RÚV
Víðsjá
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ruv.is
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Óbragð, verkföll, Vatnið og landið 27.02.2023 55:00
Í dag kemur út skáldsagan Óbragð. Þetta er fyrsta skáldsaga höfundarins, Guðrúnar Brjánsdóttur, en hún vann samkeppni Forlagsins, Nýjar raddir 2020, með nóvellunni Sjálfstýringu. Óbragð fjallar um verkfræðinemann Hjalta og leit hans að sjálfum sér, en hann virðist hafa misst fótana eftir Covid einangrun, fær kvíðaköst og er með þráhyggju. En líf hans tekur óvæntan snúning þegar hann kynnist Kakófy...
Hreinsunaraðferðir, Stephen Hough, bókmenntaverðlaun og Brimhólar 23.02.2023 55:00
Rétt fyrir hádegi í dag var tilkynnt um tilnefningar til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Ljóðabókin Laus blöð eftir Ragnar Helga Ólafsson, sem Bjartur gefur út, og skáldsagan Ljósgildran eftir Guðna Elísson, sem Lesstofan gefur út, eru tilnefndar til verðlaunanna fyrir Íslands hönd. Dómnefndir Norðurlandanna tilnefna í ár samtals 14 verk til verðlaunanna, en sameigi...
Svipmynd af Pétri Gunnarssyni 22.02.2023 55:00
Íslensku þýðingaverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á Gljúfrasteini um síðustu helgi. Handhafi þeirra í ár er Pétur Gunnarsson, fyrir þýðingu sína á stórvirki Jean-Jacques Rousseau, Játningunum. Pétur fagnar um þessar mundir fimmtíu ára rithöfundarafmæli og er gestur okkar í svipmynd Víðsjár þessa vikuna. Umsjón: Guðni Tómasson og Melkorka Ólafsdóttir
Andardráttur á glugga, tónlistarmiðstöð, Litháarnir við Laptevhaf 21.02.2023 55:00
Listasafn Reykjavikur heldur áfram að kynna ný verk starfandi listamanna í Ásmundarsafni, þar sem þau kallast á við myndheim Ásmundar Sveinssonar. Nú er það myndlistarkonan Sigga Björg sem á í samtali við Ásmund, og áherslan í þetta sinn er á þjóðsögur, ævintýri og ímyndunarafl. Á sýningunni Andardráttur á glugga sýnir Sigga BJörg teikningar, veggverk og vidjóverk. Meira um það hér undir lok þátta...
Verðlaun fyrir Sjón, forn verkföll og Konstrúktívur vandalismi 20.02.2023 55:00
Víðsjá dagsins hefst á gleðitíðindum úr bókmenntalífinu. Tilkynnt var um það í hádeginu að rithöfundurinn og skáldið, handrits- og textahöfundurinn Sjón, Sigurjón Birgir Sigurðsson fái árið 2023 hin svokölluðu Norrænu verðlaun Sænsku Akademíunnar fyrir framlag sitt til fjölbreyttra bókmennta og texta ýmis konar. Við skjótumst í heimsókn og hittum höfundinn að þessu tilefni. Ragnheiður Gyða Jónsdót...
Ferðalag í gömul sár, Lamento í frönsku útvarpi og mýkt sem styrkur 16.02.2023 55:00
Páll Ragnar Pálsson tónskáld, er nýkominn heim frá París þar sem hann var við upptökur á kammerverkinu Lamenta. Það var franska ríkisútvarpið, Radio France, sem pantaði hjá honum verkið eftir að hann hlaut fyrstu verðlaun á alþljóðlega tónskáldaþinginu Rostrum. Við heyrum meira af því ævintýri í þætti dagsins. "Það þarf ekki bara eitthvað eitt leikhúsverk, það þarf mörg leikhúsverk, það þarf marga...
