RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Starfsfólk RIFF kvartar til Vinnumálastofnunar og borgarinnar 04.03.2026 16:04
Starfsmenn sem unnu á kvikmyndahátíðinni RIFF hafa kvartað til Vinnumálastofnunar og Reykjavíkurborgar vegna stjórnarhátta á hátíðinni. Gagnrýni þeirra beinist að eiganda og framkvæmdastjóra hátíðarinnar, Hrönn Marinósdóttir. Fyrrverandi starfsmannastjóri RIFF, Þorbjörg Jóhannsdóttir, segir frá reynslu sinni af því að starfa á hátíðinni sem annar starfsmaður, Guðmundur Steinn Gíslason Kjeld. Gagnr...
Nýtt tímabil kjarnorkuvopna hefst 03.03.2026 18:16
Við ætlum að ræða kjarnorku í dag, þróun kjarnorkuvopna og breytingu á viðhorfi til slíkra vopna, bæði í ljósi stríðsins í Miðausturlöndum og ummæla Frakklandsforseta í ræðu í gær, þar sem hann sagði næstu 50 ár verða tímabil kjarnorkuvopna. Viðmælendur: Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur Gísli Jónsson, sérfræðingur hjá Geislavörnum ríkisins
Efnahagslegar afleiðingar stríðs í Miðausturlöndum 02.03.2026 15:44
Í dag ætlum við að halda áfram að ræða stríðið í Miðausturlöndum sem hófst með loftárásum Ísraela og Bandaríkjamanna á Íran á laugardaginn - og beina sjónum sérstaklega að efnahagslegum áhrifum þess, olíunni og vöruflutningum, og hvort ástandið kunni að hafa áhrif á verðbólguhorfur hér á landi. Rætt er við Jón Bjarka Bentsson, aðalhagfræðingur Íslandsbanka, og Runólf Ólafsson, framkvæmdastjóra Fél...
Fegurðarforskot og „looksmaxxing“ hugmyndafræði 27.02.2026 15:16
Í dag beinum við sjónum okkar að hugmyndinni um fegurðarforskot í ljósi mikillar umræðu um aukna áherslu á útlit, sem hefur birst okkur í fréttum um peptíðanotkun og looksmaxxing hugmyndafræði, sem gengur út á að hámarka eigin fegurð. Rætt er við Andrés Jónsson, almannatengil, og Þóru H. Christiansen, aðjúnkt við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Íþróttafólk og auglýsingar 26.02.2026 15:23
Þótt alþjóða ólympíunefndin hafi ávallt verið ströng þegar kemur að auglýsingum urðu nokkrar breytingar á þessum leikum. Samningar íþróttafólks við fyrirtæki verða sífellt fleiri og stærri, líka á Íslandi. Rætt er við afreksstjóra ÍSÍ í þætti dagsins og framkvæmdastjóra auglýsingastofunnar Pipar\TBWA. Þau segja bæði að samningar íþróttafólks og fyrirtækja geti verið farsæl blanda. Annars vegar sé...
Latína: Mikilvæg undirstaða eða tilhaldstunga yfirstétta? 25.02.2026 15:47
Í dag beinum við sjónum okkar að latínu- og fornmálakennslu hér á landi, og áhyggjum af því að slíkt nám á framhaldsskólastigi sé að leggjast af. Nú stendur nefnilega til að draga úr latínukennslu við Menntaskólann í Reykjavík, eina skólanum sem enn kennir latínu, Viðmælendur: Böðvar Stefánsson, nemandi. Kolbrún Elfa Sigurðardóttir, latínukennari. Sólveig Guðrún Hannesdóttir, rektor Menntaskólans...
Tjónaskráin og sérstakur dómstóll fyrir úkraínu 24.02.2026 16:24
Í dag eru 4 ár liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Hver er staða tjónaskrárinnar sem á að halda utan um þann skaða sem innrásin hefur valdið? Og hvernig á að draga Rússa til ábyrgðar þegar þeir viðurkenna enga sök? Rætt við Róbert Spanó, formann stjórnar tjónaskrárinnar, og Þórdísi Kölbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, fyrrerandi utanríkisráðherra og sérstakan erindreka aðalframkvæmdastjóra Ev...
Birting skjala um geimverur og fljúgandi furðuhluti 23.02.2026 15:21
Í dag beinum við sjónum okkar út í geim - að mögulegu lífi annars staðar en á jörðinni okkar. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur nefnilega skipað alríkisstofnunum, meðal annars varnarmálaráðuneytinu, að yfirfara og birta öll gögn og upplýsingar sem tengjast óþekktum fljúgandi fyrirbærum og geimverum. Rætt er við Sævar Helga Bragason. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Rektorar á rökstólum um framtíð Háskólans á Bifröst 20.02.2026 15:59
Runólfur Ágústsson, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, og Ólína Þorvarðardóttir, starfandi rektor, hafa ólíkar hugmyndir um framtíð skólans. Runólfur telur að skólinn eigi sér ekki lengur tilverurétt sem sjálfstæð menntastofnun á meðan Ólína telur skólann á góðri siglingu sem halda muni áfram. Runólfur ræðir einnig um ábyrgð sína á stöðu skólans í dag en í rektorstíð hans fór skólinn í mikla...
