RÚV

Þetta helst

News IS ↓ 713 episodes

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 30, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Berklar í gistiskýlum borgarinnar 24.03.2025

Berklar hafa greinst meðal heimilislausra manna sem dvelja í gistiskýlum Reykjavíkur. Hjúkrunarfræðingar sem vinna við að ráða niður þessum vanda segja að smitrakning í hópi heimilislausra sé stór áskorun. Hana þurfi að leysa með óhefðbundum aðferðum eins og við heyrum af í þessum þætti. Viðmælendur eru hjúkrunarfræðingarnir Kristín Davíðsdóttir og Anna Tómasdóttir. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Áhrif glæpasamtakanna frá Venesúela teygja sig til Íslands 21.03.2025

Síðastliðna viku hafa verið sagðar margar fréttir í íslenskum og alþjóðlegum fjölmiðlum um þá ákvörðun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta að senda mörg hundruð meðlimi venesúelsks glæpagengis úr landi. Glæpasamtökin heita El Tren de Aragua og eru starfandi í mörgum löndum í Suður-Ameríku. Meðlimir gengisins voru fluttir frá Bandaríkjunum í fangelsi í El Salvador. El Tren de Aragua hefur verið sagt v...

Saga Sofiu - „Þetta hefði getað verið ég“ 20.03.2025

Nýjar upplýsingar í málinu: Fyrrverandi kærasta mannsins sem grunaður var um að hafa banað Sofiu, segist ítrekað hafa misst meðvitund eftir kyrkingartök hans. Í þættinum lýsir hún sambandi þeirra og sláandi líkindum með sögu Sofiu. Einnig er rætt við föður hennar. Umsjón: Þóra Tómasóttir

Uppgjörið hjá sósíalistum og söguleg dæmi um þekktar deilur í stjórnmálaflokkum 19.03.2025

Síðastliðna viku hefur allt logað í deilum innan Sósíalistaflokks Íslands. Deilurnar hverfast um stofnanda flokksins og formann framkvæmdastjórnar hans, Gunnar Smára Egilsson. Nokkrir yngri meðlimir flokksins hafa stigið fram og gagnrýnt Gunnar Smára fyrir stjórnendastíl hans. Gunnar Smári boðaði til fundar í síðustu vegna þessarar gagnrýni og hefur gengið á með linnulausanum skeytasendingum í fjö...

Saga Sofiu - hinar kærustur hins grunaða 18.03.2025

Í þriðja og síðasta þættinum um Sofiu Kolesnikova fáum við að heyra af ýmsu sem lögregla komst að við rannsókn á andláti hennar. Við fáum að heyra meira um samband Sofiu og kærastans sem lögregla varð sífellt uppteknari af að skoða. Og við fáum að heyra að hinn grunaði átti ekki aðeins eina kærustu. Viðmælendur: Jón Gunnar Þórhallsson, Valda Kolesnikova, Deivs Kolesnikovs og Kristrún Elsa Harðardó...

Fitufordómar sem böl 17.03.2025

Fjallað um bók heimspekiprófessors við bandaríska háskólann Cornell um fitufordóma. Hún heitir Kate Manne og er frá Ástralíu. Bók hennar var tilnefnd til bandarísku bókmenntaverðlaunanna National Book Awards í fyrra. Af því tilefni var talsvert fjallað um bók hennar í bandarískum fjölmiðlum í lok síðasta árs og í byrjun þessa. Manne er á leiðinni til Íslands í maí til að flytja fyrirlestur á ráðst...

Saga Sofiu - millifærði háar fjárhæðir á kærastann 14.03.2025

Venjur og hagir Sofiu Kolesnikova breyttust verulega á síðustu mánuðum lífs hennar. Áður en hún fannst látin með áverka á hálsi og gríðarlegt magn kókaíns í líkamanum. Hún sýndi breytta hegðun og steypti sér í skuldir. Deivs Andrei Kolesníkovs, litli bróðir Sofiu, og Valda Kolesnikova, móðir Sofiu, segja frá sögu fjölskyldunnar. Umsjón: Þóra Tómasdóttir Þetta er annar þáttur af þremur um Sofiu.

Ríkisstjórnin hefur áhyggjur af samþjöppun eigna hjá stórútgerðinni 13.03.2025

Í vikunni voru kynnt á Alþingi tvö þingmál sem sýna áhyggjur ríkisstjórnarflokkanna af samþjöppun kvóta og eigna hér á landi hjá stærstu útgerðarfélögum landsins. Þessi þingmál fela í sér nýja stefnumörkun sem er annars eðlis en hjá síðustu ríkisstjórn. Annað málið snýst um beiðni frá þingmönnum úr ríkisstjórnarflokkunum um að matvælaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, flytji Alþingi skýrslu um um...

