Iðan fræðsluetur
Hlaðvarp Iðunnar
Hlaðvarp Iðunnar er fyrir fagfólk í iðnaði og þá sem hafa áhuga á að auka þekkingu sína á sviði iðngreina. Tekin eru viðtöl við sérfræðinga, kennara og fólk úr atvinnulífinu sem miðla þekkingu sinni og vekja áhuga á möguleikum starfsmenntunar og framþróunar innan iðnaðarins.
Author
Iðan fræðsluetur
Category
Podcast website
Latest episode
Feb 12, 2026
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Rafvæðing stærri bíla, með Agli Jóhannssyni forstjóra Brimborgar 12.12.2023 41:47
Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar er hér í skemmtilegu og fróðlegu spjalli um rafvæðingu stærri bíla bæði með tilliti til stöðunnar í dag en einnig þá möguleika sem framtíðin býr yfir. Sigurður Svavar Indirðason, leiðtogi bílgreina hjá Iðunni stýrir þættinum.
Erno Viitanen from Stadin AO in Finland 06.12.2023 13:29
In this episode we learn about the Finnish impression on the Icelandic workplace, vocational educational systems, and the importance of international collaboration. Helen Gray, leader of international projects at Iðan talks to Erno who visited us through Erasmus+
Fræðslugreiningar í fyrirtækjum, með Evu Karen Þórðardóttur eiganda Effect 20.11.2023 31:07
Eva Karen Þórðardóttir eigandi Effect hefur þróað verkfæri sem greinir hæfni starfsfólks og skilar persónulegri fræðsluáætlun til fyrirtækis, niður á hvern starfsmann. Þannig fæst betri yfirsýn yfir hæfnigatið sem liggur innan fyrirtækisins. Starfsfólk sér þá hvar það er statt og hvar það stendur miðað við sitt teymi. Þarna er því verkfæri til að sjá betur hvar hver og einn stendur. Starfsfólk get...
Filmun og húðun bíla, með Hjalta Halldórssyni bifreiðasmið hjá HS bílaréttingum og sprautun 09.11.2023 29:33
Hjalti Halldórsson er bifreiðasmiður og einn af tveimur eigendum HS bílaréttingar og sprautun. Hann er hér í fróðlegu viðtali við Sigurð Svavar Indriðason, leiðtoga bílgreina hjá Iðunni um filmun og húðun á lakk bifreiða.
Tim Schaumburg from Kassel in Germany 02.11.2023 16:31
"Mobility Beyond Borders" explores workplace culture, vocational education, and workplace inclusion with insights from Tim Schaumburg, a German public administration intern.
Gervigreind í sjálfvirknivæðingu véla, með Sindra Ólafssyni tæknistjóra gervigreindar hjá Marel 26.10.2023 29:52
Sindri Ólafsson verkfræðingur er tæknistjóri gervigreindar hjá Marel. Hann er hér í skemmtilegu og fróðlegu spjalli við Kristjönu Guðbrandsdóttur leiðtoga nýsköpunar hjá Iðunni um starfið og helstu áskoranir framtíðarinnar.
Nýtt ráðuneyti og starfsmannamál, með Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, ráðherra 04.10.2023 44:28
Í tilefni mannauðsdagsins 6. október 2023 ræddi Íris Sigtryggsdóttir við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Þær ræddu um þær áskoranir sem Áslaug Arna stóð frammi fyrir við myndun nýs ráðuneytis á gerbreyttum grunni. Áslaug Arna ræddi sérstaklega um hvernig hún stýrir starfsmannamálum í sínu ráðuneyti, leggur áherslu á að byggja upp sterka vinnumenningu og ve...
Rekstur prentsmiðju á Egilsstöðum, með Gunnhildi Ingvarsdóttur eiganda Héraðsprents 19.07.2023 23:09
Hjónin Gunnhildur Ingvarsdóttir og Þráinn Skarphéðinsson hafa rekið Héraðsprent í rúm 50 ár. Gunnhildur er hér í afar skemmtilegu og fræðandi viðtali við Kristjönu Guðbrandsdóttur, leiðtoga prent- og miðlunar hjá Iðunni, um rekstur og þróun prentsmiðjunnar.
Ungt fólk í iðnaði, með Margréti Arnarsdóttur formanni IÐN-UNG 13.07.2023 24:21
Margrét Arnarsdóttir rafvirki og formaður IÐN-UNG segir mikilvægt að hlusta á raddir ungs fólks í iðnaði. Margrét er hér í skemmtilegu og fróðlegu spjalli um IÐN-UNG, hlutverk þess og framtíðarplön.