Stærsta fríverslunarsvæði heims verður til 19.02.2026 14:58
Í dag beinum við sjónum okkar að fríverslunarsamningi milli EFTA-ríkjanna - og Evrópusambandsins - og Mercosur-ríkjanna í Suður-Ameríku. Í upphafi þessarar viku var þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um fullgildingu fríverslunarsamningsins birt á vef þingsins. Viðmælendur: Hólmfríður Garðarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Ísla...
Nærri 300 milljóna króna verktakagreiðslur til félaga tveggja kennara á Bifröst 18.02.2026 14:21
Tvö eignarhaldsfélög og eitt markaðsfyrirtæki í eigu tveggja lektora í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst hafa fengið samtals rúmlega 295 milljónir króna í verktakagreiðslur frá skólanum síðan 2014. Þetta eru verktakagreiðslur fyrir vinnu við Háskólann á Bifröst á tímabilinu 2014 til 2024. Lektorarnir sem um ræðir heita Haraldur Daði Ragnarsson og Ragnar Már Vilhjálmsson. Þeir hafa verið talsv...
Deilt um mögulegan óhollustuskatt 17.02.2026 14:54
Í þætti dagsins er sjónum beint að mögulegum óhollustuskatti sem er til skoðunar að setja á. Í samráðsgátt er nú að finna drög heilbrigðisráðherra að tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun vegna offitu á Íslandi fyrir árin 2026 til 2030. Þar er lagt til að skipaður verði þverfaglegur starfshópur sem verði meðal annars falið að skoða fýsileika þess að lækka álögur á grænmeti og ávexti og hækka...
Stofnandi Vivaldi íhugar að flýja ástandið í Bandaríkjunum 16.02.2026 17:12
Norsk-íslenski fjárfestirinn Jón Stephenson von Tetzhner íhugar að flytja frá Bandaríkjunum eftir að hafa búið þar í meira en áratug. Jón er tiltöluglega lítt þekktur á Íslandi þrátt fyrir að vera nokkuð stórtækur í fjárfestingum hér. Hann á meirihluta í símafyrirtækinu Hringdu, fasteignir á Eiðistorgi, hluti í mjólkurvinnslunni Örnu, tæknifyrirtækið Vivaldi sem rekur samnefndan vafra og hlut í bó...
Bankarnir hagnast um nærri 94 milljarða króna 13.02.2026 15:07
Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að hagnaði stóru viðskiptabankanna þriggja sem hafa nú allir birt uppgjör fyrir síðasta ár. Rætt er við Gylfa Magnússon, prófessor í hagfræði, og Vilhjálm Birgisson, formann Starfsgreinasambandsins. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Bifrastarsagan: Hitafundur og 2.3 milljarða afskriftir 12.02.2026 16:05
Þremenningarnir sem voru hreinsaðir af meintum brotum á siðareglum Háskólans á Bifröst í síðustu viku hafa hótað að stefna skólanum fyrir dóm. Þau sendu háskólanum á Bifröst bréf þann 8. febrúar þar sem þau krefjast þess að fá upplýsingar um nafnlausu ábendinguna sem siðanefndarmálið gegn þeim byggir á. Miklar deilur hafa geisað í háskólanum á Bifröst síðastliðinn mánuð. Hitafundur var haldinn um...
Flokkaflakkarar og sovésk kjörbúð 11.02.2026 14:51
Línur eru farnar að skýrast á framboðslistum fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Það er til að mynda ljóst að töluverð endurnýjun verður í forystu flokkanna í borginni. Þar hafa átta flokkar kynnt oddvita sína. Og í þessu samhengi hefur það sérstaklega veriðnefnt að fimm af þessum oddvitum hafi með einum eða öðrum hætti tekið þátt í starfi Sjálfstæðisflokksins - þótt verulegur munur sé á þátt...
Baráttan um Bifröst: Deilt um völd og peninga 10.02.2026 15:45
Fjölþættar og persónulegar deilur hafa verið innan Háskólans á Bifröst síðastliðið ár á milli stjórnenda og hluta kennaraliðsins. Hluti kennaraliðsins hefur sakað Margréti Jónsdóttur Njarðvík rektor um ógnarstjórn. Þessar deilur leiddu til þess að Margrét Jónsdóttir sagði frá því í beinni útsendingu í Kastljósi í gær að hún hefði sagt starfi sínu lausu með erindi til stjórnar skólans fyrr um dagin...
