RÚV

Víðsjá

Arts IS ↓ 887 episodes

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána. Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Be sure to visit the podcast's website and support the creator: www.ruv.is

Author

RÚV

Category

Arts

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Oct 13, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android almost 10M downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Arthur Lee og Love, Ungi einleikarar og alþjóðlegu Booker verðlaunin 25.05.2023

Búlgarski rithöfundurinn og ljóðskáldið Georgi Gospodinov hlaut í vikunni alþjóðlegu Booker verðlaunin fyrir sína fjórðu skáldsögu, Time Shelter í þýðingu Angela Rodel. Þetta er í fyrsta sinn sem bók skrifuð á búlgörsku hlýtur þessa virtu viðurkenningu og annað árið í röð sem verðlaunin fara til bókar sem skrifuð er á tungumáli sem ekki hefur hlotið Bookerinn áður. Á hverju ári fer fram keppni ung...

Sigurður Guðjónsson á Hjalteyri, Manfreð í Smiðshúsi og Lónið 24.05.2023

Myndlistarmaðurinn Sigurður Guðjónsson er hvað þekktastur fyrir tímatengd verk sem rannsaka manngerðar vélar og tækniminjar. Um liðna helgi opnaði hann sýninguna ?Leiðni leiðir? í Verksmiðjunni á Hjalteyri um liðna helgi, en þar hefur hann umbreytt 2000 fermetra verksmiðjurými í fjölskynjunarverk hreyfingar og hljóðs. Þetta er verk sem leikur með tíma og orku, en Sigurður vinnur út frá miðju hússi...

Svipmynd af hljómsveitarstjóra 23.05.2023

Bjarni Frímann Bjarnason hljómsveitarstjóri, píanóleikari og tónlistarmaður hefur unnið að ansi fjölbreyttum verkefnum í gegnum tíðina. Hann stundaði fiðlunám sem ungur drengur en en lauk síðan víóluleik frá Listaháskóla Íslands. Í framhaldinu stundaði hann síðan nám í hljómsveitarstjórn við Hanns Eisler-tónlistarháskólann í Berlín. Bjarni hefur komið fram víða um heim, bæði sem strengja- og hljóm...

Súrrealisminn 22.05.2023

Víðsjá rifjar í dag upp þátt frá árinu 2010 um súrrealismann. Aðalviðmælandi í þættinum er Benedikt Hjartarson bókmenntafræðingur.

Korda samfónía, Melanie Ubaldo, Mótettukórinn 17.05.2023

Vestræn klassísk tónlist er ekki miðdepill alls, segir Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths sem stýrir stórsveitinni Kordu Samfóníu. Korda samfónía er sennilega ein óvenjulegasta hljómsveit landsins því hana skipa bæði lfagfólk úr tónlist og fólk sem orðið hefur fyrir hverskyns áföllum og sem er í endurhæfingarferli. Sveitin byggir á stórsveit sem Sigrún setti saman í London fyrir rúmum 10 árum, þar sem...

Sunna Gunnlaugsdóttir, Snorri Ásmundsson 16.05.2023

Becoming kallast ný plata jazzpíanistans Sunnu Gunnlaugsdóttur. Platan hefur vakið athygli í jazzheiminum enda tríó Sunnu með tryggan hlustendahóp eftir 20 ár í bransanum. Sunna segir þau spila evrópskan samtímajazz, sem einkennist af bandaríksum rótum og norrænni lýrík. Við ræðum við Sunnu í þætti dagsins, um ferðalög í músík og músíkina í ferðalögum, skapandi ferli og sambandið við hlustendur, s...

Matthew Barney, Úlfur Eldjárn, Ísak Harðarson 15.05.2023

Úlfur Eldjárn gaf út nýtt lag í síðustu viku og von er á plötu á næstunni. Lagið ber nafnið Continuum, og gefur forsmekk að því sem koma skal í nýrri plötu, Það er samið fyrir píanó og rafrænan hljóðheim sem er að mestu búinn til úr píanóhljóðum. Úlfur mun setjast við flygilinn í Hannesarholti á miðvikudag og flytja tónlist af væntanlegri plötu, með aðstoð tölvu, hljóðgervla og hljóðfetla og tvegg...

Matthew Barney, Úlfur Eldjárn, Ísak Harðarson 15.05.2023

Úlfur Eldjárn gaf út nýtt lag í síðustu viku og von er á plötu á næstunni. Lagið ber nafnið Continuum, og gefur forsmekk að því sem koma skal í nýrri plötu, Það er samið fyrir píanó og rafrænan hljóðheim sem er að mestu búinn til úr píanóhljóðum. Úlfur mun setjast við flygilinn í Hannesarholti á miðvikudag og flytja tónlist af væntanlegri plötu, með aðstoð tölvu, hljóðgervla og hljóðfetla og tvegg...