Námið í matvælagreinum við MK, með Baldri Sæmundssyni mat- og framreiðslumeistara og kennara við MK 29.06.2023 30:46
Hér er á ferðinni fjórði þáttur í röð hlaðvarpa sem eru lokaverkefni þeirra Dóru Svavarsdóttur og Þyrnis Hálfdánarsonar matreiðslumeistara og nema við Menntavísindasvið HÍ. Þættina unnu þau í samvinnu við Iðuna og fjalla um matreiðslunám, þá, nú og um alla framtíð. Fjórði þátturinn fjallar um námið í matvælagreinum í MK
Vaxtasprotar Orkuveitu Reykjavíkur, með Ellen Ýr Aðalsteinsdóttur framkvæmdastýru mannauðs OR 14.06.2023 32:16
Orkuveita Reykjavíkur hlaut verðlaunin Menntasproti atvinnulífsins 2023 fyrir verkefnið Vaxtasproti OR. Verkfnið hefur verið í gangi í 3 ár en upphaflega var farið af stað með það til að hafa áhrif á menninguna og það má með sanni segja að það hafi tekist. Ellen Ýr bendir á að þeir aðilar sem hafa farið í gengum prógrammið eru sannkallaðir kyndilberar nýrra tíma og hafa áhrif beint inn á sín starf...
Upplýsingagjöf í sjálfbærni, með Snjólaugu Ólafsdóttur sviðstjóra hjá Ernst & Young 30.05.2023 20:20
Upplýsingagjöf í sjálfbærni felur í sér hvernig við komum á framfæri þeim upplýsingum sem við erum að safna um sjálfbærniþætti og tilgreinir þau markmið og stefnur sem settar eru varðandi m.a. kolefnisspor, loftlagsmál og starfsmannastefnu. Hér spjallar Ásgeir Valur Einarsson leiðtogi sjálfbærni hjá Iðunni við Snjólaugu Ólafsdóttur sviðstjóra sjálfbærniráðgjafar hjá Ernst & Young.
Þrengt að blaðaljósmyndun, með Vilhelm Gunnarssyni blaðaljósmyndara 10.05.2023 32:09
Vilhelm Gunnarsson ljósmyndari ræðir um framtíð blaðaljósmyndunar og minnkandi aðgengi ljósmyndara að því að skrá söguna. Það sé hætta á því að lítið sé myndað af daglegu lífi fólks nú þegar Fréttablaðið er horfið af vettvangi. Hann ræðir einnig sannar og ósannar myndir, gervigreind og það sem stóð upp úr á liðnu ári í ljósmyndun.
Kennslufræði fyrir iðnmeistara, með Elsu Eiríksdóttur dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands 25.04.2023 26:12
Háskóli Íslands býður upp á nám í kennsluréttindum sérhannað að þeim sem eru að fara að kenna starfsgrein í framhaldsskóla. Um er að ræða 60 eininga diplómanám á grunnstigi og geta þátttakendur sótt um leyfisbréf að hjá Menntamálastofnun að því loknu. Leyfisbréfið gildir í leik,- grunn- og framhaldsskóla.
Staðlar eru ferskvara, með Helgu Sigrúnu Harðardóttur framkvæmdastjóra Staðlaráðs 19.04.2023 46:21
Staðlar eru allt í kringum okkur án þess að við höfum endilega hugmynd um það. Þeir fjalla um allt milli himins og jarðar og geta verið alþjóðlegir, evrópskir, íslenskir, danskir eða tilheyrt einstökum atvinnugreinum. Helga segir það enga tilviljun að kreditkortin okkar eða snjallgreiðslur virka alls staðar í heiminum, að snjalltækin okkar geta talað saman, að metrinn er alls staðar jafn langur og...
Þrívíddarprentun, með Þórdísi Björgvinsdóttur og Ágústi Bjarkarsyni hjá 3D Verk 03.04.2023 28:18
Þórdís Björgvinsdóttir og Ágúst Bjarkarson reka fyrirtækið 3D verk og þó að það sé frekar nýtt af nálinni er nóg að gera hjá þeim. Í þessu fróðelga og skemmtilega spjalli fræða þau okkur um hvernig hægt er að nota þrívíddarprentun í íslenskum iðnaði og hverjir eru möguleikar og kostir við slíka notkun.
