Linda Pétursdóttir
Podcastið með Lindu Pé
Podcastþættir Lindu Pé sem er master lífsþjálfi. Linda kennir konum að uppfæra hugarfarið, umbreyta sjálfsmynd sinni- og ná árangri. Nánari upplýsingar: www.lindape.com
Author
Linda Pétursdóttir
Category
Podcast website
Latest episode
Jul 1, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
253. Stattu með þér 15.10.2025 17:11
Í þessum þætti tala ég um kraftinn sem felst í því að samþykkja sjálfa sig óháð skoðunum eða áliti annarra. Ég fjalla um hvernig stöðug þörf fyrir samþykki annarra getur veikt trú okkar á eigin gildi og leitt til þess að við setjum okkar eigin þarfir til hliðar. Þú lærir að veita þér sjálfssamþykki og hvernig það getur styrkt sjálfsmynd þína og hjálpað þér að lifa í meiri samræmi við eigin gildi....
252. Ekki gefast upp 08.10.2025 15:29
Í þessum þætti ræðum við hvað það þýðir að gefast ekki upp. Það er ekki gáfur né hæfileikar sem ráða úrslitum heldur staðfestan til að halda áfram. Þú færð hagnýt ráð sem hjálpa þér að styrkja þína eigin staðfestu-svo þú gefist síður upp þegar hindranir banka upp á. LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- BIÐLISTI Nú er LOKAÐ fyrir skráningar í LMLP prógrammið . Skráðu þig á biðlista og við látum þig vit...
251. 12 vikna planið 01.10.2025 19:07
Í þættinum ræði ég hugmyndafræðina á bak við 12 vikna planið – og hvernig við getum skapað meiri árangur en við teljum mögulegt í dag. Ég tengi þetta við Vítahring sjálfsniðurrifs og vinnustofuna Leyfðu þér að skína og deili jafnframt hvernig ég er sjálf að skrásetja mína eigin vegferð inni í LMLP prógramminu, svo konurnar geti fylgst með, lært og tekið þátt í ferlinu með mér. LOKAÐ FYRIR SKRÁNI...
250. Samband okkar við peninga 24.09.2025 29:10
Í þessum þætti talar Linda um tengsl peninga og sjálfsmyndar. Hún útskýrir hvernig sjálfsmyndin mótar hegðun okkar í fjármálum og hvaða áhrif hún hefur á hvernig okkur líður gagnvart peningum. Þáttur fyrir alla sem vilja bæta fjármálavitund sína og skapa jákvætt samband við peninga -og líða vel með það. LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- BIÐLISTI Nú er LOKAÐ fyrir skráningar í LMLP prógrammið . Skráðu...
249. 10 lífslexíur 17.09.2025 27:35
Í þessum þætti fer ég yfir 10 lífslexíur sem geta breytt því hvernig þú hugsar um sjálfa þig, lífið og framtíðina. Við ræðum sjálfsmynd, hugsanir, mistök, tilfinningalegan þroska, peninga, áhrifa hringinn þinn og hugrekkið sem þarf til að taka ákvarðanir á eigin forsendum. Þessar lexíur eru lykillinn að því að skapa líf sem endurspeglar hver þú vilt í raun vera. LOKAÐ FYRIR SKRÁNINGAR Í LMLP- BIÐL...
248. Vöxtur - Pallborðsumræður LMLP kvenna 10.09.2025 1:34:39
Í þessum þætti deila konur reynslu sinni af því að breyta sjálfsmynd sinni og ná langtíma árangri í lífi sínu. Þær segja frá því hvernig þær fóru frá því að upplifa sig flata yfir í ómótstæðilega, frá að vera stopp í óstöðvandi og leið í framúrskarandi. Þessar konur hafa allar gengið í gegnum umbreytandi ferli í LMLP prógramminu, sem hefur gefið þeim verkfæri og stuðning til að skapa nýtt líf. Þær...