Svipmynd af Ragnari skjálfta og rýni í Samdrætti 15.02.2023 53:00
Ragnar Stefánsson, eða Ragnar skjálfti, hefur lengi verið áberandi í íslensku þjóðlífi, allt frá því hann kom heim frá námi og hóf störf á Veðurstofu Íslands fyrir meira en 50 árum. Hann er einn helsti jarðskjálftafræðingur landsins og hefur verið leiðandi í uppbyggingu mælakerfa og rannsóknum sem miða að því að spá fyrir um jarðskjálfta og draga úr hættum af þeirra völdum. Ragnar hefur líka lengi...
Lítil bók um stóra hluti, Hringrás, Hvernig kemst ég í sprengjubyrgið 14.02.2023 55:00
Lítil bók um stóra hluti kallst nýútkomin bók eftir Þórunni Jörlu Valdimarsdóttur. Þar veltir Þórunn vöngum yfir hlutskipti mannanna hér á jörð, samskiptum kynjanna, ástinni, einmanaleikanum, jörð og eilífð og öllu þar á milli. Þórunn verður gestur okkar í dag. Dansverkið Hringrás eftir Þyri Huld Árnadóttur, er sýnt um þessar mundir í samstarfi við Íslenksa dansflokkinn í Borgarleikhúsinu. Eva Hal...
Ólöf Arnalds, áhrif stríðs á menningu, verkföll í Róm 13.02.2023 55:00
Ólöf Arnalds vinnur að gerð nýrrar plötu þessi dægrin, og er komin vel á veg með hana. Þetta verður fimmta plata Ólafar og mun hún hljóta titillinn Tár í morgunsárið. Síðustu tvær plötur Ólafar, sú síðasta kom út fyrir nær áratug, voru sungnar á ensku en nú, líkt og á hennar fyrstu plötum, syngur hún á íslensku og röddin verður í aðalhlutverki, ásamt gítar. Ólöf er komin vel á veg með plötuna en n...
Eldheit ástarbréf, Chicago og sjálfbærni í listum 09.02.2023 55:00
Alvöru ástarbréf eru mögulega innilegustu textar sem fyrirfinnast og langflest þeirra hugsuð til lestrar í einrúmi. En ástarbréf á pappír eru þess eðlis að þau geymast, mörg hver í læstum kistlum innan um ryk og löngu gleymt dót í löngu gleymdum geymslum, allt þar til afkomendur ljúka kistlunum upp og þar með leyndarmálunum. FJöldi slíkra bréfa leynast í skjalasöfnum um allan heim, og það á einnig...
Svipmynd af Arndísi Þórarinsdóttur, viðurkenningar Hagþenkis, Eden 08.02.2023 53:45
Arndís Þórarinsdóttir hlaut nýverið Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barna- og ungmennabóka fyrir skáldsöguna Kollhnís. Arndís sendi frá sér sína fyrstu bók, Játningar mjólkurfernuskálds, árið 2011, og síðan eru bækurnar orðnar 12 talsins, auk fjölmargra þýðinga. Arndís hefur hlotið margvísleg verðlaun og tilnefningar fyrir bækur sínar og Blokkin á heimsenda hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin...
Hvítleikinn í myndlist, Skil / Skjól, Góða ferð inn í gömul sár 07.02.2023 55:00
Tímamót og kaflaskil, ólíkir kraftar, upphaf og endalok eru eitthvað sem Áslaug Íris Katrín Friðjónsdóttir er að takast á við í nýjum verkum, sem hægt er að sjá í safnaðarheimili Neskirkju um þessar mundir á sýningu sem kallast SKil / Skjól. Verk hennar einkennast meðal annars af mikilli efniskennd en á þessari sýningu vinnur hún í fyrsta sinn heilu verkin með marmara. Við lítum inn í Neskirkju me...
