RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Þorpið á Grænlandi þar sem næsti bar er á Íslandi 16.12.2025 15:37
Ragnar Axelsson birti ljósmyndir frá þorpi á Grænlandi í byrjun desember í bandaríska tímaritinu the The New Yorker. Greinin fjallar öðrum þræði um grænlenskan ísbjarnarveiðimann, Hjelmer Hammeken, sem býr í þorpinu, Ittoqortoormiit, á austurströnd Grænlands. Ragnar segir frá Hammeken, þorpinu og vinnslu greinarinnar í bandaríska blaðinu sem fagnar 100 ára afmæli sínu í ár. Ittoqortoormiit er svo...
Verður af sameiginlegu framboði á vinstri vængnum? 15.12.2025 15:29
Sanna Magdalena Mörtudóttir tilkynnti á föstudag að hún ætli ekki að bjóða sig fram undir merkjum Sósíalistaflokksins í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún boðaði nýtt framboð sem hún vonar að verði öflugt samstarf á vinstri vængnum. Samstarf á vinstri vængnum - þar sem helst er horft til Sósíalistaflokksins - eða Sönnu allavega - , Pírata og Vinstri grænna, hefur verið til umræðu í nokkurn tíma...
Sagan um jörðina og smáhýsin í Skaftafelli 12.12.2025 13:52
Umræða um smáhýsin í Skaftafelli hefur verið talsverð síðustu daga. Bygging húsanna er umdeild hjá sumum, meðal annars Andra Snæ Magnasyni rithöfundi. Húsin er í eigu fyrirtækis sem heitir Arctic Circle Hotels. Hótelfyrirtækið er í eigu ferðaþjónusturisans Arctic Adventures og verktakafyrirtækisins Þingvangs. Artic Adventures á 60 prósenta hlut í hótelfyrirtækinu og Þingvangur á 40 prósent. Í húsu...
Vitni í Samherjamálinu segist hafa fengið tilboð fyrir að þegja 11.12.2025 15:22
Namibísk kona sem er vitni í rannsókn Samherjamálsins segist hafa verið boðin greiðsla upp á 85 milljónir íslenskra króna, fyrir að hætta að spyrja spurninga um rekstur íslenska útgerðarfélagsins í Namibíu árið 2016. Konan heitir Sharon Neumbo og var stjórnarformaður namibísks félags sem vann með Samherja í útgerð í landinu. Sharon segir að sá sem hafi boðið henni þessa upphæð hafi verið Egill Árn...
Tímamót í vaxtamálinu 10.12.2025 14:16
Tímamót verða í vaxtamálinu svokallaða eftir rúma klukkustund þegar hæstiréttur kveður upp dóm sinn í máli tveggja lántakenda vegna skilmála í lánasamningi um verðtryggt lán á breytilegum vöxtum. Þetta er annað málið af fjórum sem lántakendur höfðuðu með fulltingi Neytendasamtakanna árið 2021. Um fátt hefur verið rætt meira en fyrsta málið sem leitt var til lykta um miðjan október - enda hafði það...
Aldrei fleiri íslensk skáldverk en fræðiritum fækkar 09.12.2025 16:16
Rúmar tvær vikur eru til jóla og í þættinum í dag beinum við sjónum okkar að jólabókaflóðinu þetta árið, umfangi þess og hvernig þróun bókaútgáfu hefur verið að undanförnu. Rýnt er í tölur Félags íslenskra bókaútgefenda um fjölda bóka núna, á síðustu árum og áratugum. Viðmælendur: Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda Starri Reynisson, bóksali Umsjón: Ingvar Þór Björ...
Trillukarlar í baráttu Davíðs og Golíats 08.12.2025 16:12
Örn Pálsson og Arthúr Bogason hafa stýrt Landssambandi smábátaeigenda í 40 ár. Báðir láta þeir nú af störfum. Örn hefur verið framkvæmdastjóri sambandsins frá stofnun þess. Hann lýsir því hvernig hann tók við þessu starfi og hvaða tilgangi sambandið hefur þjónað í gegnum áratugina. Örn segir meðal annars frá baráttunni við stórútgerðina eftir að kvótakerfinu var komið á. Kjartan Páll Sveinsson tek...
Ráðuneytið ver gagnrýnina á Morgunblaðið 05.12.2025 15:00
Mennta-og barnamálaráðuneytið ver gagnrýni sem það setti fram á vinnubrögð Morgunblaðsins í tveimur fréttum í lok nóvember. Ráðuneytið bendir á fordæmi um sambærilegar fréttir þar sem einstaka fjölmiðlar hafa verið gagnrýndir af tilteknum ráðuneytum. Formaður Blaðamannafélags Íslands, Sigurður Dögg Auðunsdóttir, gagnrýnir ráðuneytið harðlega fyrir fréttirnar um Morgunblaðið sem það birti á heimasí...