247. Eftirsjá 03.09.2025 15:09
Þessi þáttur snýst um eftirsjá – eina sterkustu tilfinninguna sem heldur þér fastri í vítahring. Ég kenni þér hvernig þú getur breytt hugsunum þínum, gripið tækifærin, stigið út úr vítahringnum og byrjað að lifa lífinu á þínum forsendum – án afsakanna. → Má bjóða þér á örnámskeiðið „Lifðu án afsakana" með Lindu Pé? Taktu þátt fimmtudagskvöldið 4. september 2025, og þú lærir aðferð sem getur hjálpa...
246. Gerðu það sem þú ætlar að gera! 27.08.2025 21:13
Hefur þú verið í þeim sporum að vita upp á hár hvað þú átt að gera til að ná markmiðum þínum, en gerir það samt ekki? Í þessum þætti ræðir Linda um algengar ástæður þess að við framkvæmum ekki það sem við vitum að við þurfum að gera. Hún útskýrir hvernig vani, ótti og hugrænar hindranir geta staðið í vegi fyrir okkur og gefur leiðir til að brjóta upp mynstur og komast í virkni. Þáttur fyrir alla s...
245. 7 sjálfsræktarvenjur afreksfólks 20.08.2025 24:43
Í þessum þætti fer ég yfir 7 sjálfsræktarvenjur sem einkenna afreksfólk sem nær háum árangri án þess að brenna út. Þetta eru einföld, en áhrifarík dagleg skref sem hjálpa þér að vernda andlega orku, forgangsraða hvíld, setja mörk og halda skýrri stefnu. Þegar þú tileinkar þér þessar venjur verður auðveldara að lifa í jafnvægi, með meiri orku og árangri í bæði lífi og starfi. Hér að neðan eru upplý...
244. Grænt ljós 13.08.2025 17:26
Í þessum þætti talar Linda um frelsið sem fylgir því að hætta að bíða eftir að aðrir gefi okkur grænt ljós – og gefa okkur það sjálfar. Að við megum skipta um skoðun, breyta um stefnu, snúa við eða hætta við – án þess að biðja um leyfi. Þátturinn er hugleiðing um þann kraft sem kviknar þegar við veljum að standa með okkur sjálfum – óháð því hvað öðrum finnst. Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️ ...
243. Hótanir eða mörk í samböndum? 06.08.2025 26:25
Í þessum þætti útskýrir Linda muninn á því að hóta og að setja mörk og kennir hvernig hægt er að sleppa stjórn og minnka óþarfa spennu í samböndum. Hún fjallar einnig um skilyrðislausa ást og mikilvægi þess að taka ábyrgð á eigin viðbrögðum. Þáttur fyrir alla sem vilja bæta og dýpka samböndin í lífi sínu. Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️ INSTAGRAM ➡️ FACEBOOK ➡️ TAKTU SKREFIÐ FB GRÚPPA ➡️ HEIM...
242. Út af sporinu 02.07.2025 12:55
Ferðu stundum út af sporinu þegar þér líður illa? Þreyta og efi geta látið okkur gleyma markmiðum okkar og stefnu – en tilfinningar eru ekki staðreyndir. Í þessum þætti líkir Linda vegferðinni við bát í stormi og hvað þú getur gert til að komast á leiðarenda. Og lært að halda þig við áætlun þína, líka þegar það er erfitt. Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️ INSTAGRAM ➡️ FACEBOOK ➡️ TAKTU SKREFIÐ...
241. Fínstilling á miðju ári (Masterclass) 26.06.2025 10:16
Aukaþáttur! Nú þegar árið er hálfnað er fullkominn tími til að taka stöðuna á markmiðunum sem þú settir þér í upphafi árs og fínstilla þau. Ef þú byrjaðir árið með skýra sýn og markmið — en finnur að fókusinn hefur dvínað — þá er þessi masterclass fyrir þig. Þér er boðið á masterclass: Fínstilling á miðju ári á sunnudaginn kemur 29. júní. SMELLTU HÉR fyrir nánari upplýsingar og skrá þig, ókeypis!...
