Hlaðvarpið 4 vaktin

4. vaktin

Education IS ↓ 89 episodes

Við heitum Sara Rós Kristinsdóttir og Lóa Farestveit Ólafsdóttir og erum mæður á 4. vaktinni. Þegar við tölum um 4. vaktina þá erum við að vitna í þær vaktir sem við erum ósjálfrátt sett á í lífinu okkar. 1 vaktin er þá hefðbundinn vinnudagur, endurhæfing eða annað, 2. vaktin er það sem við þurfum að gera utan vinnutíma og 3. vaktin er huglæg og einsskonar verkstjórn yfir 2 vaktinni. Fyrir foreldra langveikra og eða fatlaðra barna þá er 2 og 3 vaktin umfangsmeiri og þess vegna ætlum við að tala um hana sem 4. vaktina. Við spjöllum um réttindi, þjónustu ofl og við aðra foreldra og fagfólk.

Author

Hlaðvarpið 4 vaktin

Category

Education

Podcast website

podcasters.spotify.com

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

87. Íslenska barnahjálpin í Kenía  10.07.2026

Íslenska barnahjálpin í Kenía  Heimasíða: islenskabarnahjalpin.is Það er magnað að hlusta á þessar  þrjár konur segja frá sjálfboðaliða starfinu og lífinu úti í Kenía þar sem Íslenska Barnahjálpin er að reka barnaskóla ásamt því að aðstoða einstæðar mæður. Þær Unnur Kristín Óladóttir , móðir, gullsmiður og einkaþjálfari og Alexandra Noor Douglas , frumkvöðull eru nýkomnar úr sinni fyrstu ferð til...

86. Team Rynkeby hjólarar sem safna fyrir Umhyggju 26.06.2026

Nýjustu gestir hlaðvarpsins ​ vaktin eru Steffy Þórólfs sem er hluti af Team Rynkeby hjólahópnum núna í ár og Louisa Sif sem hefur tvisvar sinnum verið þátttakandi með liðinu. Team Rynkeby samtökin eiga 25 ára afmæli í ár. Þátttakendur hjólaárið 2025-2026 eru um 2500 hjólarar og um 500 aðstoðarfólk í 68 liðum frá 9 löndum auk evrópu liðs. Ísland hefur tekið þátt frá árinu 2017 og er þetta því 10....

85. Jafningastuðningur inn á geðdeild 19.06.2026

Þessi þáttur er kannski nokkuð óhefðbundinn fyrir 4.vaktina en þó sáum við þessa umræða gagnast okkar hlustendahópi.  Við viljum byrja á að taka það fram að það er talað um sjálfsvíg og sjálfsvígshugsanir í þessum þætti. Umræðan endurspeglar ekki allt sem kemur að þessu málefni. Ef þú ert að upplifa sjálfsvígshugsanir þá mælum við alltaf með að leita aðstoðar. Sem aðstandendi er hægt að leita sér...

84. Spjall við systkini fatlaðra barna - Hera og Vala 28.05.2026

Í þessum þætti fengum við til okkar Heru Arnardóttur og Völu Fanneyju Farestveit . Þær eru báðar á menntaskólaárunum, Hera að kveðja þau og útskrifaðist í vor og Vala að ljúka fyrsta ári.  Þær komu til okkar í þáttinn til að ræða það einstaka hlutverk sem þær eru báðar deila en þær eru systur fatlaðra barna.  Í þættinum fáum við að hlusta á einlæga lýsingu þeirra af því hlutverki og hvernig það er...

83. Börn með fötlun á Íslandi. Þáttur á pólsku - Dzieci z niepełnosprawnością na Islandii. 27.05.2026

Þessi þáttur er á pólsku Draumurinn okkar í hlaðvarpinu 4.vaktin er að gera upplýsingar aðgengilegar fyrir sem fjölbreyttasta hópinn.   Að geta boðið upp á fræðslu á fleiri tungumálum en Íslensku er einn liður í þeim draumi. Það hefðum við aldrei getað gert nema með Kötu og Kasiu sem að sáu um nánast allt! Eina sem við gerðum var að segja þeim okkar hugmynd og hvað myndum helst vilja að kæmi fram....

