RÚV

Þetta helst

News IS ↓ 713 episodes

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 30, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Stjórnendur Play höfðu þrjá kosti í stöðunni 12.06.2025

Fjórir lífeyrissjóðir eru meðal 20 stærstu hluthafa flugfélagsins Play sem nú stendur á tímamótum eftir að greint var frá yfirtökutilboði tveggja hluthafa félagsins í vikunni. Þessi hluthafar eru forstjórinn Einar Örn Ólafsson og Elías Skúli Skúlason, sem er varaformaður stjórnar. Hluthafar Play munu tapa miklum peningum ef líkum lætur. Hluthöfum Play stendur til boða að ganga að yfirtökutilboðinu...

Börn eiga ekki að sofa úti í vagni 11.06.2025

Hjúkrunarfræðingurinn Herdís Storgaard segir í nýjum tilmælum á Heilsuveru að foreldrar eigi ekki að láta börn sín sofa úti í vagni. Þeir eigi að henda gömlu bastvöggunum frá Blindrafélaginu og alls ekki nota hin svokölluðu hreiður í svefnumhverfi barna. Þóra Tómasdóttir talaði við hana.

Breytt staða brunavarna eftir heimsókn lögreglu til Quang Le 10.06.2025

Slökkviliðið má fara inn í íbúðarhúsnæði þar sem grunur leikur á að brunavarnir séu í ólagi. Þetta er niðurstaða úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í lok apríl. Landsréttur staðfesti þessa niðurstöðu í byrjun maí. Úrskurðurinn á rætur sínar að rekja til þess að slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk ábendingu frá lögreglunni um að brunavörnum kynni að vera ábótavant í húsi í Katrínartúni í Rey...

Barátta eftirlifenda Kielland-slyssins 06.06.2025

Í gær var stór stund í lífi rúmlega tvö hundruð fjölskyldna sem upplifðu hörmungar þegar olíuborpallurinn Alexander Kielland hrundi í Norðursjó, árið 1980. 45 árum síðar samþykkti norska Stórþingið að greiða ætti bætur til þeirra sem upplifðu eða misstu ástvin í þessu mannskæðasta vinnuslysi í sögu Noregs. Meðal þeirra sem létust var Íslendingurinn Hans Herbert Hansen. Hann var 33 ára Akureyringur...

„Helvíti“ að búa undir herbergjahóteli 05.06.2025

Hjón á miðjum aldri lýsa því hvernig það hefur verið að búa undir herbergjahóteli í miðbæ Reykjavíkur í tæpan áratug. Blaðamaður Þetta helst heimsótti konuna og eiginmann hennar í íbúðina þeirra. Í húsinu með þeim búa 7 til 8 einstaklingar í litlum herbergjum. Leigusali þeirra er fyrirtækið 101 house sem sérhæfir sig í útleigu á herbergjum í póstnúmeri 101 í Reykjavík. Eigandi fyrirtækisins er Ind...

Glæsihótel verður hjúkrunarrými 04.06.2025

Fyrir hálfum mánuði réðst Inga Sæland með sleggju á veggi í hinni sögufrægu byggingu Loftleiða í Reykjavík. Tilgangurinn með hamaganginum í ráðherranum var að vekja athygli á því að ríkið hefði komist að samkomulagi við fasteignafélagið Reiti um að húsnæðinu yrði breytt í hjúkrunarrými. Ráðast á í gangerar endurbætur á húsinu svo það geti svalað brotabrot af þörf þjóðarinnar fyrir hjúkrunarrými. Í...

Grásleppublótið á Bakkafirði 03.06.2025

Um helgina var haldið grásleppublót á Bakkafirði Í Langanesbyggð á norðausturlandi. Þar var þessi kynlega fisktegund heiðruð með hátíðahöldum og fjölbreyttri dagskrá. Boðið var upp á siglingu í grásleppubáti. Gestir fengu frumlega rétti sem búnir eru til úr þessum fiski. Frumsýnd var heimildarmynd um grásleppuveiðar eftir Rut Sigurðardóttur. Börnin fengu að handleika og skella kossi á lifandi grás...

Nýja hægrið- þeir sem vilja að heimurinn sé eins og fyrirtæki 02.06.2025

Dagskrárgerðarmennirnir Lóa Björk Björnsdóttir og Kristján Guðjónsson hafa að undanförnu sökkt sér ofan í hugmyndir hins nýja hægris í Bandaríkjunum. Um það fjalla þau í hlaðvarpsþáttunum Konungssinar í Kísildal. Þau segja okkur frá róttækri framtíðarsýn nokkurra ólíkra hugsuða sem eiga það sameiginlegt að styðja Donald Trump, hata woke-ismann og vilja reka samfélög eins og fyrirtæki.

