Gísli Hrafn Gunnarsson
Stjörnuspekiskólinn
Í þessu podcast mun ég kenna stjörnuspeki. Stjörnuspekin er margslungið fag en mjög aðgengileg ef maður lærir hana í stigum og leggur grunninn vel. Ég ætla því að fara vel og vandlega yfir þá aðalþætti sem leggja grunninn að stjörnuspekinni og byggja ofan á það. Stjörnuspekin er túlkun hvers stjörnuspekings fyrir sig og því mun ég kenna stjörnuspekina eins og ég upplifi hana. Von mín með þessu podcasti er að hlustendur geti að lokum fylgt eftir stjörnuspeki útskýringum og skilið hvað sé verið að ræða. Stjörnuspekin er mögnuð og mig langar að fleiri eigi þá gjöf að skilja gjafir hennar.
Author
Gísli Hrafn Gunnarsson
Category
Podcast website
Latest episode
Jun 23, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
14. þáttur - Frumkvæð, stöðug og breytileg merki 16.05.2024 1:15:35
Í þessum þætti fer ég yfir þrískiptingu merkjanna í frumleg, stöðug og breytileg merki. Ég tek öll merkin fyrir og útskýri þannig hvernig hægt sé að sjá sameiginlega þáttinn í þessum merkjum sem og hvernig skilningur á þessu getur dýpkað og aukið skilning okkar á merkinu sjálfu, sem og stjörnuspekinni í heild sinni. Þetta er mjög mikilvægur þáttur að skilja til þess að halda vegferð okkar um stjör...
13. þáttur - Hvað er stjörnukortið? Intercepted signs, afstöðurnar og húsakerfið sem ég nota. 02.05.2024 1:00:41
Í þessum þætti klára ég yfirferðina mína í gegnum stjörnukortið. Intercepted signs er kenning um þau merki sem eiga sér ekkert hús, eða þar sem ekkert hús á sér upphaf í þeim. Ég fer lauslega yfir hverju fylgir því að vera með slíkt merki í stjörnukorti sínu. Ég útskýri hvers vegna ég styðst við og nota eingöngu Placidus húsakerfið þegar ég skoða stjörnukort og les í stjörnukort. Síðan fer ég yfir...
12. þáttur - Hvað er stjörnukortið? Sálin, sálarstaðan, miðhimininn og sálarplánetan 25.04.2024 1:03:03
Í þessum þætti fer ég yfir sálina eins og ég upplifi hana, sálarstöðuna, sem á ensku er kölluð IC, og hvað hún merkir. Ég fer ögn yfir miðhimininn og síðan eitthvað sem ég kalla sálarplánetuna. Í gegnum sálarstöðuna kynni ég til leiks þá krafta sem liggja að baki henni. Þetta er að mínu mati mikilvægasti þátturinn í öllu stjörnukortinu og ég mun fara dýpra og dýpra inní þessa stöðu og merkingu hen...
11. þáttur - Hvað er stjörnukortið? Plánetur, húsin og rísandinn.. 06.04.2024 58:28
Í þessum þætti fer ég dýpra inní saumana á stjörnukortinu. Ég fer yfir hvernig pláneturnar virka í breytileika sínum í gegnum merkin, ég fer mun betur út í húsin og hvernig þau virka. Ég tek sálina ögn fyrir og að lokum fer ég aðeins yfir hvernig rísandinn og hnígandinn virka.
10. þáttur - Hvað er stjörnukortið? 23.03.2024 1:03:22
Í þessum þætti tek ég stjörnukortið fyrir og hvaða breytur eru til staðar í því sem gerir stjörnukort hvers og eins svo sérstakt og öðruvísi. Ég fer yfir ríkjandi plánetur merkjanna og tek þar merki nautsins og meyjunnar sérstaklega fyrir og kynni þær plánetur, jörðina og Ceres, sem ég tel að séu plánetur þessara merkja. Ég kynni húsin ögn fyrir hlustendum sem og afstöður sem plánetur mynda á mill...