Sjö ár frá hvarfi Jóns Þrastar 09.02.2026 16:11
Í dag eru sjö ár síðan Jón Þröstur Jónsson, íslenskur fjölskyldumaður á fimmtudagsaldri, hvarf sporlaust í Dyflinni, höfuðborg Írlands. Lögreglan á Írlandi hefur enn á ný óskað eftir því að almenningur hafi samband hafi hann einhverjar upplýsingar sem gætu komið að gagni við rannsóknina. Rætt er við bróður Jóns, Davíð Karli Wiium, og Önnu Marsibil Clausen, sem gerði verðlaunaða hlaðvarpsþætti um m...
Nágrannar Gauksstaða vilja stöðva byggingu smáhýsa við ströndina 06.02.2026 16:10
Hópur nágranna jarðarinnar Gauksstaða í Garði í Suðurnesjabæ vill stöðva byggingu 15 smáhýsa við ströndina þar. Húsin eru hugsuð fyrir ferðamenn. Kæra vegna málsins er nú til meðferðar hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála. Eigendur jarðarinnar segjast ætla að hefja framkvæmdir við húsin á næstu vikum og að tilraunir til að stöðva framkvæmdirnar skipti engu máli. Húsin sé á deiliskipulagi...
Fánaborgin við Ráðhús Reykjavíkur 05.02.2026 15:27
Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að fánaborginni við Ráðhús Reykjavíkur. Á fundi borgarráðs í dag verður nefnilega líklega tekin fyrir tillaga borgarstjóra um að flagga grænlenska fánanum við ráðhúsið. Hugmyndin með tillögunni er að sýna nágrönnum okkar táknræna samstöðu, eins og borgarstjóri orðaði það í Facebook-færslu, en fáni Grænlands yrði þá dreginn að húni við hlið úkraínska þjóðfána...
Erjur um spillingu í veitingarekstri í Suðurnesjabæ 04.02.2026 16:40
Í lok janúar komu upp erjur í Suðurnesjabæ á milli veitingastaðar í Sandgerði og sveitarfélagsins. Veitingahúsaeigandi á Sjávarsetrinu vændi sveitarfélagið um mismunun og spillingu, Suðurnesjabær sá sig knúinn að svara þessum ásökunum á heimasíðu sínni. Deilan snýst um það að sveitarfélagið á hlut í veitingastaðnum Röstinni við Garðskagavita og telur veitingahúsaeigandinn að þetta skekki samkeppni...
Vopn gegn vöxtum eða stalínísk forræðishyggja? 03.02.2026 14:50
Það vakti talsverða athygli og umræður í gær þegar Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, nefndi að fyrsta skref að afnámi verðtryggingar yrði stigið um næstu áramót. Minnka á vægi verðtryggðra íbúðalána, meðal annars með nýjum reglum um lágmarkshraða afborgana. Már Wolfgang Mixa, dósent í viðskiptafræði, gagnrýnir þessa nálgun harðlega og líkir við stalíníska aðferðafræði. Monika Hjálmtýsdóttir...
Stálin stinn í sjókvíaeldinu og ráðuneytið á milli 02.02.2026 17:28
Hvað felst í frumvarpi atvinnuvegaráðherra þegar kemur að framtíð sjókvíaeldis á Íslandi? Ráðuneytið er að segja að því sem tækni í fiskeldi fleytir fram sé líklegt að aðrar sjálfbærari og umhverfisvænni leiðir muni leysa sjókvíaeldi af hólmi. Þess vegna eru fjárhagslegir hvatar í frumvarpinu sem eiga að ýta undir tækninýjungar í fiskeldi. Þessi tækni er hins vegar ekki tiltæk í dag og þess vegna...
Listin að lýsa landsleik 30.01.2026 14:37
Það hefur varla farið framhjá mörgum að Ísland mætir Danmörku í undanúrslitum EM í handbolta klukkan hálf átta í kvöld - og spennustigið er hátt í samfélaginu. Mikill undirbúningur er að baki hjá landsliðinu okkar en einnig hjá öðrum sem koma að mótinu og umfjöllun um það og í Þetta helst í dag er sjónum beint að þeirri list sem í því felst að lýsa landsleik - sér í lagi í útvarpi, en þar hefur Þo...
Handboltaæðið: Ísland eins og Argentína norðursins 29.01.2026 18:34
Íslenska þjóðin er svo stemmd fyrir handboltalandsliðinu að fjölmiðlar hafa verið stútfullir af fréttum af því síðustu vikurnar. Dramatísk fréttamál í heiminum falla í skuggann af liðinu og stórar og smáar fréttir af strákunum okkar fara í hæstu hæðir á leslistum íslenskra fjölmiðla. Eiga Íslendingar heimsmet meðal þjóðanna í þeirri stemningu og því æði sem grípur um sig í samfélaginu þegar handab...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.