RÚV

Þetta helst

News IS ↓ 713 episodes

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 30, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Þetta liggur fyrir um harmleikinn á Edition-hótelinu 01.09.2025

Fréttir um andlát feðgina á Edition-hótelinu í Reykjavik í sumar hafa vakið mikla athygli síðustu mánuði. Eiginkona mannsins sem lést og móðir konunnar situr í gæsluvarðhaldi grunuð um að hafa banað þeim. Málsvörn konunnar snýst meðal annars um það að fjölskyldan hafi komið til Íslands til þess að deyja. Sjálf var konan með stungusár þegar lögreglan kom á vettvang. Freyr Gígja Gunnarsson, blaðamað...

Barátta hrossabóndans gegn álverinu í Hvalfirði 29.08.2025

Hrossabóndinn Ragnheiður Þorgrímsdóttir segir að þöggun ríki í samfélaginu um skaðlega mengun frá álverinu í Hvalfirði. Hún hefur skrifað bók um baráttu sína gegn mengun álverins. Bókin heitir Barist fyrir veik hross: Frásögn úr grasrótinni. Ragnheiður býr á bænum Kúludalsá í Hvalfirði. Ragnheiður hefur síðastliðin 16 ár gagnrýnt álver Norðuráls á Grundartanga vegna meintrar mengunar frá því. Hún...

Aðstæður kvenna sem þurfa örorku 28.08.2025

Konur yfir fimmtugu fara í auknum mæli á örorku. Við umfangsmikar breytingar á öroku- og endurhæfingakerfinu á Íslandi var gerð sérstök rannsókn á aðstæðum þessara kvenna. Við ræðum um umönnunarstrit, vaktavinnu, fjárhagsáhyggjur og húsnæðisvanda sem á endanum kostar sitt. Viðmælendur: Huld Magnúsdóttir, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir og Ari Klængur Jónsson. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Refsingar dómstóls götunnar 27.08.2025

Heimspekingurinn Róbert H. Haraldsson hefur skrifað grein um dómstól götunnar sem vakið hefur nokkra athygli. Lúkasarmálið, KSÍ-málið, Atla Rafns-málið, mál Ingós veðurguðs, Klausturmálið, Sigurðar Inga-málið og fleiri og fleiri eru meðal annars viðfangsefni Róberts í greininni sem birtist í tímaritinu Skírni nú í vor. Í greininni fjallar hann um útilokunar- og slaufunarmenningu út frá sjónarhóli...

„Þvælan“ í Laxárdal - deilur í fjölskyldu Ásmundar Einars 26.08.2025

Í áratugi hefur stór fjölskylda Laxárdal í Dölunum tekist á um land og yfirráð, arf og skiptingu hans. Við sögu koma skemmdarverk, hefndaraðgerðir, skítahaugar og rotnandi hræ svo eitthvað sé nefnt. Ástæðan fyrir því að málið hefur reglulega ratað í fréttir er ekki síst að í fjölskyldunni sem deilir er fyrrum þingmaðurinn og ráðherrann Ásmundur Einar Daðason. Héraðsdómur Reykjaness kvað upp dóm í...

Áralöng átök um liðskiptaðgerðir 25.08.2025

Eftir að einkafyrirtæki eins og Klíníkin og Cosan byrjuðu að gera liðskiptaaðgerðir með kostnaðarþátttöku ríkisins árið 2023 hefur biðtími eftir þessum aðgerðum snarminnkað. Biðlistakerfið sem stýrir aðgangi að þessum aðgerðum er hins vegar gallað og vanhugsað segir Hjörtur Hjartarson, forstöðulæknir á Landspítalanum. Hann segir að kerfið bjóði upp á og hafi leitt til hagsmunaárekstra á milli eink...

Tengsl tveggja stærstu rána Íslandssögunnar 22.08.2025

Lögregla hefur grun um að sami maður og játað hefur þátt í einu stærsta ráni Íslandssögunnar í Hamraborg í fyrra hafi verið að verki þegar hraðbanka var skóflað með gröfu út úr byggingu í Mosfellsbæ í vikunni. Talið er að um tuttugu milljónir króna hafi verið í hraðbankanum. Þóra Tómasdóttir skoðar möguleg tengsl ránanna og annarra stórra sakamála. Viðmælandi: Sveinn Andri Sveinsson verjandi sakbo...

Eldislaxarnir í íslenskum ám 21.08.2025

Eldislaxar hafa fundist í laxveiðiám á Vestur- og Norðurlandi síðustu vikuna. Fréttirnar hafa vakið mikla athygli og kallaði Fiskistofa til teymi norskra kafara sem eru sérhæfðir í því að veiða eldislaxa í ám í Noregi. Kafararnir fundu miklu færri eldislaxa en búist var við en einn þeirra segir að búist megi við að miklu fleiri fiskar eigi eftir að finnast á næstu vikum. Fjallað er um þetta eldisl...

