RÚV

Þetta helst

News IS ↓ 713 episodes

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 30, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Hlutabréfaviðskipti sjóðsstjóra og hættan á hagsmunaárekstrum 06.10.2025

Sjóðsstjóri hjá Stefni átti sjálfur hlutabréf í flugfélaginu Icelandair á sama tíma og sjóðir fyrirtækisins voru stórir hluthafar í því. Nánir fjölskyldumeðlimir sjóðsstjórans áttu líka hlutabréf í Icelandair á sama tíma. Þetta var á árunum 2010 til 2017. Sjóðsstjórinn heitir Jóhann Möller og er í dag framkvæmdastjóri Stefnis sem er dótturfélag Arion banka. Jóhann hefur starfað hjá Stefni frá árin...

Átökin um kvennabolta ÍR 03.10.2025

26 konur úr meistaraflokki ÍR í fótbolta hafa ákveðið að hætta í félaginu. Þær saka félagið um mismunun og metnaðarleysi fyrir kvennabolta. Nú leita þær leiða til að spila saman áfram en hjá öðru félagi. Framkvæmdastjóri KSÍ hefur boðið ÍR aðstoð við að greiða úr vandanum. Forseti hagsmunasamtaka kvenna segir stöðuna einstaka og grafalvarlega. Svo margir leikmenn yfirgefi ekki félagið að ástæðulau...

Fall Play og ásakanir um óheiðarleika 02.10.2025

Fall flugfélagsins Play hefur verið stóra frétt vikunnar. Ásakanir hafa verið settar fram um að stjórnendur Play séu að stunda kennitöluflakk og ætli sér að hefja flugrekstur á ný með hreint borð á Möltu. Einar Örn Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Play, segir að rangfærslur og samsæriskenningar muni leiðréttast í fyllingu tímans. Viðskipti Play við nýstofnað dótturfélag sitt, Fly Play Europe Holdco...

Tap lífeyrissjóðanna á flugfélaginu Play 01.10.2025

Frétt vikunnar á Íslandi er gjaldþrot flugfélagsins Play. Fáir bjuggust við því að félagið yrði gjaldþrota svona fljótt eftir nýlega 2,8 milljarða króna fjármögnun þess í skuldabréfaútboði í lok ágúst. Stærsti einstaki hluthafi Play var íslenski lífeyrissjóðurinn Birta með rúmlega 10 prósenta eignarhlut. Framkvæmdastjóri Birtu Ólafur Sigurðsson segir að gjaldþrot Play hafi komið honum í opna skjöl...

Arftakaskiptin hjá Samherja 30.09.2025

Katla Þorsteinsdóttir, dóttir Þorsteins Más Baldvinssonar og Helgu S. Guðmundsdóttur, er orðin stór eigandi í félagi sem þau hjónin áttu saman áður. Félagið á eignir upp á rúmlega 30 milljarða króna og skuldar nær ekkert. Það heitir Eignarhaldsfélagið Steinn og hélt áður utan um hlutabréf þeirra Þorsteins Más og Helgu, sem er fyrrverandi eiginkona hans, í Samherja. Þetta kemur fram í ársreikningi...

Ber ábyrgð á Tene-æði Íslendinga 29.09.2025

Meðal þeirra sem hafa laðað ferðamenn frá Íslandi til Tenerife eru hjónin Trausti Hafsteinsson og Rún Kormáksdóttir. Þau hafa búið á eyjunni í tólf ár og markaðsett hana sem góðan áfangastað fyrir sólarsvelta Íslendinga. Trausti segir okkur frá því sem ferðamenn hvorki sjá né heyra á þessari vinsælu eyju.

Hálf-íslenskur maður grunaður um aftöku í Svíþjóð 26.09.2025

Á mánudag hófst aðalmeðferð við héraðsdóm í Stokkhólmi í óhugnalegu morðmáli. Þar er Guðmundur Mogensen, hálfíslenskur karlmaður, ákærður er fyrir að hafa banað hinni rúmlega sextugu Kristínu, á heimili hennar í Stokkhólmi í október í fyrra. Málið hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð enda enn eitt dauðsfallið í gengjastríði sem þar hefur geisað undanfarin ár. Sænskir fjölmiðlar segja að málið hefnd...

Bjargráð við einmanaleika 25.09.2025

Við ræðum um einmanaleika við hjúkrunarfræðinginn Aðalbjörgu Stefaníu Helgadóttur. Hún hefur stúderað hvers vegna fólk verður einmana og veit eitt og annað um það sem getur hjálpað til við að mynda tengsl við annað fólk. Við ræðum um einföld bjargráð við einsemdinni.

