Gísli Hrafn Gunnarsson
Stjörnuspekiskólinn
Í þessu podcast mun ég kenna stjörnuspeki. Stjörnuspekin er margslungið fag en mjög aðgengileg ef maður lærir hana í stigum og leggur grunninn vel. Ég ætla því að fara vel og vandlega yfir þá aðalþætti sem leggja grunninn að stjörnuspekinni og byggja ofan á það. Stjörnuspekin er túlkun hvers stjörnuspekings fyrir sig og því mun ég kenna stjörnuspekina eins og ég upplifi hana. Von mín með þessu podcasti er að hlustendur geti að lokum fylgt eftir stjörnuspeki útskýringum og skilið hvað sé verið að ræða. Stjörnuspekin er mögnuð og mig langar að fleiri eigi þá gjöf að skilja gjafir hennar.
Author
Gísli Hrafn Gunnarsson
Category
Podcast website
Latest episode
Jun 23, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
39. þáttur - Ás nautsins og sporðdrekans 23.06.2026 47:33
Í þessum þætti fer ég ögn betur yfir hvernig þessar andstæður í stjörnumerkjunum virka og hvernig er hægt að nýta sér þær til þess að dýpka skilning sinn á merkjunum sem og öllu faginu. Ég tek ögn steingeitar og krabba ásinn fyrir en aðalefni þáttarins er nauts og sporðdreka ásinn.
38. þáttur -Kompás þátturinn og lífið í kjölfarið 08.06.2026 1:21:57
Ég fann köllun til að segja frá minni hlið eftir að hafa verið tekinn fyrir í Kompás í maí 2022, hérna á mínum vettvangi/podcasti fyrir ykkur hlustendum mínum, því þetta markaði gífurlega mína vegferð sem stjörnuspekingur en einnig í lífinu almennt. Ég tók þennan þátt upphaflega upp í apríl 2026 en eftir að Sölvi Tryggvason vildi fá okkur Elínu konuna mína til sín í podcastið sitt þá ákvað ég að b...
37. þáttur - Norður og suður nóðan 12.11.2025 1:08:35
Hérna fer ég yfir norður og suður nóðurnar í gegnum öll stjörnumerkin.
36. þáttur - Orka meyjunnar 30.10.2025 1:11:31
Í þessum þætti fer ég yfir orku meyjunnar.
35. þáttur - Fyrsta viðtalið 18.10.2025 1:33:10
Fyrsta viðtal stjörnuspekiskólans leit dagsins ljós þar sem Aðalheiður Sigursveinsdóttir bauðst til að mæta og ræða upplifun sína af því að mæta í stólinn og spegla masculin og feminin partana innra með sér. Ég fékk upptökubúnað lánaðan sem ég kunni ekki almennilega á og því eru hljóðgæðin töluvert verri en ég hefði viljað en engu að sýður þá vona ég að þið munið hafa gaman af.
34. þáttur - Orka vatnsberans 05.10.2025 1:07:38
Í þessum þætti tala ég ítarlega um orku vatnsberans en í upphafi þáttarins kynni ég hlustendur fyrir retreati sem verður núna helgina 23.-26. október á skálholtsbúðum. Ef áhugi er á að bóka hjá mér einkatíma þá getið þið fundið tíma hér: https://noona.is/gislihrafn
33. þáttur - Tvö stjörnukort 29.09.2025 1:12:59
Í þessum þætti tek ég fyrir uppgvötun mína á því að við séum ekki með einungis eitt stjörnukort heldur tvö, og að þessi tvö stjörnukort eru orkukort fyrir þá tvo einstaklinga sem eru innra með okkur. Í flestum tilvikum er samruni þessara beggja einstaklinga nánast algjör en í sumra tilvikum er þessi aðgreining mjög skýr. Í þættinum fjalla ég um þessa uppgvötun og leiðina að því að ná þessum tveimu...
32. þáttur - Stjörnukort Íslands 16.05.2025 53:02
Í þessum þætti fer ég yfir stjörnukort Íslands, 17. júní 1944 kl. 14:00 á Þingvöllum. Fyrir ykkur sem viljið sjá mynd af stjörnukortinu þá getið þið farið inná facebook síðu Stjörnuspekiskólans eða einfaldlega flett því upp.
31. þáttur - Orka ljónsins 09.01.2025 1:18:23
Í þessum þætti fer ég yfir orku ljónsins.
30. þáttur - Hugleiðingar: Að stýra eigin tíma 03.01.2025 51:45
Hér í þessum þætti tala ég um mína dýpstu þrá um að geta stjórnað mínum eigin tíma, um hvernig samfélagið okkar er uppbyggt hvað varðar kröfu einstaklinga um tíma sinn, eða lífið sitt, og hvernig hægt sé að virða þetta fyrir sér með augum vatnsbera orkunnar. Að velta því fyrir sér hvort þetta sé eðlilegt eða það sem við myndum nokkurn tíman kjósa yfir okkur ef við áttuðum okkur á því að við höfðum...
29. þáttur - Allt sem á upphaf á sér stjörnukort 24.10.2024 50:45
Í þessum þætti fjalla ég um mismunandi nýtingu stjörnukorta á öllum mögulegum sviðum lífsins. Að brúðkaupsdagurinn eigi sér stjörnukort, að ný atvinna eigi sér stjörnukort, að lönd eigi sér stjörnukort rétt eins og við einstaklingarnir.