Níundi þáttur - Sameining frumefnanna og hvernig þau virka saman 16.03.2024 1:36:46
Í þessum þætti tek ég í byrjun fyrir viss atriði sem mér þykir mikilvægt að skilja hvað stjörnuspekina varðar. Eins og að pláneturnar skipti ekki öllu máli þegar kemur að stjörnuspekinni og að margir aðrir þættir, eins og sálarstaðan, skipti enn meira máli. Síðan tek ég öll frumefnin fyrir og fer yfir hvernig hvert og eitt merki innan hvers frumefnis er mikilvægt til þess að án fullri virkni í því...
Áttundi þáttur - frumefnið vatn 09.03.2024 1:38:13
Í þessum þætti fjalla ég um frumefnið vatn og hvernig birtingarmyndir þess eru breytilegar í gegnum vatnsmerkin: krabbann, sporðdrekann og fiskinn. Fyrirspurnir sendist á: stjornuspekiskolinn@gmail.com
Sjöundi þáttur - Frumefnið jörð 02.03.2024 59:53
Í þessum þætti fjalla ég um frumefnið jörð og hvernig birtingarmyndir þess eru breytilegar í gegnum jarðarmerkin: nautið, meyjuna og steingeitina. Einnig tek ég fram email sem hægt er að senda fyrirspurnir á stjornuspekiskolinn@gmail.com
Sjötti þáttur - Hvað eru frumefnin og frumefnið loft 24.02.2024 1:11:47
Í þessum þætti útskýri ég hvað frumefnin eru og hvernig er hægt að notast við þau og nýta þau sjálfum sér til góðs. Síðan fer ég yfir frumefnið loft og hvernig það birtist í merkjum loftsins; Tvíburanum, Voginni og Vatnsberanum. Ég styðst einnig við frumefni eldsins sem og merki eldsins til frekari útskýringa.
Fimmti þáttur - Frumefnið eldur 17.02.2024 57:05
Í þessum þætti fer ég yfir frumefni elds. Ég tek eldin fyrir og síðan útskýri ég fjölbreytileika eldsins í gegnum merki eldsins: hrútinn, ljónið og bogmanninn. Ég styðst örlítið við frumefni loftsins til þess að gera eldinum skil.
Fjórði þáttur - Andstæður og merking þeirra í stjörnuspeki 10.02.2024 51:24
Í þessum þætti tek ég fyrir andstæður og hvernig þær geta kennt okkur að skilja og rannsaka orku stjörnuspekinnar á ennþá dýpri og merkilegri vegu. Öll orka á sér tvo póla, heitt og kalt, bjart og dimmt, gott og slæmt, jákvætt og neikvætt. Öll orka og þar af leiðandi öll merkin, sem og frumefni, eiga sér andstæðu og galdrarnir í að skilja hvernig þessi orka er liggja í að átta sig enn betur á ands...
Þriðji þáttur - Hver er orka stjörnuspekinnar og hvernig virka hringrásir hennar? 03.02.2024 44:59
Í þessum þætti fer ég yfir hvernig ég skil orkuna sem ég finn og upplifi í gegnum stjörnuspekina. Orka er eilíf, hún hvorki minnkar né stækkar, hún breytir einungis um form. Orka gengur í hringi og er á stöðugri hreyfingu. Þessi þáttur er um þessa hringrás orkunnar og í gegnum þessa hringrás lýsi ég þar með stjörnumerkja hringnum og hvernig eitt merki tekur við af öðru.
Annar þáttur - Hvað er stjörnuspeki og hvað er hún ekki? 27.01.2024 56:02
Farið er yfir grunninn sem mótar þá vestrænu stjörnuspeki sem ég kenni hér í þessu podcasti en einnig hvað stjörnuspekin er þá ekki. Velt er vöngum yfir uppruna stjörnuspekinnar sem og hvort það sé hugsanlegt að pláneturnar í okkar sólkerfi hafi einhver áhrif á okkur manneskjurnar hér á jörðinni eða jafnvel stjörnurnar uppi á himni.
Fyrsti þáttur - Kynning á mér og þættinum 20.01.2024 34:52
Stutt kynning á mér og af hverju mig langar að vera með þetta podcast og kenna stjörnuspeki.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.