RÚV

Þetta helst

News IS ↓ 713 episodes

Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jun 30, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Líf landsliðsmarkmanns á stórmóti 28.01.2026

Í dag beinum við sjónum okkar að því sem mest er rætt um þessa dagana - stórfínum árangri íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í handbolta. Sérstaklega er rætt um andlegu hliðina á þátttöku á stórmóti, og fyrst og fremst stöðu markmannsins, sem ber þunga byrði þegar kemur að útkomu leikja. Viðmælendur: Daði Rafnsson, doktorsnemi í íþróttasálfræði Hreiðar Levý Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsmark...

Karpið endalausa um sjókvíaeldið 27.01.2026

Hagsmunaðilar í laxveiði á Íslandi gagnrýna nýtt frumvarp atvinnuvegaráðherra um lagareldi á þeim forsendum að verið sé að draga tennurnar úr sambærilegu frumvarpi sem lagt var fram á síðasta kjörtímabili. Þeir telja breytingarnar á frumvarpinu vera slæmar. Athugasemdir um frumvarpið hafa hrúgast inn á síðustu vikum. Mikil skautun er í umræðunni um sjókvíaeldið á Íslandi og eru sumar athugasemdirn...

Skiptar skoðanir um styttingu bótatímabilsins 26.01.2026

Frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir fer að óbreyttu í fyrstu umræðu á þingi á morgun. Skiptar skoðanir eru um frumvarpið og hér í dag ætlum við að beina sjónum okkar að þeim þáttum sem mest hefur verið deilt um, annars vegar að breyttum lágmarksskilyrðum fyrir rétti til atvinnuleysistrygginga og hins vegar styttingu bótat...

Sérstæð sakamálarannsókn sem teygir sig til Rússlands 23.01.2026

Rannsókn embættis héraðssaksóknara á tæknifyrirtækinu Vélfagi á Akureyri er án hliðstæðu hér á landi. Hingað til hefur ekki farið fram rannsókn hjá ákæruvaldi á neinu fyrirtæki sem grunað er um að brjóta gegn lögum um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og tengdum reglugerðum sem fjalla sérstaklega um Rússland. Húsleit var gerð hjá Vélfagi í vikunni og var stjórnarformaður Vélfags, Alfreið Túli...

Endurkoma tóbakspípunnar 22.01.2026

Í Þetta helst í dag er möguleg endurkoma tóbakspípunnar til umfjöllunar. Bandaríska dagblaðið New York Times birti á dögunum grein þar sem spáð var fyrir um stefnu og strauma á árinu 2026. Þar er því spáð að tóbakspípan verði meira áberandi í ár. Viðmælendur: Dóra Júlía Agnarsdóttir, fjölmiðlakona Sebastian Johansen, verslunarmaður í Björk Viðar Jensson, verkefnastjóri tóbaksvarna hjá Embætti land...

Stjórnmálafræðingur segir Trump ganga erinda milljarðamæringa á Grænlandi 21.01.2026

Hvað er eiginlega á bak við fréttir ásælni Donalds Trumps í Grænland sem Vesturlönd hafa staðið á öndinni yfir síðustu daga? Ástralski stjórnmálafræðingurinn Page Louise Wilson í Háskóla Íslands segir að skýringarnar fyrir hótunum hans liggi í stjórnmálastöðunni í Bandaríkjunum en ekki í rökum sem snúast um varnar- eða utanríkismál. Hún notar hugtök eins og valdaöryggi og efnahagslegt einelti til...

Springa kjarasamningar í haust? 20.01.2026

Stöðugleikasamningarnir - og verðhækkanir í ljósi þeirra - eru til umfjöllunar í Þetta helst í dag. Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sagði í kvöldfréttum sjónvarps um helgina að verðbólga gæti sprengt kjarasamninga í haust. Viðmælendur: Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra Róbert Farestveit, aðalhagfræðingur ASÍ

Öryggisógnin af kínverskum strætisvögnum 19.01.2026

Öryggisógnir eru taldar geta fylgt kínverskum strætisvögnum. Í haust var talsverð umræða um það á hinum Norðurlöndunum og hér á landi að kínverskir framleiðendur strætisvagna sem keyptir hafa verið í stórum stíl til þessara landa gætu fjarstýrt vögnunum frá Kína í gegnum tölvukerfi. Í þessari umræðu var meðal annars rætt um mögulegar njósnir og þjóðaröryggi en áhyggjur af slíkum pólitískum afskipt...