82. Þroskahjálp - Landssamtök 19.05.2026

Til okkar komu Guðmundur Ármann Pétursson formaður og  Anna Lára Steindal framkvæmdastjóri frá Þroskahjálp. Þroskahjálp vinnur að fjölbreyttum verkefnum í hagsmunagæslu fatlaðs fólks.  Við hvetjum alla þá sem hafa tök á að styðja við starf Þroskahjálpar með eingreiðslu, mánaðarlegu framlagi eða versla vefverslun throskahjalp.is Landssamtökin Þroskahjálp voru stofnuð haustið árið 1976 í því skyni a...

81. Hjálpartæki sem bæta lífsgæði, hjálpartæki fyrir fatlaða, langveika og alla sem þurfa 03.05.2026

Við fengum til okkar 2 aðila til að segja okkur frá ýmislegu tengdu hjálpartækjum fyrir þá sem þurfa vegna fötlunar, veikinda, verkja eða öðru.  Þeir fræða okkur um úrvalið, þróunina, möguleikana og hvað þarf að hafa í huga. Þeir koma með sitthvort sjónarhornið en Bergur kemur inn sem notandi og Sigurður sem faðir stúlku sem er notandi.  Sigurður Jóhannesson er faðir hennar Sunnu sem er með AHC ta...

80. Barnaheill - Ungheill ungmennaráð 21.04.2026

Ungheill er rödd unga fólksins, ungmennaráð Barnaheilla eða Save the children á Íslandi. Við fengum til okkar þær Miu Ðuric og Karitas Leu sem eru báðar í Ungheill til að segja okkur frá starfinu. Þær eru að vinna virkilega flott starf ásamt hinum í ráðinu. Við í samfélaginu þurfum að styðja við og efla ungmennaráð og hlusta á þeirra raddir og vinna saman.  Að hlusta á þær segja frá starfinu og vi...

79. Reykjadalur - Gló stuðningsfélag 27.03.2026

Andrea Rói forstöðumaður Reykjadals og Hildur aðstoðar forstöðumaður komu til okkar og sögðu okkar allt frá starfinu í Reykjadal. Það heyrist strax hvað þær hafa báðar ástríðu fyrir starfinu sínu og það sem maður heyrir frá þeim sem kynnast Reykjadal er að staðurinn snertir stað í hjartanu hjá flestum. -- glofelag.is Hlutverk Reykjadals er að skapa vettvang þar sem fötluð börn og ungmenni: ​fá rau...

78. Eva Hrund - Fæddist á viku 27 17.03.2026

Við fengum hana Evu Hrund til okkar sem fæddist sjálf fyrirburi og var á vökudeildinni. Eva fæddist um viku 27 , var í hitakassa í um 5 mánuði og þurfti að fara í hjartaaðgerð fljótlega eftir fæðingu. Eva sagði okkur frá sinni sögu og hvað er búið að breytast í málum fyrirbura frá því að hún fæddist. Eva er með bæði heyrna og sjónskerðingu og það er vitað núna í dag að sjónskerðingin er vegna þess...

77. Steinunn Helga Sigurðardóttir - 5 barna móðir sem eignaðist tvíbura á viku 28 26.02.2026

Við fengum til okkar hana Steinunni Helgu Sigurðardóttir sem segir okkur frá reynslu sinni sem fimm barna einstæð móðir og sem móðir tvíbura stelpna sem fæddust langt fyrir tímann eða á viku 28. Þær þurftu að vera á vökudeildinni í töluverðan tíma en þær eru báðar með Cerebral palsy (CP) og segir Steinunn okkur líka frá hvernig það hefur haft áhrif á líf þeirra. Börnin hennar eru í dag 9,7,4 og 2...