Með bullandi áhyggjur af ökuhæfni foreldra 20.08.2025

Öldrunarlæknirinn Steinunn Þórðardóttir segir tímabært að breyta reglum og umgjörð um ökuréttindi aldraðra. Hún telur fyrirkomulagið í núverandi mynd veita falskt öryggi. Kristín Jónsdóttir segir okkur frá samskiptum við föður sinn sem vildi alls ekki hætta að keyra þó hann væri að tapa færninni 94 ára gamall. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Gagnrýnir að Landspítalinn sé gerður hornreka 19.08.2025

Svandís Svavarsdóttir, fyrrverandi þingmaður VG og fyrrverandi heilbrigðisráðherra, gagnrýnir að Landspítalinn sé ekki aðili að nýjum samningum íslenska ríkisins við einkarekin heilbrigðisfyrirtæki. Sjúkratryggingar Íslands undirrituðu langtímasamninga við um skurðaðgerðir við þau í síðustu viku. Svandís segir að hún hafi alltaf talið heppilegra þegar hún var heilbrigðisráðherra að Landspítalinn v...

Ökuréttindi og aldursfordómar 18.08.2025

Á Íslandi þurfa eldri borgarar að endurnýja ökuréttindi sín örar en tíðkast í flestum nágrannalöndum okkar. Guðbrandur Bogason sem hefur verið formaður Ökukennarafélagsins í 27 ár, segir það endurspegla fordómum fyrir eldri borgurum. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir þingkona Miðflokksins er að reyna að fá lögunum breytt svo eldra fólk þurfi ekki standa í þessu veseni. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Sögulegir samningar um skurðaðgerðir 15.08.2025

Í vikunni var sagt frá því að Sjúkratryggingar Íslands hefðu gert samninga við þrjú einkarekin heilbrigðisfyrirtæki um að þau geri allt að 1000 skurðaðgerðir á ári með kostnaðarþátttöku íslenska ríkisins. Samningarnir eru til þriggja ára. Um er að ræða sögulega samninga að því leyti að ekki hafa áður verið gerðir langtímasamningar við einkaaðila um liðskiptaaðgerðir hér á landi. Tekist hefur verið...

Baráttan um vörumerkið Iceland 14.08.2025

Í áraraðir máttu íslensk fyrirtæki ekki nota nafnið Iceland í sinni markaðssetningu. Jafnvel þó það væri þeim mikilvægt að tengja vörur þeirra og þjónustu við upprunalandið sem hafði jákvæða ímynd í hugum evrópskra neytenda. Ástæðan var sú að bresk matvörukeðja hafði tryggt sér víðtæka skráningu á nafninu Iceland sem sitt vörumerki. Umsjón: Þóra Tómasdóttir Viðmælendur: Lilja Dögg Alfreðsdóttir og...

Ósagða sagan um Klíníkina 13.08.2025

Eftirlitsstofnunin Sjúkratryggingar Íslands ákvað að láta ógert að krefja skurðlækni hjá einkarekna heilbrigðisfyrirtækinu Klíníkinni um 87 milljónir króna vegna meintra ofrukkana. Fjallað er um þessa ákvörðun í gagnrýnni skýrslu sem Ríkisendurskoðun vann um starfsemi Sjúkratrygginga Íslands og birti nú í sumar. Ein helsta niðurstaða skýrslunnar er að eftirlit Sjúkratrygginga Íslands með þeim peni...

Kvikasilfur á Veðurstofuhæð 12.08.2025

Hitastig á landinu var í áratugi mælt með kvikasilfursmælum. Veðurstofan rak mannaðar veðurstöðvar víða um landið með slíkum mælum. Nú hefur Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur staðfestan grun um að á Veðurstofuhæðinni í Reykjavík sé kvikasilfursmengun í jörðu. Reiturinn er merktur hæsta áhættuflokki á korti Umhverfis- og orkustofnunar yfir mengaðan jarðveg. Við heyrum forvitnilega frásögn af því sem...

Leitin að heita vatninu 11.08.2025

Ímyndum okkur að hægt sé að auka ráðstöfunartekjur 14 þúsund heimila um tugi þúsunda á ári, spara ríkinu 2,5 milljarða á ári og bæta ígildi meðalstórrar virkjunar inn á raforkukerfið. Eitthvað í þá áttina yrði ávinningurinn ef heitt vatn finnst á köldum svæðum á Íslandi. Bergsteinn Sigurðsson ræddi við Eddu Báru Árnadóttur verkaefnastjóra hjá Bláma. Hún leitar að heitu vatni á Patreksfirði.

Ráðgátan um horfna fiðluleikarann-3.þáttur 27.06.2025

Rannsókn lögreglu á hvarfi Sean Bradley árið 2018 fór fljótt að snúast um rannsókn á aðal vitninu í málinu. Konunni sem hann var talinn hafa farið með úr landi. Konan á sér sögu sem gerði það að verkum að vinir Sean gátu ekki treyst henni. Nokkru áður en Sean hvarf hafði hann fengið fúlgur fjár í arf frá ættingjum á Írlandi. Rannsóknin lögreglu sneri meðal annars að því hvort einhver hefði verið á...

