RÚV

Þetta helst

News IS ↓ 713 episodes

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 30, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Vélfagsmálið og njósnastarfsemi Rússlands í Evrópu 11.11.2025

Umræðan um njósnir og undirróður Rússlands Vladimírs Pútíns er farin að teygja sig meira og meira til Íslands. Í síðustu viku var aðalmeðferð í dómsmáli sem tengist þessari umræðu. Málið er án hliðstæðu hér á landi. Þetta er mál íslenska tæknifyrirtækisins Vélfags gegn íslenska ríkinu. Málið snýst um efnahagsþvinganir sem íslenska ríkið setti á tæknifyrirtækið Vélfag á Akureyri vegna eigendatengsl...

Undarlegt háttarlag háhyrninganna Wikie og Keijo 10.11.2025

Nýlegar vídjóupptökur sem teknar voru með dróna yfir sædýragarðinum í Antibes í Frakklandi hafa farið eins og eldur í sinu um netheima. Á upptökunum má sjá furðulegt háttarlag háhyrningana Wikie og Keijo sem eitt sinn voru helsta aðdráttarafl garðsins. Garðinum var lokað í upphafi árs vegna þess að Frakkar hafa bannað háhyrningasýningar eins og þær sem Wikie og Keijo hafa tekið þátt í nær allt sit...

Risi Jóns Ásgeirs opnar fyrstu lágvöruverðsverslunina á Blönduósi 07.11.2025

Fyrirhugaður smásölurisi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar ætlar að opna fyrstu lágvöruverðsverslunina á Blönduósi. Fyrirtækið heitir Drangar og verður það þriðji smásölurisinn á markaðnum, ásamt Högum og Festi. Kallað hefur verið eftir í áratugi að lágvöruverðsverslun opni í Húnavatnssýslu og Skagafirði. Reynir Grétarsson fjárfestir hefur framselt lóð undir verslunina til Dranga en hann hefur staðið í u...

Áskoranir uppkominna fósturbarna 06.11.2025

Börn sem tekin eru af foreldrum sínum og sett í fóstur virðast eiga margt sameiginlegt þegar þau fullorðnast. Nýleg íslensk rannsókn á afdrifum fósturbarna gefur til kynna að ískyggilega mörg glími við andlega vanlíðan. Yfirgnæfandi meirihluti uppkominna fósturbarna höfðu til dæmis íhugað eða reynt sjálfsvíg. Rætt er við Freydísi Jónu Freysteinsdóttur félagsfræðing, uppkomið fósturbarn og fósturfo...

Hugmyndir fyrirtækis Ólafs Ólafssonar um Brákarey 05.11.2025

Fasteignafyrirtæki Ólafs Ólafssonar stefnir á stórfellda fasteignauppbyggingu í Brákarey við Borgarnes. Hótel, baðlón og íbúðir eru meðal annars á teikniborðinu. Sveitarstjóri Borgarbyggðar er hlynntur hugmyndunum og vinnur nú sveitarfélagið nú að deiliskipulagi fyrir svæðið. Almenn ánægja er meðal íbúa Borgarbyggðar um hugmyndirnar en einhverjir setja þó spurningamerki við það. Umsjón: Ingi Freyr...

Erlend afskipti af íslenskri umræðu 04.11.2025

Þeim sem fara fyrir öryggismálum í landinu er tíðrætt um fjölþáttaógnir sem steðja að Íslandi. Ógnum sem geta grafið undan lýðræði og innviðum samfélagsins. Ein af þessum ógnum eru erlend afskipti af íslenskri þjóðmálaurmæðu. Að hægt sé með skipulögðum hætti að hafa áhrif á almenningsálit í málum sem varða hagsmuni annarra ríkja. Viðhorf Íslendinga til stríða eða alþjóðasamvinnu svo sem Nato eða E...

Lífeyrissjóðirnir svara spurningum um Kviku og Ortus 03.11.2025

Þrír af lífeyrissjóðunum sem eru stærstu hluthafar almenningshlutafélagsins Kviku banka svara spurningum um viðskipti bankans með breska veðlánafyrirtækið Ortus Secured Finance. Kvika gekk fyrr á árinu frá kaupum á restinni af hlutafé félagsins og á það allt í dag. Heildarkaupverð er 6.5 milljarðar króna. Bankastjóri Kviku, Ármann Þorvaldsson, stofnaði lánafyrirtækið ásamt viðskiptafélögum sínum á...

Verðhrun í Counter Strike 31.10.2025

Margir Counter-Strike-spilarar urðu fyrir fjárhagslegu tjóni þegar framleiðendur tölvuleikjarins gerðu breytingar á úthlutun stafrænna muna í leiknum. Þessir stafrænu munir ganga kaupum og sölum utan leiksins fyrir himin háar fjárhæðir. Sem dæmi getur hnífur sem notaður er í leiknum kostað um 120 milljónir íslenskra króna. Eftir því sem við komumst næst stundar stór hluti íslenskra spilara viðskip...

