RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Hælisleitandi frá Venesúela segir frá nauðungarflutningi frá Íslandi 12.02.2025 10:42
Hælisleitandinn Hector Montilla var nauðungarfluttur frá Íslandi í fylgd lögreglumanna til heimalands síns Venesúela þann 3. febrúar. Hann hafði búið á Íslandi frá því í desember 2022 og fengið synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd. Hector segir að lögreglan á Íslandi hafi beitt hann óþörfu harðræði og ítrekað sett hann í fangaklefa í lögreglustöðinni við Hlemm á Hverfisgötu áður en honum var...
Íslenskur velgjörðarsjóður hætti við verkefni í Sierra Leone vegna spillingar 11.02.2025 15:59
Sjávarútvegsverkefni Aurora-velgjörðarsjóðs í Sierra Leone í Afríku strandaði á spillingu segir framkvæmdastjóri sjóðsins. Ráða- og áhrifamenn í landinu vildu fá greitt undir borðið svo verkefni sjóðsins gætu orðið að veruleika. Framkvæmdastjórinn segir að Aurora hafi ekki viljað taka þátt í spillingunni í landinu. Rætt er við Regínu Bjarnadóttur, framkvæmdastjóra Aurora. Umsjón: Ingi Freyr Vilhj...
Mannskæðasta skotárás sögunnar í Svíþjóð 07.02.2025 15:54
Á þriðjudaginn átti sér stað skotárás í skóla í sænsku borginni Örebro þegar 35 ára gamall myrti 10 einstaklinga og særði aðra 10. Hann skaut svo sjálfan sig. Sænska þjóðin er í sárum segir Anders Svenson, blaðamaður og ritstjóri tímaritsins Spraktidningen sem bjó hér á Íslandi í tæpt ár á sínum tíma. Blaðamaður Aftonbladet, Staffan Lindberg, segir ýmsum spurningum ósvarað í málinu. Tvær af þeim s...
Ítalinn Roberto slettir á forníslensku 06.02.2025 16:26
Þegar Roberto Luigi Pagani flutti til Íslands og hóf störf á leikskóla, talaði hann forníslensku eins og í gömlu handritunum. Á innan við áratug lærði hann málið uppá tíu og skrifaði um það doktorsritgerð. Hann er sérlegur áhugamaður um þróun íslenskunnar og hefur kortlagt breytingar tungumálsins mörg hundruð ár aftur í tímann. Roberto má kalla sérstakan kynningarfulltrúa Íslands á Ítalíu. Hann ke...
Hápólitísk ákvörðun nýrrar ríkisstjórnar um búvörulög 05.02.2025 15:49
Sjaldgæft er að nýjar ríkisstjórnir bregðist strax við nýsamþykktum lögum með því að setja eigin ný lög til höfuðs þeim. Þetta er það sem nýja ríkisstjórnin hyggst gera varðandi búvörulögin sem samþykkt voru í fyrra. Stjórnmálafræðiprófessorinn Eva H. Önnudóttir segist ekki muna eftir sambærilegu fordæmi úr stjórnmálasögu liðinna ára þar sem nýsamþykktum lögum er breytt með setningu annarra. Lagap...
Starfslok bæjarstjórans í Fjallabyggð og gagnrýnin skýrsla um stjórnsýsluna 04.02.2025 16:07
Sigríður Ingvarsdóttir lét skyndilega af störfum rétt fyrir jólin. Hún hafði verið í starfinu í tvö hálft ár og var ráðin af meirihlutanum þar til 2026. A-listi jafnaðarfólks og Sjálfstæðisflokkurinn mynda þennan meirihluta. Starfslok bæjarstjórans hafa ekki verið útskýrð og vilja forsetans ekki veita viðtal um þau. Starfslok bæjarstjórans hafa vakið undrun og spurningar í Fjallabyggð. Viðmælendur...
Ítali betri en Íslendingar í íslensku 31.01.2025 16:21
Fyrir fimmtán árum var Ítalinn Mirko Garofalo heima hjá sér á Sikiley að vafra um internetið. Hann kom auga á ljósmyndir af íslenskri náttúru og féll í stafi yfir fegurðinni. Hann ákvað samstundis að hann skyldi læra íslensku. Á dögunum skilaði hann inn doktorsrannsókn sinni á íslenskri málfræði. Þóra Tómasdóttir talaði við hann.
Raddir flóttamannanna í JL-húsinu 30.01.2025 15:34
Fréttin um að Vinnumálastofnun megi ekki hýsa flóttamenn í JL-húsinu í Vesturbænum vakti mikla athygli í síðustu viku. Rætt er við tvær konur frá Venesúela sem eru búsettar í húsinu. Þær eru flóttamenn og bíða eftir niðurstöðu frá yfirvöldum um hvort þær megi setjast hér að. Þær lýsa lífi sínu í JL-húsinu og segjast ekki skilja af hverju nágrannar þeirra vilji ekki að þær fái að búa áfram þar. Ums...
