Brotkast ehf.

Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir

Arts IS ↓ 1388 episodes

Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrifenda sinna. Þannig bjóðum við upp á heilbrigðari umræðu sem verður ekki nauðbeygð undir háværan hóp róttæklinga á Twitter. Hægt er að kaupa áskrift á brotkast.is þar sem allt efnið er inni með aðeins einni áskrift.

Author

Brotkast ehf.

Category

Arts

Podcast website

brotkast.is

Latest episode

Jul 8, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Harmageddon | S03E38 | Meirihluti vill hlé á hælisumsóknum 04.06.2025

Stjórnvöld virðast í engri tengingu við meirihluta landsmanna sem telja útlendingamál komin í algjört óefni. Forgangsmál ríkisstjórnarinnar virðast fyrst og fremst vera varnarmál og Úkraína á meðan innviðir eins og menntamál, löggæslumál, heilbrigðiskerfi og dómsmál eru í molum. Fjöldi fólks kom saman á Austurvelli til að mótmæla aðgerðarleysi stjórnvalda en sá hópur hefur að mestu leiti verið afg...

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E27 | Tveir bræður létust samdægurs úr ofskömmtun 02.06.2025

Synir Ásgeirs Gíslasonar, skipstjóra, létust með 12 klukkustunda millibili í ágúst á síðasta ári. Bræðurnir Jón Kjartan og Sindri Geir, létust báðir af ofskömmtun ópíóðalyfja en ekkert bendir til annars en að um slys, en ekki viljaverk, hafi verið að ræða. Strákarnir höfðu báðir verið að leita sér aðstoðar vegna fíknar sem þeir réðu ekki við þegar þeir létust. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti...

Harmageddon | S03E37 | Ráðherrar taka þátt í ofsóknum gegn íslensku fyrirtæki 30.05.2025

Íslenska greiðslumiðlunarfyrirtækið Rapyd hefur í langan tíma verið þolandi skipulagðrar herferðar róttæklinga sem vilja kenna því um árásarstríð Ísrael á Gaza. Það er grafalvarlegt að fyrirtækið þurfi nú einnig að verja sig fyrir íslenskum stjórnvöldum, á sama tíma og þau keppa við erlenda risa sem hafa aðgang að íslenskum bönkum sem nú starfa sem útibú fyrir þá. Í þessum þætti ræðum við einnig u...

Hluthafaspjallið | S02E17 | Finnur Oddsson í viðtali og allir vilja Kviku 29.05.2025

Íslenski bankamarkaðurinn er eins og sveitarball þar sem slegist er um sætustu stelpuna. Kvika banki er óumdeilanlega í því hlutverki en fyrst bauð Arion upp á sameiningarviðræður en Íslandsbanki var fljótur að stíga inn á gólfið með hærra tilboði. Atburðarásin gerist hraðar en séð var fyrir enda ekki ljóst hver fer með eigendavaldið hjá Íslandsbanka nú þegar ríkið er búið að afhenda bréf sín til...

Blekaðir | S02E08 | Háski 29.05.2025

Óli ræðir við tónlistarmanninn Háska um fjármál, húðflúr, sælgæti og fleira, og Háski hendir í rándýra eftirhermu. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E26 | Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsmála rúinn öllu trausti | Þátturinn í heild sinni 28.05.2025

Páll Melsted, doktor í stærðfræði og Jóhanna Jakobsdóttir, doktor í líftölfræði eru nýjustu gestir Spjallsins með Frosta Logasyni. Þau eru foreldrar barna í íþróttafélaginu Aþenu og þekkja vel til starfa körfuknattleiksþjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar. Í þessu viðtali ræða þau meðal annars um skýrslu sem samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsmála vann um þjálfunaraðferðir Brynjars Karls. Þau...

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E26 | Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsmála rúinn öllu trausti 28.05.2025

Páll Melsted, doktor í stærðfræði og Jóhanna Jakobsdóttir, doktor í líftölfræði eru nýjustu gestir Spjallsins með Frosta Logasyni. Þau eru foreldrar barna í íþróttafélaginu Aþenu og þekkja vel til starfa körfuknattleiksþjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar. Í þessu viðtali ræða þau meðal annars um skýrslu sem samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsmála vann um þjálfunaraðferðir Brynjars Karls. Þau...