Reykjavíkurflugvöllur festur í sessi í samgönguáætlun 04.12.2025 13:20
Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, kynnti í gær samgönguáætlun til ársins 2040. Þar kenndi ýmissa grasa eins og ítarlega hefur verið fjallað um en hér í dag beinum við sjónum okkar að Reykjavíkurflugvelli - sem á samkvæmt kynningunni að festa í sessi. Lagt er til að byggja nýja flugstöð, taka í notkun fjarturn fyrir flugumferðarstýringu og ráðast í endurbætur á aðflugsljósum. Viðmælendur: Margr...
Ríkisfyrirtæki setja 245 milljónir í félagsgjöld 03.12.2025 11:38
Kristján Þórður Snæbjarnarson, þingmaður Samfylkingarinnar, óskaði nýlega upplýsinga um hvaða fyrirtæki í eigu ríkisins hefðu greitt til Viðskiptaráðs, Samtaka atvinnulífsins og tengdra félaga á síðustu tíu árum. Fjármála- og efnahagsráðherra birti svar við fyrirspurninni í fyrrakvöld og í ljós kom að tólf fyrirtæki, sem eru að hluta eða heild í eigu ríkisins, greiða 245 milljónir króna í félagsgj...
Aþanasíus Mannsason og mannanafnanefnd 02.12.2025 16:43
Í þættinum í dag beinum við sjónum okkar að nöfnum, lögum um þau og störfum mannanafnanefndar. Nýir úrskurðir nefndarinnar voru birtir í lok síðustu viku og nú má til að mynda heita Aþanasíus, Fjörður, Mannsi, Jörvaldi og Ríma. Úrskurðir nefndarinnar vekja alla jafna athygli og lengi hefur verið deilt um hvort og hvernig löggjafinn eigi að leggja línur í þessum málum. Viðmælendur: Jón Gnarr, þingm...
Ásókn erlendra dýragarða í íslenska lunda 01.12.2025 16:16
Dýragarðar í Singapúr og Japan hafa reynt að fá íslenska lunda senda til sín í gegnum árin. Nú síðast í febrúar á þessu ári reyndi verslunarráð í Hokkaido-héraði að fá íslenska lunda. Árið 2010 reyndu yfirvöld í Singapúr að fá 200 íslenska lunda senda sem til stóð að hafa í sérstöku heimskautagerði í dýragarði, segir Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra. Þessum beiðnum er yfirleitt...
Staða hernaðarandstæðinga á ófriðartímum 28.11.2025 17:13
Í þættinum í dag er sjónum beint að stöðu hernaðarandstæðinga á ófriðartímum - en minna fer fyrir þeim röddum á þingi og í umræðunni. Stuðningur við veru Íslands í NATO mælist mikill, rúmlega 71% en tæplega 12% landsmanna eru henni andvígir. Viðmælendur: Einar Valur Ingimundarson, umhverfisverkfræðingur og hernaðarandstæðingur Guðmundur Hálfdanarson, prófessor í sagnfræði Svandís Svavarsdóttir, f...
Raddir um fyrirhugað sjókvíaeldi í Mjóafirði 27.11.2025 13:56
Matvælaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson, sagði frá því á Sjávarútvegsdeginum fyrr í vikunni að hún hefði falið Hafrannsóknastofnun að gera burðarþolsmat og tillögur að eldissvæðum í Mjóafirði. Íbúar Mjóafjarðar eru 11 talsins. Hvað segja íbúar á Austfjörðum um þetta fyrirhugaða eldi? Rætt er við Aðalheiði Elfríð Heiðarsdóttur, vitavörð og íbúa á Dalatanga í Mjóafirði á Austfjörðum, um þetta laxe...
Er matarkarfan óeðlilega dýr? 26.11.2025 15:26
Það dylst væntanlega fáum að matarkarfan er dýr hér á landi. Í kvöldfréttum sjónvarps á mánudagskvöld lögðu þrír fréttamenn af stað í verslunarleiðangur í fjórum norrænum löndum til að gera samanburð á verði. Í þætti dagsins er litið á Norðurlöndin og rýnt í verðlag, laun og kaupmátt. Þá er sjónum beint að stöðu efnahagsmála hér og stöðu launafólks. Viðmælendur: Arnaldur Sölvi Kristjánsson, hagfræ...
Deilur um peninga og pólitík skekja Glímusambandið 25.11.2025 15:24
Deilur hafa geisað innan Glímusambands Íslands út af fjárreiðum og stjórnarháttum í sambandinu. Deilurnar snúast meðal annars um háan kostnað við glímukynningar og ferðalög erlendis á vegum sambandsins. Skipt var um alla stjórn Glímusambandsins á einu bretti á ársþingi sambandsins í lok september samkvæmt fundargerð þingsins. Fundargerðin er harðorð. Sigmundur Stefánsson tók við prókúru sambandsin...
Fjárfestingasjóðir sem verða meðeigendur í fasteignum 24.11.2025 16:24
Um fátt hefur verið meira rætt síðustu vikur og mánuði en fasteignamarkaðinn. Þar hefur staðan verið erfið í nokkurn tíma. Við bættist töluverð óvissa um miðjan síðasta mánuð þegar vaxtamálið svokallaða var leitt til lykta og lánaframboði breytt verulega. Í þessu ástandi virðist ný fjármögnunarleið fyrir kaupendur vera að ryðja sér til rúms. Á stuttum tíma hafa að minnsta kosti fimm fjárfestingasj...
