Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University

HR Hlaðvarpið

HR-hlaðvarpið er mikilvægur hluti af vísindamiðlun Háskólans í Reykjavík til samfélagsins; allt frá nemendum og starfsfólki til kollega og almennings. Í hlaðvarpinu fjalla vísindafólk, kennarar og aðrir sérfræðingar háskólans um metnaðarfullar rannsóknir sínar og verkefni. HR-hlaðvarpinu er ætlað að næra starfsemi háskólans og miðla í leiðinni fjölbreyttri þekkingu út fyrir veggi hans. Samhliða er skyggnst inn í veröld nemenda og fróðleik miðlað um margvíslega starfsemi í skólanum. HR-hlaðvarpið er í umsjón samskiptasviðs HR (samskipti@hr.is).

Author

Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University

Category

Education

Podcast website

www.ru.is

Latest episode

Jun 29, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Verkfræðivarpið// 43. þáttur - Sveinbjörn Jónsson 29.06.2026

Í þessum þætti Verkfræðivarpsins ræðum við við Sveinbjörn Jónsson, verkefnisstjóra hjá ÍAV, um nýju farþegamiðstöðina Vör við Skarfabakka í Reykjavík, sem afhent var Faxaflóahöfnum í mars 2026.  Sveinbjörn er byggingarverkfræðingur með MSc-gráðu frá Háskóla Íslands og MPM-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.  Hluti þáttarins var tekinn upp í mannvirkinu sjálfu, en í meginviðtalinu ræða Helgi Þór Inga...

Íþróttarabb HR // 27. þáttur-Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Davíð Má Sigurðssyni 18.06.2026

Gestur þáttarins að þessu sinni er Davíð Már Sigurðsson , íþrótta- og sundkennari í Rimaskóla. Hann, ásamt samstarfskonu sinni Sigrúnu Blomsterberg, hlaut viðurkenninguna fyrir einstaklega vel skipulagt verkefni í aukakennslu í sundi. Davíð segir okkur frá því hvernig þau styðja við nemendur sem glíma við vatnshræðslu eða óöryggi í vatni. Við ræðum meðal annars: Skref fyrir skref: Hvernig áfangami...

Verkfræðivarpið// 42. þáttur - Atli Snær Ásmundsson 17.06.2026

Spunagreind býður upp á ótal möguleika og þar á meðal til kennslu og fræðslu.  Í Verkfræðivarpinu er tekinn tali Atli Snær Ásmundsson doktorsnemi við Verkfræðideild HR. Atli Snær segir frá doktorsverkefninu sínu sem gæti valdið straumhvörfum þegar kemur að kennslu og stjórnendaþjálfun.  Hugmyndin er að nýta gervigreind til að lesa í tilfinningar nemenda og aðlaga kennsluna að þörfum hvers og eins....

Verkfræðivarpið// 41. þáttur - Jónas Ketilsson 03.06.2026

Gestur Verkfræðivarpsins að þessu sinni var Jónas Ketilsson, yfirverkefnisstjóri stækkunar ÞeistareykjastöðvarLandvirkjunar.  Á síðustu þremur árum hefur hann gegnt lykilhlutverki í þróun nýrrar tækni, leitt umbreytingu fjölþættra leyfis- og umhverfisstjórnunarþátta, þróun og innleiðingu alþjóðlegra viðmiða auk samþættingar fjölmargra verkefna og hagsmunaaðila tengdri stækkun virkjunarinnar.  Nýve...

Íþróttarabb HR // 25. þáttur-Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Tryggva Jóhanni Heimissyni 02.06.2026

Vorið 2025 var stofnað til nýs framtaks hér við íþróttafræðideildina í HR sem hafði það að markmiði að lyfta upp starfi íþróttakennara og skapa umræðu um það sem vel er gert. Framtakið fólst í að veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum. Óskað var eftir tilnefningum og umsóknum. Nefnd var skipuð og valdi hún tvö verkefni til viðurkenningar árið 2025. Tryggvi Jóhann Heimisso...