Norræn karlmennska | S03E12 | Foreldrar eiga ekki að „beefa“ á almannafæri! 27.05.2025

Áhrifavaldasamfélagið nötrar og við lítum á af hverju enginn sigrar í þeirri deilu, skoðum af hverju mönnum finnst í lagi að kalla eftir að fólk sé myrt vegna húðlitar síns, af hverju hvítir eru alltaf vondir karlinn í auglýsingum, karlmenn vikunnar og sjáum unga konu hrellta í miðbæ Reykjavíkur. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Fullorðins | S02E19 | Sambúð með siðblindum manni 27.05.2025

Ingveldur Sveinsdóttir á sér svakalega sögu en hún giftist manni, sem að hennar sögn er siðblindur. Í þætti dagsins segir hún okkur frá reynslu sinni af því að vera í ástarsambandi með siðblindum manni og hvernig hafi verið að ala upp börn með honum. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E25 | Benedikt Bogason samþykkti allar símhleranir 26.05.2025

Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Hann ræðir meðal annars í þessu viðtali um dómsmál á árunum 2008 til 2012, en þá fengu íslenskir dómstólar alls 875 beiðnir um símhleranir frá saksóknara- og lögreglustjóraembættum landsins. Af þeim voru veittar 867 heimildir sem hlýtur að teljast bæði óeðlilegt og grunsamlega hátt hlutfall....

Norræn karlmennska | S03E11 | Tveir kallar fá two thumbs up 23.05.2025

Við kíkjum aðeins á þátt þeirra Hauks Braga og Karlmennsku Þorsteins og einkunnagjöfin kemur eflaust mörgun á óvart. Karlmaður vikunnar er á sínum stað, kvenkyns incels eða ‚Femcels‘ og karlar að bjarga konum! Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Fullorðins | S02E18 | Færri brotaþolar með betri úrræðum fyrir fanga 23.05.2025

Guðmundur Ingi Þóroddsson er formaður Afstöðu hefur upplifað það að fara tvisvar sinnum í fangelsi og segir það hafa mótað stefnu sína í lífinu. Hann segir okkur frá lífi sínu og áskorunum í þætti dagsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Harmageddon | S03E36 | Traustvekjandi rannsóknir yfirvalda á lekamálum 23.05.2025

Lögreglan á Suðurlandi segir að rannsókn á svokölluðu PPP máli miði vel. Þó hafa engar yfirheyrslur enn farið fram né gögn haldlögð. Hljómar svolítið eins og málið sé komið í hentuga kælingu hjá besta vini aðal. Athygli vekur þó að Persónuvernd hefur gefið út yfirlýsingar um að hugsanlega hefji hún frumkvæðisrannsókn á málinu þó að hingað til hafi hún ekki talið nauðsynlegt að skipta sér af stórum...

Hluthafaspjallið | S02E16 | Einstaklingum sem eiga hlutabréf í kauphöllinni fjölgaði um 50% 23.05.2025

Einstaklingum sem eiga bréf í skráðum hlutafélögum í Kauphöll Íslands fjölgaði um 50% við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Þetta kemur fram í samtali við Magnús Harðarsson forstjóra Kauphallarinnar við umsjónarmenn Hluthafaspjallsins. Við útboðið fjölgaði þeim einstaklingum sem eiga bréf í kauphöllinni um 15.000. Við Íslendingar eigum þó langt í land með því að ná Svíum þar sem um fjórðungur l...

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E24 | Siggi hakkari vann með sérstökum og naut að launum friðhelgi 21.05.2025

Sigurður Þórðarson segir frá því hvernig starfsmenn sérstaks saksóknara hafi fengið hann til að afla gagna og framkvæma afritanir úr tölvukerfum hinna ýmsu fyrirtækja á árunum eftir hrun, aðgerðir sem aldrei höfðu verið heimilaðar með dómsúrskurðum. Þá segir hann að þegar hann var síðar kærður og handtekinn, grunaður um að hafa stolið gögnum frá fjárfestingarfélaginu Milestone hafi hann fundað með...

Hluthafaspjallið | S02E15 | Útboð Íslandsbanka og sókn Ölgerðarinnar 16.05.2025

Það er mikið um að vera í viðskiptalífinu þessa dagana og nýjasti þáttur Hluthafaspjallsins á Brotkast.is ber þess heldur betur merki. Þeir Jón G. og Sigurður Már ræða útboðið og þá koma öflugir gestir til þeirra í heimsókn; þeir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, og Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka. Ákveðið var að taka viðtalið við Jón Guðna sjóðheitan daginn eftir að nið...