Sjónvarpsstöð aðeins fyrir fólkið í blokkinni 24.09.2025

Hamraborgarrásin var sjónvarpsstöð aðeins fyrir íbúa í stóru blokkinni í Hamraborg í Kópavogi. Rásin var starfrækt frá 1993 til aldamóta og sendi út úr dekkjageymslu í bílakjallara blokkarinnar. Stöðin var hugsuð til að efla samstöðu nágrannanna og styrkja rödd þeirra í harðri baráttu við Kópavogsbæ. Þóra Tómasdóttir ræðir við sjónvarpsstjórann Þóri Steingrímsson og listakonuna Berglindi Jónu Hlyn...

Deilan um Konukot í Ármúla 23.09.2025

Í þættinum í dag er fjallað um mál sem hefur verið til umfjöllunar í fréttamiðlum síðustu vikurnar: Flutning Konukots í fasteign í Ármúla og andstöðu heilbrigðisfyrirtækisins Sameindar við hann. Konukot á að vera í næsta húsi við Sameind. Heilbrigðisfyrirtækið vill meina að vegna brunavarna gangi ekki að hafa Konukot í húsinu. Sameind hefur kært flutning Konukots í húsið. Rætt er við Kristínu Páls...

Er góð hugmynd að stytta sumarfrí skólabarna? 22.09.2025

Íslensk grunnskólabörn eru mun lengur í sumarfríi en grunnskólabörn á Norðurlöndum. Við ræðum um tillögu nýs varaborgarfulltrúa Viðreisnar, Erlings Sigvaldasonar, um að færa nokkra sumarfrísdaga grunnskólabarna yfir á haustönn. Viðmælendur: Margrét Pála Ólafsdóttir, Magnús Þór Jónsson og Erlingur Sigvaldason. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Bátastríðið: Hlölli vs. Nonni 19.09.2025

Fjallað er um bátastríðið í Reykjavík á milli Hlöllabáta og Nonnabita á tíunda áratug síðustu aldar. Rætt er við Jón Guðnason, eða Nonna á Nonnabitum, sem segir frá því hvernig hann stofnaði sinn eigin bátastað eftir að hafa unnið á Hlölla í sjö ár. Hlöllabátar voru stofnaðir árið 1986 og kenndir við Hlöðver Sigurðsson. Nonni segir frá kergjunni og keppninni á milli staðanna tveggja í miðbæ Reykja...

Nýtt lyf við fæðingarþunglyndi 18.09.2025

Við ætlum að ræða um fæðingarþunglyndi í þessum þætti og heyra hvað raunverulega getur hjálpað þegar foreldrar upplifa þessa sérstöku tegund af þunglyndi. Miklar vonir eru bundnar við nýtt lyf sem sérstaklega er þróað við fæðingarþunglyndi. Er það lausnin við vandanum? Anna María Jónsdóttir geðlæknir í Grænuhlíð svarar því. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Gagnrýnin úttekt KPMG um RIFF 17.09.2025

Fjölmargar ábendingar eru settar fram um starfsemi og rekstur kvikmyndahátíðarinnar RIFF í úttekt sem KPMG vann fyrir ráðuneyti menningarmála. Samtals setur KPMG fram 22 ábendingar sem ráðuneytið flokkar sem alvarlegar. Bæði er um að ræða ábendingar og umfjöllun sem snýst um rekstur og peninga og eins stjórnun og starfsmannamál kvikmyndahátíðarinnar. Framkvæmdastjóri og eigandi RIFF er Hrönn Marin...

Vandræðagangur í borginni 16.09.2025

Við ræðumum stöðuna í borgarstjórn Reykjavíkur við fréttamanninn Alexander Kristjánsson. Allir flokkar eru að búa sig undir sveitarstjórnarkosningar í vor og ýmis tíðindi hafa borist úr ráðhúsinu að undanförnu. Samkvæmt vinsældarmælingum virðast borgarbúar frekar óhressir með sína kjörnu fulltrúa í Reykjavík.

Dularfullt dauðsfall Heklínu 4.þáttur 15.09.2025

Síðasti þáttur í seríunni um Heklínu. Í þessum þætti fáum við að heyra meira um uppruna Stevens Grygelko og hvaða áhrif andlát hans hefur haft á fólkið hans hér á Íslandi.

Dularfullt dauðsfall Heklínu 3.þáttur 12.09.2025

Íslensk bandaríska dragdrottningin Heklína fannst látin við dularfullar aðstæður í London fyrir tveimur árum. Heklína var ein af áhrifamestu dragdrottningum Bandaríkjanna. Hún átti líka sterkar rætur á Íslandi. Í þessum þriðja þætti um dularfullt dauðsfall hennar fáum við að heyra hvers vegna vinir hennar óttast að eitthvað saknæmt gæti hafa komið fyrir hana. Viðmælendur: Hrafnhildur Gunnarsdóttir...

