RÚV
Þetta helst
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
100 milljarða stefnan gegn Samherja í London 13.04.2026 15:21
Skoska fyrirtækið Restitution Litigation Limited vinnur að því fyrir hönd namibíska ríkisins að reyna að endurheimta peninga í Namibíumálinu frá Samherja. Fyrirtækið hefur höfðað mál gegn Samherja fyrir breskum dómstólum og vill allt 120 milljarða króna í skaðabætur. Forstjóri Restitution, Katherine Mulhern, segir að stefnan byggi á því að Samherji hafi með meintum spilltum og meintum ólögmætum hæ...
Hugmyndin um samevrópskan her 10.04.2026 15:44
Hugmyndin um sameiginlegan her Evrópusambandsins er til umfjöllunar í Þetta helst í dag. Rætt er við Erling Erlingsson, hernaðarsagnfræðing. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson.
Bogi hjá Icelandair svarar spurningum um Möltuviðskiptin 09.04.2026 16:10
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir að ekki standi til að fara að ráða starfsfólk til flugfélagsins í gegnum starfsmannaleigur á Möltu. Mörg flugfélög stundi þetta til að spara sér kostnað. Hann segir enga tiltekna skýringu á því af hverju Icelandair eigi nú í viðræðum um að kaupa bara 49 prósent í félagi Play á Möltu sem er með þarlent flugrekstrarleyfi. Fjölmörgum spurningum er ósvara...
Viðskipti Icelandair á Möltu og áhyggjur starfsfólks 08.04.2026 15:18
Tilkynning flugfélagsins Icelandair um möguleg kaup á 49 prósenta hlut í maltversku félagi Play fyrir páska hefur vakið upp áhyggjur og kallað fram spurningar hjá mörgum í starfsliði Icelandair. Þetta á við um flugmenn, flugfreyjur, flugvirkja sem og aðra starfsmenn. Meira en 3000 starfsmenn vinna hjá Icelandair og er fyrirtækið einn stærsti vinnustaður landsins. Haft var eftir Boga Nils Bogasyni,...
Sögulegt fylgistap Framsóknarflokksins 07.04.2026 15:45
Í dag beinum við sjónum okkar að stöðu og sögu Framsóknarflokksins í ljósi nýjasta þjóðarpúls Gallups sem var birtur á skírdag. Fylgi Framsóknarflokksins minnkar um nær tvö prósentustig milli kannana og stendur nú í 4,7 prósentum, en þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn mælist utan þings. Hann fengi engan mann kjörinn ef gengið yrði til kosninga nú. Viðmælendur: Sigurður Pétursson, sagnfræðingur...
Vilja að Þorgerður Katrín leysi ræðismann Íslands undan skyldum sínum 01.04.2026 13:30
Samtök aðgerðasinna sem berjast gegn herforingjastjórninni í landinu Myanmar í Asíu vilja að íslensk stjórnvöld afturkalli nýlega skipun ræðismanns fyrir Ísland í landinu. Ræðismaðurinn heitir Ko Ko Latt og telja samtökin að hann vinni með herforingjastjórninni og hjálpi til við að fjármagna. Samtökin kalla sig Justice for Myanmar eða Réttlæti fyrir Myanmar og sendu þau bréf með þessari kröfu til...
Hvers vegna hækkuðu aðrir seðlabankar ekki vexti? 31.03.2026 16:02
Í þætti dagsins erum sjónum beint að því hvað aðrir seðlabankar eru að gera hvað varðar stýrivexti. Rætt er við Eirík Ragnarsson, hagfræðing í Þýskalandi, og Sigríði Benediktsdóttur, hagfræðing við Columbia háskóla í Bandaríkjunum. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Lögreglan rannsakaði fósturheimilið Gauksstaði 30.03.2026 15:00
Lögreglan á Suðurnesjum rannsakaði eigendur fósturheimilisins Gauksstaða í Garði fyrir meint brot á barnaverndarlögum. Rannsóknin hófst árið 2019 og var tekin skýrsla af fjölda fólks sem hafði búið á heimilinu sem börn. Til rannsóknar var hvort eigendur fósturheimilisins, Jón Steinar Konráðsson og Linda Angelique Elizondo, hafi gerst brotleg gegn barnaverndarlögum og brot í opinberu starfi. Rannsó...
