Taeknivarpid.is

Tæknivarpið

News IS ↓ 100 episodes

Tæknivarpið er eitt elsta virka hlaðvarp Íslands og fjallar um tæknifréttir vikunnar. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán, Axel Paul, Bjarni Ben, Egill Moran, Elmar Torfason, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors og Sverrir Björgvins.

Author

Taeknivarpid.is

Category

News

Podcast website

taeknivarpid.podbean.com

Latest episode

Jul 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Apple Watch Ultra, iPhone 14 plus og ný Airpods Pro 10.09.2022

Apple hélt kynningu á miðvikudaginn, eins og svo oft áður á þessu tíma árs, og kynnti nýjasta nýtt í Apple þrennunni: iPhone, Watch og Airpods.    Þessi þáttur er í boði Macland, sem selur einmitt þessa svakalegu þrennu.   Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.

iPhone vinsælli en Android í Bandaríkjunum 04.09.2022

iPhone er markaðsleiðandi í Bandaríkjunum. Gulli prófaði Skannað og Skundað. Twitter leyfir ritskoðun á tístum gegn gjaldi. Svo eru fastir liðir eins og venjulega.   Þessi þáttur er í boði Macland .   Stjórnendur eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Elmar Torfason, Marinó Fannar Pálsson og Sverrir Björgvinsson.

iPhone 14 er handan við hornið 28.08.2022

Apple kynnir nýjan iPhone og annað góðgæti þann 7. september næstkomandi. Í sömu viku heldur Advania sína árlegu haustráðstefnu sína. Stjórnendur reyna svo að skera úr um það hvort hljóðskilaboð séu snilld eða ekki. Að endingu þá er #SpurðuTæknivarpið svo á sínum stað. Þessi þáttur er í boði Macland . Stjórnendur eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson , Sverrir Björgvinsson og Elmar Torfason .

Húðtóna heyrnatól frá Kardashian og Himnasendingar 18.08.2022

Við förum um víða völl í þættinum, allt frá húðtóna heyrnatólum og að himnum. Kim Kardashian og Beats (Apple) þróa húðtónalituð heyrnatól frá Beats Fit Pro. Aha er víst byrjað að bjóða upp á drónaheimsendingar undir nafninu "Himnasending" en bara þegar veður leyfir. John Deere traktorar geta keyrt Doom, þrátt fyrir svæsið burn-in á skjánum. Android 13 er komið út, aðeins á undan áætlun. Samsung Ga...

Vonbrigði í streymisheimi og ný íslensk bankaþjónusta 11.08.2022

Í þættinum er meðal annars rætt um glóðvolga niðurstöðu Samsung Galaxy Unpacked, seinkun á komu HBO Max, breytt plön hjá hinu íslenska Netflix, fyrstu viðbrögð við beta-prófunum Indó bankaþjónustunnar og rafbíla. Sem fyrr fer umræðan um víðan völl og stundum út fyrir efnið. Tæknivarpið er í boði Macland . Stjórnendur þáttarins eru Andri Valur, Elmar, Gunnlaugur Reynir og Marinó Fannar

Ljósleiðarinn flýtir uppbyggingu og skjálftar í Android 05.08.2022

Þau sem eiga Android síma sem er vel uppfærður geta fengið jarðskjálftatilkynningar beint í símann. Stýrikerfið fær gögn úr hröðunarmælum Android síma og vinnur úr þeim tilkynningu sem giskar á stað og Richter-stuðul. Heiðar Guðjónsson hefur verið keyptur út úr Sýn en er þetta hluti af stærri fléttu? Ljósleiðarinn flýtir fyrir uppbyggingu sinni í samstarfi við Nova. Macbook Air M2 býður afhroðs á...

317 Gervigreind með sál og Landspítala app 16.06.2022

Við erum ekki dauðir úr öllum æðum og bættum við okkur alla vega einum þætti í viðbót þetta sumar. Enda er líka fullt að frétta: Landspítalinn að þróa app Myndlyklar enn þá fáranlega vinsælir Stór uppfærsla fyrir Vivaldi með pósti, dagatali og RSS lesara Encroapp "hakk" frönsku löggunar nælir í íslenska bófa Apple kaupir sýningarétt MLS (BNA fótboltadeild)  Google gervigreind öðlast sál, samkvæmt...

316 “Ekki svört” Macbook Air og ný stýrikerfi 09.06.2022

Apple hélt lykilræðu á WWDC tækniráðstefnunni á mánudaginn og kynnti fullt af uppfærslum fyrir stýrikerfin (en talaði ekkert um tvOS) og eitthvað af vélbúnaði. Nýr Apple örgjörvi M2, ný Macbook Air og “ný” Macbook Pro 13” og fullt af sniðugu fyrir iPadOS. Við rennum yfir það sem var kynnt mjög ítarlega ásamt Sigurði Flygenring.    Þessi þáttur er í boði Macland. Macland.is selur Apple tæki og auka...

