Linda Pétursdóttir

Podcastið með Lindu Pé

Podcastþættir Lindu Pé sem er master lífsþjálfi. Linda kennir konum að uppfæra hugarfarið, umbreyta sjálfsmynd sinni- og ná árangri. Nánari upplýsingar: www.lindape.com

Author

Linda Pétursdóttir

Category

Education

Podcast website

lmlp.libsyn.com

Latest episode

Jul 1, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

278. Það sem kom þér hingað 01.07.2026

Í fyrsta þætti Framúrskarandi seríunnar fjallar Linda um endursköpun og hvers vegna það sem kom þér hingað mun ekki koma þér lengra. Hún sýnir hvernig ný sjálfsmynd, daglegar venjur og hugrekki til að sleppa takinu á fortíðinni eru lykillinn að næsta kafla lífs þíns.   Masterclass: Fínstilling á miðju ári -  Smelltu hér til að panta   Nú er OPIÐ fyrir skráningar í nám í LÍFSÞJÁLFASKÓLANN ,  smellt...

277. Ákvörðun sem breytti lífi mínu 17.06.2026

Í þættinum segi ég frá ákvörðun sem breytti lífi mínu. Ég deili því hvernig ég tók skref sem ég hafði frestað í mörg ár þrátt fyrir efasemdir, fjárhagsáhyggjur og óvissu um framtíðina. Þú heyrir einnig frá konum sem stigu sömu spor og ég og segja að sú ákvörðun hafi haft meiri áhrif á líf þeirra en þær gátu ímyndað sér. Kannski verður þessi þáttur upphafið að þinni næstu stóru ákvörðun?   Nú er OP...

276. 10 spurningar: 10 ár 03.06.2026

Í þessum þætti deili ég 10 spurningum sem geta hjálpað þér að móta næstu 10 ár lífs þíns. Við skoðum sjálfsmyndina, venjurnar, ákvarðanirnar og hugrekkið sem þarf til að skapa það líf sem þú raunverulega vilt lifa. Ef þú gefur þér tíma til að svara þessum spurningum af hreinskilni gætirðu breytt stefnu næsta áratugar.   Masterclass: Fínstilling á miðju ári - Smelltu hér til að panta   F ylgdu Lind...

275. 3 atriði sem ég hætti að gera 20.05.2026

  Í þættinum deilir Linda þremur atriðum sem hún hætti að gera – meðvitaðar ákvarðanir með áherslu á líkama, huga og hjarta. Allt með eitt markmið í huga: að bæta lífsstíl sinn og auka vellíðan í daglegu lífi – á eigin forsendum, óháð skoðunum og væntingum annarra.     Nú er OPIÐ fyrir skráningar í nám í LÍFSÞJÁLFASKÓLANN ,  smelltu hér fyrir nánari upplýsingar.    LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- B...

274. Framúrskarandi & hámarksárangur 08.05.2026

Í þessum þætti spjallar Linda við þig frá sólríkri Marbella með samantekt á ráðstefnunni Framúrskarandi konan 2026 Madríd, sem var að ljúka, með 5 stjörnu umsögnum frá konunum. Hún tilkynnir hvar ráðstefnan verður haldin árið 2027...og segir ennfremur frá spennandi breytingum í LMLP prógramminu (opið fyrir skráningar). Áhersla er á lifandi samfélag og mannleg samskipti, samtal, leiðsögn og segir f...

273. Töfravika 29.04.2026

Framundan er töfrandi vika— Framúrskarandi konan 2026 á Mandarin Oriental Ritz í Madríd. Ég deili með þér hvernig ég undirbý mig, bæði minn innri og ytri heim— og af hverju upplifunin er aðaláherslan. Ég tala einnig um af hverju vandamálið hjá flestum er ekki þekkingarskortur heldur innleiðingarskortur — og mikilvægi þess að lifa það sem við lærum. Að lokum kynni ég nýjung í LMLP — lifandi samféla...

272. Lífsstíllinn minn 22.04.2026

Í þessum aukaþætti ræði ég heilsu og vellíðan- og þær áherslur sem ég hef í mínum eigin lífsstíl sem styðja við hámarksárangur í lífi og starfi. Ég segi einnig frá nýju þema um heilsu, lífsstíl og vellíðan sem við verðum með í LMLP prógramminu nú í maí. Ef þú vilt finna þinn eigin takt í heilsu og lífsstíl — þá er þessi þáttur fyrir þig.     LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- BIÐLISTI Nú er LOKAÐ fyri...

271. Lifandi samfélag 15.04.2026

Í þessum þætti ræðum við um mikilvægi þess að staldra við og endurmeta — ekki af því eitthvað sé að, heldur af því þú ert tilbúin fyrir meira. Ég deili hvernig ég er að endurskapa bæði líf mitt og fyrirtæki út frá „frelsi fyrst" nálguninni. Og út frá þessu er ég að gera breytingar í LMLP prógramminu þar sem fókusinn færist yfir í lifandi samfélag, enn dýpri tengingu og nýja nálgun á hvernig við vi...

