Taeknivarpid.is

Tæknivarpið

News IS ↓ 100 episodes

Tæknivarpið er eitt elsta virka hlaðvarp Íslands og fjallar um tæknifréttir vikunnar. Stjórnendur eru Andri Valur, Atli Stefán, Axel Paul, Bjarni Ben, Egill Moran, Elmar Torfason, Gunnlaugur Reynir, Kristján Thors og Sverrir Björgvins.

Author

Taeknivarpid.is

Category

News

Podcast website

taeknivarpid.podbean.com

Latest episode

Jul 9, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Microsoft sækir á MacBook Air og á gervigreind 01.06.2024

Microsoft hélt uppskeruhátíð sína Build nýlega og er búið að dæla út tilkynningum sem Atli og Gulli fara yfir.

Nýjar iPad spjaldtölvur og 121x AI 17.05.2024

Atli, Gulli og Elmar fara yfir fréttir MÁNAÐARINS. iPad Pro M4, iPad Air M2 og Apple Pencil Pro. Google IO. 

Amazon Fresh gervigreindin var í raun 1000 verktakar á Indlandi 10.04.2024

Atli, Elmar og Gulli renna fyrir fréttir vikunnar í tækniheiminum: Amazon Just Walk Out þjónustan lögð niður  Facebook Messenger skilaboðaþjónusta dulkóðuð alla leið  Íslensk tónlist hent útaf TikTok

MacBook Air M3 og DMA tekur gildi 13.03.2024

Andri, Atli og Gulli taka um tæknifréttir vikunnar.

Apple Vision Pro sýndarsjáin prófuð og MWC 02.03.2024

Andri Valur, Atli Stefán, Elmar Torfa og Gulli Sverris spjalla um fréttir vikunnar og ferð Elmars til Barcelona á MWC.

Apple Vision Pro komið til Íslands 22.02.2024

Atli, Bjarni og Gulli fjalla um tæknifréttir síðustu þriggja mánaða 🫣

Þáttur ársins 2023 15.01.2024

Tæknivarpið kallar alla meðlimi út til að gera upp árið 2023 í tækni. Hvað er app árisns? Hver eru bestu tæknikaup ársins? Hver er sími ársins?  Það og svo miklu meira í þætti ársins.

Það þarf enginn tíu gígabita á sekúndu 15.12.2023

Við fáum góða gesti í Tæknivarpið þá Ingvar Bjarnason frá Mílu og Jón Helgason (Nonna) frá Eldey. Þeir héldu einmitt fyrirlestur fyrir fjarskipta-faghóp á vegum Ský í síðustu viku þar sem fjallað var um 10 gígabita ljósleiðara fyrir heimili. Þarf einhver 10 gígabita á sekúndu?? Stjórnendur eru Atli Stefán og Gunnlaugur Reynir.

Nothing hakkar Apple og gervigreindarnæla 15.11.2023

Nothing er búið að hakka Apple Messages þannig að það virki á Android símanum sínum Phone (2). Humane kynnir gervigreindarnælu "AI pin" sem kostar 800 USD og kemur kannski einhvern tímann út.

Hryllilega hraðar M3 flögur og Meta áskrift 10.11.2023

Apple kynnti nýja línu af flögum: M3, uppfærðar MacBook Pro og iMac 24. Stærsta fréttin er samt mögulega nýr litur 🖤 Qualcomm er með nýja flögulínu sem heitir Oryon sem á að keppa beint við Apple Silicon, og er hraðari en M3 en notar talsvert meira rafmagn (líklega 2x!). Hringdu lenti í hrappara sem náði að svíkja út rafræn skilríki hjá öðrum manni, en tilkynnti hann og náði að koma í veg fyrir m...

Framtíðin er 5,5G, Meta Quest 3 og snjallsólgleraugu 21.10.2023

Atli fer yfir framtíðina í farnetum og segir frá ferð sinni til Dubai á 5.5G ráðstefnu Huawei. Meta gefur út nýja sýndarsjá og snjallsólgleraugu. Pixel 8 dómar raðast inn og eru nokkuð jákvæðir.

Pixel 8 símar, Pixel Watch 2 og Vivaldi á iOS 06.10.2023

Vivaldi er loksins kominn út á  iOS fyrir iPhone. Vodafone eflir samtengingar í Evrópu sem gagnast tölvuleikjaspilun. Kringlan gefur út rafræn gjafakort fyrir Wallet-lausnir Apple og Google. iPhone 15 vandamál halda áfram - en eru þetta raunverulega vandamál? Google kynnti nýja síma og snjallúr og Elmar er búinn að panta sér uppfærslur.