,,Ísland er friðarskjól fyrir falsfréttir og barnaníðsíður" 29.01.2025 16:17
Fjölmörg dæmi hafa komið upp í löndunum í kringum okkur þar sem samfélagsmiðlar leika lykilhlutverk í óeðlilegum afskiptum af lýðræðislegum kosningum. Það ógnar þjóðaröryggi líka hér á Íslandi að hægt sé að beita klækjabrögðum á samfélagsmiðlum til að koma fólki til valda. Skúli Bragi Geirdal sviðsstjóri Netöryggismiðstöðvar segir Ísland með alltof veika löggjöf til að girða fyrir hætturnar. Þóra...
Áralanga umræðan um venesúelska flóttamenn í JL-húsinu 24.01.2025 15:00
Óvissa ríkir nú um hvort 60 flóttamenn frá Venesúela fái að búa áfram í JL-húsinu. Þetta er staðan eftir að úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi úr gildi ákvörðun skipulagsfulltrúa Reykjavíkur um að heimila Vinnumálastofnun að hýsa allt að tæplega 330 flóttamenn þar. Húsfélag í fjölbýlishúsi á Grandavegi 42 kærði ákvörðunina að heimila búsetu flóttamannanna þar. Umrætt húsfélagið kærði...
Hætturnar í eldhúsinu heima hjá þér 23.01.2025 16:29
E. coli hópsýkingin sem upp kom á leikskóla í Reykjavík í fyrra hefur vakið fólk til umhugsunar um hættur í eldhúsum. Í þessum þætti ræðum við um hættur í eldhúsum á heimilum landsmanna því þar getur verklagið líka klikkað og það haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Við ræðum við kennara í matvælaöryggi og heimilisfræði, þau Margréti Sigfúsdóttur og Baldur Sæmundsson. Þóra Tómasdóttir ræddi...
Samherji og samþjöppun kvóta og fyrirtækja 22.01.2025 16:02
Útgerðarfélagið Samherji á Akureyri er annað stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins miðað við úthlutaðan kvóta á þessu fiskveiðiári. Einungis Brim hf. Í Reykjavík er stærra miðað við kvótaeign. Í þættinum er sagt frá eignarhaldi eigenda og stofnanda Samherja á öðrum fyrirtækjum í íslensku atvinnulífi og rætt um samþjöppun í eignarhaldi á aflaheimildum. Í Þetta helst á síðustu viku hefur verið fjal...
Hættulegasta fólkið í samfélaginu 21.01.2025 16:40
Í þessum þætti er rætt um fólk sem áhættusérfræðingar lögreglu og fangelsisyfirvalda meta sem hættulegustu einstaklinga þessa lands. Einstaklinga sem viðmælendum okkar ber saman um að falli oftast milli stafs og bryggju í kerfinu. Það eru ekki til nein úrræði fyrir þá. Þegar þeir losna úr afplánun fara þeir beint aftur í afbrot. Þóra Tómasdóttir ræddi við Halldór Val Pálsson forstöðumann fangelsa,...
Stórfyrirtækið Kaupfélag Skagfirðinga og umsvif þess 20.01.2025 16:14
Kaupfélag Skagfirðinga á Sauðarákróki er orðið að stórfyrirtæki á landsvísu sem fjárfestir í fyrirtækjum á mörgum ólíkum sviðum. Flóra fjárfestinga kaupfélagsins nær allt frá útgerð og landbúnaði, til framleiðslu á ídýfum og majónessósum, og yfir í afþreyingariðnaðinn. Sem dæmi um fyrirtæki sem kaupfélagið á má nefna Hamborgarafabrikkuna, Metró, Vogabæ, E. Finnson, Mjólku, American Style, Aktu Tak...
Samfélagið á Seyðisfirði tvístrað um laxeldi 17.01.2025 15:56
Deilur um hvort heppilegt sé að fyrirtækið Kaldvík fái að hefja laxeldi í Seyðisfirði hafa tvístrað tæplega 700 manna samfélagi bæjarins. Andstæðingar eldisins segja síðlaust að fyrirtækið lokki brotna byggð með störfum. Fylgjendur eldisins segja starfsemina kærkomna. Þóra Tómasdóttir ræðir við Katrínu Oddsdóttur, Jónínu Brynjólfsdóttur og Guðnýju Láru Guðrúnardóttur.
Samþjöppun kvóta og fyrirtækja hjá útgerðarmönnum: Guðbjörg í Eyjum 16.01.2025 16:11
Tvær fyrirtækjablokkir á Íslandi sem eru byggðar á rekstri tveggja stórútgerða eru eigendur tveggja stærstu majonesfyrirtækja landsins. Þetta eru Gunnars Majones og Vogabær, sem bæði framleiðir E. Finnsson-sósurnar og Vogaídýfurnar. Útgerðirnar eru FISK Seafood, sem Kaupfélag Skagfirðinga á, og Ísfélag Vestmannaeyja, sem Guðbjörg Matthíasdóttir hefur átt í gegnum tíðina. Þessi staða er birtingarmy...
