Brotkast ehf.

Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Arts IS ↓ 1388 episodes

Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter. Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.

Author

Brotkast ehf.

Category

Arts

Podcast website

brotkast.is

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Óseldar íbúðir hlaðast upp og hækka hlutdeildarlánin fasteignaverð? | Hluthafaspjallið | S03E01 10.01.2026

Konráð S. Guðjónsson, hagfræðingur hjá IFS greiningu, hefur gefið út mjög athyglisvert rit þar sem hann fer yfir efnahagsmálin. Eitt af því sem hann ræðir um er fasteignamarkaðurinn og það hvernig óseldar íbúðir hlaðast upp á meðan ungu fólki gengur illa að kaupa sína fyrstu fasteign. Hann veltir því fyrir sér í Hluthafaspjallinu hvort raunverð íbúða eigi eftir að lækka á árinu og sömuleiðis er fa...

„Það var skrifað í skýin að ég færi til Dale Carnegie“ | Fullorðins | S03E01 | Þátturinn í heild sinni 08.01.2026

Agnes Ósk Sigmundardóttir er Dale Carnegie þjálfari með yfir 10 ára reynslu í leiðtogafærni og samskiptum. Agnes kom í þáttinn og sagði okkur frá því hvað varð til þess að hún fór sjálf fyrst á námskeið hjá Dale Carnegie og hvað það hefur gert fyrir líf hennar. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Hvað Donald Trump er raunverulega að pæla með Venesúela og Grænland | Spjallið með Frosta | S04E01 08.01.2026

Í kjölfar hinnar sláandi aðgerðar Bandaríkjanna til að steypa Venesúelaforsetanum Nicolás Maduro af stóli hefur Donald Trump forseti komið upp með nýtt hugtak til að lýsa utanríkisstefnu sinni sem hann kallar: „Donroe-kenninguna“. Snæbjörn Brynjarsson, leikhússtjóri, og Stefán Pálsson, sagnfræðingur, ræða um þessa þróun og mála og greyna stöðuna eins hún blasir við okkur á þessari stundu. Fáðu þér...

Of margir borgarfulltrúar á alltof háum launum | Harmageddon | S04E01 07.01.2026

Kjörnir fulltúar á Íslandi eru orðnir alltof margir og á alltof háum launum. Fyrir vikið sitjum við uppi með alltof mikið af miðlungsfólki sem heldur fast í vinnu sína hjá hinu opinbera. Við ræðum líka aðgerðir Trump í Venesúela og hvað gæti gerst í framhaldinu ásamt því að fara yfir stærsta fjársvikamál síðari tíma í Bandaríkjunum. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd in...

Áramótauppgjör Hluthafaspjallsins og rýnt í kristalskúluna | Hluthafaspjallið | S02E41 | Þátturinn í heild sinni 30.12.2025

Hluthafaspjall ritstjóranna fer að þessu sinni í áramótauppgjör um leið og reynt er í það hvað framundan er á nýju ári. Til okkar komu góðir gestir en Magnús Harðarson forstjóri Kauphallarinnar reið á vaðið og fór yfir helstu tölur ársins í Kauphöllinni og hvaða væntingar fjárfestar geta haft um skráningar á næsta ári. Gunnar Baldvinsson, forstjóri Almenna lífeyrissjóðsins, fór yfir stöðu lífeyris...

Konu ársins drullusama hvað öðrum finnst | Harmageddon | S03E66 30.12.2025

Árið 2025 var ár mikilla umbreytinga þar sem margt breyttist til batnaðar. Rétttrúnaðarplágan fékk á sig mikinn brotsjó og óvíst hvort hún nái aftur fyrri styrk. Það er sennilega jákvæðasta þróun ársins. Í áramótaþætti Harmageddon förum við yfir allt það markverðasta úr fréttum og umræðum ársins sem er að líða og tölum um fólkið sem stóð upp úr á árinu. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotk...

Stjörnuspá fyrir 2026 | Fullorðins | S02E37 | Þátturinn í heild sinni 29.12.2025

Alexandra Coman er meðlimur í yfir 23 stjörnuspekisamtökum um allan heim og vinsæl í þeim heimi. Hún er með rás á Youtube með yfir 150 milljón áhorf og er talin meðal bestu stjörnuspekinga Rúmeníu. Hún kom í þáttinn til að gefa okkur smá spá fyrir hvert og eitt stjörnumerki fyrir komandi ár, 2026. 4:27 Hrúturinn 6:34 Nautið 9:15 Tvíburinn 12:11 Krabbinn 16:35 Ljónið 19:56 Meyjan 22:30 Vogin 25:11...

Fullorðins | S02E12 | Íris Helga Jónatansdóttir | Þátturinn í heild sinni 28.12.2025

Íris Helga Jónatansdóttir, sem sökuð hefur verið um að eltihrella minnst 9 manneskjur og fjallað hefur verið um í fjölmiðlum, hafnar öllum ásökunum og segir mennina sem hafi sakað sig um slíkt í raun vera hina brotlegu. Einn manninn segir hún hafa leitað á tólf ára dóttur sína og misnotað. Myndband sem sýni hana fyrir utan heima hjá honum þar sem hún lætur öllum illum látum og sparkar í bíl hans h...

