Iðan fræðsluetur

Hlaðvarp Iðunnar

Hlaðvarp Iðunnar er fyrir fagfólk í iðnaði og þá sem hafa áhuga á að auka þekkingu sína á sviði iðngreina. Tekin eru viðtöl við sérfræðinga, kennara og fólk úr atvinnulífinu sem miðla þekkingu sinni og vekja áhuga á möguleikum starfsmenntunar og framþróunar innan iðnaðarins.

Author

Iðan fræðsluetur

Category

Education

Podcast website

idanhladvarp.podbean.com

Latest episode

Feb 12, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Lilja Diljá Ómarsdóttir - nýsveinn í vélvirkjun 12.02.2026

Lilja Diljá Ómarsdóttir er nýsveinn í vélvirkjun og nýkomin úr krefjandi en skemmtilegu starfsnámi í Essen í Þýskalandi. Hún segir frá ævintýrum sínum í nýjasta hlaðvarpi Ævintýra í Evrópu.

Hlaðvarp Iðunnar - Serious Play Þitt sanna sjálf 17.12.2025

Á nýju ári leiðum við oft hugann að því sem við getum bætt í eigin fari. Þríeykið Patricia Anna Þormar, Silja Lind Haraldsdóttir og Valý Ágústa Þórsteinsdóttir standa að fyrirtækinu Serious Play Iceland og verða með námskeið hjá Iðunni sem kallast Vegvísir að árangri. Á þessu námskeiði fær fólk tækifæri til vaxtar og breytinga en markmið þess er að þátttakendur öðlist djúpan skilning á eigin færni...

Luiz Lobo og Helen Gray ræddum um tækifæri fyrirtækja sem taka þátt í alþjóðlegu samstarfi. 17.12.2025

Luiz Lobo, margverðlaunaður fréttamaður er gestur Helen Gray í nýjasta þætti hlaðvarpsins Mobility Without Borders.

Öflugur verkstjóri gerir góðan vinnustað enn betri 02.10.2025
Hlaðvarp Iðunnar - Stefnumót um símenntun 07.05.2025

Velkomin í þennan sérstaka hlaðvarpsþátt sem var tekinn upp í Reykjavík í tengslum við undirbúningsheimsókn Nordplus. Að þessu sinni fengum við til liðs við okkur Bo Erik Strömback, Josefin Born Nilson, Martin Nielsen og Jytte Eikenes til að ræða framtíð símenntunar á Norðurlöndum. Við veltum fyrir okkur nýjustu straumum og tækifærum í starfsþróun, áhrifum stafrænnar umbreytingar, hlutverki örviðu...

Hlaðvarp Iðunnar – Ævintýri í Evrópu með Erasmus+ 07.05.2025

Ólöf Ólafsdóttir, konditor, og Andrea Ylfa Guðrúnardóttir, matreiðslunemi og framreiðslumeistari, spjalla um ástríðuna sína fyrir eftirréttum og hvernig Erasmus+ námsmannaskipti hafa hjálpað þeim að elta draumana.

Prentást - Best að þróa vörur og þjónustu með viðskiptavininum 29.01.2025

Best að þróa vörur og þjónustu með viðskiptavininum  „Að þróa og búa til vöru og þjónustu í samstarfi við viðskiptavininn er áhrifamesta markaðsstarf sem hægt er að vinna,“ segir Abel Sanchéz sérfræðingur hjá HP í spjalli við Kristjönu Guðbrandsdóttur leiðtoga prent- og miðlunarsviðs í nýjasta hlaðvarpi Iðunnar. Abel er þrautreyndur sérfræðingu og með rúmlega 15 ára reynslu af fjárfestingum í  hön...

Bókaást - Fólk segist ekki nenna að eiga bækur á heimilinu 22.01.2025

Bóksala er alltaf að dragast saman, forsendan fyrir því að bókamenning þrífist er að fólk kaupi bækur,“ segir Ragnheiður Jónsdóttir rithöfundur sem skaust fram á sjónarsviðið 2023 með frumraun sína Blóðmjólk og hlaut fyrir hana glæpasöguverðlaunin Svartfuglinn.  Fyrir jól gaf hún út sína aðra bók; Svikaslóð sem hlaut afar góðar viðtökur. Ragnheiður kom í spjall til Kristjönu Guðbrandsdóttur í hlað...

Bókaást - Bókabúðin er líka félagsmiðstöð og bar 11.12.2024

Dögg Hjaltalín og Anna Lea Friðriksdóttir, eigendur Sölku útgáfu og bókabúðar á Hverfisgötu, áttu lausar örfáar mínútur til að spjalla við Kristjönu Guðbrandsdóttur í hlaðvarpinu Bókaást á milli þess sem þær vöktuðu skipasiglingar með jólabækur í símanum. „Líf bóksala er ekki á línulegum tíma,“ útskýrir Anna Lea. Þær Dögg og Anna Lea eru líkega með uppteknari bóksölum landsins. Þær ritstýra bókum...