Saga Sofiu - ráðgátan um andlátið 12.03.2025

Þegar Sofia Kolesnikova fannst látin á Selfossi var óljóst hvort hún hefði verið kyrkt af kærasta sínum eða látist af of stórum skammti fíkniefna. Kærastinn eyddi sönnunargögnum af vettvangi áður en tilkynnt var um andlátið og varð margsaga um hvað gerðist. Við lögreglurannsóknina teiknaðist upp mynstur sem líktist nauðungastjórnun. En málið fór aldrei fyrir dóm þar sem sakborningur lést í miðri m...

Deilurnar um kvótasetningu á grásleppu 11.03.2025

Kvótasetning síðustu ríkisstjórnar á grásleppu hefur verið umdeild. Sumarið 2024 voru sett lög sem fólu í sér að grásleppa var kvótasett í fyrsta sinn. Fram að því höfðu sjómenn víðs vegar um landið veitt þessa tegund á grundvelli veiðileyfa þar sem grásleppan er veidd ákveðna daga á ári í um 80 ár. Þingmaðurinn Lilja Rafney Magnúsdóttir úr Flokki fólksins kallaði eftir því í aðsendri grein á Vísi...

Skora á þingmenn að bæta meðferðarúrræði fyrir börn 10.03.2025

Forsvarsmenn sveitarfélaganna á höfuborgarsvæðinu skora sameiginlega á þingmenn að bregðast við úrræðaleysi í málefnum meðferðarheimila fyrir börn og barna með fjölþættan vanda. Þetta er sá málaflokkur sem forsvarsmenn sveitarfélaganna telja mikilvægast að Alþingi bregðist við í. Forsvarsmenn sveitarfélaganna héldu fund með þingmönnum í safnaðarheimili Kópavogskirkju á föstudaginn 7. mars og fóru...

Hryðjuverkamálið sem varð að engu 07.03.2025

Sakborningar í íslenska hryðjuverkamálinu fagna sýknu í Landsrétti og vona að málinu sé lokið. En er líklegt að þeir hafi látið af hatursfullu viðhorfi til ákveðinna þjóðfélagshópa? Og hvers vegna reyndist málið svona flókið í dómskerfinu? Þóra Tómasdóttir ræddi við verjendurna Svein Andra Sveinsson og Einar Odd Sigurðsson auk Hafsteini Dan Kristjánssyni, prófessor við Háskólann í Reykjavík.

Vesenið í Menntasjóði námsmanna 06.03.2025

Í september í fyrra ákvað Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra úr Sjálfstæðisflokknum, að tilkynna Hrafnhildi Ástu Þorvaldsdóttur að starf hennar yrði auglýst laust til umsóknar þegar skipunartíma hennar lýkur næsta sumar. Nýr ráðherra málaflokksins, Logi Einarsson, hefur ekki í hyggju að hrófla við þessari ákvörðun Áslaugar Örnu. Mikið hefur gengið á hjá Menntas...

Nettröll gegn transfólki 05.03.2025

Í hvert sinn sem Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands minnist á transfólk í opinberri umræðu fær yfir sig holskeflu af hatursfullum athugasemdum. Guðrún á sjálf transbarn og segir augljóst bakslag í mannréttindabaráttu transfólks. Undir það tekur baráttukonan Ugla Stefanía sem hefur vanist grimmilegu áreiti í áraraðir. Þorbjörg Þorvaldsdóttir hjá Samtökunum 78 segir þróunina ógnvænlega. Umsjón:...

Nýi formaður Sjálfstæðisflokksins og áralöngu átökin 04.03.2025

Guðrún Hafsteinsdóttir var kjörin nýr formaður Sjálfstæðisflokksins um helgina. Áralöng átök hafa verið á milli tvegga fylkinga í flokknum en önnur þeirra var á bandi Guðrúnar. Formannsframboð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar árið 2022 endurspeglaði þessi átök en þá laut hann í lægra haldi gegn sitjandi formanni, Bjarna Benediktssyni. Guðlaugur Þór segir frá því að hann hafi stutt Guðrúnu Hafsteinsdóttur...

Hvernig framtíð vilja Sjálfstæðismenn? 28.02.2025

Útlit er fyrir æsispennandi kosningar um nýjan formann Sjálfstæðisflokksins á landsfundi um helgina. Samkvæmt heimildum fréttastofu er stór hluti þeirra um það bil tvö þúsund landsfundarfulltrúa sem fá að kjósa formann, enn óákveðnir. Þeir munu því gera upp hug sinn á sjálfum fundinum. Á morgun, laugardag, flytja frambjóðendur sínar ræður sem líklega ráða úrslitum í sjálfri kosningunni á sunnudag....