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E41 | Helgi Magnús Gunnarsson | Þátturinn í heild sinni 22.12.2025

Helgi Magnús Gunnarsson, fyrrverandi vararíkissaksóknari, er hér í ítarlegu viðtali um langan feril sinn innan ákæruvaldsins. Hann starfaði lengi hjá efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra þar sem hann tókst meðal annars við Baugsmálið umdeilda og síðar rak hann mörg af stærstu bankahrunsmálunum fyrir Hæstarétti. Hann ræðir umdeild ummæli, áminningar, starfslok og hvernig hann horfir á þróun Evróp...

Fullorðins | S02E36 | Heimsótti ömmu sína á fæðingardeildina 20.12.2025

Eva Björg Ægisdóttir er rithöfundur sem hefur gefið út spennubækur á hverju ári og er hvergi nærri hætt. Hún segir okkur frá uppvextinum á Akranesi, móðurhlutverkinu og starfi sínu sem einn af vinsælustu rithöfundum þjóðarinnar. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Hluthafaspjallið | S02E40 | Sylvía Kristín nýr forstjóri Nova tekur tækniskrefið 20.12.2025

Silvía Kristín Ólafsdóttir, nýr forstjóri Nova, er hér í stórskemmtilegu spjalli um hugmyndafræðina á bak við fyrirtækið; markmiðin, stefnuna, styrkleikann, aldur viðskiptavina, lýsandi diskókúluna, skautasvellið, snjalltæknina, gervigreindina, ferilinn og KR en Kristín er fædd og uppalin í vesturbæ Reykjavíkur. Hún var sem stúlka mikið í sveit við Hrútafjörð og hefur því ekki bara alið manninn á...

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E45 | Segir Ríkissaksóknara hafa vitað af ólögmætum starfsháttum sérstaks saksóknara en ekkert aðhafst | Þátturinn í heild sinni 18.12.2025

Jón Óttar Ólafsson, afbrotafræðingur og fyrrum lögreglumaður, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hér fer hann ítarlega yfir starfshætti sérstaks saksóknara í kjölfar bankahrunsins en hann segir að rannsóknir í svonefndum hrunmálum hafi að hans mati ítrekað farið út fyrir lögbundnar heimildir og grundvallarreglur réttarríkisins. Hann var á árinu 2012, ásamt Guðmundi Hauki Gunnarssyni...

Harmageddon | S03E65 | Donald Trump skýtur langt yfir markið 17.12.2025

Forseti Bandaríkjanna fór illilega fram úr sér í samfélagsmiðlafærslu um nýlátinn Rob Reiner í vikunni. Við förum yfir hvers vegna í þætti dagsins. Einnig ræðum við um íslamistaárásina á Bondi strönd í Ástralíu og hvernig fjölmiðlar geta einungis talað um trúarrskoðanir manna ef þeir gera eitthvað gott en aldrei þegar framin eru illvirki. Þá tölum við einnig um árásargrein blaðamanns Vísis, á Fros...

Hluthafaspjallið | S02E39 | Bíllinn er úlpa Íslendingsins 12.12.2025

Miklar umræður eru um svikin vegna Fjarðarheiðarganganna þar sem Fljótagöng til Siglufjarðar voru tekinn fram fyrir í röðinni. En ætti umræðan ekki að snúast frekar um samgöngur á suðvesturhorninu. Þar gerist ekki og endalaust talað um að Borgarlínan eigi að bjarga öllu þrátt fyrir að þar sé ekkert að gerast og enginn muni nota hana, að sögn Jóns G. sem vitnar í Ólaf Egilisson leikara sem hafði á...

Harmageddon | S03E64 | Evrópa óþekkjanleg eftir 20 ár 10.12.2025

Þjóðaröryggisstefna bandarísku ríkisstjórnarinnar lýsir hlutlægum raunveruleika sem evrópskir stjórnmálamenn vilja ekki horfast í augu við. Af þeim sökum munu stjórnmál í Evrópu taka miklum breytingum á næstu misserum. Þá ræðum við líka vandræði forseta Alþingis sem stjórnarandstaðan vill gera sér meiri mat úr en efni standa til og skoðum hrun Flokks fólksins sem virðist vera óumflýjanlegt úr þess...

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E44 | Maðurinn sem fjölmiðlar ræða aldrei við 09.12.2025

Eldur Smári Kristinsson er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Eldur hefur lengi þótt afar umdeildur maður í samfélaginu og fjölmiðlar hafa mikið sagt af honum fréttir í neikvæðu ljósi. Honum þykir því mjög undarlegt að aldrei hafi þessir sömu fjölmiðlar, hvort sem það eru RÚV, Sýn eða aðrir, leitað til hans eftir viðbrögðum við einu né neinu. Honum hefur aldrei verið boðið að tjá sig þ...