Fámennasta sveitarfélagið neyðist til að þiggja 248 milljónir 16.01.2026

Í dag beinum við sjónum okkar að fámennasta sveitarfélagi landsins, Tjörneshreppi í Suður-Þingeyjarsýslu þar sem íbúar eru á sjötta tug, og óvæntu 248 milljón króna fólksfækkunarframlagi sem barst hreppnum nýlega frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Hreppsnefndin vildi afþakka framlagið, en nú hefur komið í ljós að hún má það ekki - og því stendur til að boða til íbúafundar í næsta mánuði til að ákveð...

Höfða mál svo ástvinir fái að deyja í friði 15.01.2026

Hópur aðstandenda á Sóltúni ætlar að stefna íslenska ríkinu út af byggingarframkvæmdum við hjúkrunarheimilið. Einar Stefánsson augnlæknir segir að heimilisfólk á Sóltúni eigi rétt á því að fá að verja síðustu mánuðum sínum og árum í friði frá hávaða undan byggingaframkvæmdum. Aðstandendurnir telja að með framkvæmdunum sé verið að brjóta gegn mannréttindum heimilisfólksins. Framkvæmdirnar eiga að s...

Seinni hálfleikur hefst á 157. þingi 14.01.2026

Seinni hálfleikur er að hefjast á þingi. Nefndir þingsins komu saman núna á mánudaginn og klukkan þrjú í dag er fyrsti þingfundur á nýju ári. Við ræðum stóru málin og stöðuna. Viðmælendur: Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, fréttamaður Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Þetta hefur gerst í Venesúela eftir handtöku Maduros 13.01.2026

Eftir að bandaríski herinn gerði loftárás á höfuðborg Venesúela og handtók einræðisherrann Nicolas Maduro hefur skapast ákveðin óvissa um hver það er sem fer með völdin í landinu. Stýrir eftirmaður Maduros, Delcy Rodriguez, Venesúela eða Donald Trump Bandaríkjaforseti? Yfirvöld í Caracas handtóku blaðamenn í kjölfar árásarinnar og stöðvuðu fólk á götum úti til að skoða símana þeirra og athuga hvor...

Framtíð Írans í ljósi fjölmennra mótmæla 12.01.2026

Í dag beinum við sjónum okkar að mótmælunum í Íran sem ekkert lát virðist vera á. Rætt er við Ásgeir Brynjar Torfason, doktor í fjármálum og ritstjóra Vísbendingar, og Kjartan Orra Þórsson, sérfræðing í málefnum Írans. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Reykjalundur á krossgötum út af tapi og myglu 09.01.2026

Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Reykjalundar í Mosfellsbæ, segir að staða Reykjalundar sé erfið. Hallarekstur var upp á 280 milljónir í fyrra. Svana tók við forstjórastarfinu á endurhæfingarstofnuninni í nóvember. Mygla er í húsnæði stofnunarinnar sem í og nærliggjandi íbúðarhúsi fyrir sjúklinga og starfsmenn. Þessi mygla hefur haft slæm áhrif á bæði starfsmenn og eins sjúklinga á Reykjalundi....

Er raunhæft að lögfesta rétt barna til leikskólavistar? 08.01.2026

Í dag beinum við sjónum okkar að leikskólamálum - og sérstaklega að þeirri hugmynd að réttur barna til leikskólavistar verði lögfestur hér á landi, en umræða um slíka nálgun hefur orðið fyrirferðameiri undanfarið. Viðmælendur: Arnaldur Sölvi Kristjánsson Haraldur Freyr Gíslason Jón Björn Hákonarson Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Bóndi segir Ratcliffe vera eins og lénsherra í Vopnafirði 07.01.2026

Enski milljarðarmæringurinn Jim Ratcliffe er einn stærsti jarðaeigandi á Íslandi. Hann keypti upp jarðir á norðausturhorninu í stórum stíl fyrir nokkrum árum og er með sex laxveiðiár á leigu, meðal annars Selá og Hofsá. Í sumar ætlar hann að dvelja lengur á Íslandi en hann hefur gert og veiða í Selá. Rýma þurfti Selá á besta tíma í sumar fyrir Ratcliffe og geta veiðimenn sem hafa veitt þar á þessu...