Fólkið sem er stórtækt í útleigu herbergja 30.05.2025

Bruninn á Hjarðarhaga í síðustu viku hefur enn og aftur vakið upp umræðu um stöðu erlends verkafólks á íslenskum leigumarkaði sem býr í herbergjahótelum. Með herbergjahótelum er átt við fasteignir þar sem fólk sem er ótengt býr í herbergjum og deilur eldhúsaðstöðu og salerni. Einn þeirra sem er orðinn stórtækur á þessum leigumarkaði með herbergi er veðufræðingurinn og prófessorinn Haraldur Ólafsso...

Guðrún Hafsteins dustar ryk í Valhöll 28.05.2025

Mörg spjót standa á Guðrúnu Hafsteinsdóttur formanni Sjálfstæðisflokksins þessa dagana. Hún er gagnrýnd fyrir að vera ekki búin að hífa upp fylgi flokksins og vera ósýnileg í umræðu um veiðigjöld. Við heimsækjum Guðrúnu á formannsskrifstofu hennar í Valhöll og heyrum hvernig hún hyggst tækla verkefnin og lægja öldur eftir klofning flokksins á síðasta landsfundi hans. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Hjarðarhagamálið og aðstæður erlends verkafólks á leigumarkaði 27.05.2025

Bruninn á Hjarðarhaga í síðustu viku hefur vakið mikla athygli og er til rannsóknar hjá lögreglu. Fjórir menn bjuggu saman í íbúðinni sem er 80 fermetrar að stærð og með þremur herbergjum, samkvæmt fasteignamati. Þeir voru allir að erlendu bergi brotnir. Einn Bandaríkjamaður, einn Tékki og tveir Ungverjar. Þeir tengdust ekki innbyrðis. Búið var að stúka af hluta íbúðarinnar til að búa til fleiri l...

Staða Guðrúnar Hafsteins í Sjálfstæðisflokknum 26.05.2025

Við ætlum að ræða um stöðu Guðrúnar Hafsteinsdóttur eftir að hafa verið formaður Sjálfstæðisflokksins í tæpa þrjá mánuði. Nú er farið að bera á gagnrýni í garð Guðrúnar, meðal annars úr stuðningshópi Áslaugar Örnu. Gagnrýnin er viðruð í hlaðvörpum og skoðanagreinum og lútir að því að nýr formaður hafi ekki uppskorið eins og hún sagðist vilja gera. Viðmælendur: Eva Heiða Önnudóttir, Andrés Magnússo...

,,Líffræðilegar áskoranir” í sjókvíaeldi og framtíðin 23.05.2025

Stærsta laxeldisfyrirtæki landsins tapaði 3 milljónum evra vegna áhrifa laxalúsar og laxadauða hjá fyrirtækinu. Framleiðsla fyrirtækisins á eldislaxi dróst saman um meira en helming frá fyrsta ársfjórðungi 2024 vegna þessa. Framleiðslan fór frá 2800 tonnum á fyrstu þremur mánuðum ársins 2024 og niður í 1100 tonn á fyrstu þremur mánuðum þessa árs. Þetta kemur fram í uppgjöri Arnarlax fyrir fyrsta á...

Sífellt yngri burðardýr koma til Íslands 22.05.2025

Evrópska lögreglan Europol hefur áhyggjur af því að skipulagðir brotahópar noti í auknum mæli ungmenni til að fremja fyrir sig alvarlega glæpi. Angar af þeirri þróun hafa birst okkur hér á landi. Europol hefur einnig áhyggjur af því að gervigreindin auki afkastagetu skipulagðra glæpahópa. Fjölþætt starfsemi brotahópanna geti því, að mati Europol, grafið í auknum mæli undan stöðugleika í Evrópuríkj...

Pylsusalan hjá SS tvöfaldast í blíðunni 21.05.2025

Í blíðskaparveðrinu sem verið hefur á landinu síðustu daga taka margir fram grillin sín og fíra upp í þeim. Eitt af því sem margir grilla á góðviðrisdögum eru pylsur, ekki síst fyrir börnin. Forstjóri Sláturfélags Suðurlands (SS), Steinþór Skúlason, segir að pylsusala fyrirtækisins virka tvöfaldist í góðu veðri eins og verið hefur í landinu síðustu daga. En eru pylsur eins og hjá SS góður matur? U...

Mannúðarstarf orðið að vopni í stríði 20.05.2025

Sameinuðu þjóðirnar eru í djúpstæðri krísu og fé stofnunarinnar gæti orðið uppurið um mitt ár. Það kostar mannslíf og langþráða uppstokkun á starfsemi stofnunarinnar. SÞ hafa verið gagnrýndar fyrir fitulag í efstu þrepum, kostnaðarsama yfirbyggingu og fyrir að láta pólitík ráða för í mannúðarstarfi. Viðmælendur: Lára Jónasdóttir og Svanhildur Þórðardóttir. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Njósnafyrirtækið gerði hljóðritun á rannsakanda í Samherjamálinu 19.05.2025

Lögreglumennirnir fyrrverandi Jón Óttar Ólafsson og Guðmundur Haukur Gunnarsson hjá njósnafyrirtækinu PPP gerðu leynilega upptöku af samtali sínu við Jónas Helgason í nóvember árið 2012. Jónas var aðalrannsakandinn í gjaldeyriseftirliti Seðlabanka Íslands sem rannsakað hafði útgerðarfélagið Samherja á þessum tíma. Jónas tók meðal annars þátt í húsleit hjá Samherja og hafði 22 ára reynslu af störfu...