Safnasafnið, Jenný Karlsdóttir, Nýjar raddir 11.05.2023

Það er alltaf ánægjuefni þegar Safnasafnið á Svalbarðsströnd opnar dyr sínar í sumarbyrjun. Í blíðskaparveðri um liðna helgi tóku stofnendur safnsins, Níels Hafstein og Magnhildur Sigurðardóttir, ásamt stjórn safnins, á móti fjölda fólks þegar sýningar þessa árs voru opnaðar með pompi og prakt. Í þessu höfuðsafni íslenskrar alþýðulistar er nú enn eitt sumarið hægt að sjá fjölbreyttar sýningar ólík...

Svipmynd af hönnuði, Þú 10.05.2023

Búi Bjarmar Aðalsteinsson vöruhönnuður er gestur okkar í svipmynd dagsins. Búi hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir frumkvöðlastörf, meðal annars fyrir mat framleiddan úr afgöngum og skordýrum. Hann rekur hönnunarstofuna Grallaragerðina ehf, starfar sem stafrænn leiðtogi hjá Reykjavíkurborg, og hefur kennt við Listaháskólann. Hann nam sálfræði við Háskóla Íslands áður en hann fór í hönnu...

Fimmtíu plöntur fyrir frið, Tónbil, Norma Tanega 09.05.2023

Katrín Elvarsdóttir ljósmyndari sýnir nýjar ljósmyndir sínar í Berg Contemporary galleríi við klapparstíg sem heitir Fimmtíu plöntur fyrir frið. Þar ljósmyndar Katrín gróður, bæði bananaplöntur og forláta kirsuberjatré sem eru friðartákn frá félögum sem tengjast Japan og voru gróðursett í Hljómskálagarðinum árið 2011. Við heimsækjum galleríið og ræðum við Katrínu í þættinum. Í Hörpu er um þessar m...

Athugasemdir, Tunglóður, Jerúsalem 08.05.2023

Ljóðverkið Tunglóður er óðs manns óður segir í kynningartexta um nýja ljóðabók, fyrstu ljóðabók Karls Ólafs Hallbjörnssonar. Karl Ólafur er heimspekimenntaður og innblásinn af skáldskap fornaldar, íslenskri náttúru og reynir gjarnan að hafa brag á ljóðunum án þess að hafa hátt eins og hann kemst sjálfur að orði. Þetta er óður til hverfulla tunglhvarfa tilfinninganna og óður til hversdagslegu fegur...

útvarp verður tónverk, Fullorðið fólk og verðmæti andlegrar næringar 04.05.2023

Sameiginleg ástríða fyrir útvarpi er kveikjan að nýju tónverki kammerhópsins Ensamble Adapter, sem frumflutt verður í Hafnarborg á sunnudag. Hópurinn, sem stofnaður var stofnaður í Berlín 2004, skapar frumsamda nútímatónlist og einblínir fyrst og fremst á samstarf og samsköpun með fjölbreyttum hópi listamanna sem koma víðsvegar að. Allt frá stofnun hópsins hefur hann frumflutt hundruði verka og ko...

Svipmynd af rithöfundi 03.05.2023

Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur, myndhöfundur og kennari er gestur okkar í Svipmynd dagsins. Ragnheiður hefur bæði skrifað og myndskreytt bækur fyrir börn og unglinga auk þess að vera höfundur þriggja glæpasagna. Unglingasögur hennar hafa vakið mikla athygli og hefur Ragnheiður hlotið bæði Norrænu barnabókaverðlaunin og Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir verk sín. Hún hlaut einnig Blóðdropann,...

Ýrúrarí, Mæður og synir og Kría 02.05.2023

Hönnunarmars er í þann mund að hefjast. Alls eru um 100 sýningar á dagskrá hátíðar í ár og 120 viðburðir svo það er af nægu að taka fyrir alla forvitna um það sem er að gerast í heimi hönnunar, hvort sem það er í formi nytjahluta eða samtali um hugmyndafræðina sem knýr hönnun í dag. Um liðna helgi opnaði sýning í Hönnunarsafni Íslands á verkum textílhönnuðarins Ýrar Jóhannsdóttur, en hún hannar un...

Íslenski dansflokkurinn 50 ára, Til hamingju með að vera mannleg 27.04.2023

Íslenski dansflokkurinn fagnar um þessar mundir 50 ára afmæli. Flokkurinn var stofnaður árið 1973 eftir þó nokkurn aðdraganda. Það voru svo ballettmeistararnir Alan Carter og Julia Claire sem komu hingað til lands til að vinna að stofnun þessa atvinnu dansflokks 1. júní 1973. Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Íslenski dansflokkurinn, sem hefur nú aðstöðu í Borgarleikhúsinu, hefur öðlast...