315 WWDC orðrómar og Nova útboð 02.06.2022

Það er óvenjumikið að frétta hér af Íslandi síðustu vikur: Nova er á leið í opið útboð, forsetinn fór út til BNA til að berjast fyrir íslensku ásamt flottu föruneyti,  Sýn vill ekki eiga innviði enn vill byggja upp sæstrængjainnviði og CERT-IS varar við gömlum útrunnum lénum sem eru notuð til að hakka fólk (plís kveikið á tveggja þátta auðkenningum!). Google bakkar með að rukka Workspace fyrir þá...

314 iPod lagður til grafar og fullt af tækjum frá Google 15.05.2022

Nýjasti þátturinn af “Er Elon Musk búinn að kaupa Twitter” heldur áfram að fjalla um hvort Elon Musk sé búinn að kaupa Twitter. Apple hættir framleiðslu iPod eftir 21 ár. Google kynnti fullt af nýjum tækjum og tækni á Google I/O og Elmar er orðinn staurblankur.   Þessi þáttur er í boði Macland, Kringlunni. Stjórnendur eru Atli Stefán , Elmar Torfason og Gunnlaugur Reynir .

313 Reykjavík Haus sköpunarsetur og Sony Linkbuds 07.05.2022

313 Reykjavík Haus sköpunarsetur og Sony Linkbuds   Tæknivarpið - Reykjavik Haus sköpunarsetur og Sony Linkbuds   Reykjavík Haus hefur verið samþykkt í borgarráði Reykjavíkur og mun opna sköpunarsetur í efri hæðum Hafnarhússins. Evrópusambandið er að búið að senda ákvörðun á Apple um meinta misnotkun á aðgengi þriðja aðila að NFC-hluta iPhone síma og getur sektað Apple um 10% af heildartekjum. Xbo...

312 Snap býr til dróna og Pixel snjallúr fannst á víðavangi 28.04.2022

ESB ætlar að gera það sem er ólöglegt í raunheimum einnig ólöglegt á netinu. Ríkið býður út tvo ljósleiðaraþræði í Nato-strengnum. Elon Musk klárar að fjármagna kaup á Twitter og mun að öllum líkindum eignast fyrirtækið innan skamms. Twitter oftaldi notendur í þrjú ár, en fattaði það sjálft og leiðrétti á uppgjörsfundi. Snap býr til drónamyndavél með tveimur linsum. Apple átti frábæran fjórðung og...

311 Áskrifendum Netflix fækkar í fyrsta sinn 23.04.2022

Nýtt íslenskt bílatryggingarfélag lítur dagsins ljós: Verna. Félagið ætlar að nýta sér snjalltæki til að lækka ábyrgðir. Sjálftitlaði Technoking Teslu og stórfjárfestirinn Elon Musk er að reyna kaupa Twitter, en á hann peninga fyrir því? Steam Deck dokkan er ekki einu sinni komin út en það er búið að uppfæra hana. Playdate leikjatölvan er komin út og það rigna inn umfjallanir. Verður þetta fimmtán...

310 Hleðslukvíði burt með Buzz og Twitter íhugar edit takka 07.04.2022

AtNorth lýsir yfir vilja til að byggja upp gagnaver rétt fyrir utan Akureyri. NFT grúppa hakkar Bjarta Framtíð á Twitter og dælir út auglýsingum. Buzz býður upp að kveða burt hleðslukvíða með leigu-rafhlöðum fyrir snjallsíma á vel völdum börum. Elon Musk kaupir stóran hlut í Twitter og hvað þýðir það? Twitter íhugar að bjóða upp á Edit takka. Það kemur út nýr Monkey Island tölvuleikur í ár, en sá...

309 Auðkenni þjóðnýtt og lofthreinsigríma frá Dyson 03.04.2022

Við erum með sneysafullan þátt af tæknifréttum og kaupákvörðunum Atla. Auðkenni hefur verið keypt af Ríkinu. Fyrirtæki býr til gervitónlistarfólk inn á Spotify til að græða peninga. Klapp lausnin frá Strætó er í tómu tjóni, eða hvað? Atli fjallar einnig um Studio Display sem hann skoðaði í verslun Macland Kringlunni.  Þessi þáttur er í boði Macland sem selja tækin sem við elskum. Stjórnendur eru A...

308 Rafræn skilríki misnotuð og Netflix hækkar verð 20.03.2022

Það eru fregnir af alvarlegri misnotkun rafrænna skilríkja hjá tveimur aðilum í kringum áttrætt. En þýðir það að rafræn skilríki séu hættuleg eða ónothæf? Mac Studio og Studio Display verð eru komin hjá Macland og við rennum vel yfir þau. Mun Atli kaupa sér eitt sett? Við förum einnig yfir umfjallanir á settinu hjá kollegum okkar. Netflix hækkar verð á áskriftum OG herjar á þau sem deila aðgangi á...

307 Loksins Apple skjár og M1 Ultra örgjörvi 09.03.2022

Tæknivarpið rennir yfir það besta úr kynningu Apple sem fór fram í gær af upptöku og til þess fáum við draumaliðið í settið. Pétur Jónsson og Hörður Ágústsson mæta og segja okkur sannleikann um ný tæki frá Apple.  Apple kynnti nýja liti fyrir iPhone 13 og 13 Pro, iPhone SE símann, iPad Air spjaldtölvuna, M1 Ultra örgjörvann, Mac Studio borðtölvuna og Studio Display skjáinn. Þessi þáttur er í boði...