240. 8 atriði sem ég geri fyrir framtíðina (Þáttur 2 af 2) 25.06.2025 23:42
Framtíðin mótast ekki bara sjálfkrafa. Hún mótast af því sem við veljum að hugsa, gera og forgangsraða – dag eftir dag. Í þessari tveggja þátta röð ætla ég að deila með þér átta atriðum sem ég sjálf geri í dag – meðvitað og af ásetningi – til að lifa þannig að ég sjái ekki eftir neinu seinna meir. Þetta eru daglegar skuldbindingar, venjur og viðhorf sem styðja framtíð mína. Í þessum síðari þætti...
239. 8 atriði sem ég geri fyrir framtíðina (þáttur 1 af 2) 18.06.2025 25:00
Framtíðin mótast ekki bara sjálfkrafa. Hún mótast af því sem við veljum að hugsa, gera og forgangsraða – dag eftir dag. Í þessari tveggja þátta röð ætla ég að deila með þér átta atriðum sem ég sjálf geri í dag – meðvitað og af ásetningi – til að lifa þannig að ég sjái ekki eftir neinu seinna meir. Þetta eru daglegar skuldbindingar, venjur og viðhorf sem styðja framtíð mína. Í þessum fyrri þætti f...
238. Sjálfsmyndin: Sterkasta verkfærið 11.06.2025 18:48
„Hver ertu, þegar öll hlutverk, titlar og væntingar samfélagsins eru tekin burt?" Sjálfsmyndin er hvernig þú sérð sjálfa þig – og það hefur áhrif á allt í lífi þínu. Í þessum þætti, sem er upptaka úr LMLP prógramminu, förum við yfir fjórar stoðir sjálfsmyndar, framtíðarsjálfið þitt og hvernig þú getur endurmótað sjálfsmyndina til að lifa lífi sem þú elskar. Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️ IN...
237. Viltu læra lífsþjálfun? 04.06.2025 26:22
Í þessum þætti svara ég spurningum sem flestir spyrja áður en þeir skrá sig í Lífsþjálfaskólann. Þarf ég að vita fyrirfram nákvæmlega hvernig ég ætla að nýta námið? Er þetta bara fyrir fólk sem vill verða lífsþjálfar? Get ég nýtt námið í öðru starfi? Hvað ef ég er í fullri vinnu – eða efast um sjálfa mig? Ef lífsþjálfun vekur áhuga þinn… þá viltu hlusta. Ath. Nú er OPIÐ fyrir skráningar í nám í...
236. Læddist með veggjum → útskrifaður lífsþjálfi 28.05.2025 51:02
Til mín eru mættar þær Margrét og Ninný, nýútskrifaðir lífsþjálfar úr Lífsþjálfaskólanum. Þær deila reynslu sinni frá fyrstu skrefum í LMLP-prógramminu og áfram í námið sem mótaði bæði sýn þeirra og sjálfstraust. Þær segja frá því hvað kveikti löngunina til að verða lífsþjálfar, hvernig þær vildu læra að sitja vel í sjálfum sér, hvað kom þeim mest á óvart í náminu – og hvernig þær ætla að nýta þe...
235. 18 ára aldursmunur 21.05.2025 28:08
Átján ára aldursmunur í ástarsambandi, vinaslit og margt fleira áhugavert í þessum þætti þar sem Linda talar opinskátt um sambönd, fordóma, breytingar og hvernig sumir vinir þola illa velgengni annarra. Þessi þáttur er einlægur, persónulegur og gefur þér hugrekki til að standa með sjálfri þér og velja þína eigin leið. Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️ INSTAGRAM ➡️ FACEBOOK ➡️ TAKTU SKREFIÐ FB G...
