Brotkast ehf.

Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Arts IS ↓ 1388 episodes

Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter. Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.

Author

Brotkast ehf.

Category

Arts

Podcast website

brotkast.is

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Harmageddon | S03E33 | Hugsana lögreglan nýtur þverrandi stuðnings 09.05.2025

Brynjar í Club Dub, Kanye West og Shilo Hendrix eiga það sameignlegt að hafa sett internetið á hliðina með tjáningu sem þykir tabú og bönnuð. En almenningur nennir ekki lengur að hneykslast þar sem rétttrúnaðurinn er fyrir löngu búinn að gjaldfella öll tabú orðin sem ekki hefur mátt segja. Við skoðum þetta allt saman og fleira í Harmageddon þætti dagsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Bro...

Fullorðins | S02E17 | Kynlíf og ríðingar 08.05.2025

Erpur Eyvindarson er landsþekktur rappari sem hefur verið í bransanum í 25 ár. Hann er þekktur fyrir að segja sína skoðun í málefnum líðandi stundar og kom í þátt dagsins og sagði frá lífi sínu hingað til, ástinni, rappinu og fleira. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Harmageddon | S03E32 | Pínu galið að halda áfram með Borgarlínu 06.05.2025

Þéttingarstefna borgarstjórnarmeirihlutans var löngu fyrirséð stórslys sem mun taka borgarbúa áratugi að jafna sig á. Þrátt fyrir að þetta sé að koma betur og betur í ljós hefur meirihlutinn engan áhuga á að breyta um kúrs þó ekki væri nema til að milda höggið. Við ræðum einnig í þessum þætti um margumtalað bakslag í hinsegin samfélaginu og rýnum í hvaða þetta er sprottið. Einnig tölum við um þátt...

Norræn karlmennska | S03E08 | Íslenskir karlmenn eru hættulegastir ef þú kannt ekki að reikna! 06.05.2025

Norræn Karlmennska er loksins komin aftur og við förum í sturlunina sem er búin að vera í gangi þar sem fólk sem kann ekki stærðfræði útskýrir tölfræði fyrir okkur hinum. Lítum á karlmann vikunnar, af hverju góða fólkið leyfir börnum ekki að vera börn í friði og skoðum sambærilegt mál þar sem fólk klappar fyrir aðila sem gerir það sama og Haukur H. fékk á sig ákæru fyrir. Fáðu þér áskrift og sjáðu...

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E22 | Samúel Ívar Árnason | Þátturinn í heild sinni 06.05.2025

Samúel Ívar Árnason hefur undanfarin tvö ár unnið að því að safna upplýsingum um aðdraganda þess að Arnar bróðir hans féll fyrir eigin hendi í mars mánuði árið 2023. Arnar starfað bæði sem handboltaþjálfari hjá HK og umsjónakennari í Kópavogsskóla en hann hafði skömmu fyrir andlát sitt fengið veður af alvarlegum ásökunum á hendur sér sem hann fékk þó aldrei að vita nákvæmlega hverjar voru. Samúel...

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E22 | Segir vinnubrögð Samskiptaráðgjafa hafa ýtt bróður sínum í sjálfsvíg 05.05.2025

Samúel Ívar Árnason hefur undanfarin tvö ár unnið að því að safna upplýsingum um aðdraganda þess að Arnar bróðir hans féll fyrir eigin hendi í mars mánuði árið 2023. Arnar starfað bæði sem handboltaþjálfari hjá HK og umsjónakennari í Kópavogsskóla en hann hafði skömmu fyrir andlát sitt fengið veður af alvarlegum ásökunum á hendur sér sem hann fékk þó aldrei að vita nákvæmlega hverjar voru. Samúel...

Fullorðins | S02E16 | Ábyrgðarlaust líf á „sósjalnum“ í Kaupmannahöfn 02.05.2025

Ljósmyndarinn Spessi, Sigurþór Hallbjörnsson, kemur frá Ísafirði og mamma hans lét hann frá sér þegar hann var lítill drengur. Hann segir okkur frá uppvextinum, neyslunni, lífinu í Kaupmannahöfn, vinnu á leikskóla og mörgu fleira í þætti dagsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Harmageddon | S03E31 | Fjölmiðlanefnd ræðst á garðinn þar sem hann er lægstur 02.05.2025

Fjölmiðlanefnd hefur greint frá því að hún ætli á næsta fundi sínum að taka fyrir fréttaflutning vefmiðilsins Fréttarinnar þar sem fjallað var um meinta hópnauðgun hælisleitenda þar sem sú frétt er sögð hafa verið byggð á ótraustum heimildum. Þetta vekur athygli sér í lagi þar sem Fjölmiðlanefnd hefur hingað til ekki gert neinar athugasemdir eða rannsakað fréttaflutning Ríkisútvarpsins þegar frétt...

