20.11.2025 7:58
Þórður Pálsson, fjárfestingastjóri Sjóvár, fer yfir ástand og horfur í íslenska hagkerfinu í Hluthafaspjallinu með Sigurði Má Jónssyni í dag og telur vaxandi líkur á harðri lendingu í hagkerfinu. Það fari þó eftir því hvernig hlutirnir eru skilgreindir. Um leið er ástæða til þess að hafa áhyggjur af þróun á vinnumarkaði og hvort að samningar verði raunsæir í ljósi stöðunnar. Þórður vann um árabil...
Harmageddon | S03E61 | Svipmyndir minna á skuggalega þróun í nágrannaríkjum 19.11.2025 4:19
Það er eðlilegt að fólki sé brugðið við að sjá unga innflytjendur með vélbyssur í Reykjavík þegar fréttir af erlendum glæpagengjum á Norðurlöndunum hafa verið fyrirferðarmiklar að undanförnu. Þá er almenningur í aukna mæli farinn að átta sig á að veirufaraldurinn mikli hafi að miklu leyti verið byggður á blekkingum og áróðri en við skoðum nokkrar nýlegar afhjúpanir stórra fjölmiðla í Evrópu á þess...
Fullorðins | S02E33 | Hefur fengið sendar óumbeðnar klámfengnar myndir 18.11.2025 4:14
Ásgrímur Guðnason er grínisti, útvarpsmaður og pabbi sem kemur frá Vopnafirði. Í þætti dagsins fáum við að kynnast Ása betur en hann hefur orðið mjög vinsæll á samfélagsmiðlum á skömmum tíma. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Spjallið með Frosta Logasyni | S03E42 | Hvers vegna þurrkuðust Píratar útaf þingi? 18.11.2025 4:01
Björn Leví Gunnarsson, tölvunarfræðingur og fyrrverandi þingmaður Pírata, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann ræðir hér meðal annars um hvers vegna hann telur Pírata ekki hafa fengið stuðning kjósenda til að starfa á Alþingi Íslendinga í síðustu kosningum. Björn telur að mörg aðal mál pírata séu nú komin aftur í deigluna og nefnir þar til dæmis hamlandi lagasetningar í Evrópu se...
Blekaðir | S02E10 | Niklas 12.11.2025 2:41
Niklas er Íslandsvinur frá Svíþjóð sem hefur gestaflúrað hér reglulega í um áratug. Hann starfar einnig sem ljósmyndari og hefur ferðast víða um heim í báðum hlutverkum. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Harmageddon | S03E60 | Tilfærsla í starfi ekki afsögn 12.11.2025 11:29
Tilfærsla Sigríðar Bjarkar í starf sérfræðings í kynbundnum ofbeldismálum er sérstök í ljósi þeirrar staðreyndar að hún trúði ekki konum sem sögðu frá kynferðisofbeldi séra Ólafs Skúlasonar á sínum tíma. BBC skandallinn varpar ljósi á hvernig fjölmiðlar vilja stýra því hvernig við hugsum og hvað okkur finnst og það á ekki bara við í málefnum sem snúa að Donald Trump. Loftslagshysterían er einmitt...
Fullorðins | S02E32 | „Hef áreiðanlegar heimildir fyrir því að Páll Óskar sé að hugsa sinn gang“ 10.11.2025 2:03
Aðalbjörn Tryggvason er betur þekktur sem Addi í Sólstöfum. Hann ólst upp á Ísafirði og segir að lífið hafi verið allskonar. Í þættinum í dag segir hann okkur frá hvernig það hefur verið að fara frá því að vera „hardcore“ rokkari sem keðjureykti og drakk í að vera allsgáður rokkari sem lyktar af pachouli. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/ask...
Spjallið með Frosta Logasyni | S03E41 | Evrópa sofandi gagnvart menningarbyltingu Íslam 10.11.2025 5:15
Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrverandi vararíkissaksóknari, er hér í ítarlegu viðtali um langan feril sinn innan ákæruvaldsins. Hann starfaði lengi hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra þar sem hann tókst meðal annars við Baugsmálið umdeilda og síðar rak hann mörg af stærstu bankahrunsmálunum fyrir Hæstarétti. Hann ræðir umdeild ummæli, áminningar, starfslok og hvernig hann horfir á þróun Evróp...