Fullorðins | S02E35 | „Incel kóngurinn“ 09.12.2025

Jón Þormar er þáttastjórnandi Norrænnar karlmennsku. Hann kemur frá Raufarhöfn en býr núna aðallega á Spáni með fjölskyldu sinni. Í þætti dagsins segir hann okkur frá lífi sínu hingað til, hvernig hefur verið að eignast barn með Downs heilkenni, vinnu sína með ungum mönnum og margt fleira. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Hluthafaspjallið | S02E38 | Fór ríkið á mis við 25 milljarða við söluna í Íslandsbanka? 05.12.2025

Fór ríkið á mis við 25 milljarða í Íslandsbanka? Gengi bréfa í Íslandsbanka er núna 30% hærra en þegar ríkið seldi hlut sinn í vor. Gengi bréfanna hefur rokið upp að undanförnu og er komið í 142 en ríkið seldi 45% hlut sinn í vor á genginu 107. Allt ætlaði vitlaust að verða þegar Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra samþykkti sölu á hlut ríkisins í bankanum á genginu 118 fyrir rúmum tveimur árum -...

Harmageddon | S03E63 | Stjórnmálamenn sofandi í neyðarástandi 03.12.2025

Það er til marks um ótrúlegt taktleysi og sofandahátt að stjórnmálamenn séu ekki að berjast fyrir átaki gegn faraldri ótímabærra andláta ungmenna í fíknivanda og fjölgun erlendra ríkisborgara á bótum gefur tilefni til umræðu um þol íslenska velferðarkerfisins. Við ræðum þetta og margt fleira í Harmageddon þætti dagsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://...

Hluthafaspjallið | S02E37 | Bandaríkin og þakkagjörðarhátíðin 30.11.2025

Ritstjórarnir Sigurður Már Jónsson og Jón G. Hauksson ræða bandarísk efnahagsmál en það er mjög íslensk umræða að tala niður Bandaríkin og bandarískt hagkerfi. Nú er þakkagjörðarhátíðin nýliðin og svo vill til að máltíðin lækkar á milli ára. Það mun ekki gerast með íslenska jólamatinn. Bandaríska hagkerfið er að sýna styrk sinn þessa dagana og bandarískir markaðir eru í hæstu hæðum. Um leið er fjá...

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E40 | Frosti Sigurjónsson | Þátturinn í heild sinni 28.11.2025

Frosti Sigurjónsson, fyrrverandi þingmaður, hefur á undanförnum misserum gagnrýnt harðlega þá stefnu sem Ísland hefur sett sér í samdrætti á svokölluðum gróðurhúsalofttegundum. Hann segir engu máli skipta hversu mikið Ísland leggur á sig í loftslags málum og bendir á að þó Ísland myndi hætta kolefnislosun með öllu þá gæti það ekki haft nein mælanleg áhrif á loftslagið. Í þessu áhugaverða viðtali f...

Fullorðins | S02E34 | Óskrifaður listi yfir hluti sem má ekki grínast með 27.11.2025

Þórarinn Hugleikur Dagsson, oftast bara kallaður Hugleikur Dagsson er listamaður sem er þekktastur fyrir teikningar sínar af spýtukörlum. Hann segist hafa verið nörd þegar hann var yngri og fór í Listaháskólann og starfar í dag sem listamaður. Hugleikur kom og sagði okkur frá lífi sínu, starfi og nýja spilinu sem hann var að gefa út, Íslendingabrók. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast...

Harmageddon | S03E62 | Ekki tilviljun að Danmörk hafi tekið upp harða útlendingastefnu 27.11.2025

Ísland getur enn forðast að gera öll sömu mistökin og nágrannalönd okkar gerðu í innflytjendamálum. Samt eru hér háværar raddir sem vilja keyra okkur út í nákvæmlega þann sama skurð. Við skoðum líka umræðuna um fæðingarorlofskerfið en það er að koma í ljós að ekki einungis karlrembur vilja breytingar á því og við skoðum hvernig spádómur South Park raungerðist þegar karlmaður vann titilinn sterkast...

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E43 | Pólitísk rétthugsun hefur tekið mikið pláss á RÚV 21.11.2025

Ingvar Smári Birgisson, lögmaður og stjórnarmaður hjá Ríkisútvarpinu, hefur viðrað hugmyndir um að gerð yrði skoðun á hlutleysi RÚV. Í þessu viðtali ræðir hann um afhjúpanir á hlutdrægni BBC og ber saman hliðstæður í fjölmiðlum á Íslandi. Einnig ræðum við útlendingamál og tíma hans í dómsmálaráðuneytinu þegar hann var aðstoðarmaður Jóns Gunnarssonar. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast...

Hluthafaspjallið | S02E36 | Ástand og horfur í hagkerfinu með Þórði Pálssyni | Þátturinn í heild 21.11.2025

Vaxtahaukurinn Þórður Pálsson, fjárfestingastjóri Sjóvár, fer yfir ástand og horfur í íslenska hagkerfinu í Hluthafaspjallinu með Sigurði Má Jónssyni í dag. Seðlabankinn lækkaði vexti eins og Þórður hafði spáð þó hann segist ekki hrifinn af ástæðu þess. En hver er staðan í íslenska hagkerfinu í dag? Er ástæða til þess að hafa áhyggjur af framvindunni? Þórður fer yfir aðdraganda þess að við erum ko...

Listen to the Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.