Saga móður sem tilkynnti Waltraud fyrir ofbeldi 27.03.2026 14:59
Marta Gunnardóttir var 25 ára einstæð móðir þegar hún sendi dóttur sína og son á fósturheimilið til Waltraud Paulsen í Mosfellssveit árið 1974. Þau bjuggu hjá Waltraud í tvö ár og upplifðu harðræði og ofbeldi sem hefur fylgt þeim æ síðan segir Marta. Börnin voru tveggja og fjögurra ára þegar þau fóru á heimilið. Stúlkan var beitt kynferðisofbeldi og drengurinn var bundinn og honum hótað með stórum...
Þráláta atvinnuleysið á Suðurnesjum 26.03.2026 16:35
Í þætti dagsins beinum höldum við áfram að ræða atvinnuhorfur hér á landi og beinum sjónum nú sérstaklega að atvinnuleysi á Suðurnesjum þar sem það er mest, 8,8 prósent. Rætt er við Guðbjörgu Kristmundsdóttur, formann Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, og Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur, forseta bæjarstjórnar í Reykjanesbæ. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Tvær systur segja frá fósturheimili Waltraud 25.03.2026 17:00
Tvær systur sem bjuggu á fósturheimili Waltraud Paulsen í Mosfellssveit segja sögu sína. Þær heita Hanna Hrefnudótitr og Ásdís Sveinjónsdóttir. Hanna var fjögurra til sex ára þegar hún bjó á heimilinu. en Ásdís var tveggja til fjögurra ára Minningar þeirra af dvölinni á heimilinu eru slæmar og hafa fylgt þeim í gegnum lífið. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Ofbeldið á fósturheimilinu í Mosfellssveit 24.03.2026 20:59
Guðrún Glódís Gunnarsdóttir, leikkona og söngkona, varð fyrir ofbeldi þegar hún dvaldi á fósturheimili í Mosfellssveit á áttunda áratugnum. Eigandi heimilisins var þýsk kona, Waltraud Paulsen, og var það hún sem beitti þessu ofbeldi segir Guðrún Glódís. Fósturheimilið var í heimahúsi hjá Waltraud sem bjó þar ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum. Waltraud er fædd árið 1935 og er ennþá á lífi. G...
Aukið atvinnuleysi á óvissutímum 23.03.2026 14:17
Í dag beinum við sjónum okkar að atvinnuleysi hér á landi sem hefur verið nokkuð til umfjöllunar síðustu vikur og mánuði - enda ekki verið meira frá því í faraldrinum - og ef hann er undanskilinn hefur það ekki mælst meira frá 2013. Rætt er við Arnald Sölva Kristjánsson, sérfræðing í vinnumarkaðshagfræði, Ingólf Bender, aðalhagfræðing Samtaka iðnaðarins og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra S...
Frumskógur fósturheimilanna: „Eins og ég væri í fangelsi“ 20.03.2026 15:00
Kona sem dvaldi á fósturheimili í Garðinum á Reykanesi segir að það hafi verið eins og fangelsi að búa þar. Hún bjó á heimilinu á árunum 2017 og 2019. Heimilið hét Gauksstaðir og er ekki lengur starfandi. Konan ber vistinni á heimilinu samt frekar vel söguna almennt séð en segir aðra stúlku hafa átt erfiðari stundir þar. Ekki fást skýr svör frá Barna- og fjölskyldustofu, arftaka Barnaverndarstofu,...
Er rétt að lækka matarskattinn? 19.03.2026 16:30
Í þætti dagsins er sjónum beint að verðhækkunum á mat og hvort æskilegt sé að lækka virðisaukaskatt á matvöru – alla vega tímabundið – eins og nágrannaríki okkar ætla eða íhuga að gera. Rætt er við Þórólf Matthíasson, prófessor emeritus í hagfræði, og Finnbjörn A. Hermannsson, forseta ASÍ. Umsjón: Ingvar Þór Björnsson
Þetta gerist næst í Bakkakotsmálinu 18.03.2026 17:00
Einn og hálfur mánuður er frá því að umfjöllun um Bakkakotsmálið var birt í fréttaskýringaþættinum Kveik. Þátturinn vakti mikla athygli og umtal næstu daga og vikur þar á eftir. En hvað gerist svo? Hvað eru stjórnvöld að gera til að bregðast við þessu máli? Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra boðaði ferns konar aðgerðir til að bregðast við Bakkakotsmálinu í kjölfar þáttarins. Samhliða er verið...