Skriða, Visitors, verkföll í Egyptalandi 06.02.2023 55:00
Bókaútgáfan Skriða var stofnuð á Hvammstanga árið 2019, en hefur síðan flutt sig yfir á Patreksfjörð. Skriða er sennilega eina útgáfa landsins þar sem köttur er titlaður útgáfustjóri en útgáfan er einnig nefnd í höfuðið á kettinum, Skriðu. Það er einn starfsmaður í vinnu hjá Skriðu, og það er ljóðskáldið Birta Ósmann Þórhallsdóttir. Birta hefur gefið út tvær bækur hjá Skriðu, nú síðast ljóðabókina...
Skriða, Visitors, verkföll í Egyptalandi 06.02.2023 55:00
Bókaútgáfan Skriða var stofnuð á Hvammstanga árið 2019, en hefur síðan flutt sig yfir á Patreksfjörð. Skriða er sennilega eina útgáfa landsins þar sem köttur er titlaður útgáfustjóri en útgáfan er einnig nefnd í höfuðið á kettinum, Skriðu. Það er einn starfsmaður í vinnu hjá Skriðu, og það er ljóðskáldið Birta Ósmann Þórhallsdóttir. Birta hefur gefið út tvær bækur hjá Skriðu, nú síðast ljóðabókina...
Hönnun og heimilið, Ex, og Öld vatnsberans 02.02.2023 55:00
Við hefjum þáttinn á rýni Evu Halldóru Guðmundsdóttur í leikverkið Ex, sem frumsýnt var í Þjóðleikhúsinu síðastliðna helgi. Heimili segja margt um ábúendur, og uppröðun og munir innan heimila geta sagt margt um tíðarandann. Til að mynda erum við hætt að kalla vinnuherbergi húsbóndaherbergi og eldhúsið, sem áður var vinnuherbergi húsfrúnnar, hefur i nútímasamfélagi öðlast sess sem samverustaður fyr...
Hönnun og heimilið, Ex, og Öld vatnsberans 02.02.2023 55:00
Við hefjum þáttinn á rýni Evu Halldóru Guðmundsdóttur í leikverkið Ex, sem frumsýnt var í Þjóðleikhúsinu síðastliðna helgi. Heimili segja margt um ábúendur, og uppröðun og munir innan heimila geta sagt margt um tíðarandann. Til að mynda erum við hætt að kalla vinnuherbergi húsbóndaherbergi og eldhúsið, sem áður var vinnuherbergi húsfrúnnar, hefur i nútímasamfélagi öðlast sess sem samverustaður fyr...
Svipmynd af Pedro Gunnlaugi Garcia og rýni í Venus í feldi 01.02.2023 55:00
Í síðustu viku var tilkynnt um handhafa Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Verðlaunahafinn í flokki fagurbókmennta er Pedro Gunnlaugur Garcia, sem hlaut verðlaunin fyrir skáldsöguna Lungu. Pedro vakti athygli fyrir fyrstu skáldsögu sína, Málleysingjana, sem kom út árið 2019, og þá þegar var talað um nýjan tón í íslenskri skáldsagnagerð. Í umsögn dómnefndar bókmenntaverðlaunanna um Lungu var sömuleiði...
Sláturhús, Vetrarferð, póstmódernísk kommóða 31.01.2023 55:00
Í þætti dagsins verður rætt við Benedikt Kristjánsson tenórsöngvara sem segir meðal annars frá þessum forvitnilega Schubert-gjörningi sínum í fyrra á Beethoven hátíðinni í Bonn, sem fór ekki nema sæmilega vel en kenndi söngvaranum margt. Benedikt syngur Vetrarferðina í Salnum í Kópavogi annað kvöld og með honum leikur Mathias Halvorsen á píanó. Og við fáum pistil frá Óskari Arnórssyni í þætti dags...
Sláturhús, Vetrarferð, póstmódernísk kommóða 31.01.2023 55:00
Í þætti dagsins verður rætt við Benedikt Kristjánsson tenórsöngvara sem segir meðal annars frá þessum forvitnilega Schubert-gjörningi sínum í fyrra á Beethoven hátíðinni í Bonn, sem fór ekki nema sæmilega vel en kenndi söngvaranum margt. Benedikt syngur Vetrarferðina í Salnum í Kópavogi annað kvöld og með honum leikur Mathias Halvorsen á píanó. Og við fáum pistil frá Óskari Arnórssyni í þætti dags...