306 Krónan uppgvötar vefinn og Tesla bíll bilar í polli 04.03.2022

Certís netöryggissveit Fjarskiptastofu sendir frá sér viðvörun vegna stríðsrekstri Rússa í Úkraínu og biður íslenskt fyrirtæki um að herða ólina. Krónan er að prufukeyra beta útgáfu af vefverslun, en fram að þessu hefur Krónan einungis boðið upp á app. Tesla Model Y keyrði í poll og dó rafhlaðan skömmu síðar. Þola Tesla bílar ekki erfiðar aðstæður hér á Íslandi?  Gulli keypti sér töfratæki sem hef...

305 Ekkert HBO Max en stórt rafíþróttamót í apríl 25.02.2022

HBO Max var að bæta við fimmtán Evrópulöndum en Ísland er því miður ekki eitt þeirra sem eru sorgarfréttir. Það þarf greinilega að hitna enn frekar í streymistríðinu til þess.. Riot Games ætlar að halda risastórt rafíþróttamót á árinu og verður keppt í Valorant (sem er samruni Overwatch og Counter-Strike). Windows 11 er komið með nýja verkefnastiku sem hentar betur spjaldtölvum, en enginn af okkur...

304 TVíK kennir íslensku og Indó fær leyfi 19.02.2022

TVíK hreppti víst fyrsta sætið í Gullegginu með spjallmenni sem kennir þér íslensku á nýjum stað á lærdómskúrvunni. Fjarskiptastofa setur fram áætlun um að hætta nota 2G og 3G senda í farsímanetum landsins. Indó fær starfsleyfi en hvað er Indó? Spotify heldur áfram að kaupa fyrirtæki tengd hlaðvörpum og Joe Rogan málið heldur áfram.    Þessi þáttur er í boði Macland sem er með fullt af Konudagstil...

303 Galaxy S22, Tab S8 og hrun hjá Meta 12.02.2022

Sigurveri Gulleggsins þetta skiptið er app fyrir þolendur ofbeldis sem geta haldið utan um sögu þess. Appið heitir Lilja og er nú verið að sækjast eftir fjármagni til að koma því í gagnið. Óvinsæli vafrinn Microsoft Edge býður nú upp á íslenskan talgervil sem getur lesið upp texta af vefsíðum. Smáforritið heitir Guðrún (Gudrun) og er í boði núna. Icelandic Gaming Industry spáir því að störf hjá öð...

302 Spotify í klandri vegna Joe Rogan 03.02.2022

Íslenskir menntasprotar vekja athygli vestanhafs, en íslensku fyrirtækin Beedle og Mussila eru komin í hóp 200 efnilegustu sprota í menntatækni í heiminum. Spotify er í klandri vegna viðtals Joe Rogan við vísindamann sem gagnrýnir mRNA bóluefni. Alda Music var selt til Universal Music, sem þýðir að margar íslenskar tónlistarperlur eru nú í eigu erlendra aðila. Intel kynnir Alder Lake örgjörva sem...

301 Persónuvernd og tækni + fréttir vikunnar 28.01.2022

Gleðilegan alþjóðlegan Persónuverndardag! Í tilefni dagsins fáum við til okkar hana Vigdísi Evu Líndal frá Persónuvernd til að ræða persónuvernd í tækni. Að því loknu förum við yfir tæknifréttir vikunnar. Eru markaðshrun Netflix og Peleton vísar að stærra hruni eða gekk bara aðeins of vel? Intel er að reisa 20 milljarða dollara verksmiðjur í Ohio en til hvers? Samsung Unpacked lék eiginlega í heil...

300 Microsoft kaupir Blizzard og frábær CES sýning 20.01.2022

Þá er Tæknivarpið loksins komið í rútínu og við fáum fyrsta fréttaþáttinn. Orion Sentry er eitt fyrsta íslenska Mac appið í langan tíma og reynir að koma í veg fyrir þjófnað á tölvum. Fjarskiptastofa vinnur í því að gera háhraðanet á þjóðvegum að kröfu. Vivaldi vafrinn er nú í boði á Astro Slide 5G nördasímanum. Það var brotist inn í tölvukerfi Strætó og þau ákváðu að borga ekki lausnargjald fyrir...

299 - Þáttur ársins 2021 16.01.2022

Nú er loksins komið að því. Þáttur ársins er mættur, aðeins seinna en vanalega útaf sottlu. Þar fer næstum allur hópurinn bakvið Tæknivarpið (og Simon.is ) yfir það sem var mest spennandi í nýju tækni og tækjum á árinu sem var að líða.  Flokkarnir eru eftirfarandi:  Græja ársins Sími ársins  Kaup ársins Leikur ársins Farleikur ársins App/forrit ársins Kvikmynd ársins Sjónvarp ársins Hlaðvarp ársin...

Listen to the Tæknivarpið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.