Formleg menntun matreiðslumanna á Íslandi, með Kristjáni Sæmundssyni matreiðslumeistara 23.03.2023 31:31
Hér er á ferðinni annar þáttur í röð hlaðvarpa sem eru lokaverkefni þeirra Dóru Svavarsdóttur og Þyrnis Hálfdánarsonar matreiðslumeistara og nema við Menntavísindasvið HÍ. Þættina unnu þau í samvinnu við Iðuna og fjalla um matreiðslunám, þá, nú og um alla framtíð. Annar þátturinn fjallar um formlega menntun matreiðslumanna á Íslandi
Gervigreind og ástandskoðun búnaðar, með Jóhannesi Kristjánssyni þjónustustjóra hjá HD 10.03.2023 24:38
Óskar Grétarsson leiðtogi málm- og véltæknigreina hjá Iðunni spjallar hér við Jóhannes Steinar Kristjánsson þjónustustjóra HD, en fyrirtækið er farið að nota gervigreind til að meta ástand á búnaði í stað þess að nota titringsmælingar.
Nýsköpun í iðnaði með Nönnu Elísu Jakobsdóttur, viðskiptastjóra á iðnaðar- og hugverkasviði SI 28.02.2023 24:42
Nanna ræðir hér um mikilvægi nýsköpunar í íslenskum iðnaði, stuðning stjórnvalda og sýn Samtaka iðnaðarins á framtíðina. Fjárfesting í rannsóknum og þróun og sérfræðiþekkingu er lykill að aukinni nýsköpun í íslensku atvinnulífi.
Hugverk og einkaleyfi, með Magneu Lillý Friðgeirsdóttur og Eiríki Sigurðssyni hjá Hugverkastofu 23.02.2023 19:22
Hugverk eru hugmyndir sem búið er að útfæra og eru verðmætar fyrir vöxt og velgengni fyrirtækja. Með því að vernda hugmyndirnar og nýta sér kosti markaðsetningar tengja viðskiptavinir vörumerki eða hönnun við t.d. vöruverð, gæði og góða þjónustu og skapa þannig traust til fyrirtækisins. Hér er á ferðinni mjög fróðlegt spjall um hugverk og einkaleyfi.
Saga veitingareksturs og matreiðslu á Íslandi, með Nönnu Rögnvaldardóttur 20.02.2023 25:41
Hér er á ferðinni fyrsti þáttur í röð hlaðvarpa sem eru lokaverkefni þeirra Dóru Svavarsdóttur og Þyrnis Hálfdánarsonar matreiðslumeistara og nema við Menntavísindasvið HÍ. Þættina unnu þau í samvinnu við Iðuna og fjalla um matreiðslunám, þá, nú og um alla framtíð. Fyrsta hlaðvarpið fjallar um sögu veitingareksturs og matreiðslu á Íslandi.
Alþjóðleg bókahönnunarverðlaun, með Antoni J. Illugasyni grafískum hönnuði 10.02.2023 17:11
Alþjóðleg bókahönnunarverðlaun, með Antoni J. Illugasyni grafískum hönnuði by IÐAN fræðsluetur
Umhverfisvæn framleiðsla á Metanóli, með Ómari Sigurbjörnssyni markaðsstjóra CRI 02.02.2023 21:46
Ómar Sigurbjörnsson er markaðsstjóri CRI. Hann er hér í fróðlegu spjalli um fyrirtækið sem stofnað var árið 2006 af tveimur Íslendingum og tveimur Bandaríkjamönnum sem vildi láta á það reyna að framleiða Metanol með efnahvarfi koldíoxíðs við vetni. Íslenskt hugvit sem vakið hefur heimsathygli.
Geðheilbrigðismál á vinnustöðum, með Helenu Jónsdóttur sálfræðingi hjá Mental ráðgjöf 17.01.2023 33:56
Helena Jónsdóttir sálfræðingur er hér í fróðlegu spjalli um geðheilgbriði á vinnustöðum og þann ómeðhöndlaða geðvanda sem gjarnar leiðir til kosnaðarsamra vandamála á borð við veikinda, minnkandi frmleiðni og aukna starfsmannaveltu. Þá er ótalin þjáning þeirra sem við vandann glíma og fjölskyldna þeirra. 25% af fólki þjáist af geðvanda, flestir þeirra fullorðnir og starfa á vinnumarkaði. Með því a...
Nýsköpun á vefhugbúnaði fyrir byggingariðnað, með Róberti Helgasyni framkvæmdastjóra KOT 17.01.2023 28:36
Fyrsti gestur Kristjönu í nýrri seríu um nýsköpun er Róbert Helgason framkvæmdastjóri KOT sem er íslenskt fyrirtæki sem þróar leiðandi vefhugbúnað fyrir byggingariðnað og fasteignamarkaðinn. Markmið Róberts er að bjóða upp á gagnvirka lausn sem býður upp á góða yfirsýn við sölu stærri fasteignaverkefna hér heima og á erlendum mörkuðum.
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.