Fæðardeilan um vatnið og laxinn á Suðurlandi 26.06.2025

Finnur Björn Harðarson, leigutaki laxveiðiárinnar Stóru-Laxár í Hreppum á Suðurlandi, hefur átt í hörðum og persónulegum deilum við eigendur jarðarinnar Iðu síðastliðin ár. Hann vænir fólkið sem á Iðu um stórfellt, óþarfa laxadráp í ármótum Stóru-Laxár og Hvítar sem skemmi fyrir laxgegnd og hrygningu í Stóru-Láxá. Eigendur Iðu væna Finn hins vegar um eignaspjöll og ólögmæta umgengni um land þeirra...

Ráðgátan um horfna fiðluleikarann - 2.þáttur 24.06.2025

Írski fiðluleikarinn Sean Bradley hvarf sporlaust frá Íslandi árið 2018. Hvarf hans er ráðgáta sem lögreglu hefur ekki enn tekist að upplýsa. Mikilvægasti upplýsingagjafi lögreglunnar um málið er konan sem síðast sá hann á lífi. Hún er talin hafa farið með honum til Spánar. Leit okkar að Sean Bradley fer hins vegar fljótt að breytast í leitina að konunni. Þessi þáttur fjallar um hana og hvers vegn...

„Loksins á ég öruggt heimili“ - leigjendur hjá Bjargi 23.06.2025

Í þættinum er rætt við tvær konur sem telja sig heppnar að hafa fengið inni hjá leigufélaginu Bjargi. Þær segja það hafa gjörbreytt stöðu þeirra og skapað þeim öryggi sem þær hafa ekki fundið fyrir á húsnæðismarkaðnum áður. Umsjón: Bergsteinn Sigurðsson

Fyrirtæki Ratcliffes vill leigja fleiri laxveiðiár 20.06.2025

Six Rivers, fyrirtæki enska milljarðamæringsins Jim Ratcliffe, er með sex laxveiðiár á Norðausturlandi. Fyrirtækið hefur áhuga á að minnsta kosti fjórum ám til viðbótar. Þetta eru Laxá í Aðaldal, Svalbarðsá, Sandá og Ormarsá. Jim Ratcliffe er í hópi ríkustu manna heims og er hann hvað þekktastur fyrir eignarhald sitt á enska knattspyrnufélaginu Manchester United. Rætt er við framkvæmdastjóra Six R...

Ráðgátan um horfna fiðluleikarann -1.þáttur 19.06.2025

Írski fiðluleikarinn Sean Bradley heillaði stjórnendur Sinfóníuhljómsveitar Íslands með leik sínum og hreppti fasta stöðu í sveitinni á níunda áratugnum. Hann lék með Sinfó í rúman áratug og kenndi við tónlistarskóla víða um landið. Árið 2018 hvarf hann sporlaust. Þá virðist hann hafa flogið til Spánar með konu sem leigði af honum íbúð. Vinir Sean vantreysta konunni og kalla eftir svörum um hvað v...

Stríð hrossabóndans við álverið í Hvalfirði 18.06.2025

Hrossabóndinn Ragnheiður Þorgrímsdóttir, bóndi á Kúludalsá í Hvalfirði, hefur staðið í stappi við álfyrirtækið Norðurál sem rekur álverið á Grundartanga í Hvalfirði. Ragnheiður hefur í 18 ár haldið því fram að hrossinn hennar hafi hennar veikst vegna flúormengunar frá álverinu. Hún hefur þurft að láta lóga hrossunum vegna þessarar meintu mengunar. Hrossinn sem hún hefur þurft að láta lóga eru meir...

Viðar leigir út 56 stúdíóíbúðir og herbergi 16.06.2025

Viðar Guðjohnsen er stórtækur leigusali 56 stúdííóíbúða og herbergja í fasteign sem hann á í Reykjavík. Viðar var tiltölulega lítt þekktur í samfélaginu þar til árið 2018 en þá bauð hann sig fram í leiðtogakjöri hjá Sjálfstæðisflokknum fyrir borgarastjórnarkosningar. Viðar lýsir því hvernig það kom til að hann byggði húsið sem hann í Mörkinni 8 með þessum íbúðum og herbergjum fyrir meira en þremur...

Endurflutningur: Tímamót í meðhöndlun á Alzheimer 13.06.2025

Talið er að amk 6000 manns glími við heilabilun á Íslandi. Því þykir fagnaðarefni að lyfið Leqembi hafi fengið markaðsleyfi hér á landi. Lyfið er sagt það fyrsta sem virðist hafa áhrif á undirliggjandi ferli Alzheimer-sjúkdómsins. Öldrunarlæknar tala um tímamót í meðhöndlun við þessa erfiða sjúkdóms. Viðmælendur: Helga Eyjólfsdóttir yfirlæknir minnismóttökunnar og öldrunarlæknirinn Steinunn Þórðar...

Listen to the Þetta helst podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.