„Svo duglegar” þessar filippseysku au pair-stúlkur 16.05.2025

Við höldum áfram að ræða au pair-kerfið á Íslandi. Nú út frá sjónarhóli Rakelar Tönju Bjarnadóttur, fjögurra barna móður, sem hefur margvíslega reynslu af því. Svo heyrum við hvernig fyrirkomulagið horfir við Sigrúnu Ólafsdóttur, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur í rannsóknum sínum meðal annars skoðað ójöfnuð og aðstöðumun fólks í samfélaginu. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Ísland vill verða á heimsmælikvarða í landeldi á fiski 15.05.2025

Landeldi á laxi gæti orðið risastór atvinnugrein á Íslandi ef allt gengur að óskum hjá nokkrum fyrirtækjum sem eru hefja starfsemi í þessari grein hér á landi. Þrátt fyrir þessi auknu umsvif landeldisfyrirtækja hefur umræðan um þessa tegund fiskeldis verið tiltölulega lítil. Ástæðan er meðal annars sú að svo mikil umræða hefur verið um sjókvíaeldi á eldislaxi þar sem fiskurinn er alinn í kvíum í s...

Misnotkun á filippseyskum au pair-stelpum 14.05.2025

Ungar konur frá Filippseyjum koma í stórum stíl til Íslands á au pair leyfi, sem er vistráðning til íslenskra fjölskyldna. Vistin er ekki skilgreind launuð vinna og því eru au pair-ar utan stéttarfélaga og ekki með eiginlegt atvinnuleyfi. Það er því ekkert kerfi eða öryggisnet utan um þær sem lenda í slæmum aðstæðum. Norðmenn hafa aflagt kerfið vegna hneykslismála og í Danmörku er kerfið afar umde...

,,Hassprestur" gagnrýnir umræðu um hugvíkkandi efni 13.05.2025

Sveinn Rúnar Hauksson heimilislæknir ræðir um umræðuna um notkun á hugvíkkandi efnum eins og LSD eða sýru þegar hann var ungur maður á sjöunda áratugnum og umræðuna um hugvíkkandi efni í samfélaginu í dag. Sveinn Rúnar notaði LSD á sínum tíma en fór verst á hassreykingum og endaði meðal annars inni á geðdeild í Þýskalandi vegna dagreykinga. Tímabilið sem Sveinn Rúnar ræðir um er að hið svokallaða...

Skrápurinn skrældur af Ágústi Bent 12.05.2025

Hljómsveitin XXX Rottweiler hundar fagna 25 ára starfsafmæli sínu í Laugardalshöll 24. maí. Í þessum þætti reynir Þóra Tómasdóttir að skræla þykkan skráp af Ágústi Bent og komast að því hvernig líf hans hefur raunverulega verið þennan tíma.

Ástarsagan í kastalanum: ,,Einhvern veginn varð Sigurður að ná henni vestur” 09.05.2025

Í áratugi hefur kastalahúsið á Arngerðareyri í Ísafirði vakið aðdáum og furðu fólks sem hefur farið um Djúpið. Bygging hússins leiddi til þess að kaupfélagið sem byggði húsið, og Sigurður Þórðarson stýrði, varð gjaldþrota árið 1934. Sigurður hafði þá búið í húsinu ásamt eiginkonu sinni Ástu Jónsdóttur í nokkur ár. Samtímamenn Sigurðar furðuðu sig á því af hverju þetta hús var byggt á þessum stað o...

Úlfar Þormóðs: „Hallærisleg sýning“ hjá Listasafni Íslands 08.05.2025

Sýning Listasafns Íslands á fölsuðum verkum er síðasta verk Ólafs Inga Jónssonar forvarðar fyrir safnið. Með henni vill hann vekja fólk til umhugsunar um hvernig verk í stóra málverkafölsunarmálinu voru fölsuð. Verkin voru á sínum tíma rakin til Gallerís Borgar. Úlfar Þormóðsson, stofnandi Gallerís Borgar, gefur ekki mikið fyrir þetta framtak Listasafns Íslands. Hann er að skrifa bók um sína hlið...

Spurningarnar sem vakna um starfslok Kára og arfleifð hans 07.05.2025

Brottrekstur Kára Stefánssonar hjá Íslenskri erfðagreiningu hefur verið mikið til umfjöllunar í fjölmiðlum síðustu daga. Starfslok hans eru ekki ennþá að fullu útskýrð. Eigandi íslenskrar erfðagreiningar, bandaríska lyfjaþróunarfyrirtækið Amgen, hefur ekki viljað svara spurningum um starfslokin nema að litlu leyti. Fyrirtækið hefur sagt að það hafi verið strategísk ákvörðun hjá fyrirtækinu að brey...

Listen to the Þetta helst podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.