Bókaást - Eru grafískir skandalar í jólabókaflóðinu? (Hlaðvarp) 06.12.2024

Ólafur Stolzenwald sölu- og markaðsstjóri prentsmiðjunnar Litróf og Eyjólfur Jónsson umbrotsmaður skoða bækur jólabókaflóðsins með Kristjönu Guðbrandsdóttur með augum fagmanna í nýjasta þætti hlaðvarps Iðunnar- Bókaást. Hvaða bókakápur skara fram úr og af hverju? Hvaða tískustrauma er hægt að greina og hvaða reglur eru hönnuðir að leika sér að því að brjóta? Kiljur, saurblöð, vandað umbrot og staf...

Bókaást - Bókin um Óla K 05.12.2024

Ekki gera sér allir grein fyrir því hvað hönnun og umbrot bóka er persónulegt ferli. Kjartan Hreinsson grafískur hönnuður og ljósmyndari lýsir vinnu sinni við bókina Óli K sem mögnuðu ferðalagi. Ferðalagi sem hófst á táknrænan hátt á flugsýningu í Reykjavík þar sem Kjartan rakst á höfund bókarinnar, sagnfræðinginn Önnu Dröfn Ágústsdóttur. Brautryðjandinn og blaðaljósmyndarinn Óli K var nefnilega f...

Ólöf Ólafsdóttir Konditor og eftirréttameistari 01.11.2024

Viðmælandinn að þessu sinni er Ólöf Ólafsdóttir, einn fremsti eftirréttakokkur landsins. Ólöf útskrifaðist sem Konditor frá ZBC Ringsted í Danmörk árið 2021 og sama ár bar hún sigur úr býtum í keppni um eftirrétt ársins. Ólöf fór með íslenska kokkalandsliðinu á Ólympíuleikana í Stuttgart í febrúar síðastliðnum þar sem liðið hlaut tvenn gullverðlaun og hafnaði í þriðja sæti. Ólöf gaf út bókina „Ómó...

Loftgæðamælingar innanhúss 28.10.2024

Heiðar Karlsson segir okkur frá loftgæðum innanhúss og hvernig er hægt að gera innivist betri. Heiðar er framkvæmdastjóri VISTA verkfræðistofu en VISTA sérhæfir sig í allskonar mælingum, þar á meðal loftgæðamælingum.

Maí er mánuður nýsköpunar á Íslandi 10.05.2024

Edda Konráðsdóttir framkvæmdastjóri og einn stofnenda Iceland Innovation Week er viðmælandi okkar í Augnablik í iðnaði. Hún segir frá dagskránni í ár sem er mjög viðamikil. Von er á metfjölda fjárfesta á viðburðinn í ár sem fer fram 14.-16.maí í Kolaportinu og er haldin í fimmta sinn. Hvert ár hafa Edda og hennar teymi aðlagað sig að aðstæðum í samfélaginu hverju sinni. Edda segir frá reynslu sinn...

Fræðslustjóri að láni, með Guðrúnu Blandon mannauðsstjóra VHE 15.04.2024

VHE fór því nýlega í gegnum verkefnið Fræðslustjóri að láni. „Helstu markmið með verkefninu var að fá heildaryfirsýn yfir fræðsluþörfina og skipuleggja fræðslustarf framtíðarinnar“ segir Guðrún Blandon mannauðsstjóri. Hún mælir aukna starfsánægju hjá starfsfólki sem hún vill tengja beint við verkefnið. Þetta og margt fleira í þessu fræðandi og skemmtilega spjalli

Erasmus+ ævintýri í Tallin, með Ástrósu Elísu Eyþórsdóttur bakara hjá Bláa lóninu 03.04.2024

Við útskrift úr bakaraiðn fann Ástrós fyrir faglegri þreytu og langaði í nýja reynslu sem myndi styrkja hana sem fagmann. Hún kynnti sér því Erasmus+ fyrir nýsveina og setti stefnuna á Kaupmannahöfn. Málin þróuðust þó þannig að hún endaði á því að fara til Tallin í Eistlandi og sér ekki eftir þeirri ákvörðun. Helen Gray leiðtogi alþjóðaverkefna hjá Iðunni spjallar hér við Ástrósu um reynsluna af þ...

Fræðslumál hjá Samkaupum, með Guðna Erlendssyni mannauðsstjóra 22.03.2024

Eva Karen Þórðardóttir hjá Effect ræðir hér við Guðna Erlendsson mannauðsstjóra Samkaupa. Mikil saga og menning er fyrir fræðslu hjá Samkaupum. Kaupmannsskólinn var rekinn eins og hefðbundinn skóli með staðbundnum námskeiðum sem nú hafa verið færð mikið til yfir í rafræna fræðslu. Covid hjálpaði til við að ýta undir umbreytinguna þó að vissulega hafi sú vinna verið hafin áður. Guðni segir Samkaup...

