RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Skólar vilja ekki ClubDub vegna ummæla Brynjars 06.05.2025 16:18
Tónlistarmaðurinn Brynjar Barkarson, eða Lil Binni eins og hann kallar sig, birti á hugleiðingar sínar um innflytjendamál á samfélagsmiðlum í síðustu viku. Brynjar er annar tveggja meðlima í Club dub, sem er ein vinsælasta hljómsveit landsins. Viðbrögð við orðum Brynjars hafa vakið hörð viðbrögð og orðið til þess að bandið hans var afbókað af grunnskólaböllum í Reykjavík.
,,Tékkneski sfinxinn" sem vill flytja út vikur úr Kötlu 05.05.2025 16:03
Fyrirtæki tékkneska milljarðamæringins Daniel Kretinsky vill byggja tveggja kílómetra langa bryggju við Alviðruhamra á austanverðum Mýrdalssandi á Suðurlandi. Hann vill nota bryggjuna til að flytja út allt að fimm milljónir tonna af vikri frá Íslandi á ári. Umhverfismat á verkefninu stendur nú yfir. Efnið sem fyrirtækið vill flytja út um þess bryggju er gjóska sem féll til við eldgos í Kötlu árið...
Það sem trekkir Justin Bieber í Fljótin 02.05.2025 16:42
Justin Bieber dvelur nú á lúxushótelinu Depplum í Fljótunum í Skagafirði. Í þættinum forvitnumst við um það sem trekkir fólk eins og hann á þennan afskekkta stað. Við ræðum um áhrifin sem ferðaþjónusta fyrir ríka fólkið hefur á litla sveit eins og Fljótin. Þar sem veðráttan er miskunnarlaus, vegir afleiddir og margir bændur hafa brugðið búi. Um svipað leyti og grunnskólinn lagðist af urðu þyrlur o...
Novatormennirnir í njósnaupptökunum 30.04.2025 15:40
Í um 15 ár hafa tveir nánustu samstarfsmenn Björgólfs Thors Björgólfssonar fjárfestis og ríkasta manns Íslands verið tiltölulega lítið til umfjöllunar í fjölmiðlum miðað við hvað þeir eru umsvifamiklir. Þetta eru þeir Birgir Már Ragnarsson og Andri Sveinsson sem unnu lengi með Björgólfi Thor hjá fjárfestingarfélaginu Novator. Stundum hafa þeir verið kallaðir vinstri og hægri hönd Björgólfs Thors....
Fólkið sem elskar Fjarðarkaup 29.04.2025 16:20
Verslunin Fjarðarkaup í Hafnarfirði er eins og hálfgert tímahylki, því þar er allt svolítið uppá gamla mátann. Starfsfólk í rauðum sloppum á gólfinu tilbúið til að aðstoða viðskiptavininn með hvað sem er. Fjarðarkaup hefur hvorki farið í útrás né í netverslun. Það er persónuleg þjónusta og gott vöruúrval sem þeir bræður, Sveinn og Gísli Sigurbergssynir, leggja áherslu á í sínum verslunarrekstri. O...
Auglýsingaherferð SFS vekur hörð viðbrögð og umræður 28.04.2025 16:37
Auglýsingaherferð Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) þar sem fyrirliggjandi veiðigjaldafrumvarp ríkisstjórnarinnar er gagnrýnt hefur vakið mikla athygli. Um er að ræða myndbönd sem tekin er upp í fjórum sjávarútvegsbæjum á landsbyggðinni þar sem ungt fólk lýsir jákvæðum áhrifum kvótakerfisins og útgerðanna á viðkomandi samfélög. Bæirnir þar sem myndböndin eru tekin upp eru: Eskifjörður, Grund...
Tímamót í meðhöndlun á Alzheimer 25.04.2025 16:16
Talið er að amk 6000 manns glími við heilabilun á Íslandi. Því þykir fagnaðarefni að lyfið Leqembi hafi fengið markaðsleyfi hér á landi. Lyfið er sagt það fyrsta sem virðist hafa áhrif á undirliggjandi ferli Alzheimer-sjúkdómsins. Öldrunarlæknar tala um tímamót í viðeign við þennan ömurlega sjúkdóm. Við spyrjum þær Helgu Eyólfsdóttur yfirlækni minnismóttökunnar og öldrunarlækninn Steinunni Þórðard...
Minnisvarði um stórhuga ,,aristókrata" 23.04.2025 16:29
,,Kastalinn” svokallaði á Arngerðareyri í Ísafirði á Vestfjörðum hefur um áratugaskeið vakið aðdáun og furðu. Kaupfélagsstjórinn Sigurður Þórðarson lét hið pínulitla Kaupfélag Nauteyrarhrepps reisa húsið yfir sig fyrir tæpum hundrað árum. Bygging hússins leiddi til þess að kaupfélagið varð gjaldþrota. Til þess að skilja af hverju í ósköpunum þetta litla kaupfélag byggði þennan steinsteypta kassa í...