Verkfræðivarpið// 40. þáttur - Florence Kennedy 29.04.2026

Florence Kennedy er framkvæmdastjóri Negotiate Ltd. Hún er dóttir Gavin Kennedy sem var prófessor við Heriot-Watts háskólann í Edinborg og einn virtasti fræðimaður heims á sviði samingatækni. Florence tók við kefli föður síns og kennir, þjálfar og skrifar bækur um samingatækni.  Hún hefur kennt í MPM-náminu frá upphafi þar sem fræðilegur bakgrunnur hennar auk víðtækrar alþjóðlegrar reynslu gerir v...

Verkfræðivarpið// 39. þáttur - Gervigreind sem einkakennari? Hinrik Jósafat Atlason segir frá Atlas Primer 28.04.2026

Hinrik Jósafat Atlason er stofnandi og framkvæmdastjóri Atlas Primer og hefur unnið að þróun gervigreindarlausna síðan árið 2005. Árið 2018 þróaði hann gervigreindareinkakennara sem hjálpar fólki að læra í gegnum talviðmót. Í dag leiðir hann alþjóðlega uppbyggingu Atlas Primer á þremur heimsálfum, en fyrirtækið hefur verið til umfjöllunar í Forbes og hlotið viðurkenningu frá TIME og Statista sem e...

Verkfræðivarpið// 38. þáttur - Guðmundur Pálsson tónlistarmaður og fjölmiðlamaður um verkefnastjórnun og MPM námið 14.04.2026

Guðmundur Pálsson er fjölmiðlamaður og tónlistarmaður með fjölbreyttan bakgrunn. Hann er BA í íslenskum fræðum frá Háskóla Íslands og starfaði meðal annars hjá Hafrannsóknarstofnun og Íslenskri erfðagreiningu áður en hann sneri sér að fjölmiðlum. Margir þekkja rödd hans eftir áralangan feril hjá RÚV, þar sem hann hefur komið að dagskrárgerð á Rás 1 og Rás 2 sem og í sjónvarpi. Guðmundur er jafnfra...

Íþróttarabb HR// 26. þáttur - Afreksvæðing barna og unglinga í brennidepli 13.04.2026

In this episode, Daði Rafnsson from Reykjavík University discusses the professionalization of children’s and youth sports with internationally renowned experts. It was recorded in connection with the Reykjavik International Games in January 2026. Guests are Mark O’Sullivan, Martin Camiré and Siubhéan Crowne.  Professionalization in youth sport refers to the increasing adoption of adult professiona...

Verkfræðivarpið // 37. þáttur: Vinningshafar nemendaverðlauna SIF 18.03.2026

Rætt var við hóp verkfræðinemenda sem vann nemendaverðlaun SIF - Rannsóknaseturs í sjálfbærni haustið 2025. Verðlaunin voru veitt fyrir verkefni sem hópurinn vann í sjálfbærninámskeiði undir handleiðslu Dr. David Finger. Í námskeiðinu er nemendum gert að takast á við raunveruleg vandamál í samræmi við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, með áherslu á sköpunargáfu, kerfishugsun og s...

Verkfræðivarpið // 36. þáttur: Sveinn V. Ólafsson vélaverkfræðingur 27.01.2026

Sveinn V. Ólafsson er vélaverkfræðingur með langa og fjölbreytta starfsreynslu. Hann starfar sem sjálfstæður ráðgjafi og fyrirlesari á sviði gæðastjórnunar. Hann lauk meistaraprófi (MSc) í flug- og kerfisverkfræði við Virginia Tech í Bandaríkjunum og hefur komið víða við á starfsferli sínum og m.a. unnið fyrir fyrirtæki og stofnanir sem tengjast flugrekstri - þar sem mikil áhersla er lögð á notkun...

Verkfræðivarpið // 35. þáttur: Ásdís Sigurðardóttir gæða- og umbótastjóri hjá Orkunni 20.01.2026

Ásdís Sigurðardóttir er gæða- og umbótastjóri hjá Orkunni. Hún er vélaverkfræðingur með sérhæfingu í framleiðslu- og gæðastjórnun frá NTNU í Noregi. Ásdís hefur víðtæka starfsreynslu, meðal annars hefur hún starfað við mannvirkjagerð og við verkfræðiráðgjöf, bæði á Íslandi og í Noregi. Einnig hefur hún átt farsælan íþróttaferil sem handknattleikskona, hún var um tíma í íslenska landsliðinu og hefu...