Litháarnir við Leptevhaf, Snuð, verkföll í Mesópótamíu 30.01.2023 54:53
Hin fjórtán ára gamla Dalia Grinkevitjúte var á meðal þeirra þúsunda íbúa Eystrasaltsríkjanna sem sovésk yfirvöld fluttu nauðuga til Síberíu í þrælkunarvinnu þann 14. júní árið 1941. Bókin "Litháarnir við Laptevhaf" hefur að geyma minningar hennar frá fyrstu árum útlegðarinnar og eru vitnisburður um það helvíti á jörðu sem sovésktu þrælkunarbúðirnar voru, og það hvernig fólk nær að viðhalda mennsk...
Litháarnir við Leptevhaf, Snuð, verkföll í Mesópótamíu 30.01.2023 54:53
Hin fjórtán ára gamla Dalia Grinkevitjúte var á meðal þeirra þúsunda íbúa Eystrasaltsríkjanna sem sovésk yfirvöld fluttu nauðuga til Síberíu í þrælkunarvinnu þann 14. júní árið 1941. Bókin "Litháarnir við Laptevhaf" hefur að geyma minningar hennar frá fyrstu árum útlegðarinnar og eru vitnisburður um það helvíti á jörðu sem sovésktu þrælkunarbúðirnar voru, og það hvernig fólk nær að viðhalda mennsk...
Marius von Mayenburg, tæknikapítalismi og Eros,Lucrezia Orsina Vizzana 26.01.2023 54:04
Leikritið Ex eftir leikskáldið Marius von Mayenburg verður frumsýnt á stóra sviði þjóðleikhússins um helgina. Þetta er annar hluti í þríleik eftir þetta þýska leikskáld en um jólin var fyrsti hlutinn Ellen B frumsýndur þar á bæ og svo verður loka hnykkurinn, Egal, frumsýndur í haust í leikstjórn leikskáldsins sjálfs. Við ræðum við þýðanda allra þessara verka, Bjarna Jónsson, um Meyenburg og glímun...
Svipmynd: Goddur 25.01.2023 55:00
Guðmundur Oddur Magnússon, oftast kallaður Goddur, er listamaður og fyrrverandi prófessor í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. Hann stundaði myndlistarnám við nýlistadeild MHÍ og lærði svo grafíska hönnun við Emily Carr University of Art & Design í Kananda. Goddur kom á námi í grafískri hönnun við Myndlistarskólann á Akureyri og varð deildarstjóri í grafískri hönnun við MHÍ 1995 til loka s...
Ópera um ást og ofbeldi, Tól, Cast of mind 24.01.2023 55:00
Bandaríska myndlistarkonan B. Ingrid Olson er á mála hjá i8 galleríi í Reykjavík. Á föstudag var opnuð sýning með verkum hennar í sýningarrými gallerísins í Marshall húsinu úti á Granda. Um er að ræða langtíma sýningu sem standa mun fram í desember en hún mun umbreytast á sýningartímabilinu og kveikja þannig hugrenningar um tengsl tíma og myndlistar. Við ræðum við Oloson um sýninguna Cast of mind...
Myrkir músíkdagar, Marat/Sade, Ljóðstafur Jóns úr Vör 23.01.2023 55:00
Sunna Dís Másdóttir tók við Ljóðstaf Jóns úr Vör við hátíðlega athöfn um helgina, og kallast sigurljóð hennar ?Á eftir þegar þú ert búin að deyja?. Ljóðstafurinn, sem hefur verið veittur frá 2001 í minningu skáldsins Jóns úr Vör, er veittur að lokinni samkeppni þar sem öllum er frjálst að senda inn frumsamin ljóð, og undir dulnefni. Hér takast því á reyndari skáld og þau yngri í jöfnum leik. Alls...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.