76. Hafdís Priscilla Magnúsdóttir -Fyrirbura móðir 19.02.2026

Við fengum hana Hafdísi Priscillu Magnúsdóttir til okkar sem eignaðist fyrirbura fyrir um 16 árum síðan. Stelpan hennar fæddist um það bil 2 mánuðum fyrir tímann og voru þau með hana á vökudeild lengi. Í dag gengur henni vel en á fyrstu árunum í lífi sínu var hún að kljást við veikindi sem má rekja til þess að hún hafi fæðst fyrir tímann. Hafdís sagði frá þeirri upplifun að eignast fyrirbura og að...

75. Herdís Gísladóttir - Vökudeild Barnaspítala Hringsins 10.02.2026

Við fengum hana Herdísi Gísladóttir hjúkrunarfræðing til okkar til að segja okkur frá starfi Vökudeildar Barnaspítala Hringsins sem er nýburagjörgæsludeild og er sú eina sinnar tegundar á Íslandi. Deildin sinnir fyrirburum og veikum nýburum. Herdís hefur starfað þar í fjölda ár og hefur mikla þekkingu. Í dag starfar hún bæði á vökudeild og erfðadeild Landspítalans.  Vökudeildin varð 50 ára 2. Febr...

74. Fyrirburar - Sagan 03.02.2026

Við förum yfir söguna þegar kemur að fyrirburum og læknavísindum tengdum fyrirbura lækningum. Sagan er löng og sagan er ótrúleg satt best að segja. Virkilega áhugavert að fræðast um söguna sjálfa og hvað við erum komin langt þegar kemur að vitneskju og vísindum. Á Íslandi: Er Vökudeild Barnaspítala Hringsins sem er nýburagjörgæsludeild og sú eina sinnar tegundar á Íslandi. Deildin er staðsett á þr...

73. Erna Sigurðardóttir, barnabóka höfundur. Óskar elskar lestir-bróðir minn er einhverfur. 18.01.2026

Erna Sigurðardóttir og maðurinn hennar voru nýlega búin að eiga strákinn sinn, hann var aðeins 7 vikna gamall þegar stelpan þeirra þá aðeins 6 ára gömul lenti í slysi og hlaut alvarlega áverka og þar á meðal áunninn heilaskaða sem hefur haft áhrif á og litað hennar líf. Hún segir okkur frá bæði slysinu, heilaskaðanum, einhverfu greiningu sonar þeirra, systkina sambandi þeirra og lífi þeirra í Nore...

72. Spjallþáttur með gervigreind 07.01.2026

Við prófuðum að fá spurningar frá gervigreindinni og við fengum 10 spurningar um 4.vaktina og svo 3 random spurningar. Það kom á óvart hvað það varð mikið flæði en við svöruðum bara frekar hrátt og eins einlægt og við gátum. Vonandi hafið þið gaman að því að hlusta..... Þessi þáttur er í boði: -Góðvildar - Styrktarfélagið Góðvild hefur það markmið að styðja við verkefni sem bæta hag langveikra og...

71. Auður Ákadóttir -Formaður Einhverfusamtakanna 27.12.2025

Auður Ákadóttir kom til okkar í spjall en hún er formaður Einhverfusamtakanna og hefur komið að ýmsu starfi þegar kemur að vitundarvakningu um einhverfu. Auður er sjálf einhverf og á einnig 2 einhverfar dætur.  Hún kom til okkar til að fræða okkur um Einhverfusamtökin en þegar leið á samtalið og við vorum búnar að taka upp heillengi þá föttuðum við að við höfðum ekkert farið í samtal um samtökin þ...

70. Eva Rós - Bergið Headspace 10.12.2025

Eva Rós Ólafsdóttir framkvæmdastjóri Bergsins Headspace kom til okkar til að segja okkur frá starfinu, hugmyndafræðinni, framtíðarsýn og til að ræða um líðan ungmenna. Bergið er stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk upp að 25 ára aldri. Markmið Bergsins er að bjóða upp á lágþröskuldaþjónustu með áherslu á stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Í Berginu er lagt upp með að skapa notalegt og öruggt umh...