Hluthafaspjallið | S02E35 | Áhugavert að fá Landsbankann og Landsvirkjun í skráningu 06.11.2025 4:45
Magnús Harðarson forstjóri Kauphallarinnar segir í samtali við Sigurð Má Jónsson að mikil tækifæri séu í skráningu ýmissa stærri fyrirtækja í eigu ríkisins og tiltekur þar sérstaklega Landsbankann og Landsvirkjun. Nú þegar flest fjármálafyrirtæki landsins eru skráð í kauphöllina er margt sem bendir til þess að það geti verið heppilegt að spegla rekstur Landsbankans við rekstur annarra fjármálafyri...
Spjallið með Frosta Logasyni | S03E40 | Loftslagsmetnaður stjórnmálamanna með óbærilegum kostnaði 06.11.2025 3:17
Frosti Sigurjónsson, fyrrverandi þingmaður, hefur á undanförnum misserum gagnrýnt harðlega þá stefnu sem Ísland hefur sett sér í samdrætti á svokölluðum gróðurhúsalofttegundum. Hann segir engu máli skipta hversu mikið Ísland leggur á sig í loftslags málum og bendir á að þó Ísland myndi hætta kolefnislosun með öllu þá gæti það ekki haft nein mælanleg áhrif á loftslagið. Í þessu áhugaverða viðtali f...
Harmageddon | S03E59 | Útskiptin miklu ekki samsæri heldur þróun 05.11.2025 7:13
Mannfjöldaspá hagstofunnar sýnir svo ekki sé um villst að íslenskri þjóð verður skipt út fyrir útlendinga á nokkrum áratugum. Til að bregðast við þessu er nú farið að tala um aðflutta Íslendinga í stað útlendinga. En er þetta raunverulega það sem fólk vill? Við veltum þessu fyrir okkur í þætti dagsins ásamt því að tala um byltingarsinnaða sósíalista í New York, dauðakippi loftslagshysteríunnar og...
Spjallið með Frosta Logasyni | S03E39 | Andri Snær Magnason | Þátturinn í heild sinni 04.11.2025 1:41:05
Þrjátíu ár eru síðan Andri Snær steig fram á ritvöllinn og skipaði sér í hóp eftirtektaverðustu höfunda landsins. Bækur hans hafa slegið í gegn hér heima jafnt sem erlendis. En Andri hefur líka verið umdeildur enda oft á tíðum þrælpólitískur. Í þessu viðtali ræðir hann um ritlistarlaunin umdeildu, vörn íslenskunnar, baráttuna fyrir ósnortri náttúru, loftslagsmálin og nýjustu bók sína Jötunstein se...
Spjallið með Frosta Logasyni | S03E39 | Geta þessir helvítis aumingjar ekki fundið sér vinnu? 03.11.2025 3:36
Þrjátíu ár eru síðan Andri Snær steig fram á ritvöllinn og skipaði sér í hóp eftirtektaverðustu höfunda landsins. Bækur hans hafa slegið í gegn hér heima jafnt sem erlendis. En Andri hefur líka verið umdeildur enda oft á tíðum þrælpólitískur. Í þessu viðtali ræðir hann um ritlistarlaunin umdeildu, vörn íslenskunnar, baráttuna fyrir ósnortri náttúru, loftslagsmálin og nýjustu bók sína Jötunstein se...
Fullorðins | S02E31 | Var handtekin, nakin á Austurvelli 02.11.2025 7:24
Elísabet Jökulsdóttir, rithöfundur og skáld kom í spjall. Hún segir okkur frá lífi sínu, ástinni á Ströndum, geðhvörfin, skriftirnar og margt fleira. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Spjallið með Frosta Logasyni | S03E38 | Bandaríski herinn vitnar um fljúgandi furðuhluti 30.10.2025 0:55
Gunnar Dan hefur skrifað bókin UFO 101 sem fjallar um geimverur, fljúgandi furðuhluti og sögu samskipta mannkyns við ójarðneskar verur. Hann segir vitnaleiðslur fyrir Bandaríkjaþingi sýna hvernig djúpríki og leyniþjónustur rannsaki geimverur og tækni þeirra en halda vitneskju jafnframt frá almenningi. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift...
Harmageddon | S03E58 | Gott að vera verktaki hjá ríkislögreglustjóra 29.10.2025 9:05
Í þessum þætti ræðum við frjálslega meðferð almannafés hjá ríkislögreglustjóra og veltum fyrir okkur hvað telst spilling í þeim efnum. Við ræðum líka árásir fjölmiðla á ungliða Miðflokksins og hvernig flokkurinn virðist hafa panikkað í kjölfarið. Ástandið á fasteignalánamarkaði er líka til umfjöllunnar sem og hugsanleg innrás Bandaríkjanna í Venesúela. Allt þetta og meira til í Harmageddon þætti d...