Hluthafaspjallið | S02E13 | Hvað fær ríkissjóður fyrir Íslandsbanka? 01.05.2025

Ritstjórarnir, þeir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson, rýna í Kauphöllina og efnahagslífið. Nýjustu verðbólgumælingar valda nokkrum vonbrigðum en næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans er 21. maí. Verður breyting á stefnu bankans en nú eru menn farnir að sjá aftur auknar verðbólguvæntingar í kortunum. Um leið tóku þeir stöðuna á nokkrum dægurmálum svo sem Kveiksþættinum um njósnir og stöðu...

Blekaðir | S02E06 | „Aldrei tekið brjálað magn af sveppum“ 30.04.2025

Í þættinum fara þeir Dagur og Óli um víðan völl að vanda. Morgunrútína, nammitips, orkudrykkir og sveppaneysla koma við sögu í þættinum sem er síðasti þáttur Dags. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Harmageddon | S03E30 | Hættuleg sorpblaðamennska 29.04.2025

Það er gríðarlega miklvægt að fólk lesi fjölmiðla með gagnrýnum hætti og enn mikilvægara að blaðamenn kanni heimildir sínar vel áður en byggðar eru á þeim fréttir. Í þessari viku sáum við katastrófískt dæmi þar sem hvorutveggja fór ofan garðs og neðan. Við ræðum gríðarlega fögnuð kennara með tillögur um kynjafræði í öllum greinum og tölum um afspyrnu slappa greiningu þjóðfélagsrýnisins Hallgríms H...

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E21 | Embætti samskiptaráðgjafa verði lagt niður | Þátturinn í heild sinni 29.04.2025

Körfuknattleiksþjálfarinn Brynjar Karl er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Brynjar hefur lengi staðið í stappi við íþróttahreyfinguna. Nú hefur samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs á vegum mennta- og barnamálaráðuneytisins gert úttekt á þjálfunaraðferðum Brynjars og sent hana á Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og ólympíusamband Íslands....

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E21 | Embætti samskiptaráðgjafa verði lagt niður 28.04.2025

Körfuknattleiksþjálfarinn Brynjar Karl er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Brynjar hefur lengi staðið í stappi við íþróttahreyfinguna. Nú hefur samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs á vegum mennta- og barnamálaráðuneytisins gert úttekt á þjálfunaraðferðum Brynjars og sent hana á Körfuknattleikssamband Íslands, Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og ólympíusamband Íslands....

Harmageddon | S03E29 | Sósíalistar stilltir á sjálfstortímingu 25.04.2025

Það gat engin séð það fyrir að hreyfing sósíalista á Íslandi myndi fara éta sjálfa sig upp að innan þegar hún tryggði sér væna summu úr sjóðum skattgreiðenda í síðustu kosningum. Stærsta og óvæntasta frétt vikunnar var að RÚV skyldi loksins fjalla um ófremdarástand á íslenskum leigubílamarkaði og að kaffistofa leigubílstjóranna hefði verið breytt í bænahús Múhameðs spámanns. Þá sjáum við íslenska...

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E20 | Enginn fæðist í röngum líkama 24.04.2025

Íris Erlingsdóttir, fjölmiðlafræðingur og pistlahöfundur er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Íris hefur verið búsett í Bandaríkjunum í þrjá áratugi og hefur í gegnum störf sín þar fylgst vel með þróun stjórnmála. Hún segist sjálf hafa verið ævilangur stuðningsmaður demókrataflokksins en að það hafi breyst á undanförnum árum þegar flokkurinn hafi tekið kúvendingu í stefnumálum sínum....

Harmageddon | S03E28 | Fréttir sem söluvara 22.04.2025

Flett hefur verið ofan af fjárstuðningi USAID við fjölmðla í meira en 30 löndum frá árinu 2003. Margir af stærstu meginstraumsfjölmiðlunum sem íslenskir miðlar fá allan sinn sannleika frá eru þar á meðal. Við sjáum hins vegar engar athugasemdir um þetta frá Fjölmiðlanefnd eða öðrum þeim sem hæst hafa talað um upplýsingaóreiðu hér á landi. Við ræðum þetta og önnur mál í Harmageddon þætti dagsins. F...

