Taeknivarpid.is

Tæknivarpið

News IS ↓ 100 episodes

Tæknivarpið er eitt elsta virka hlaðvarp Íslands og fjallar um tæknifréttir vikunnar. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán, Axel Paul, Bjarni Ben, Egill Moran, Elmar Torfason, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors og Sverrir Björgvins.

Author

Taeknivarpid.is

Category

News

Podcast website

taeknivarpid.podbean.com

Latest episode

Jul 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Páskavarp Tæknivarpsins 12.04.2023

Flugur.is hjálpuðu okkur að gera þennan þátt að veruleika.  Svikapóstar sem eru ekki frá ríkislögreglustjóra, endurhlaðanlegar rafhlöður, páskaegg og ný OnePlus spjaldtölva eru meðal umræðu dagsins. Einnig segja þáttastjórnendur frá því hvaða áskriftir þeir eru með þessa dagana með að streymisveitum.    Umsjónarmenn þáttarins eru Andri Valur, Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir Sverrisson.

Hopp og Hopon á leigubílamarkað 03.04.2023

Þessi þáttur er í boði indó, ekki banki. Ný löggjöf um leigubílaþjónustu tók gildi fyrsta apríl. Hopp stofnaði leigubílaþjónustu, og nýtt fyrirtæki, Hopon ætlar líka að vera með til að Uber-væða íslenskt samfélag Svo er snert á því hvaða matvörubúð á Íslandi sé best og hvers vegna. Umsjónarmenn þáttarins eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Egill Moran Friðriksson (Mosi) og Elmar Torfason.

ChatGPT talar íslensku, útrunnin rafræn skilríki og TikTok bann 23.03.2023

Þessi þáttur er í boði indó, ekki banka. Við förum yfir fréttir síðustu þriggja vikna útaf sottlu. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Sverrisson (leikari).

Playstation VR2 og tölvuleikjaspilun fyrir miðaldra 18.03.2023

Þessi þáttur er í boði indó, ekki banka. Við fáum til okkar góðan gest, hann Daníel Rósinkranz, og ræðum Playstation VR2 sýndarveruleikahjálminn og tölvuleikjaspilun fyrir miðaldra.  Stjórendur eru Atli Stefán og Kristján Thors.  

Starlink-netið óstöðugt og Musk rekur (ekki?) mann ársins 09.03.2023

Þessi þáttur er í boði indó, ekki banka.  Starlink hefur verið prófað af netnördum Íslands og Sensa í rigningu, roki og logni. Sensa tók sitt próf saman í grein . Elon Musk, smaragðarnámuerfingi, rak eða rak ekki mann ársins í fyrra: Harald Þorleifsson. Svokölluð Schrödinger-uppsögn. Við rekjum upp einn áhugaverðasta Twitter-storm ársins í þættinum. MWC snjalltækja-ráðstefnan var haldin í febrúar...

indó app-þróun og framtíðin 01.03.2023

Við fengum góðan gest í þátt vikunnar frá indó: Þór Adam Rúnarsson forritara hjá indó, "ekki bankanum". indó er nýr sparisjóður á Íslandi sem býður upp á veltukort með debit-korti + Apple Pay + Google Pay.  Stjórnendur eru Atli Stefán og Andri Valur.

Nýtt frá Sonos lekur (aftur) og Starlink opnar á Ísland 27.02.2023

Starlink opnar á Íslandi, íslenskir netþrjótar ryðja sér til rúms, Sonos hátalarar leka (aftur), Meta býður upp á áskriftir til að tryggja öryggi persónulegs auðkennis og Bing gervigreindin Sydney er dóni. Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir .

Google Bard, Samsung Unpacked og 4000 slög á Twitter 09.02.2023

UTmessan nýafstaðin, Origo stofnar menntunarsjóð fyrir starfsfólk, BagDrop.is tekur töskurnar fyrir þig upp á flugvöll, Samsung kynnir nýja síma og tölvur, Google Bard gervigreindin kynnt, Twitter vinnur 4000 slagna tístum og Nintendo Switch verður þriðja mest selda leikjatölvan. Stjórnendur eru Andri Valur , Atli Stefán , Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir

Bálkakeðjutölvuleikir, Gametíví og Formúla 1 með Kristjáni Einari 03.02.2023

Kristján Einar Kristjánsson var gestur okkar þetta skiptið og sagði okkur frá Civitas sem er nýr íslenskur tölvuleikur í vinnslu sem er byggður á bálkakeðju. Ásamt því ræddum við  um Gametíví og tækni sem var þróuð í Formúlu 1 sem við nýtum í hversdaglegum græjum. Stjórnendur þáttarins eru Bjarni Ben og Gunnlaugur Reynir.  