270. Manneskjan á bakvið reksturinn 01.04.2026

Í þessum þætti talar Linda um manneskjuna á bak við reksturinn — þá innri vinnu sem enginn sér en sem ræður öllu. Hún deilir eigin reynslu af breytingum síðustu sjö ára og af því að vera heiðarleg við sjálfa sig um hvað þarf að breytast. Linda talar einnig um mikilvægi umhverfis og þess að vera umkringd fólki með háa staðla — og af hverju þetta er hluti af því sem hún stendur fyrir.   →  Framúrska...

269. Alla leið 18.03.2026

Í þættinum ræði ég hvað raunverulega skapar árangur – að taka ákvörðun um að fara alla leið og útiloka möguleikann á að gefast upp. Ég fjalla um mikilvægi þess að grípa til aðgerða sem byggja á trú á eigin sýn og getu, frekar en kvíða eða efasemdum. Einnig tala ég um skuldbindingu, fjárfestingu í eigin vexti og heiðarleika í sjálfsskoðun. Þegar við hættum að bíða eftir fullkomnum aðstæðum og höldu...

268. Frelsi fyrst 04.03.2026

Í þessum þætti ræði ég „frelsi fyrst" , nálgun sem ég er að innleiða í mínu persónulega lífi og í fyrirtæki mínu. Ég er sjálf að fara í gegnum endursköpun og segi frá því hér. Einnig ræði ég hvað það þýðir að hækka standardinn — jafnvel þegar við teljum okkur nú þegar með háan standard. Að lokum kynni ég nýja og spennandi leið til að vinna með mér fyrir þau sem vilja auka tekjur sínar.   Skrá mig...

267. 5 atriði í netrekstri: frá hugmynd til fyrstu tekna 18.02.2026

Viltu fara af stað með fyrirtæki á netinu en veist ekki alveg hvar þú átt að byrja? Í þessum podcastþætti tala ég um þessa algengu stöðu, því ég veit hvað það eru margir sem vilja byggja upp eigið fyrirtæki á netinu en vita ekki hvar og hvernig á að byrja. Með mína reynslu og þekkingu hef ég ákveðið að bjóða upp á spennandi námskeið sem heitir „5 atriði í netrekstri: frá hugmynd til fyrstu tekna"...

266. Hættu að bíða 04.02.2026

Í þessum þætti heyrir þú Lindu þjálfa konur í LMLP prógramminu og ræða hvernig lífsþjálfun getur umbreytt lífi okkar. Hún talar um fimm algengar hindranir – eftirsjá, skömm, útlit og aldur, bið og að smækka sig – og sýnir hvernig hægt er að losna úr þeim með meðvitund, nýrri hugsun og aðgerðum. Hvetjandi þáttur um að vakna til vitundar, styrkja sjálfsmyndina og lifa lífinu af ásetningi.   LOKAÐ FY...

265. Árangur og vandamál 21.01.2026

Í þessum þætti lærir þú um Árangurskóðann og færð nýja sýn á vandamál. Þú lærir aðferðina til að greina á milli aðstæðna og hugsana, skoða tilfinningar og skapa nýja niðurstöðu í lífi þínu. Frábær þáttur til að setjast í bílstjórasætið í eigin lífi og fara að skapa draumalífið þitt.   OPIÐ er fyrir skráningar í vinsæla LMLP prógrammið! Taktu ákvörðun um að verða leiðtogi í eigin lífi, skráðu þig o...

264. 25 atriði 2026 14.01.2026

Í þessum þætti gef ég þér 25 hugmyndir um hvernig þú getur byrjað nýtt ár með því að taka góðar ákvarðanir fyrir þig. Ég kem meðal annars inn á sjálfsmynd, fórnarlambshugsun, afsakanir og vítahring sjálfsniðurrifs. Þú færð tuttugu og fimm atriði sem styðja við sterkari sjálfsvirðingu, betri mörk og heilbrigðari daglegar venjur — þar á meðal „B mínus" hugsun og að fara „high" þegar aðrir fara „low"...

263. Upprisa, meðvitund og aðgerðir 07.01.2026

Í þessum þætti fær Linda Pé til sín Andreu Baldursdóttur, félagsráðgjafa, fjölskyldumeðferðarfræðing og nemanda í Lífsþjálfaskólanum. Andrea deilir ferðalagi sínu frá sorg og öryggisleysi yfir í upprisu, meðvitund og sjálfstraust. Hún segir frá því hvernig LMLP prógrammið breytti lífi hennar og hjálpaði henni að finna sitt eigið öryggi. Innblásið og einlægt samtal um seiglu, sjálfsvinnu- og krafti...