Norræn karlmennska | S03E07 | „Ég ætla sko ekki að sætta mig við þennan dóm“ 19.04.2025

Haukur H. var nýlega kærður fyrir tilraun til manndráps fyrir að halda manninum sem dæmdur var fyrir að brjóta kynferðislega á 18 ára stjúpdóttur hans er maðurinn reyndi að flýja af vettvangi glæpsins. Við ræðum dóminn og ýmislegt annað í góðu spjalli. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E19 | Femínistar gegn baráttu láglaunakvenna 18.04.2025

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hún hefur að undanförnu vakið mikla athygli fyrir gagnrýni sína hina margumtölu woke hugmyndafræði en í þessu viðtali fer hún yfir þá vinstri pólitík sem hún aðhyllist og vill standa fyrir. Sólveig segir frá því hvernig baráttan, sem hún og félagar hennar hjá Eflingu hafa staðið fyrir á undanförnum árum,...

Fullorðins | S02E15 | Sýningin 9 líf var ekki BARA um Bubba Morthens 17.04.2025

Ólafur Egilsson er einn af okkar fremstu leikstjórum og leikurum. Hann er sonur hinna merku hjóna Egils Ólafssonar og Tinnu Gunnlaugsdóttur og hefur átt viðburðaríka ævi sem hann segir okkur frá í þætti dagsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Gad Saad - Woke Ideology and Its Impact on Free Speech 17.04.2025

In the latest episode of Brotkast Iceland, Canadian professor and author Dr. Gad Saad joins host Frosti Logason to discuss the effects of woke ideology on free speech and scientific thinking. Dr. Saad, known for his outspoken criticism of political correctness is coming to Iceland and will give a talk at Harpa conference hall on the 2nd of June 2025.

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E18 | Gad Saad og Woke hugmyndafræðin 15.04.2025

Dr. Gad Saad er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann hefur á undanförnum áratugum verið einn helsti talsmaður gegn hinni margumtöluðu woke hugmyndafræði sem Íslendingar eru nú loksins farnir að ræða sem þá meinsemd sem hún raunverulega er. Í bókinni The Parasitic Mind og fjölda ritrýndra greina hefur hann greint þessa hugmyndafræði mjög ítarlega og leggur til lausnir sem unnið geta...

Harmageddon | S03E27 | Aumingjavæðing menntakerfisins 15.04.2025

Í þessum þætti ræðum við um andverðleikasamfélagið Ísland en til að vinna gegn einsleitni í framhaldsskólum hefur menntamálaráðherra ákveðið að mælitæki eins og einkunnir séu til óþurftar. Við skoðum líka staðreyndavakt ríkisútvarpsins sem fer á kostum í þessari viku og fjöllum um áherslur utanríkisráðherra í varnarmálum sem almenningur virðist í meginatriðum vera ósammála. Allt þetta og miklu mei...

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E17 | Upplýsingaóreiða Ríkisútvarpsins 14.04.2025

Sölvi Tryggvason er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Í viðtalinu fara þeir félagar yfir helstu fréttamál síðustu vikna og ræða meðal annars um vinnubrögð fjölmiðla sem almenningur er farinn að treysta í stöðugt minna mæli. Strákarnir tala um hlutdrægni fjölmiðla þegar kemur að fréttum um forseta Bandaríkjanna og hvernig mál Ásthildar Lóu var sett fram hjá fréttastofu Ríkisútvarpsins....

Harmageddon | S03E26 | Heilbrigðri skynsemi mótmælt í íslenskum fjölmiðlum 11.04.2025

Heilbrigðri skynsemi mótmælt í íslenskum fjölmiðlum Tilkynning um komu kanadíska fræðimannsins Gad Saad til Íslands hefur vakið upp hörð viðbrögð hjá róttækum rétttrúnaðarseggjum sem hvetja til sniðgöngu og mótmæla gegn viðburðinum. Vókið er sem sagt ekki alveg dautt þó dauðakippirnir séu farnir að gera vart við sig. Við ræðum einnig um bandaríska reglugerð gegn mismunun sem Íslendingar hafa mikla...

Hluthafaspjallið | S02E12 | Guðmundur hjá Brimi og María hjá Símanum í viðtali 11.04.2025

Ritstjórarnir, þeir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson, rýna í kristalskúlu heimsviðskiptanna þar sem tollastefna Donalds Trumps Bandaríkjaforseta mótar umhverfið þessa dagana.  Hvernig endar tollastríðið og hvað er planið, erum við að tala um samningatækni eða tekjuöflun? Allt hefur þetta skapað miklar sveiflur og taugaveiklun á hlutabréfa- og hrávörumörkum en ritstjórarnir láta sér ekki bre...

Listen to the Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.