69. Málþing Umhyggju - 4.vaktin 03.12.2025

Fjórða vaktin Kulnun - Foreldrakulnun - Burn ON  Við fengum þann heiður að vera fundastjórar á málþingi Umhyggju sem bar nafnið Fjórða vaktin og snerist einmitt um þessa aukavakt sem foreldrar langveikra og fatlaðra barna eru oft á. Erindin voru öll virkilega bæði áhugaverð og áhrifarík og við vildum taka einn þátt þar sem við rýnum aðeins í erindin sjálf. Samtalið um þessa kulnun sem foreldrar er...

68. Gunnhildur Þórðardóttir - Móðir einhverfs barns 21.11.2025

Við fengum hana Gunnhildi Þórðardóttir sem er móðir einhverfs drengs. Hún hefur verið ötull talsmaður fyrir hans réttindum og stuðning og almennt málaflokk fatlaðra barna. Gunnhildur hefur verið áberandi á samfélagsmiðlinum TikTok að fræða og sýna frá þeirra daglega lífi. Ásamt því að fræða almennt um einhverfu og mörgu tengdu. Hún nær að fræða á skemmtilegan máta en hún nær oft að fræða með að ha...

67 - Kristín Þórsdóttir - Kynlífsmarkþjálfi 12.11.2025

Við fengum til okkar hana Kristínu Þórsdóttir sem rekur fyrirtækið Eldmóður . Hún er vottaður markþjálfi og kynlífs-markþjálfi ásamt því að vera Cranio meðferðaraðili. Hún starfar einnig hjá Móar Stúdíó og býður upp á námskeið og fyrirlestra.  Við vildum fá inn manneskju til að ræða opinskátt um þetta málefni vegna þess að þegar foreldrar eiga fatlað eða langveikt barn er nánd, kynlíf og sambandið...

66. Þorsteinn J. Vilhjálmsson- upplifun foreldris af NPA 01.11.2025

Í þessum þætti kom Þorsteinn J. til okkar í spjall. Hann er pabbi Láru Þorsteins og mörgum landsmönnum kunnugur, þar sem hann hefur starfað í fjölmiðlum um árabil. Þorsteinn ræddi reynslu sína af því að ala upp fatlað barn og hvernig ólík skólakerfi hafa stutt við fjölskylduna í gegnum árin. Þorsteinn og Lára hafa áður vakið athygli á málefnum sem tengjast þessum málaflokki. Í seinni hluta þáttari...

65. Umhyggja félag sem vinnur að bættum hag langveikra barna og fjölskyldna þeirra 24.10.2025

Við fengum þær Árnýju Ingvarsdóttir framkvæmdastjóra Umhyggju og er menntuð sem sálfræðingur og Þórdísi Helgadóttur sem er og starfar sem lögfræðingur hjá Umhyggju til okkar og fengum að heyra allt um félagið, bæði sögu þess og hvað þau bjóða upp á, hvað er á döfinni ofl. Einnig ræddum við um almenn réttindi fjölskyldna lagnveikra og fatlaðra barna, fræddumst um lög og reglugerðir og hvaða mál Þór...

64. Freyja Haraldsdóttir 17.10.2025

Freyja Haraldsdóttir móðir, aktivisti, þroskaþjálfi og Stofnandi Tabú sem er feminísk fötlunarhreyfing sem vinnur að félagslegu réttlæti og gegn margþættri mismunun gagnvart fötluðum konum og kvár. Mælum með að fylgja Tabú á samfélagsmiðlum. Freyja kom til okkar og gaf okkur innsýn í sitt líf og sína réttindabaráttu en hún hefur verið ötul í henni og náð árangri. Hún útskýrir ýmis hugtök, segir ok...

63. Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir - Skólamál barna sem "passa ekki" inn í svokallað box 08.10.2025

Við fengum hana Jóhönnu Birnu Bjartmarsdóttir til okkar til að ræða um skólamálin . Jóhanna hefur verið áberandi í umræðunni um þessi málefni undanfarið en hún hefur brennandi áhuga á að koma að betra menntakerfi fyrir þá sem eiga við námsörðugleika eða þurfa aðra nálgun í kennslu. Hún á sjálf ekki góða reynslu úr sinni grunnskólagöngu en hún er með mjög hamlandi lesblindu, er einhverf og með ADHD...

Listen to the 4. vaktin podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.