Ómönnuð sjóför, Netflix vangaveltur og greiðsluhættir í Kenía 26.01.2023

Íslenska fyrirtækið Hefring smíðar tæknilausnir fyrir ómönnuð sjóför. Microsoft bilun hafði áhrif á hundruðir milljóna notenda. Discord er væntanlegt á PlayStation. Þetta og margt fleira í þætti vikunnar. Stjórnendur þáttarins eru Andri Valur, Bjarni Ben og Sverrir Björgvinsson.

Er Apple verri kaup fyrir borgina? 22.01.2023

Indó komið í Apple pay, Borgarfulltrú Flokks Fólksins ósáttur við kaup á rándýrum apple tölvum og alskonar nýjar Apple græjur. Þetta og margt fleira í þætti vikunnar. Stjórnendur: Bjarni Ben, Elmar Torfason, Gunnlaugur Reynir  

CES2023: Þvagskynjari, bílar sem breyta um lit og Sony bíll 11.01.2023

Mun gervigreind þvinga íslenska skóla til að endurskoða námshögun? Apple gæti mögulega gefið út sýndaveruleikagræju í ár, eða hvað? CES hátíðin er nýafstaðin og við gerðum upp nýtt og spennandi þaðan.  Stjórnendur eru Atli Stefán , Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir .

Þáttur ársins og Tækniverðlaun 2022 08.01.2023

Við erum komnir úr jólafríi! Tæknivarpið fjölmennti og fór yfir árið 2022 í tækni.   Stjórnendur: Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfa, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors, Vöggur Mar og Sverrir Björgvins.

Fleiri App Store verslanir á iOS og græjujólin 2022 17.12.2022

Tæknivarpið fer ofan í saumana á máli Nova sem úthlutaði óvart símanúmeri sem var í notkun til til annars viðskiptavinar. Einnig er farið yfir helstu mál síðustu vikna, Spotify wrapped, Domino's wrapped, Xiaomi 13 símann og möguleikann á fleiri App Store verslunum í iOS heimi. Síðast en ekki síst, þá ræða stjórnendur þáttarins bestu jólagjafir ársins í heimi tækninnar. Stjórnendur eru Atli Stefán...

Rafræn skilríki og eSim, sterkara Gorilla Glass og niðurgreiðslur rafbíla 30.11.2022

Ríkið ætlar að fjarlægja fjöldakvóta fyrir niðurgreiðslur rafbíla á næsta ári, en minnka aðeins niðurgreiðsluna. Samsung ætlar að kynna S23 í febrúar. Twitter lak út 5,4 milljón aðgöngum ásamt símanúmerum. Corning er að búa til nýtt högghelt gler fyrir snjallsíma sem þolir 1 metra fall á steypu. Eufy lendir í alvarlegum öryggisgalla, sem var tilkynntur og gerði ekkert. Við förum svo í gegnum spurn...

Inniskórnir hans Steve Jobs seldust fyrir 27 milljónir 19.11.2022

Nýjustu fregnir af Twitter sem er auðvitað alelda, en við getum ekki hætt að fylgjast með. Rafeyriskauphöllinn FTX sprakk eftir áhlaup og talið er að 10 milljarðar USD hafi gufað upp.  Atli byrjaði að prófa Arc-vafrann en fór svo að gera eitthvað annað af viti. Atli prófar Bose Quiet Comfort Earbuds II sem eru víst best í virkri hljóðeinangrun samkvæmt óháðum aðila.   Þessi þáttur er í boði Origo...

Sýndarveruleiki með Hilmari Gunnarssyni frá Arkio 11.11.2022

Þessi þáttur á sér varla stoð í raunveruleikanum og við ferðumst um sýndarheima með Hilmari Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Arkio. Arkio vakti athygli á heimsvísu á kynningu Meta um daginn, þar sem var farið yfir framtíðarsýn Metu í sýndarveruleika og gagnbættum veruleika. Arkio er sköpunartól fyrir arkitekta og getur hannað alls konar rými og landslag. Arkio virkar bæði í sýndarveruleika og gagnbæt...

Ísland slugsar í netöryggi 05.11.2022

Nýsköpunarráðherra Íslands boðar aðgerðir í netöryggismálum landsins. Ný fjölmiðlalög eru á leiðinni til að skerpa á því efni sem nær augum barna á streymiveitum. VanMoof kynnir tvö ný rafhjól sem styðja Find My og bætta þjófavörn. Sega ætlar að búa til tvær mini-leikjatölvur: Genesis mini 2 og Astro Mini City V (sem lítur út eins og leikjakassi) með retro-tölvuleikjum. Netflix er búið að afhjúpa...