Leirfinnur á Hrekkjavöku 30.10.2025

Á Hrekkjavöku verður myndlistarverk eftir Ólöfu Nordal til sýnis í gamla sóttvarnarhúsinu við Ánanaust í Reykjavík. Verkið er hennar útgáfa af Leirfinni, einum umdeildasta skúlptúr Íslandssögunnar. Verk Ólafar á sér langa og forvitnilega sögu sem teygir sig anga sína á Kristnihátið á Þingvöllum, til Ríkislögreglustjóra og ofan í lítinn skókassa. Ólöf segir okkur frá fyrirhöfninni við að skapa verk...

Rannsókn Samkeppniseftirlitsins á sorphirðufyrirtækjum 28.10.2025

Samkeppniseftirlitið rannsakar tvö fyrirtæki á sorphirðumarkaði. Þetta eru Terra og Kubbur. Forstjóri helsta samkeppnisaðilans, Íslenska gámafélagsins, segir að ýmsar einkennilegar tilviljanir hafi komið upp í tilboðum í sorpþjónustu hjá sveitarfélögum síðastliðin ár. Íslenska gámafélagið er ekki hluti af þessari rannsókn. Forstjórinn lýsir þessum sorhirðumarkaði og hvernig rusl hefur orðið að gul...

Tiktok-færsla íslenskrar stúlku vakti athygli FBI 27.10.2025

Fyrir rúmu ári birti 16 ára íslensk stúlka færslu á Tiktok þar sem hún lýsti kynnum sínum af hópi á netinu sem kallaður er 764. Færslan vakti athygli bandarísku alríkislögreglunnar FBI. Hópurinn 764 hringir nefninlega háværum viðvörunarbjöllunum þar, hjá alþjóðalögreglunni Interpol og evrópsku lögreglunni, Europol. Hjá þessum löggæsluyfirvöldum starfar fjölmennt lið rannsakenda við að afhjúpa bakm...

Síðasta Íslandstengda hrunmálið í heiminum 24.10.2025

Í vikunni kom niðurstaða í síðasta Íslandstengda hrunmálið í heiminum. Þetta er Lindsor-málið svokallaða í Lúxemborg. Rætt er við Ólaf Hauksson héraðssaksóknara um þetta. Síðasta hrunmálið á Íslandi var klárað árið 2021. En hvað er með annars konar uppgjör við efnahagshrunið 2008? Steinþór Gunnarsson verðbréfamiðlari var dæmdur fyrir lögbrot í Landsbanka Íslands en fékk mál sitt endurupptekið og v...

Varaseðlabankastjóri segir að fjármálaeftirlit á Íslandi sé sterkt 23.10.2025

Björk Sigurgísladóttur, varaseðlabankastjóri fjármálaeftirlits í Seðlabanka Íslands, segir að fjármálaeftirlitið sé sterk stofnun á Íslandi. Starf Bjarkar í Seðlabanka Islands er ígildi þess sem áður kallaðist forstjóri fjármálaeftirlitsins. Eftir sameiningu FME við Seðlabanka Íslands árið 2020 varð þessi nýi starfstitill til. Þetta helst settist niður með Björk á skrifstofu hennar í Seðlabanka Ís...

Stuðningsheimilið Blönduhlíð 22.10.2025

Birgir Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga, tók á vormánuðum við forstöðumannastarfi stuðningsheimilisins Blönduhlíðar í Mosfellsbæ. Heimilið hafði verið mikið í fréttum mánuðina á undan vegna umdeildra kosningaloforða og vandræðagangs við opnun þess. Nú hefur heimilið verið starfandi í hálft ár og við spyrjum Birgi Örn um starfsemina, gagnið sem slíkt úrræði getur gert og áskoranir í me...

Hringborð Norðurslóða og staðan á byggingu höfuðstöðvanna 21.10.2025

Hringborð Norðurslóða fór fram í Hörpu í síðustu viku og um helgina. Ráðstefnan hefur verið haldin á hverju hausti frá árinu 2013. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, er stjórnarformaður Hringborðsins. Hann ræðir um ráðstefnuna í ár og stöðuna á fyrirhugaðri byggingu höfuðstöðva Hringborðsins í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Yfirvöld í Reykjavík hafa úthlutað stofnun Ólafs Ragnars lóð...

Dýrkeypt lexía um að draga úr streitu 20.10.2025

Við ætlum að ræða um orkustjórnun og hvað er mikilvægt að halda hæfilegu jafnvægi milli hvíldar og áreynslu bæði í íþróttum og í hversdeginum. Við ætlum að ræða við mann sem kynntist því óvænt hve mikilvægt er að lifa ekki í of mikilli streitu. Hinrik Pálsson hefur leitt lyftingadeild Stjörnunnar, Kraftlyftingasamband Ísland og þjálfað unga sem aldna í kraftlyftingum. Hann segir frá því sem hann h...

Kaup Kviku á bresku lánafyrirtæki sem bankastjórinn stofnaði 17.10.2025

Kvika lauk fyrr á þessu ári kaupum á öllu hlutafé í bresku lánafyrirtæki sem bankastjórinn Ármann Þorvaldsson stofnaði árið 2013. Seljendur hlutabréfanna eru meðal annars meðstofnendur Ármanns í Ortus Secured Finance. Þetta er veðlánafyrirtæki sem sérhæfir sig í að veita svokölluð brúarlán með veði í fasteignum. Brúarlán eru lán sem eru veitt til skamms tíma. Kvika er almenningshlutafélag sem er a...