Íþróttarabb HR// 23. þáttur - Á toppinn með Kjartani Stefánssyni 19.01.2026

Gestur þáttarins er Kjartan Stefánsson, margreyndur grunnskólakennari og knattspyrnuþjálfari með meiru. Kjartan hefur kennt skólaíþróttir við Árbæjarskóla við góðan orðstír og stundar meistaranám við íþróttafræðieild HR. Í þættinum ræðir Sveinn Þorgeirsson, umsjónarmaður meistaranáms til kennsluréttinda (MEd) við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík, við Kjartan um  valfag í unglingadeild sem h...

Verkfræðivarpið // 34. þáttur: Um iðnaðarverkfræði og aðgerðarannsóknir á Íslandi - Rætt við Pál Jensson prófessor við HR. 16.01.2026

 Páll Jensson prófessor er einn af mikilvægustu fræðimönnum hérlendum í hópi verkfræðinga. Hann byggði upp kennslu og rannsóknir í iðnaðarverkfræði á Íslandi með félaga sínum Pétri heitum Maack prófessor, en þeir voru lykilmenn í Verkfræðideild Háskóla Íslands. Páll kom til HR 2011 og hefur komið ótrúlega miklu í verk í starfi sínu sem fræðimaður og kennari og mjög margir þekkja Pál sem afburðagóð...

Sálfræðispjallið// Hlaðvörp nemenda í réttarsálfræði -fyrri hluti 15.01.2026

Í þessum þætti má hlýða á hlaðvörp nemenda við sálfræðideild sem unnin voru í réttarsálfræði. Í þættinum taka nemendur fyrir raunveruleg sakamál til umfjöllunar.  Þetta er fyrri þáttur af tveimur. Réttarsálfræði er fræðigrein sem leitast við að skilja afbrot, af hverju þau eiga sér stað, hvernig sé hægt að grípa inn í og hvernig megi hagnýta sálfræðilega þekkingu í réttarkerfinu. Vinsamlegast athu...

Sálfræðispjallið//Hlaðvörp nemenda í réttarsálfræði-seinni hluti 15.01.2026

Í þessum þætti má hlýða á hlaðvörp nemenda við sálfræðideild sem unnin voru í réttarsálfræði. Í þættinum taka nemendur fyrir raunveruleg sakamál til umfjöllunar.  Þetta er seinni þáttur af tveimur. Réttarsálfræði er fræðigrein sem leitast við að skilja afbrot, af hverju þau eiga sér stað, hvernig sé hægt að grípa inn í og hvernig megi hagnýta sálfræðilega þekkingu í réttarkerfinu. Vinsamlegast ath...

Íþróttarabb HR// 24. Þáttur - Framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum með Sillu 08.01.2026

Vorið 2025 var stofnað til nýs framtaks hér við íþróttafræðideildina í HR sem hafði það að markmiði að lyfta upp starfi íþróttakennara og skapa umræðu um það sem vel er gert. Framtakið fólst í að veita viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsmat í skólaíþróttum. Óskað var eftir tilnefningum og umsóknum. Nefnd var skipuð og valdi hún tvö verkefni til viðurkenningar árið 2025.    Sigurlaug Rúna Guðmu...

Open Access Publishing: Human Right versus Monetised Commodity 20.10.2025

This podcast episode, produced for International Open Access Week, features a conversation between Ragna Björk Kristjánsdóttir, Library Director at Reykjavík University, and Professor Jack James, exploring the theme “ Who owns our knowledge ?” The discussion critically examines the evolution of academic publishing from its early ideals of freely shared knowledge to the current reality of monetised...

Viðskipta- og hagfræðivarpið; Dr. Hallur Þór ræðir við listamanninn ODEE 21.05.2025

🎙️ ODEE og Hallur ræða hér samspil frumkvöðlastarfs og lista. Frumkvöðlar og listamenn eiga fleira sameiginlegt en marga grunar. Hvoru tveggja eru skapandi störf, sem vinna oft að því að hafa áhrif á umhverfi og samfélag. Hallur birti nýverið rannsóknargrein í tímaritinu International Journal of Entrepreneurial Behavior & Research, ásamt Marinu Candi og Dimo Dimov. Þar greina þau listagjörning...