262. Árangurskóðinn 01.01.2026

Í þessum þætti fjalla ég um Árangurskóðan n og af hverju árangur ræðst sjaldnast af vilja eða þekkingu, heldur stöðugleika og ábyrgð. Ég ræði hvers vegna margar konur vita nákvæmlega hvað þær vilja gera, en standa svo ekki við það þegar daglegt líf tekur yfir. Ef þú ætlar að gera 2026 öðruvísi þarftu að hætta að endursemja við sjálfa þig. Nú er komið að því að mæta sjálfri þér – og taka ábyrgð á þ...

261. Brot af því besta 10.12.2025

Í lok árs finnst mér við hæfi að líta um öxl og rifja upp það fjölbreytta efni sem við höfum tekið fyrir hér í podcastinu á líðandi ári. Í þættinum finnur þú brot af því besta úr samtölum, kennslu og lífsþjálfunarþáttum – sambland af innblæstri, hugtökum og hugleiðingum sem minna okkur á hversu mikið getur breyst á einu ári. Podcastið fer nú í jólafrí og þetta er því seinasti þáttur ársins. Takk f...

260. Verkin tala 03.12.2025

Í þættinum „Verkin tala" ræði ég um tímabil aðgreininga – þar sem munurinn á þeim sem tala og þeim sem framkvæma verður augljós. Þetta er tímabil sem skiptir fólki í tvo hópa. Í hvorum hópnum ert þú?   LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP - BIÐLISTI Nú er LOKAÐ fyrir skráningar í LMLP prógrammið . Skráðu þig á biðlista og við látum þig vita þegar opnar næst. SKRÁ MIG Á BIÐLISTA LÍFSÞJÁLFASKÓLINN - BIÐLIS...

259. Að breyta sögunni 26.11.2025

Í þessum þætti fjalla ég um hvað það þýðir að breyta sögunni – að stíga út úr gömlum mynstrum, taka ábyrgð og velja nýja leið. Þú lærir hvað það þýðir að vera sú sem tekur fyrsta skrefið – ekki aðeins fyrir sjálfa þig, heldur fyrir þær sem koma á eftir þér. Því þegar ein kona breytir sögunni, breytist heimurinn í kringum hana.   LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- BIÐLISTI Nú er LOKAÐ fyrir skráningar...

258. 5 bætiefni 19.11.2025

Í þessum þætti ræðir Linda Pé við Þorbjörgu Hafsteinsdóttur, hjúkrunarfræðing og næringarþerapista, um fimm lykilbætiefni sem flestir ættu að taka til að efla orku, styrkja ónæmiskerfið og stuðla að betri heilsu. Þú lærir hvaða fimm bætiefni skipta mestu máli, hvernig þau virka í líkamanum og hvers vegna þau eru grundvöllur jafnvægis og vellíðunar. Þorbjörg útskýrir einnig af hverju Omega-3 olía e...

257. Ertu fórnarlamb? 12.11.2025

Í þessum þætti förum við yfir hvað fórnarlambs hugarfar er – og hvers vegna það heldur okkur föstum í afsökunum, bið og hjálparleysi. Við skoðum hvernig þetta mynstur rænir þig kraftinum og kemur í veg fyrir breytingar – og af hverju þú getur ekki skapað nýtt líf fyrr en þú losar þig við fórnarlambið og tekur ábyrgð.   LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- BIÐLISTI Nú er LOKAÐ fyrir skráningar í LMLP pró...

256. Af hverju smækkarðu þig? 05.11.2025

Í þessum þætti fjalla ég um smækkun – hvernig konur læra að smækka sig, halda aftur af sér og vanmeta eigin kraft. Við skoðum hvernig þetta mynstur birtist í daglegu lífi, af hverju samfélagið þjálfar konur í að smækka sig og hvernig það minnkar sjálfstraust, metnað og möguleika. Síðan förum við í hvað gerist þegar kona hættir að smækka sig, leyfir sér að vera sú sem hún í raun er – og opnar á eig...

255. Vítahringur sjálfsniðurrifs 29.10.2025

Eftir að hafa unnið með þúsundum kvenna sá ég skýrt hvað margar festast í sjálfsniðurrifi -sem ákvarðar niðurstöðurnar í lífi þeirra. Ég útbjó Vítahring sjálfsniðurrifs sem samanstendur af fimm stólpum – og í þessum þætti leiði ég þig í gegnum hvern þeirra og sýni hvernig þú getur stigið út úr vítahringnum og skapað nýja framtíð.   LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- BIÐLISTI Nú er LOKAÐ fyrir skráning...

254. 20 ár fram í tímann 22.10.2025

Í þessum þætti ferðu 20 ár fram í tímann og hittir eldri útgáfu af sjálfri þér. Hún sýnir þér hvað skiptir raunverulega máli, hverju þú gætir séð eftir og hvaða ráðum þú vilt fylgja strax í dag. Þannig lærirðu að taka ákvarðanir sem móta framtíð sem þú getur verið stolt af og þakklát fyrir.   LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- BIÐLISTI Nú er LOKAÐ fyrir skráningar í LMLP prógrammið . Skráðu þig á biðl...

Listen to the Podcastið með Lindu Pé podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.