,,Þeir vilja drepa mig" 16.04.2025 15:29
Íslensk stjórnvöld sendu sextán ára gamlan dreng frá Kolumbíu í lögreglufylgd til heimalands síns í október í fyrra. Hann var sendur úr landi ásamt föður drengsins sem hafði beitt hann ofbeldi og afsalað sér forræði yfir honum. Drengurinn bjó einn á götunni í höfuðborg Kólumbíu, Bogatá, í einn mánuð eftir komuna til landsins þar sem faðir hans yfirgaf hann samstundis. Bogatá er ein hættulegasta bo...
,,Skilyrði” stjórnenda Janusar: Starfsmenn áttu að fá sömu laun hjá ríkinu 15.04.2025 16:34
Stjórnendur fyrirtækisins Janusar settu íslenska ríkinu fjölþætt skilyrði í viðræðum um mögulegan nýjan samning við Sjúkratryggingar Íslands. Skilyrðin voru meðal annars þau að eftir að íslenska ríkið myndi taka Janus yfir yrði starfsemin að öllu leyti óbreytt. Þá er átt við sama skipulag, stjórnun og starfsmannahald. Eitt af því sem fólst í skilyrðunum var að engar breytingar yrðu gerðar á kjörum...
Óvæntar upplýsingar um háhyrningamálið 14.04.2025 15:59
Þegar Þetta helst hafði lokið þriggja þátta umfjöllun um háhyrningaveiðar Sædýrasafnsins, þá barst þættinum óvæntur tölvupóstur frá hlustanda. Pósturinn var frá hinni 21 árs gömlu Sigrúnu Helgudóttur sem hefur skrásett örlög hvers einasta háhyrnings sem veiddur var við Íslandsstrendur. Og Sigrún færði okkur fréttir. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Fólkið sem flýr pólitískar ofsóknir í Venesúela 11.04.2025 13:29
Íslendingar hafa fengið innsýn í harðari og hættulegri veruleika en fólk á að venjast hér á landi í gegnum fjölda Venesúelabúa sem hafa flutt til Íslands á liðnum árum. Sumir þessara Venesúelabúa hafa sagt sögur sínar í fjölmiðlum þar sem þeir greina frá því að þeir hafi tekið þátt í pólitísku starfi í heimalandinu. Þeir hafa sagt frá því að í kjölfarið að hafi þeir lent í ofsóknum einræðisherrans...
„Kominn tími til að vísa Ísrael úr keppni“ 10.04.2025 15:41
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta spilar nú tvo leiki við ísraelska landsliðið um laust sæti á heimsmeistaramóti sem fram fer í Þýskalandi og Hollandi í haust. Íþróttafréttamennirnir Valur Páll Eiríksson og Einar Örn Jónsson segja öskrandi tvískinnung að Rússum sé vísað úr alþjóðlegum íþróttamótum á meðan Ísrael fær að taka þátt.
„Í tísku“að kyrkja konur 09.04.2025 16:00
Ungir menn virðast í auknum mæli taka ungar konur kverkataki og þrengja að öndunarvegi þeirra. Kyrkingar eða „choking“ virðast sífellt fyrirferðameiri í klámi. Í þessum þætti heyrum við í konu sem hefur orðið ítrekuðum kverkatökum og áhyggjur fagfólks af áhrifum kláms. Viðmælendur: Jenný Kristín Valberg, Drífa Snædal, Þóra Jónasóttir, Marta Kristín Hreiðarsdóttir og Jón Gunnar Þórhallsson. Umsjón:...
Íslenskir háhyrningar enn sýningargripir í dýragörðum 08.04.2025 16:24
Í þriðja þætti um háhyrningaveiðar og viðskipti Sædýrasafnsins fáum við að heyra lýsingar forstöðumanns safnsins á því hvernig veiðarnar fóru fram. Afleiðingar af þessum veiðum eru endalausar deilur milli dýraverndunarsinna, hvalasérfræðinga og dýragarða víða um heim. Viðmælendur: Sigursteinn Másson og Edda Elísabet Magnúsdóttir. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Hrun á hlutabréfamörkuðum um allan heim 07.04.2025 16:29
Kauphallir um allan heim eru rauðglóandi eftir að Donald Trump forseti Bandaríkjanna snarhækkaði tolla á innfluttar vörur í síðustu viku. Hörður Ægisson viðskiptablaðamaður skýrir hvernig áhrif tollastríðsins birtast okkur á mörkuðum í dag. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson.
„Skammarleg saga“ af sölu háhyrninga í dýragarða 04.04.2025 16:38
Háhyrningar sem veiddir voru við strendur Íslands og seldir í dýragarða, eignuðust afkvæmi sem nú er tekist á um hvað eigi að gera við. Þeir hafa verið í dýragörðum alla ævi og náð háum aldri. Við ræðum við Eddu Elísabetu Magnúsdóttur, Sigurstein Másson og Ragnhildi Jónsdóttur. Þetta er annar þáttur af þremur um háhyrningaviðskiptin. Umsjón Þóra Tómasdóttir.