Olían í Venesúela 06.01.2026

Við höldum áfram umræðu um Venesúela í þætti dagsins og beinum nú sjónum að olíunni þar, en Venesúela hefur yfir að ráða stærstu olíulindum heims. Rætt er við Brynjólf Stefánsson, sjóðstjóra og sérfræðing í hrávörum, og Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor við Háskóla Íslands. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Árásin á Caracas og útþensla Donald Trumps 05.01.2026

Árás Bandaríkjahers á borgina Caracas í Venesúela og handtaka Nicolas Maduro forseta landsins hefur verið á allra vörum síðustu daga. Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur greinir árásina og er sagt frá mögulegum afleiðingum handtöku Maduros fyrir óbreytta borgara sem hafa flúið landið. Einn þeirra er er hin 71 árs gamla Blanca Pirela sem býr á Flórída. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Sögulegt samhengi deilna Taívan og Kína 02.01.2026

Í áramótaávarpi sagði Xi Jinping, forseti Kína, enn á ný að til stæði að sameina Kína og Taívan aftur undir einni stjórn. Þá var umfangsmiklum heræfingum Kínverja í kringum Taívan nýlokið. Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að stöðunni á Taívan og setjum samskipti Kínverja og Taívana í sögulegt samhengi um leið og við veltum fyrir okkur hvernig mál gætu þróast þar á næstu misserum, og möguleg...

Gagnrýni á frelsissviptingu barna í frumvarpi um brottfararstöð 30.12.2025

Nýtt frumvarp dómsmálaráðherra, Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur, um brottfararstöð er umdeilt. Sérstaklega áhrif þessa úrræðis á börn. Frumvarpið hefur verið í umsagnarferli hjá Alþingi og hafa borist 30 umsagnir frá ýmsum einstaklingum og stofnunum. Ein af þessum umsögnum er frá Barna-og fjölskyldustofu sem Guðrún Þorleifsdóttir starfar hjá. Fjallað er um frumvarpið og gagnrýni Barna- og fjöl...

Skrautlegt ár að baki á markaði 29.12.2025

Í þætti dagsins er sjónum beint að árinu á hlutabréfamarkaði, þátttöku almennings og stöðu efnahagsmála á næsta ári. Rætt er við Magnús Harðarson, forstjóra Kauphallarinnar, og Snorra Jakobsson, hagfræðing hjá Jakobsson Capital. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Bláa lónið með tvö nýja baðstaði á teikniborðinu 22.12.2025

Á síðustu vikum hefur verið nokkur umræða um uppbyggingu í ferðaþjónustu í náttúru Íslands. Smáhýsin í Skaftafelli hafa vakið hörð viðbrögð hjá sumum og fyrirhugað baðlón og hótel Bláa lónsins við Hoffellsjökul og Vatnajökulsþjóðgarð sömuleiðis. Magnús Orri Schram, er yfirmaður þróunarmála hjá Bláa lóninu, segir að mikil eftirspurn sé eftir baðstöðum hjá erlendum ferðamönnum. Hann segir að lykilat...

Fyrri hálfleik lokið á 157. þingi 19.12.2025

Fyrstu fjárlög ríkisstjórnarinnar voru samþykkt á sjöunda tímanum í gærkvöldi. Í gær var einnig samþykkt umdeilt frumvarp um kílómetragjald á ökutæki, frumvarp um hækkun frítekjumarks eldri borgara og frumvarp um hlutdeildarlán, sem á að gera þau aðgengilegri fleirum. Og þingmenn halda nú í jólafrí. Í þættinum er farið yfir þau mál sem hafa verið samþykkt í haust og stöðuna eftir áramót. Viðmæland...

Baðlón og hótel Bláa lónsins við Hoffellsjökul 18.12.2025

Bláa Lónið hf. vill byggja hótel og gera baðlón við rætur Hoffellssjökuls við Hoffell í Nesjum. Framkvæmdirnar eru utan Vatnajökulsþjóðgarðs en eru rétt við mörk hans. 99 umsagnir hafa borist til Skipulagsstofnunar út af þessum fyrirhuguðu framkvæmdum. Umsagnir eru enn að berast um verkefnið þrátt fyrir að umsagnarfrestur hafi runnið út 1. desember. Síðasta umsögnin er dagsett 17. desember. Sigrún...

Pólitíkusar ekki lengur menn ársins 17.12.2025

Í dag beinum við sjónum okkar að þeirri hefð að útnefna manneskju ársins. Hlustendur Rásar 2 - og síðar lesendur RÚV.is - hafa valið manneskju ársins á hverju ári frá 1989. Athygli vekur að kjörnir fulltrúar hafa verið valdir 10 sinnum, eða í rúmlega fjórðungi tilfella, en aldrei frá 2007. Viðmælandi: Guðmundur Heiðar Helgason, almannatengill. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson

Listen to the Þetta helst podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.