Vilja stöðva ljótar verktakablokkir 27.02.2025

Er Reykjavík að verða ljótari borg? Það telja þeir Magnús Skúlason arkitekt og Páll Jakob Líndal doktor í umhverfissálfræði. Freyr Snorrason borgarfræðingur býr við Hlíðarenda og er algjörlega ósammála þeim. Dóra Björt Guðjónsdóttir hjá umhverfis-og skipulagsráði Reykjavíkur vill herða reglur um gæði nýbygginga. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Ævisaga íslensku pítusósunnar II: Ferðalagið um heiminn 26.02.2025

Meðal Íslendinga sem búa erlendis tíðkast að flytja íslenska pítusósu með sér á milli landa. Ástæðan er sú að pítusósan íslenska, sem matreiðslumaðurinn Eiríkur Finnsson bjó til fyrir rúmum fjörtíu árum, er ekki til í öðrum löndum. Rætt er við þrjá Íslendinga í þremur heimsálfum sem allir hafa flutt pítusósu með sér til útlandsins. Þeir ræða um dálæti sitt á þessari sósuna og reyna að koma því í o...

Er Tesla fjölskyldubíll eða pólitísk yfirlýsing? 25.02.2025

Íslendingar elska Teslu en hafa skiptar skoðanir á Elon Musk forstjóra fyrirtækisins. Í þessum þætti ræðum við um stöðu bílaframleiðandans og hvort pólitík forstjórans hafi áhrif á sölutölur. Við skoðum líka nýja gerð af Teslu og tölum við áhugafólk um bílinn. Umsjón: Þóra Tómasdóttir.

Borgarstjórn á botninum 21.02.2025

Traust til stjórnmála hefur farið minnkandi í lýðræðisríkjum um allan heim. Þetta eru niðurstöður nýrrar vísindagreinar sem fræðimenn við Southhampton-háskólann birtu í vikunni. Aðalhöfundurinn er Viktor Orri Valgarðsson doktor í stjórnmálafræði. Á sama tíma birti Gallup árlega mælingu á trausti til stofnana hér á landi. Þar má sjá vísbendingar um hið sama. Svarendur bera lang minnst traust til bo...

Umdeilda heimildarmyndin um arðrán Dana á Grænlandi 20.02.2025

Heimildarmynd um hvernig danska ríkið og þarlendir fjárfestar högnuðust ævintýralega á námu á Grænlandi á 19. og 20. öld hefur verið mikið í umræðunni í löndunum tveimur eftir að hún var frumsýnd í danska ríkisútvarpinu í byrjun mánaðarins. Myndin heitir Hið hvíta gull Grænlands. Myndinni var kippt úr sýningu í danska ríkisútvarpinu í gær í kjölfar mikillar umræðu þar í landi sem náði inn til ríki...

Heklaði sér fyrir húsi í Þingholtum 19.02.2025

Við heyrum sögu tveggja kvenna sem hafa með aðstoð tækninnar náð að skapa sér góðar tekjur fyrir listsköpun með hekli og prjóni. Þær eiga það sameiginlegt að hafa vakið áhuga fólks á gömlum hefðum og hreinlega komið þeim aftur í tísku. Þær selja stafrænar uppskriftir í netverslun og á veitum á borð við Ravelry. Viðmælendur: Heléne Magnússon og Tinna Þórudóttir Þorvaldar. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Konurnar sem þrífa kontórinn þinn 18.02.2025

Viðtal við 25 ára gamla konu frá Venesúela, Andreinu Edwards, sem sýnt var í kvöldfréttum RÚV á föstudaginn hefur vakið mikla athygli. Hún gagnrýndi fyrirtækið Ræstitækni, þar sem hún vann við þrif, harðlega. Viðtalið var hluti af þeirri miklu umræðu sem verið um launakjör ræstingafólks, sem yfirleitt er af erlendu bergi brotið, hér á landi. Andreina er til viðtals í þættinum. Rætt er við aðra sam...

Krísuástand í tónleikahaldi - listamenn borga með sér 14.02.2025

Tónlistarfólk í fremstu röð segir reiknisdæmið við tónleikaferðalög ekki ganga upp fyrir millistéttina lengur. Einungis stórstjörnur geti túrað um heiminn. Kallað er eftir stuðningi við tónleikastaði sem gæti skapað stöðugleika í greininni. Þóra Tómasdóttir ræðir við Ásu Dýradóttur, Kaktus Einarsson og Sindra Má Sigfússon.

Jákvæð þróun í íslensku sjókvíaeldi 13.02.2025

Engin slysaslepping var tilkynnt til Matvælastofnunar í íslensku sjókvíaeldi í fyrra. Þetta er mikil breyting frá árinu 2023 þegar stór slysaslepping hjá Arctic Fish leiddi til fjöldamótmæla á Íslandi. Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri fiskeldisdeildar Matvælastofnunar, segir að mikið hafi verið gert til að bæta regluverk hjá laxeldisfyrirtækjum. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Listen to the Þetta helst podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.