Heitir iPhone-símar og kaldir Android-símar 27.09.2023

Það eru komin verð á iPhone 15 og iPhone 15 Pro á Íslandi en þeir virðast vera ofhitna aðeins. Pixel 8 og 8 Pro eru búnir að leka. Ljósleiðarinn fer líka í 10 gígabita.  Stjórnendur eru Atli Stefán, Elmar Freyr og Gunnlaugur Reynir. Þessi þáttur er í boði TechSupport.

iPhone nú í títan og umhverfisvænari Apple 14.09.2023

Atli Stefán og Gunnlaugur fá Bjarka Guðjónsson og Pétur Jónsson í settið til að ræða tímamóta kynningu Apple á iPhone 15 línunni, Watch Series 9 og Watch Ultra 2.  Þessi þáttur er í boði TechSupport sem styður íslensk fyrirtæki og stofnanir í upplýsingatækni.

iPhone 15 orðrómar, Samsung M8 skjár og vöruskil 06.09.2023

Andri, Atli og Gulli fara yfir orðróma fyrir kynningu Apple í næstu viku. Orðið á götunni er að við fáum eftirfarandi: iPhone 15 með USB-C Apple Watch S9 Apple Watch Ultra 2 Apple Airpods Pro 2 með USB-C  Við fjöllum líka um Samsung Smart Monitor M8 og Mac Studio kaup Atla. Þessi þáttur er í boði TechSupport.

Míla kynnir 10x, Playstation Portal og Zoom lokar á fjarvinnu 03.09.2023

Atli, Elmar og Gulli gera upp fréttir vikunnar í tækni: 10 gígabitar til heimila hjá Mílu Nýr framkvæmdastjóri hjá Ljósleiðaranum Playstation Portal er flopp? Sony PS+ hækkar í verði Zoom kallar inn starfsfólk úr fjarvinnu ATHUGIÐ Elmar er starfsmaður Mílu og Atli er ráðgjafi Mílu.  Þessi þáttur er í boði Tech Support. 

Tæknivarpið snýr aftur - Microsoft Loop og Limir í leikjum 19.08.2023

Atli Stefán (kvefaður), Bjarni Ben Loopari og Elmar Torfa ræsa Tæknivarpið þetta haustið og við lofum góðri umræðu um limi í tölvuleikjum og nýjasta nýtt í samvinnuhugbúnaði. Þessi þáttur er í boði TechSupport.is

Threads, forkæling bíla og 5K tölvuskjáir 19.07.2023

Atli, Gulli og Sverrir taka frí frá sumarfríinu og renna yfir tæknifréttir sumarsins. Þessi þáttur er í boði TechSupport.

WWDC2023 - Apple Vision Pro, MacBook Air 15, Mac Pro og öll stýrikerfin uppfærð 08.06.2023

Við rennum yfir lykilræðu Apple á WWDC 2023 ásamt Pétri Jónssyni og Bjarka Guðjónssyni - okkar eigið Pro-teymi ❤️ Stjórnendur eru Atli og Gulli.

WWDC upphitun og fleira. 02.06.2023

Viðfangsefni vikunnar er upphitun fyrir WWDC viðburð Apple, friðhelgi einkalífs og fleira. Við metum einnig hvort Gulli sé að reyna að kveikja í bílskúrnum heima hjá sér.   Umræðupunktar (e. Show notes) Inngangur Rafhjólahornið Tenways rafmagnshjól IPTV umræðan Sýn stefnir Jóni Einari Ad-tech og friðhelgi einkalífs Bandaríkjamenn geta keypt frítt sjónvarp með auglýsingum Starfsmenn Ring virtu frið...

Microsoft Build, Hot Desking og Motorola ThinkPhone 24.05.2023

Skýrsla Fjarskiptastofu um fjarskiptamarkaðinn kom út um daginn og Nova gerði hana upp. Microsoft Build var að klárast og setti met í því hversu oft stafirnir A og I voru sagði upphátt. Tæknivarpið fær að prófa Gripið & Greitt og Gulli verslar í Næra. Fujifilm gaf út nýja myndavél og Atli ætlar að panta. Netflix herjar á samnýtingu aðganga og byrjar í BNA. HBO Max verður.. Max.  Stjórnendur þetta...

Google I/O og Bónus: Gripið og Greitt 16.05.2023

- ATT.is og Game Stöðin loka verslunum sínum.  - Bónus kynnir EKKi gripið og greitt.   - Wolt hefur starfsemi á Íslandi.  - Google I/O er rætt, sem fór fram í síðustu viku. - Twitter kynnir nýjan forstjóra Umjsjónarmenn þáttarins eru Gunnlaugur Reynir Sverrisson, Egill Moran Friðriksson (Mosi), Elmar Torfason og Sverrir Björgvinsson.

Staða bókarinnar með Margréti Tryggvadóttur 15.05.2023

Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands, mætti í Tæknivarpið og ræddi stöðu bókarinnar í breyttu landslagi. Umsjónarmenn þáttarins eru Atli Stefán Yngvason og Gunnlaugur Reynir Sverrisson.

Guðfaðir gervigreindar hættir í fússi og hlutafjáraukning Ljósleiðarans 05.05.2023

Gunnlaugur, Atli Stefán og Mosi ræða fréttir vikunnar: Hlutafjáraukning Ljósleiðarans Blackberry leikin kvikmynd Guðfaðir gervigreindar hættir hjá Google í fússi  Þessi þáttur er í boði TechSupport sem lánar okkur upptökustað 💜    

Apple Reality, WWDC og NAS pælingar 28.04.2023

Atli Stefán Yngvason og Sverrir Björgvinsson komu saman og ræddu Apple Reality höfuðtólið sem verður líklega kynnt í sumar, helstu orðróma varðandi WWDC ráðstefnu Apple sem verður 5.-9. júní.

Listen to the Tæknivarpið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.