Svipmynd af rektor Listaháskóla Íslands, Maístjarnan 26.04.2023

Kristín Eysteinsdóttir hefur verið ráðin nýr rektor Listaháskóla Íslands. Kristín er auðvitað þjóðkunn kona. Eftir stuttan tónlistarferil fór hún í nám í dramatúrgíu til Árósa, tók svo meistaragráðu í leikstjórn í London og starfaði um árabil sem fastráðinn leikstjóri við Borgarleikhúsið. Hún tók við starfi Borgarleikhússtjóra 2014 og stýrði leikhúsinu við góðan orðstír, sýningar slógu aðsóknarmet...

Horfinn heimur, bókmenntahátíð, skjalavarsla 25.04.2023

Á morgun verður heimildamyndin Horfinn heimur eftir Ólaf Sveinsson forsýnd í Bíó Paradís. Myndin fjallar um gerð Kárahnjúkavirkjunar og hefur verið mörg ár í vinnslu. Hún var að mestu tekin sumarið 2006, skömmu áður en byrjað var að safna vatni í Hálslón Kárahnjúkavirkjunar, en einnig næstu sumur á eftir, og síðast árið 2021 mynduðu kvikmyndagerðarmennirnir þær breytingar sem orðið hafa á svæðinu...

Smáatriðin, Svartþröstur, óáþreifanlegur menningararfur 24.04.2023

Kona með háan hita vegna veirusýkingar tekur bók eftir Paul Auster úr bókaskápnum heima hjá sér. Á saurblaðinu er áritun frá fyrrverandi kærustu. Minningarnar flæða fram og smátt og smátt kynnumst við fyrrverandi kærustunni betur, en líka sögumanni. Þetta er fyrsta portrettið af fjórum sem myndast í huga sögumannsins í Smáatriðunum eftir sænska rithöfundinn Iu Genberg. Smáatriðin hlaut August-verð...

Guðmundur Andri Thorsson, Berglind María Tómasdóttir og barnamenning 18.04.2023

Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur kemur í heimsókn með nýútkomna bók sem hann kallar Rimsírams. Þar er að finna alls kyns stutta texta, hugleiðingar um líf og samfélag, lífsreglur sem skipulagðar eru eftir gömlu íslensku mánuðunum, kveðskap, reynslu- og bernskusögur. Guðmundur Andri er gestur Víðsjár í síðari hluta þáttarins. Tíbrá tónleikaröðin heldur áfram í Salnum í Kópavogi í kvöld þar sem...

Guðmundur Andri Thorsson, Berglind María Tómasdóttir og barnamenning 18.04.2023

Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur kemur í heimsókn með nýútkomna bók sem hann kallar Rimsírams. Þar er að finna alls kyns stutta texta, hugleiðingar um líf og samfélag, lífsreglur sem skipulagðar eru eftir gömlu íslensku mánuðunum, kveðskap, reynslu- og bernskusögur. Guðmundur Andri er gestur Víðsjár í síðari hluta þáttarins. Tíbrá tónleikaröðin heldur áfram í Salnum í Kópavogi í kvöld þar sem...

Kristinn E. Hrafnsson og tíminn, Sif Ríkarðsdóttir og tilfinningar 17.04.2023

Í Víðsjá dagsins: samtal um myndlist og tímann og tilfinningar í Íslendingasögum. Í Hverfisgalleríi var opnuð á laugardag sýningin allt er nálægt þar sem finna má ný og nýleg verk eftir Kristinn Hrafnsson. Verkin hafa öll með sjálfan tímann að gera, hvernig hann streymir áfram á sínum skrykkjótta hraða, hvaðan hann kemur og hvert hann fer. Við hittum myndlistarmanninn í galleríinu. Við veltum líka...

Biðin eftir Godot, köttur mús og greind, og tónlistarlegt samhengi 13.04.2023

Sveinn Einarsson, leikstjóri, rithöfundur og fyrrverandi leikhússtjóri, var einn þeirra heppnu sem fengu að upplifa umbyltingu leikhússins í París um miðja síðustu öld. Leikhús fáránleikans hitti hann beint í hjartastað og verk Samuel Beckets gáfu hans kynslóð rödd sem enn talar til okkar. Á sunnudag flytur Leiklestrarfélagið Beðið eftir Godot í Borgarleikhúsinu og það er Sveinn sem stýrir þar ein...

Til hamingju með að vera mannleg, Come closer 12.04.2023

Sigríður Soffía Níelsdóttir, eða Sigga Soffía, er danshöfundur og dansari sem hefur unnið að fjölbreyttum verkefnum frá því hún útskrifaðist sem dansari frá Listaháskóla Íslands 2009. Hún frumsýnir nýtt leikverk í Þjóðleikhúsinu þann 19.apríl, verkið kallast Til hamingju með að vera mannleg og er unnið upp úr samnefndri ljóðabók. Bókina skrifaði Sigga Soffía þegar hún gekk í gegnum krabbameinsmeðf...

11.04.2023

Listen to the Víðsjá podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.