Ofsafengin sjálfsrækt 15.01.2025 17:57
Margir eiga sér þann draum að verða besta útgáfan af sjálfum sér og stunda stífa sjálfsrækt til að ná því markmiði. Áhrifavaldurinn Gummi Kíró miðlar sinni sjálfsrækt daglega á samfélagsmiðlum. Þrír sálfræðingar hafa efasemdir um gagnsemi þess að eltast við drauminn um að verða besta útgáfan af sjálfum sér. Ýmsar rannsóknir bendi til að mikil sjálfsrækt geti verið streituvaldandi. Viðmælendur: Haf...
Hvernig minnist þjóð látins einræðisherra? 14.01.2025 16:38
Í ár eru 50 ár liðin frá dauða einræðisherrans Francisco Francos og hefur ríkisstjórn Sósíalistaflokks Spánar skipulagt mikla dagskrá allt árið til að minnast þessa. Hægri flokkurinn, PP, hefur hins vegar gefið það út að hann muni ekki taka þátt í þessum minningaratburðum og segja forsvarsmenn flokksins að forsætisráðherrann Pedro Sanchez sé með dagskránni að reyna að drepa á dreif umræðu um eigin...
Brot Sigurjóns Ólafssonar gegn andlega fötluðu fólki 13.01.2025 15:12
Einn þyngsti dómur sem fallið hefur í kynferðisbrotamáli á Íslandi var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir helgi. Í málinu var brotið ítrekað gegn andlega fötluðu fólki en það hefur vakið hörð viðbrögð að aðeins einn maður hafi verið sóttur til saka. Fjórir aðrir karlmenn komu við sögu í málinu. Þóra Tómasdóttir ræðir við Ævar Pálma Pálmason yfirmann kynferðisbrotadeildar lögreglunnar.
Ævisaga íslensku pítusósunnar 10.01.2025 16:18
Íslenska pítusósan sem E. Finnsson hefur selt í nærri fjóra áratugi er ekki til í neinu öðru landi í heiminum. Íslendingar flytja hana með sér á milli landa eða reyna að endurgera hana í eldhúsunum sínum. Hver er saga þessarar sósu og hver er maðurinn á bak við E. Finnsson? Umsjón: Ingi F. Vilhjálmsson
Hætturnar við fuglaflensuna 09.01.2025 16:41
Kettlingurinn Dimma var fyrsta heimilisdýrið á heimsvísu sem skætt afbrigði fuglaflensunnar dró til dauða. Þóra Jónasdóttir, yfirdýralæknir MAST, hefur áhyggjur af því að veiran beiðist út meðal fleiri spendýra. Við heimsækjum Önnu Karen Sigurðadóttur dýralækni á Keldum og spyrjum hvort fuglaflensan geti orðið faraldur. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Sala kvóta Þórsbergs á Tálknafirði 08.01.2025 15:00
Fjallað um kaup Útgerðarfélags Reykjavíkur, áður Brims, á 1500 tonna kvóta útgerðarfyrirtækisins Þórsbergs á Tálknafirði fyrir 7,5 milljarða króna. Þórsberg er stærsta útgerðin á Tálknafirði og önnur stærsta útgerðin í Vesturbyggð, aðeins Oddi hf. á Patreksfirði er stærri. Hvaða áhrif má áætla að þessi viðskipti með aflaheimildir Þórsbergs muni hafa fyrir sveitarfélagið? Rætt er við Gerði Björk Sv...
Átök Blake Lively og Justin Baldoni 07.01.2025 16:52
Bókin It ends with us eða Þessu lýkur hér fjallar um hvernig rjúfa megi vítahring heimilisofbeldis. Bókin varð Tiktok-hittari og síðar kvikmynd. Við upptökur myndarinnar spunnust deilur milli aðalleikaranna Blake Lively og Justin Baldoni sem svipa til söguþráðarins. Útgefandi bókarinnar hér á landi, Birgitta Elín Hassel og Tiktok-fréttakona Rúv, Ingunn Lára Kristjánsdóttir, sögðu Þóru Tómasdóttur...
Ævintýralegur vöxtur Metta Sport 06.01.2025 15:00
Metta Sport er íslenskt fatamerki sem selur æfingaföt. Fyrirtækið hefur vaxið ævintýralega á liðnum árum og jukust tekjur þess um 256 prósent á milli áranna 2022 og 2023. Markhópurinn er aðallega börn og ungt frá 10 til 30 ára. Árið 2022 seldi fyrirtækið vörur fyrir tæplega 107 milljónir króna en 2023 námu tekjurnar 357 milljónum og hagnaðurinn nærri 100 milljónum. Hver er ástæðan fyrir þessum mik...
Herskáu systurnar úr ÍRA og málaferlin við Disney 03.01.2025 16:28
Þættirnir Say Nothing á streymisveitunni Disney hafa flett ofan af gömlum sárum írsku þjóðarinnar og hrundið af stað umræðu um óuppgerða glæpi frá óreirðartímum síðustu aldar. Þeir segja frá aðild tveggja systra í voðaverkum írska lýðveldishersins, ÍRA. Sólveig Jónsdóttir rithöfundur segir frá rannsóknarvinnunni að baki þáttunum. Umsjón: Þóra Tómasdóttir
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.