Deilt um bardagakvöld og reglur um bardagaíþróttir 17.03.2026 17:59
Í Þetta helst í dag beinum við sjónum okkar að bardagaíþróttum - sem virðast vera í sókn hér á landi - og bardagakvöldum sem vakið hafa athygli að undanförnu. Viðmælendur: Ragnar Baldursson, lögmaður Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands Þórarinn Hjartarson, hnefaleikaþjálfari
Kaup risans Símans á vinsælum fjölmiðlum 16.03.2026 16:59
Fyrirhuguð kaup Símans á vinsælum fjölmiðlum eins og Vísi.is og Bylgjunni af Sýn hafa vakið athygli. Síminn hefur á síðustu tveimur árum keypt mörg fyrirtæki á auglýsinga- og fjártæknimarkaði og vaxið talsvert. Stærsti hluthafi Símans er fjárfestingarfélagið Stoðir sem á sér rúmlega 50 ára langa sögu í ólíkum myndum, meðal annars sem FL Group á árunum fyrir bankahrunið 2008. Meðal hluthafa Stoða e...
Áralangar deilur um tollflokkun á pítsaosti 13.03.2026 15:32
Í Þetta helst í dag eru það ostar sem eru til umfjöllunar - nánar tiltekið pitsaostur með viðbættri jurtaolíu, og áralangar deilur um tollflokkun á slíkum osti. Rætt er við Margréti Gísladóttur, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, og Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda. Umsjón: Ingvar Þór
Sveitastjórnarmenn og bæjarstjórar skyldugir að birta hagsmunaskráningu sína 12.03.2026 16:59
Sveitarfélög á Íslandi verða skyldug til að birta hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa og æðstu stjórnenda þeirra opinberlega ef frumvarp um ný sveitarstjórnarlög verður að lögum. Þetta er nýbreytni sem ekki hefur áður verið í sveitarstjórnarlögum. Þá eiga siðreglur sveitarstjórna líka að ná yfir framkvæmdastjóra og æðstu stjórnendur þeirra, það er að segja þá sem ekki eru kjörnir fulltrúar. Með la...
Saga þjóðaratkvæðagreiðslna á Íslandi 11.03.2026 16:50
Um fátt annað er rætt þessa dagana en fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Í þætti dagsins ætlum við þó ekki að dvelja við atkvæðagreiðsluna um Evrópusambandið 29. ágúst - þess í stað verður sjónum beint að fyrri þjóðaratkvæðagreiðslum hér á landi - en Íslendingar hafa átta sinnum mætt á kjörstað og greitt atkvæði í slíkum kosningum. Rætt er...
30 milljóna króna verktakagreiðslur til samlagsfélags eiginmanns heilbrigðisráðherra 10.03.2026 16:59
Samlagsfélag Torfa Fjalars Jónasson hjartalæknis og Ölmu Möller, þingmanns Samfylkingarinnar og núverandi heilbrigðisráðherra, fékk greiddar tæplega 30 milljónir króna í vertakagreiðslur fyrir svokölluð ferliverk á Sjúkrahúsinu á Akureyri á árunum 2023 til 2025. Miklar deilur hafa geisað við Sjúkrahúsið á Akureyri síðastliðna mánuði út af þessum vertakasamningum. Framkvæmdastjórn sjúkrahúsins sagð...
Ört vaxandi gagnaversiðnaður 09.03.2026 15:19
Í þætti dagsins beinum við sjónum okkar að ört vaxandi gagnaversiðnaði hér á landi. Rætt er við Björn Brynjúlfsson, forstjóra Borealis Data Center og formann Samtaka gagnavera og Tinnu Traustadóttur, framkvæmdastjóra sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun.
Stjórnendur atNorth hagnast ævintýralega á sölu gagnaverafyrirtækisins 06.03.2026 17:20
Íslenska gagnverafyrirtækið atNorth hefur verið selt fyrir 485 milljarða króna líkt. Þetta er langstærsta salan á íslensku gagnaverafyrirtæki hingað til. Fyrirtækið var í eigu svissneska sjóðsstýringafyrirtækisins Partners Group að 95 prósent leyti og hópur stjórnenda atNorth átti 5 prósenta hluta. Stjórnendurnir skipta með sér rúmlega 24 milljörðum króna af söluverðinu að frádregnum kostnaði þeir...
Fordæmalaus staða fyrir stórmót 05.03.2026 15:32
Flautað verður til leik á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu 11. júní í sumar. Mótið fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó, og nú liggur að mestu leyti fyrir hvaða þjóðir hafa tryggt sér þátttökurétt. Þeirra á meðal er Íran en vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum er eðli málsins samkvæmt ólíklegt að þeir mæti til leiks. Viðmælendur: Kjartan Orri Þórsson, sérfræðingur um málefni Írans Sigurlaugur...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.