28. þáttur - Sálar plánetan 17.10.2024 47:14
Í þessum þætti fer ég lauslega yfir upprunalegu tengingu mína við sálarorkuna og hvernig sálar plánetan barst mér hvernig ég túlka hana. Ég lýsi mikilvægi sálar plánetunnar hjá hverjum og einum og hvaða hlutverki hún gegnir í stjörnukorti hvers og eins.
27. þáttur - Miðhimininn 10.10.2024 56:45
Í þessum þætti reyni ég að koma miðhimninum vel frá mér þannig fólk geti skilið, tengt við og speglað við sitt eigið stjörnukort. Miðhimininn er ein mikilvægasta staðan til þess að skilja í stjörnukortunum okkar og hérna segi ég frá minni upplifun og reynslu af því hvernig þessi orkustöð virkar.
26. þáttur - Hnígandinn 04.10.2024 34:06
Í þessum þætti fer ég yfir hnígandann og hvers vegna hann er mikilvægur að tengjast innra með okkur öllum. Þar komust við í tengingu við raun karakterinn sem býr innra með okkur sjálfum og leiðin að hnígandanum er í gegnum traustið, gagnvart öðrum einstaklingum og síðan traustið gagnvart okkur sjálfum.
25. þáttur - Rísandinn 26.09.2024 1:03:34
Hérna í þessum þætti tek ég rísandann almennilega fyrir eins og hann birtist mér og hvers vegna hann er eins mikilvægur að skilja og fylgja og raunin er. Ég fer einnig lauslega yfir marsinn, hnígandann og venus, en einugis lítillega.
24. þáttur - Orka steingeitarinnar 12.09.2024 1:15:50
Í þessum klára ég orku krabbans þar sem ég fer yfir hvernig ég skildi krabba orkuna og síðan tek ég orku steingeitarinnar fyrir í heild sinni.
23. þáttur - Orka krabbans 05.09.2024 1:17:23
Í þessum þætti fer ég yfir orku krabbans eins og hún kemur til mín og ég upplifi hana.
22. þáttur - Orka bogmannsins 22.08.2024 1:12:17
Hérna í þessum þætti fer ég örlítið yfir það sem vantaði uppá í yfirferð minni á tvíburanum og síðan orku bogmannsins í heild sinni.
21. þáttur - Orka tvíburans 15.08.2024 1:14:13
Í þessum þætti fer ég yfir orku tvíburans.
20. þáttur - Hugleiðingar: Að tileinka sér það sem pláneturnar segja til um 02.07.2024 1:00:22
Ögn um tvíburaorkuna sem og bogamanninn. En síðan að sjálfskoðun, sjálfsvinnu, miðilsgáfu hvers og eins og að lokum hvers vegna staðsetning plánetnanna er mikilvæg. Allar pláneturnar eru orkustöðvar og því er mikilvægt að að huga að þeim merkjum sem pláneturnar í ykkar korti eru staðsettar því einungis þannig fáið þið orku til baka frá því sem þið gerið. Allavega eins og ég skil stjörnuspekina og...
19. þáttur - Hugleiðingar: Óður til stjörnukortsins 24.06.2024 52:52
Erfiðlega gekk að taka upp tvíburaorkuna á vegu sem mér þótti ásættanleg þannig ég ákvað að henda í annan hugleiðingaþátt. Hérna tala ég frjálslega um stjörnukortið og mína trú og tilfinningu gagnvart því. Hvað það er merkilegt og hvers vegna það sé svona svakalega mikilvægt að skilja sem og þekkja það. Þá myndina sjálfa af stjörnukortinu.
18. þáttur - Hugleiðingar: Eru tilviljanir til í lífinu? 13.06.2024 46:14
Upptökubúnaðurinn var bilaður þannig ég ákvað að taka pásu á umfjöllun minni um stjörnumerkin og hugsa upphátt í staðin. Tvíbura orkan verður tekin í næstu viku. Hérna fer ég yfir hugleiðingar mínar um tilganginn að baki lífinu og hvort það skipti máli að við séum að lifa lífinu eftir einvherskonar plani eða ekki. Hvort lífið okkar sé handhófskennt eða fyrirfram ákveðið. Ég fjalla um gjafir stjörn...
17. þáttur - Orka sporðdrekans 06.06.2024 1:23:51
Í þessum þætti fer ég yfir orku sporðdrekans.
16. þáttur - Orka nautsins 28.05.2024 1:23:45
Í þessum og næstu ellefu þáttum tek ég öll stjörnumerkin fyrir. Í þessum þætti tek ég orku nautsins fyrir.
15. þáttur - Forsetakosningar, efstu sex frambjóðendur og stjörnukort þeirra 22.05.2024 59:52
Í þessum þætti breytti ég ögn til og tók fyrir málefni líðandi stundar. Viku pása er því á áframhaldandi kennslu í stjörnuspekiskólanum. Ég fer yfir stjörnukort þeirra sex frambjóðenda sem tóku þátt í kappræðum Stöðvar 2 og reyni að koma því frá mér hvaða gjöfum og hæfileikum þau eru gædd sem myndu gera þau góð í embætti forseta Íslands.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.