Átök um íslenska háhyrninga í dýragörðum 03.04.2025 17:44
Dýraverndunarsinnar hafa boðað til mótmæla við sædýrasafnið í Antibes í Frakklandi um helgina. Ástæðan er að til stendur að flytja tvo íslensk-ættaða háhyrninga úr garðinum og í dýragarðinn Loro Parque á Tenerife. Málið hefur farið fyrir franska dómsstóla en algjör óvissa ríkir um framtíð dýranna. Saga háhyrninganna er skrítnari en þig grunar. Þóra Tómasdóttir ræðir við Ragnhildi Jónsdóttur sem ól...
Gagnrýna Air Atlanta fyrir verktakasamninga við flugvirkja 02.04.2025 16:53
Flugvirkjafélag Íslands er ósátt við flugfélagið Air Atlanta vegna þess að það hefur ekki viljað ráða flugvirkja sem launþega nema að litlu leyti. Aðrir eru meðal annars starfsmenn hjá áhafnarleigunni Airborne á Möltu. Fjallað hefur verið um flugfélagið Air Atlanta í tveimur þáttum af Þetta helst síðaastliðina viku. Sá þriðji er þessi hér. Eftir að fyrsti þátturinn af Þetta helst um Air Atlanta va...
Njósnir Kínverja og viðskiptatengsl við Ísland 01.04.2025 16:52
Blaðamaðurinn Helgi Steinar Gunnlaugsson hefur stúderað Kína öll sín fullorðinsár. Hann lærði alþjóðasamskipti í Pekíng og er einn fárra Íslendinga sem talar reiprennandi kínversku. Við ætlum að spyrja hann út í tollastríðið Bandaríkjanna og Kína, viðskiptatengsl Íslands og Kína og ekki síst, njósnir Kínverja á Íslandi sem ríkislögreglustjóri hefur áhyggjur af. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Air Atlanta hefur greitt út 23 milljarða til eigenda 31.03.2025 16:59
Air Atlanta hefur um árabil haft erlendar flugfreyjur í vinnu hjá sér í gegnum starfsmannaleigu á Möltu. Flugfreyjurnar eru meðal annars frá löndum eins og Indonesíu og Malasíu. Þær eru með um 50 dollara, tæplega, sjö þúsund krónur, í laun á dag, Baldvin Már Hermannsson forstjóri Air Atlanta segir í svari við spurningum Þetta helst um launakjör flugfreyjanna að erfitt sé að bera laun saman á milli...
Guðmundur Ingi feginn að vera með vinnu 28.03.2025 17:01
Guðmundur Ingi Kristinsson, nýr menntamálaráðherra, er 69 ára gamall með ríkulega lífsreynslu. Hann hefur setið á þingi fyrir Flokk fólksins síðan 2017 en svo á hann líka að baki reynslu sem er ekki auðvelt að gera skil í hefðbundinni ferilskrá. Reynslu af því að verða fyrir slysum, þurfa að reiða sig á almannatryggingakerfið og ekki síst, vinna sig aftur út í atvinnulífið eftir langa fjarveru. Á...
,,Air Atlanta kom fram við mig eins og dýr" 27.03.2025 16:33
Hollenskur flugmaður sem vann hjá íslenska flugfélaginu Air Atlanta í þrjú og hálft ár ber fyrirtækinu ekki vel söguna. Hann segir að fyrirtækið hafi komið fram við sig eins og dýr. Flugmaðurinn heitir Sjoerd Willinge Prince og er 30 ára gamall. Hann starfaði hjá Air Atlanta á árunum 2020 til 2023. Sjoerd var verktaki hjá Air Atlanta í gegnum maltverska starfsmannaleigu og naut því ekki sömu rétti...
Ólympíumeistari gegn föður sínum í rétti 26.03.2025 16:45
Jakob Ingebrigtsen, ríkjandi ólympíumeistari og margfaldur heimsmeistari í hlaupagreinum, mætir föður sínum og fyrrum þjálfara í réttarsal næstu vikurnar. Þar færir hann rök fyrir því hvers vegna hann upplifði föður sinn ofbeldisfullan og ógnandi í uppvextinum. Við heyrum af réttarhöldunum og ræðum við hlauparann Hlyn Andrésson og íþróttalýsanda Rúv, Sigubjörn Árna Arngrímsson. Umsjón: Þóra Tómasd...
Niðurrif á félagsheimili vekur sterkar tilfinningar í sunnlenskri sveit 25.03.2025 16:31
Hluti íbúa Flóahrepps á Suðurlandi er ósáttur við að tæplega 100 ára samkomuhús í sveitinni hafi verið selt til Vegagerðarinnar. Þeir telja ljóst að rífa eigi samkomuhúsið til að rýma fyrir breikkun á Þjóðvegi 1. Húsið heitir Þingborg og stendur tæpa 10 kílómetra austan við Selfoss ofan í Þjóðvegi 1. Prjónaverslun hefur verið rekin í húsinu í 35 ár og eru meðal annars seldar þar ullarvörur frá um...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.