Áralöng saurmengun í Varmá 11.09.2025

Hrafnkell Karlsson bóndi í Ölfussi segir Hveragerðisbæ hafa sýnt af sér tómlæti í skólphreinsimálum bæjarins. Skólp frá Hveragerðisbæ hefur runnið út í bæjaránna Varmá síðastliðin ár og valdið saurgerlamengun í henni. Pétur Markan bæjarstjóri í Hveragerði segir að bærinn sé að byggja nýja og betri skólphreinisstöð sem vonandi muni koma í veg fyrir þessa mengun. Hann segir að þessi skólphreinisstöð...

Dularfullt dauðsfall Heklínu 2.þáttur 10.09.2025

Heklína var hálfíslensk og heimsfræg dragdrottning sem fannst látin í London fyrir tveimur árum. Heklína var listamannanafn Steven Grygelko. Hann hafði lifað skrautlegu lífi og alist að hluta til upp á Íslandi. Í þessum þætti heyrum við af vináttu hans við kvikmyndagerðarkonuna Hrafnhildi Gunnarsdóttur og poppstörnuna Pál Óskar Hjálmtýsson. Umsjón: Þóra Tómasdóttir

Hagsmunaárekstrarnir í Íslandsbankaútboðinu 09.09.2025

Síðdegis á föstudag var sagt frá því að þrjú verðbréfafyrirtæki hafi borgað samtals 60 milljóna króna sektir fyrir brot á lögum út af þátttöku sinni í þessu útboð ríkisins á hlutabréfum í Íslandsbanka árið 2022. Sektirnar eru vegna hagsmunaárekstra þeirra í vinnu við útboðið. Fyrirtækin sem eiga í hluta eru Íslensk verðbréf, Fossar og ACRO verðbréf. Sektirnar er enn ein afleiðingun af þessu umdeil...

Dularfullt dauðsfall Heklínu 1.þáttur 08.09.2025

Íslensk-bandaríska dragdrottningin Heklína fannst látin við dularfullar aðstæður í Sohó í London fyrir rúmum tveimur árum. Enn er óvitað hvernig hún dó. Mál hennar hefur vakið heimsathygli. Heklína var meðal áhrifamestu dragdrottningum Bandaríkjanna. Aðdáendur hennar og vinir hafa sótt hart að bresku lögreglunni og sakað hana um sinnuleysi og fordóma í garð hinsegin fólks. Gagrnýnin er ekki alveg...

Gagnrýni fyrrverandi aðstoðarmanns Sigmundar Davíðs á umræðuna um trans 05.09.2025

Jóhannes Skúlason er stjórnarmaður í Samtökunum 78 og fyrrverandi aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, núverandi formanns Miðflokksins. Hann blandaði sér í umræðuna um mál málanna í vikunni, umræður Snorra Mássonar þingmanns Miðflokksins, og Þorbjargar Þorvaldsdóttur verkefnastýru hjá Samtökunum 78 í Kastljósi á mánudaginn. Snorri hefur verið harðlega gagnrýndur af mörgum fyrir ummæli sí...

Íslandstengingar Vitaly Orlovs 04.09.2025

Síðastliðna tvo mánuði hafa verið sagðar margar fréttir í fjölmiðlum um viðskiptaþvinganir gegn fyrirtækinu Vélfagi á Akureyri. Viðskiptaþvinganirnar byggja á því að fyrrverandi eigandi Vélfags er rússneska útgerðarfélagið Norebo. Útgerðin er einn stærsti kvótahafi í Evrópu, meðal annars í Noregi. Þetta fyrirtæki er talið vinna með ríkisstjórn Vladimírs Pútíns og stunda njósnir fyrir hann . Viðski...

Björn á Bessastöðum 03.09.2025

Í dag ætlum við að banka uppá hjá manni sem fyrir rúmu ári þurfti að stokka spilin sín alveg uppá nýtt. Líf hans umturnaðist þegar eiginkona hans, Halla Tómasdóttir, var kjörinn forseti Íslands. Síðan hefur hann smám saman verið að læra hvað felst í hlutverki maka á Bessastöðum. Við erum komin til að fara yfir stóru málin með honum, spyrja hann út í hlutverkið, lífið undir smásjá almennings, kónga...

Baksagan um uppsagnir Vinnslustöðvarinnar 02.09.2025

Fiskvinnslan Leo Seafood í Vestmannaeyjum var rekin með 214 milljóna króna tapi í fyrra og 132 milljóna króna mínus árið 2023. Leo Seafood er í eigu Vinnslustöðvarinnar í Vestmanneyjum. Fiskvinnslan og hefur verið til umræðu síðustu daga eftir að greint var frá því á föstudaginn að útgerðin þyrfti að segja upp öllum 50 starfsmönnum vinnslunnar upp og loka henni. Þessar uppsagnir Vinnslustöðvarinna...

Listen to the Þetta helst podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.