Harmageddon | S03E35 | Skiptir öllu máli hver selur banka 16.05.2025

Bjarni Benediktsson var gagnrýndur harðlega fyrir að selja hluta af Íslandsbanka á 144 kr hlutinn. Nú þykir hins vegar í góðu lagi að selja stærri hlut, á lægra verði og með meiri afslætti. Þá virðist dómsmálaráðherra ekki hafa sagt alveg satt og rétt frá þegar hún tilgreindi ástæður þess að ætla auglýsa stöðu lögreglustjóra á suðurnesjum. Við ræðum einnig um herferð stjórnvalda gegn íslenska fyri...

Norræn karlmennska | S03E10 | Pöddugeðveikir aktivistar hóta börnum ef þau horfa á Júróvisjón 13.05.2025

Karlmaður vikunnar, vinæll nauðgunarleikur erlendis, passport bros og margt fleira í þætti dagsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Harmageddon | S03E34 | Undirmönnum kastað undir rútuna 13.05.2025

Viðtalið við Jón Óttar Ólafsson fyrrverandi rannsóknarlögreglumann er kjarnorkusprengja sem getur ekki annað en leitt til afsagnar Ólafs Haukssonar héraðssaksóknara. Ef frásögn Jóns er rétt hefur Ólafur með mjög óheiðarlegum hætti gert tvo starfsmenn sína að blórabögglum fyrir vinnubrögð sem viðhöfð voru með fullu samþykki hans á árunum eftir hrun. Við förum yfir málið allt í Harmageddon þætti dag...

Spjallið með Frosta Logasyni | S03E23 | Segir gagnalekann koma frá héraðssaksóknara sjálfum 13.05.2025

Jón Óttar Ólafsson, fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður, er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari hefur sakað Jón Óttar og félaga hans, sem nú er fallinn frá, um að hafa stolið gögnum frá sérstökum saksóknara. Jón Óttar hafnar þessu og segir gögnin einfaldlega hafa verið á tölvum þeirra vegna þeirrar vinnu sem þeir unnu fyrir embættið á sínum tíma. Ári...

Norræn karlmennska | S03E09 | „Ef þú léttir aldrei á þér brotnarðu á endanum undan álaginu“ 10.05.2025

Farið verður í af hverju við þurfum allir að eiga trúnaðarvini en einnig verður farið í hluti eins og karlmenn og háríðgræðslu, karlmann vikunnar, af hverju við þurfum að skilgreina hvað kona er og auðvitað BAKSLAGIÐ ógurlega. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Norræn karlmennska | S03E07 | „Ég ætla sko ekki að sætta mig við þennan dóm“ | Þátturinn í heild sinni 10.05.2025

Haukur H. var nýlega kærður fyrir tilraun til manndráps fyrir að halda manninum sem dæmdur var fyrir að brjóta kynferðislega á 18 ára stjúpdóttur hans er maðurinn reyndi að flýja af vettvangi glæpsins. Við ræðum dóminn og ýmislegt annað í góðu spjalli. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn...

Blekaðir | S02E07 | Skítamix | Þátturinn í heild sinni 09.05.2025

Í þættinum ræðir Óli við þá Dóra DNA og Rúnar Hroða sem eru að byrja aftur með Skítamix þættina sína. Þeir fara yfir húðflúrin sem Dóri er með og Iron man keppnina sem Rúnar er að fara að taka þátt í. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/Brotkast er efnisveita þar sem dagskrárgerðarmenn eru óháðir auglýsendum og svara eingöngu til áskrif...

Hluthafaspjallið | S02E17 | Áhugi Kára Stefánssonar á nóbelsverðlaunum og Bogi Nils kemur í heimsókn 09.05.2025

Í þættinum ræða ritstjórarnir Jón G. Hauksson og Sigurður Már Jónsson um forstjóraskipti hjá Nova og Íslenskri erfðagreiningu og fleiri félögum. Hvað tekur Kári sér fyrir hendur en sagan segir að hann hafi öðrum fremur áhuga á að ná í eins og ein Nóbels-verðlaun enda án efa einn fremsti mannerfðafræðingur heims. Rætist draumur Kára eða gerist hann bara rithöfundur? Í seinni hluta þáttarins kemur B...

Blekaðir | S02E07 | Skítamix 09.05.2025

Í þættinum ræðir Óli við þá Dóra DNA og Rúnar Hroða sem eru að byrja aftur með Skítamix þættina sína. Þeir fara yfir húðflúrin sem Dóri er með og Iron man keppnina sem Rúnar er að fara að taka þátt í. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/

Listen to the Brotkast - Brot úr þáttum og opnir þættir podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.