Íþróttarabb HR// 22. þáttur: Dr Magni Mohr forstöðumaður heilbrigðisvísindasviðs í Háskólanum í Færeyjum 09.05.2025

Í þessum þætti ræðir Sveinn Þorgeirsson, kennari við íþróttafræðideild og umsjónarmaður MED-námsins, við Dr. Magna Mohr, sem fer fyrir heilbrigðisvísindasviði í Háskólanum í Færeyjum. Magni er með doktorsgráðu í íþróttasálfræði frá Kaupmannahafnarháskóla og meistaragráðu frá sama skóla í lífeðlisfræði.   RU Sport Psych Podcast er þáttasería innan Íþróttarabbs HR, sem er haldið úti af íþróttafræðid...

Sálfræðispjallið//Aðgengilegar aðferðir HAM þróaðar á stafrænu formi fyrir foreldra-Cathy Creswell prófessor við Háskólann í Oxford 02.05.2025

Prófessor Cathy Creswell er gestur Sálfræðispjallsins að þessu sinni. Hún er virtur breskur sálfræðingur sem sérhæfir sig í barna- og þroskasálfræði með sérstakri áherslu á kvíðaraskanir hjá börnum og unglingum. Crewsell gegnir prófessorsstöðu við Háskólann í Oxford þar sem hún stýrir rannsóknarhópnum The Oxford Psychological Interventions for Children and Adolescents (TOPIC) . Eitt af hennar merk...

Verkfræðivarpið // 33. þáttur: Dr. Darren Dalcher prófessor við Lancaster háskólann í Bretlandi 18.03.2025

Helgi Þór Ingason ræddi við Darren Dalcher Dr. Darren Dalcher er prófessor við Lancaster háskólann í Bretlandi og leiðir rannsóknasetur á sviði verkefnastjórnunar. Bakgrunnur hans er verkefnastjórnun í upplýsingatækni en Darren er virtur alþjóðlegur vísindamaður og hefur ritað fjölmargar vísindagreinar og bækur á sviðinu. Hann hefur m.a. unnið fyrir bresku verkefnastjórnunarsamtökin APM og leiddi...

RU Sporth Psych Podacst Episode 1: Katie Castle 13.03.2025

Katie Castle is a Canadian psychologist who specializes in working with children and adolescents in sports. She has a background in gymnastics as an athlete and coach and uses it to help athletes find a balance between sports and private life. She presented her research on the negative psychological consequences of early attainment among young people at the FEPSAC Conference in 2024 and the Reykja...

Íþróttarabb HR // 21. þáttur: Sigurbjörn Árni Arngrímsson 25.02.2025

Ingi Þór Einarsson, lektor við Íþróttafræðideild HR, ræðir við Sigurbjörn Árna Arngrímsson sem oftast er kallaður Bjössi. Bjössi hefur gengt starfi skólameistara við Framhaldsskólann á Laugum frá árinu 2015 og kennt bæði við HÍ og HR þar sem hann kennir þjálfunarlífeðlisfræði í meistaranámi í dag. Bjössi hefur komið víða við og spjalla þeir félagarnir meðal annars um frægar íþróttalýsingar hans, v...

Sálfræðispjallið//Hlaðvörp nemenda í réttarsálfræði-seinni hluti 11.02.2025

Í öðrum þætti Sálfræðispjallsins, hlaðvarpi sálfræðideildar HR, fáum við að hlýða á hlaðvörp nemenda í réttarsálfræði þar sem þeir taka fyrir raunveruleg sakamál til umfjöllunar. Þetta er seinni þáttur af tveimur. Réttarsálfræði er fræðigrein sem leitast við að skilja afbrot, af hverju þau eiga sér stað, hvernig sé hægt að grípa inn í og hvernig megi hagnýta sálfræðilega þekkingu í réttarkerfinu....

Listen to the HR Hlaðvarpið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.