Þrjár bilanir og mögulegur hönnunargalli hjá Norðuráli 21.11.2025 14:59
Þrjár sambærilegar bilanir hafa komið upp í rafspennum hjá Norðuráli á Grundartanga. Þetta Ekki var fjallað um tvær fyrstu bilanirnar opinberlega þar sem þær höfðu ekki áhrif á aðra raforkunotendur hér á landi. Þessar tvær fyrstu bilanir áttu sér stað í lok nóvember í fyrra og í lok sumars. Bilanirnar höfðu hins vegar mikil áhrif á Norðurál og reyndu stjórnendur félagsins að koma í veg fyrir að sa...
Ósanngjörn undankeppni HM 20.11.2025 15:37
Línur eru farnar að skýrast hvað varðar þær þjóðir sem taka þátt á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó á næsta ári. Hefðbundnum undankeppnum lauk í vikunni en enn á eftir að leika nokkra umspilsleiki. Liðum hefur verið fjölgað og undankeppnin litast af því. Þjálfari ítalska landsliðisins heldur því fram að nýtt fyrirkomulag sé ósanngjarnt fyrir Evrópu. Í þætti dagsi...
Rjúpnasmölun í Dölunum 19.11.2025 16:17
Björgunarsveitin Ósk í Búðardal hafnaði boði upp á háa peningaupphæð fyrir ,,smala” rjúpum fyrir veiðimenn á jörðinni Ljárskógum í Dölum í lok október. Slík veiði gengur út á það að menn reka upp rjúpur fyrir veiðimenn sem svo skjóta þær á flugi. Þessi veiðiferð á rjúpu hefur tíðkast lengi í Skotlandi. Svona veiðiskapur hefur hins vegar ekki verið stundaður á rjúpu á Íslandi þar sem hefð er fyrir...
Hjólhýsabyggðin á Sævarhöfða 18.11.2025 14:58
Um 16 manns búa í hjólhýsum og húsbílum á iðnaðarsvæði við gömlu sementsturnana á Sævarhöfða í Reykjavík. Byggðin var flutt þangað fyrir rúmlega tveimur árum en átti einungis að vera þar í fáeina mánuði. Nú er breytinga að vænta og íbúar telja að þeir verði fluttir í Skerjafjörð fyrir jól. Rætt er við Geirdísi Hönnu Kristjánsdóttur, íbúa á svæðinu, í þættinum. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Markaðsherferð Samherja með þorskhnakka á Íslandi 17.11.2025 16:28
Ný markaðsherferð útgerðarrisans Samherja með þorskhnakka í neytendaumbúðum hefur vakið athygli. Auglýsingar Samherja, sem bera yfirskriftina Besti bitinn, hafa verið birtar á samfélagsmiðlum síðustu vikur. Rætt er við Lóu Báru Magnúsdóttur um herferðina þar sem hún hefur mikla reynslu af vinnu í markaðsstarfi og vörumerkjastjórnun. Þessar auglýsingar Samherja eru meðal annars áhugaverðar vegna þe...
Gæludýralög spurning um líf og dauða 14.11.2025 15:34
Ný lög um gæludýrahald í fjölbýlishúsum hefur ýtt af stað mikilli umræðu um hvernig standa eigi að gæludýrahaldi á heimilum. Inga Sæland félagsmálaráðherra fagnar því að hafa komið lögunum í gegnum þingið og dýravelferðarsamtök taka undir það. Við ræðum um dýr, vináttu, ofnæmi, gelt og gervikisur við þær Ingu Sæland og Söndru Ósk Jóhannsdóttur hjá Dýrfinnu.
Deilan um þjónustu Neyðarlínunnar og fyrirtækið sem aðstoðar fólk eftir árekstur 13.11.2025 15:05
Í meira en áratug boðaði Neyðarlínan 112 einkafyrirtæki á slysstað í umferðaróhöppum á höfuðborgarsvæðinu þar sem ekki höfðu átt sér stað slys á fólki. Fyrirtækið heitir Aðstoð og öryggi en er betur þekkt sem Árekstur.is. Það var stofnað af fyrrverandi lögreglumanni sem heitir Ómar Þorgils Pálmason. Fyrirtækið er alltaf reglulega í fréttum, nú síðast í lok októnber þegar metfjöldi bíla þurfti aðst...
Syrgjandi foreldrar Sigurðar Kristófers 12.11.2025 16:18
Á undanförnum dögum hafa björgunarsveitir staðið fyrir fjáröflun með sölu á Neyðarkallinum. Salan í ár vakti sérstaklega mikla athygli og seldist kalllinn upp víðast hvar um landið. Neyðarkallinn í ár er nefninlega tileinkaður Sigurði Kristófer McQuillan Óskarssyni. Hann lést aðeins 36 ára gamall í slysi við björgunaræfingar í Tungufljóti í fyrra. Sigurður var vinamargur og kröftugur björgunarsvei...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.