Elon Musk kaupir Twitter og vangaveltur um nýja iPad 29.10.2022

Kaupin á Twitter gengu í gegn í vikunni og fyrsta verk Elon Musk var að reka nokkra stjórnendur. En hvers vegna var hann að kaupa Twitter? Gulli er handviss um að 10 kynslóð af iPad sé grunntýpan. Við ræddum til hvers fólk kaupir iPad og hvaða týpu þú átt að velja. Þátturinn er í boði KFC sem selur B.O.S.S. Bacon máltíð.  Stjórnendur eru Andri Valur , Bjarni Ben ,  Gunnlaugur Reynir ,  Kristján Th...

Nýjar spjaldtölvur frá Apple og þráðlaus símtöl 20.10.2022

Apple kynnti nýjan iPad (10), uppfærða iPad Pro (M2) og uppfært AppleTV (USB-C fjarstýring!!) með látlausri fréttatilkynningu og myndböndum. Miðeind samhæfir raddgreiningartólin sín við snjallheimilið þannig nú getur Embla slökkt ljósin. Síminn Sjónvarp býður nú upp á prófíla og vefviðmót. Gulli heldur því einnig fram að myndgæðum hafi farið fram, en það er enn óstaðfest. Vegagerðin opnaði nýjan f...

iPhone 14 Plus umfjallanir og nýjar vörur frá Microsoft 13.10.2022

Héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að Síminn mætti hafa enska boltann í stórum heildarpakka. iPhone 14 Plus umfjallanir eru komnar út. Microsoft var með ágætis viðburð og margt fleira. Umsjónarmenn þáttarins er Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Andri Valur Ívarsson, Sverrir Björgvinsson og Elmar Torfason. Þessi þáttur er í boði Macland og KFC. Macland.is selur Apple tæki og KFC er með B.O.S.S. BAC...

Google leggur Stadia á hilluna og gott Tempo hjá Origo 09.10.2022

Farið er yfir tæknifréttir vikunnar; sala Origo á Tempo, nýr forstjóri Sýnar og USB-C reglur Evrópusambandsins. Elmar búinn að panta nýjan Pixel síma sem Google kynnti í vikunni og Sverrir segir frá bestu leiðinni fyrir gagnamagn í Bandaríkjunum. Þessi þáttur er í boði Macland og KFC. Macland.is selur Apple tæki og KFC er með B.O.S.S. BACON máltíð . Stjórnendur eru Andri Valur , Elmar Torfason og...

Kindle með penna, Höddi Mac kveður og Pixel lekar 29.09.2022

Google er að fara halda viðburð í október og það er eiginlega allt búið að leka. Pixel símarnir fá S-uppfærslu og nýja liti. Nýr netbeinir mögulega á leiðinni. Úrið sem var kynnt í sumar verður kynnt aftur. Gulli vill fá eitthvað bitastætt (left field) en það eru allar líkur á öðru. Amazon hélt sýna Kindle/Echo/Eero kynningu og það kom flóð af tækjum. Þar má helst nefna dagljósalampann Halo Rise (...

Bann á Google Analytics og GTA6 myndbrotum lekið 23.09.2022

Það er þéttur þáttur hjá okkur þetta skiptið. Tækniskólinn var hakkaður illa og flest allt nettengd datt í gólfið. Neytendastofa kallar eftir því að banna Google Analytics á Íslandi í kjölfarið úrskurða annarra Evrópulanda. The Verge endurhannar vefsíðu sína og það eru allir í Tæknivarpinu brjálaðir. Google Pixelbook vörulínan hefur verið fryst og ekki fleiri fartölvur í bígerð þar. The Verge dóma...

Mintum rafkrónur í betaprófun, VoWiFi hjá Nova og bestu sjónvarpskaupin 13.09.2022

Börkur Jónsson, einn af stofnendum Rafmyntasjóðs Íslands og  http://mintum.is , mætti í heimsókn og sagði frá nýjung á sviði rafmynta á Íslandi. Í fréttum vikunnar var farið yfir nýjungar frá Sonos, símtöl yfir þráðlaust net hjá Nova og að lokum var spurningum hlustenda svarað. Þátturinn er í boði Macland sem kemur með iPhone 14 og iPhone 14 Pro í forsölu 16. september. Þátturinn er einnig í boði...

Listen to the Tæknivarpið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.