Fullorðins | S02E30 | Hörður Grímson ekki að fara að deyja strax 26.10.2025 10:06
Stefán Máni er einn af okkar afkastamestu rithöfundum og var að gefa út bókina Hin helga kvöl. Í þætti dagsins segir Stefán okkur frá æsku sinni, uppvexti og lífi sínu sem rithöfundur og faðir. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Hluthafaspjallið | S02E34 | Áfall hjá Norðuráli og högg fyrir þjóðarbúið 24.10.2025 2:47
Útflutningstekjur af stóriðjunni á Grundartanga eru um 150 milljarðar árlega eða um 6% af útflutningstekjum landsins. Yfir 100 milljarðar af þeim tekjum koma frá álverinu. Orkukaup Norðuráls, sem er stór hluti af virðisaukanum sem að rennur til okkar, eru í Bandaríkjadölum og auðvitað getur það á endanum orðið talsvert högg fyrir þau orkufyrirtæki sem selja þeim orku. Það kemur þó ekki...
Harmageddon | S03E57 | Jafnréttislög sem heimila mismunun 22.10.2025 16:24
Kærunefnd jafnréttismála telur fyrirtæki mega mismuna karlmönnum á grundvelli kyns, Þjóðkirkjan telur mikilvægt að fræða börn um sjálfsfróun og klámsögur og ríkisútvarpið stýrist af hugmyndafræði starfsmanna sinna. Það er því ekki skrítið að venjulegt fólk skuli vera að fylkja sér á bakvið Miðflokkinn sem hefur sett almenna skynsemi á oddinn. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullr...
Fullorðins | S02E29 | Greindist með krabbamein fyrir rúmu ári 17.10.2025 3:07
Thelma Björk greindist með krabbamein og þarf að lifa með því út lífið. Í þætti dagsins segir hún okkur frá lífi sínu, tilfinningunum og áfallinu við greininguna og hvernig líf hennar hefur breyst. Hún hannaði bleiku slaufuna í ár en hún er hönnuður ásamt því að kenna jóga. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Hluthafaspjallið | S02E33 | Er bóla á bandaríska hlutabréfamarkaðinum? 17.10.2025 3:22
Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur er gestur Hluthafaspjalls ritstjóranna að þessu sinni. Þorsteinn, sem bæði lærði og starfaði í Bandaríkjunum, þekkir bandarískt hagkerfi og efnahagslíf öðrum betur. Margir hafa varað við því að bandaríski hlutabréfamarkaðurinn sé í bóluástandi og að veruleg hætta sé á eignaverðsfalli. Þorsteinn tengir þróunina við vaxandi launa- og framleiðnibil, þ.e. að vöxtur r...
Harmageddon | S03E56 | Brotthvarf Laxness táknar algjöra uppgjöf 15.10.2025 14:05
Að ungmenni ráði ekki við texta Halldórs Laxness er fullkomin birtingarmynd þeirrar hnignunar sem hefur átt sér stað í kennsluaðferðum íslenska skólakerfisins. Við ræðum líka reglur Reykjavíkurborgar gegn bláum og bleikum barnaafmælum, umdeilt friðarferli á Gaza, uppgang skynseminnar í íslenskum stjórnmálum og hina einkennilegum baráttu gegn þeirri lífræðilegu staðreynd að spendýr skiptist í karl-...
Fullorðins | S02E28 | Aldís Ósk | Þátturinn í heild sinni 13.10.2025 1:02:19
Aldís Gló er móðir, kennari og myndlistakona og hefur komið að ýmsu í gegnum tíðina. Fyrir nokkrum mánuðum fór hún að upplifa að einhver væri að hakka sig inn í símann hennar og hafa ofsóknirnar gert það að verkum að hún er einangruð, í veikindaleyfi og virðist hvergi geta fengið aðstoð. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/
Hluthafaspjallið | S02E32 | Eru hausthækkanir í Kauphöllinni eða krampakippir dvínandi hagkerfis? | Þátturinn í heild sinni 13.10.2025 45:56
Þrátt fyrir að íslenskir fjárfestar séu fremur kjarklitlir og feli fé sitt á verðtryggðum reikningum hefur undanfarið birst vísir að hausthækkunum í Kauphöllinni. Þar hafa Amaroq og Oculus verið í broddi fylkingar en eftir viðtal Hluthafaspjallsins við Eld Ólafsson hefur verið mikið fjör með bréf félagsins. Áhugi fjárfesta er mikill og hluthafar Amaroq hafa upplifað ríflega 30% hækkun. Á sama tíma...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.