234. Einkaflugvél til Cannes 14.05.2025 22:14
Komdu með á bakvið tjöldin á „Framúrskarandi ráðstefnunni" í Cannes, þar sem ýmislegt óvænt gerðist á síðustu stundu – allt frá rafmagnsleysi í Portúgal yfir í að leigja einkaflugvél. Ég ræði mikilvægi þess að taka 100% ábyrgð á lífi sínu, hætta að kvarta og velja frekar lausnir, auk þess sem ég deili reynslu minni af því að vinna náið með kærastanum mínum. Þetta er þáttur um ábyrgð og hugrekki ti...
233. Ráð og innblástur 07.05.2025 29:47
Í þessum þætti svarar Linda fjölbreyttum og persónulegum spurningum – allt frá því hvernig best er að pakka niður fyrir ferðalag, yfir í hvernig við getum lært að stjórna streitu, setja heilbrigð mörk og hækka viðmið okkar í daglegu lífi. Þáttur stútfullur af hagnýtum ráðum og innblæstri. Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️ INSTAGRAM ➡️ FACEBOOK ➡️ TAKTU SKREFIÐ FB GRÚPPA ➡️ HEIMASÍÐA ✔️ LÍ...
232. 6 framúrskarandi konur 04.05.2025 12:41
FRAMÚRSKARANDI KONAN 2025 Í viðtali í þessum þætti eru 6 konur sem allar fengu viðurkenningu fyrir að vera fyrirmyndir LMLP. Hlustaðu á hvað þær hafa að segja. Þetta er upptaka af Instagram live. P.s Nú er OPIÐ fyrir skráningar í LMLP prógrammið, en aðeins í 48 klst! www.lindape.com/lmlp Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️ INSTAGRAM ➡️ FACEBOOK ➡️ TAKTU SKREFIÐ FB GRÚPPA ➡️ HEIMASÍÐA ✔️ LÍF...
231. Ég get þetta 30.04.2025 38:38
Ásta Hrönn Harðardóttir er í viðtali í þættinum. Hún talar um þá umbreytingu sem hún hefur upplifað frá því hún kom fyrst í LMLP prógrammið og nú þegar hún hefur útskrifast sem lífsþjálfi frá Lífsþjálfaskólanum. Hún fór frá því að hafa lágt sjálfstraust í að trúa því að hún geti allt sem hún ætlar sér. Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️ INSTAGRAM ➡️ FACEBOOK ➡️ TAKTU SKREFIÐ FB GRÚPPA ➡️ HEIMA...
230. Bíðurðu eftir samþykki annarra? 23.04.2025 21:05
Bíðurðu enn eftir samþykki annarra til að breyta lífi þínu? Þessi þáttur snýst um hugrekkið sem þarf til að stíga inn í óvissuna, gera eitthvað nýtt – og skilja að óþægindi eru oft gjaldmiðill drauma okkar. Fylgdu Lindu á samfélagsmiðlum. ➡️ INSTAGRAM ➡️ FACEBOOK ➡️ TAKTU SKREFIÐ FB GRÚPPA ➡️ HEIMASÍÐA ✔️ LÍFSÞJÁLFASKÓLINN ✔️LMLP PRÓGRAMMIÐ ✔️ VIÐSKIPTA MASTERMIND ✔️ MASTERCLASS PAKKAR ✔️...
229. Þyngdarvesti 16.04.2025 15:33
Hvað er þyngdarvesti og hvernig getur það styrkt líkama kvenna á breytingaskeiði? Í þessum þætti deili ég hvernig þessi einfalda viðbót sem ég hef sjálf bætt við heilsurútínuna mína getur haft jákvæð áhrif á beinheilsu, vöðvamassa, líkamsstöðu og jafnvægi. Hlustaðu og fáðu hagnýt ráð og leiðbeiningar Í þættinum sagðist ég ætla að deila með ykkur hlekk til að versla omega-3 olíuna sem ég tek sjál...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.