Fræðslumál hjá Isavia, með Gerði Pétursdóttur fræðslustjóra 15.03.2024

Alþjóðaflugvöllurinn í Keflavík fær til sín margar milljónir gesta ár hvert. Það kallar á að starfsfólk viti nákvæmleg til hvers er ætlast af því og hlotið viðeigandi þjálfun. Gerður Pétursdóttir fræðslustjóri Isavia er hér í skemmtilegu og fræðandi spjalli en hún hefur ásamt öflugu teymi byggt upp Isavia skólann síðan árið 2016.

Tilskipun ESB um upplýsingagjöf í sjálfbærni, með Jennifer Schwalbenberg lögfræðingi 22.02.2024

Ásgeir Valur Einarsson leiðtogi sjálfbærnimála hjá Iðunni ræðir hér við Jennifer Schwalbenberg lögfræðing um tilskipun ESB um sjálfbærniupplýsingagjöf og hvernnig hún á eftir að hafa áhrif á lítil og meðalstór fyrirtæki. Upplýsingagjöf í sjálfbærni felur í sér hvernig við komum á framfæri þeim upplýsingum sem við erum að safna um sjálfbærniþætti og tilgreinir þau markmið og stefnur sem settar eru...

Starfsemi Tækniseturs og nýsköpun, með Guðbjörgu H. Óskarsdóttur framkvæmdastjóra Tækniseturs 21.02.2024

Guðbjörg Hrönn Óskarsdóttir framkvæmdastjóri Tækniseturs er hér í afar fróðlegu spjalli við Kristjönu Guðbrandsdóttur leiðtoga nýsköpunar hjá Iðunni. Tæknisetur byggir á fjögurra áratuga reynslu á sviði efnistækni, lífvísinda og orkumála. Það er öflugur samstarfsaðili í hagnýtum rannsóknar og þróunarverkefnum og býr yfir sérhæfðum búnaði og aðstöðu sem er gagnast sprotafyrirtækjum á sviði hátækni.

Umferðaröryggi, með Ólafi Guðmundssyni sérfræðingi í umferðaröryggismálum 09.02.2024

Ólafur Guðmundsson sérfræðingur í umferðaröryggismálum er hér í fróðlegu spjalli um umferðaröryggi, innviði og bifreiðar. Þeir Sigurður Svavar Indriðason, leiðtogi bílgreina hjá Iðunni, fara m.a. yfir hvað er vel gert í þeim efnum og hvað má betur fara.

Fræðslumál hjá Vatnajökulsþjóðgarði, með Ragnheiði Björgvinsdóttur mannauðsstjóra 02.02.2024

Ragnheiður Björgvinsdóttir er hér í léttu og skemmtilegu spjalli við Evu Karen Þórðardóttur um fræðslumál hjá Vatnajökulsþjóðgarði. Vatnajökulsþjóðgarður er stærsti þjóðgarður í vestur Evrópu og nær yfir 15% af Íslandi. Þjóðgarðurinn nær til átta sveitafélaga. Um 50 starfsmenn starfa við þjóðgarðinn allan ársins hring. Sumarið er svo mjög annasamur tími með 120 starfsmenn, sem dreifast út um allt...

Ævintýri í Evrópu í gegnum Erasmus+, með Ingu Birnu Antonsdóttur hjá Iðunni 26.01.2024

Inga Birna Antonsdóttir alþjóðafulltrúi hjá Iðunni er hér í skemmtilegu spjalli um möguleika Erasmus+ styrkjakerfinsins sem er ætlað að auka möguleika á skiptinámi og lærdómi erlendis í gegnum Erasmus+.

Sketchup, með Birni Jóhannssyni landslagsarkitekt hjá Urban Beat Design 16.01.2024

Hér spjalla þeir Óskar Grétarsson leiðtogi málm- og véltæknigreina hjá Iðunni og Björn Jóhannsson landslagsarkitekt um notkunarmöguleika SketchUp forritsins fyrir iðnaðinn. Þeir fjalla sérstaklega um námskeið sem Björn heldur hjá Iðunni þar sem farið er í grunninn á forritinu, Sketchup pro og Layout og Twinmotion og sýndarveruleika. Sérstakar vinnubúðir eru einnig í boði þar sem fólk getur unnið a...

Fræðslukerfi fyrir fyrirtæki, með Sóloni Guðmundssyni eiganda Avia 18.12.2023

Það er að mörgu að hyggja þegar velja á fræðslukerfi fyrirtækja. Eitt er að velja rétta kerfið og hitt er að hanna og setja upp viðeigandi fræðslu sem þjónar þörfum fyrirtækisins. Sólon Guðmundsson eigandi Avia er hér í skemmtilegu og fræðandi spjalli en fyrirtæki hans sérhæfir sig í hönnun fræðslukerfis sem og framleiðslu á efni inn í kerfið.

Listen to the Hlaðvarp Iðunnar podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.