Ásdís Jóelsdóttir
Textílvarp Rannsóknarstofu í textíl
Textílvarpið er á vegum Rannsóknarstofu í textíl sem stofnuð var 2020. Umsjón með varpinu hafa Selma Ragnarsdóttir og Soffía Margrét Magnúsdóttir. Markmiðið með hlaðvarpinu er að koma til móts við fræði-, fag- og áhugafólk innan faggreinarinnar, m.a. er ætlunin að kynna nýjar rannsóknir í tengslum við menntun, hönnun, tækni og framleiðslu, nýsköpun og listir, nám og kennslu og útgáfu bóka, nýja viðburði og tíðaranda, einstaka hönnuði, lista- og handverksfólk og störf þeirra, menningu, sögu og söfn.
Author
Ásdís Jóelsdóttir
Category
Podcast website
Latest episode
Jun 1, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Textívarp 3. 2026 01.06.2026 27:19
Gestur Textílvarpsins er Sigmundur Páll Freysteinsson, Myndlista-, fata og textílhönnuður sem hefur menntað sig á því sviði og starfar á mótum hönnunar, textílllitunar og japanskrar menningar. Hann vinnur á mörkum hönnunar, vísinda og umhverfismála og hefur meðal annars verið að rannsaka hvernig hægt er að lita textíl með íslenskum og japönskum plöntum, þörungum og öðrum náttúrulegum hráefnum. Við...
Textílvarp 2. 2026 01.06.2026 31:57
Textílvarpið fékk myndlista- og textíllistakonuna Rögnu Fróðadóttur í viðtal. Ragna lærði fata- og textílhönnun í París á árunum 1992-1995 og síðar við textíldeild Myndlista- og handíðarskólans frá 1996-1998. Ragna var um árabil deildastjóri textíldeildar Myndlistaskóla Reykjavíkur og formaður Textílfélagsins. Undanfarin 15 ár hefur Ragna búið og starfað til skiptis í New York, Berlín og Reykjavík...
Textílvarp 1. 2026 21.05.2026 25:57
Viðmælendur þáttarins eru stofnendur Textílbarsins þær Hildigunnur Sigurðardóttir og Hrafnhildur Gísladóttir. Við ræðum um hvernig við getum breytt textílsóun í skapandi auðlind og hvers vegna hringrásarhagkerfið skiptir svona miklu máli í dag. Ertu með óklárað handavinnuverkefni í felum eða fulla poka af gömlum fötum? Textílbarinn sýnir okkur hvernig við gefum efninu nýtt líf með smá hugmyndaflug...
Textílvarp 6. 2023 25.05.2023 41:37
Viðtal við Coco Viktorsson fatahönnuð. Coco hefur starfað við ýmislegt sem viðkemur hönnun og búningagerð.
Textílvarp 5. 2023 29.03.2023 19:50
Í þessum þætti er fjallað um rannsóknarstofu í textíl og tilurð hennar. Viðmælandi er Ásdís Ósk Jóelsdóttir, lektor í textíl og hönnun á Menntavísindasviði við HÍ, sem setti stofuna á legg en nær 40 aðilar koma að rannsóknarstofunni.
Textílvarp 4. 2023 13.01.2023 37:05
Viðmælandi er Karl Aspelund, þjóðfræðingur og gestadósent við Háskóla Íslands og deildarstjóri í textíl og fatahönnun við University of Rhode Island. Í viðtalinu greinir hann frá rannsóknarverkefni sem tengist Nasa og búsetu í geimnum og sjálfbærum textíl.
Textilvarp 3. 2022 14.05.2022 19:39
Þórunn María úr stjórn Rannsóknastofu í textíl heimsótti Textílmiðstöð Íslands á Blöndósi og tók viðtal við Elsu Arnardóttur, forstöðumann um stafræna textílsmiðju.
Textílvarp 2. 2022 17.03.2022 31:16
Viðtal við Björgu Ingadóttir, fatahönnuð.
Textílvarp 1. 2022 21.02.2022 29:49
Viðtal við Grétu Sörensen um nýútkomna bók hennar Lopapeysubókin. Umsjón með þættinum hefur Soffía Margrét Magnúsdóttir og Selma Ragnarsdóttir.
Textílvarp - 1. 2021 08.11.2021 43:38
Viðtöl við eftirfarandi: Þráðhyggja Berglind Ósk Hlynsdóttir, fatahönnuður og Sólveig Hansdóttir, fatahönnuður linkur á instagram https://www.instagram.com/boskboskbosk/ Sjálfbærar og umhverfisvænar textílaðferðir – kennsluverkefni í textíl Kristína Berman, meistaranemi, MVS HÍ Leiðbeinandi: Ásdís Jóelsdóttir, lektor, MVS HÍ
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.