Morgunleikfimin að eilífu! 16.10.2025

Morgunleikfimi hefur verið fastur liður á virkum dögum á Rás 1 frá árinu 1957. Undanfarin 40 ár hefur þátturinn verið í umsjón Halldóru Björnsdóttur en þar á undan voru þau Jónína Benediktsdóttir og Valdimar Örnólfsson umsjónarmenn. Við ræðum um hefðina sem hefur skapast fyrir því að mörg þúsund Íslendingar geri morgunleikfimi á sama tíma í áratugi. Viðmælendur: Halldóra Björnsdóttir og Fanney Bir...

Heimsókn Höllu forseta til Kína og tilvitnunin í Mao formann 15.10.2025

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, vitnaði í Mao Zedong, formann Kommúnistaflokks Kína á árunum 1949 til 1976, á kvennaráðstefnu í Peking á mánudaginn. Forsetinn er í opinberri heimsókn í Kína og vísað í ræðu sinni till þekktrar tilvitnunar í Mao formann þar sem hann fjallar um jafnrétti kynjanna. ,,Konur halda uppi hálfum himninum.” Mao í er í vestrænum sagnfræðiritum talinn vera einn mesti harð...

Fjölfatlaðar fjögurra ára drengur fær ekki vernd á Íslandi 14.10.2025

Fjölfatlaður fjögurra ára drengur frá Venesúela fær ekki vernd eða mannúðarleyfi til að setjast að á Íslandi. Þetta er niðurstaða Útlendingastofnunar frá því í byrjun október. Drengurinn heitir Elían og er með klofinn hrygg, vatnshöfuð og er bundinn við hjólastól og næringarinntöku í gegnum sondu. Móðir Elíans, Leidy Díaz, ætlar að áfrýja synjuninni til kærunefndar útlendingamála. Rætt er við Leid...

Barátta friðarverðlaunahafans við einræðið í Venesúela 13.10.2025

Helsti stjórnarandstæðingur einræðisherrans í Venesúela, Nicholas Maduro, fékk Friðarverðlaun Nóbels fyrir helgi. Hún heitir María Corina Machado og er 56 ára gömul. Maria Corina hefur í mörg ár barist gegn einræðisstjórnum Hugo Chavez og Nicolas Maduro. 26 ár eru nú liðin frá því að Hugo Chavez var kjörinn forseti í Venesúela og hefur landið gjörbreyst á þessum tíma og gildi lýðræðisins eru fótum...

Samruni Íslandsbanka og Skaga 10.10.2025

Greint var frá viðræðum um samruna Íslandsbanka og Skaga fyrr í vikunni. Hugmyndin er sú að hluthafar Skaga fái 15 prósent af hlutafénu í sameinuðu fyrirtæki. Samlegðaráhrifin af samrunanum eru fyrst og fremst kostnaðarhagræði og arðsamari rekstur. Skagi samanstendur af þremur fyrirtækjum: tryggingafélaginu VÍS, fjárfestingarbankanum Fossum og verðbréfafyrirtækinu Íslenskum verðbréfum. Þrír stærst...

Aðgerðarsinnarnir í fjölskyldu Möggu Stínu 09.10.2025

Tónlistarkonan og aðgerðarsinninn Margrét Kristín Blöndal er enn í haldi Ísraelshers. Ekkert hefur heyrst frá henni síðan herinn stöðvaði skip úr Frelsisflotanum við Miðjarðarhaf í fyrrinótt. Magga Stína var um borð í skipinu Conscience sem reyndi að sigla hjálpargögnum til Gaza. Magga Stína hefur undanfarin tvö ár verið áberandi í skipulögðum mótmælum á Íslandi gegn stríðsrekstri Ísraelshers. Hún...

Launalækkanir sorphirðumanna hjá Terra 08.10.2025

Umhverfisfyrirtækið Terra ætlar að lækka laun rúmlega 30 sorphirðumanna um 20 prósent. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akranes, ætlar að berjast gegn þessari launalækkun. Fyrirtækið Terra safnar úrgangi frá heimilum og fyrirtækjum og leigir út ruslagáma og rekur flokkunarstöðvar fyrir úrgang. Terra var með 9,6 milljarða tekjur í fyrra og hagnaðist um ríflega 500 milljónir. Fyrirtæki...

Gleymdar milljónir finnast á bankareikningi 07.10.2025

Ellefu og hálf milljón króna fundust nýlega á reikningi í umsjá Reykjavíkurborgar. Ellefu milljónir sem voru nýlega auglýstar sem einstakt viðbótar framlag í Tónlistarsjóð. Peningarnir koma upprunalega úr Músíksjóði Guðjóns Sigurðssonar. Í þessum þætti ætlum við að rekja uppruna peninganna og heyra óvenjulega sögu af því hvers vegna þessi væna summa hefur ratað inn Tónlistarsjóð í ár. VIðmælendur:...

Listen to the Þetta helst podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.