Iðan fræðsluetur

Hlaðvarp Iðunnar

Hlaðvarp Iðunnar er fyrir fagfólk í iðnaði og þá sem hafa áhuga á að auka þekkingu sína á sviði iðngreina. Tekin eru viðtöl við sérfræðinga, kennara og fólk úr atvinnulífinu sem miðla þekkingu sinni og vekja áhuga á möguleikum starfsmenntunar og framþróunar innan iðnaðarins.

Author

Iðan fræðsluetur

Category

Education

Podcast website

idanhladvarp.podbean.com

Latest episode

Feb 12, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Jafnlaunavottun með Lovísu Jónsdóttur, gæðastjóra launa og jafnlaunavottunar hjá Brimborg 19.12.2022

Jafnlaunavottun er ætlað að vinna gegn kynbundnum launamun á íslenskum vinnumarkaði og stuðla þannig að jafnrétti kynjanna. Sigríður Lovísa Jónsdóttir, gæðastjóri launa og jafnlaunavottunar hjá Brimborg, er hér í fræðandi spjalli, en hún skrifaði BA ritgerð sina um jafnlaunavottun. Það sem kom á óvart var hve gagnleg vottunin er fyrir fyrirtækið ekki síður en stafsmenn þeirra.

Gæða- og öryggismál í byggingariðnaði með Eyjólfi Bjarnasyni, gæða- og öryggisstjóra Arnarhvols 07.12.2022

Eyjólfur Baranson gæða- og öryggsistjóri Arnarhvols er hér í fróðlegu og skemmtilegu spjalli um gæða- og öryggismál í byggingariðnaði. Hann telur að stundum sé erfitt að koma auga á fjárhagslegan ávinning af notkun gæðakerfa en sé það notað sem stjórntæki t.d. við framkvæmd, kostnaðareftirlit, framkvæmdaeftirlit og verkáætlun, komi ávinningurinn fljótlega í ljós.

Er auðvelt að finna fyrirtækið þitt á netinu? Viðtal við Óla Jóns, framkvæmdastjóra MCM á Íslandi 02.12.2022

Óli Jóns er með víðtæka reynslu þegar kemur að markaðsetningu og ráðgjöf. Hér útskýrir hann vel hvaða ávinningur felst í því að skrá fyrirtæki rétt á netinu. Það er afar mikilvægt að koma upp í leitinni þegar væntanlegur viðskiptavinur leitar að þjónustu á netinu og til þess eru ákveðnar leiðir farnar. Virkilega fróðlegt og skemmtilegt spjall.

Orkuskipti í bíliðnaði með Jónasi K. Eiríkssyni forstöðumanni vörustýringar hjá Öskju 23.11.2022

Jónas Kári Eiríksson ræðir hér við Sigurð S. Indriðason um rafvæðingu bílaflota Íslensinga og stöðu markaðarins. Hann ræðir einnig um þróun rafhlaðna og hvert hún stefnir.

Umbrot er nátengt myndlist með Jóni Óskari myndlistarmanni 03.11.2022

Jón Óskar myndlistarmaður er hér í fróðlegu spjalli við Grím Kolbeinsson. Jón Óskar segist hafa rambað í nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Þar fann hann þó fljótt sína fjöl og með náminu fór hann fljótt að vinna við umbrot dagblaða. Hann starfaði á Vísi og á Helgarpóstnum og hefur frá mörgu skemmtilegu að segja.

Vistvæn mannvirkjagerð, með Þóru M. Þorgeirsdóttur framkvæmdastjóra mannvirkja og sjálfbærni hjá HMS 20.10.2022

Byggjum grænni framtíð er samstarfsverkefni stjórnvalda og hagaðila byggingariðnaðarins um vistvænni mannvirkjagerð en það á meðal annars rætur sínar að rekja til aðgerðar C.3 í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, framkvæmdastjóri mannvirkja og sjálfbærni hjá HMS er hér í fróðlegu spjalli við Ólaf Ástgeirsson leiðtoga bygginga- og mannvirkjagreina hjá Iðunni. H...

Flokkun og endurvinnsla málma með Högna Auðunssyni hjá Málma 14.10.2022

"Það eru verðmæti í öllu brotajárni" segir Högni Auðunsson eigandi Málma sem er hér í fræðandi spjalli við Sigursvein Óskar, nýjan stjórnanda málm- og véltækni hluta Augnabliks í iðnaði. Fyritækið keppist við að kaupa málma af fólki sem oft áttar sig ekki á þeim verðmætum sem í þeim liggja.

Forvarnarstarf Virk með Ingibjörgu Loftsdóttur sviðstjóra forvarna hjá Virk 06.10.2022

Ingibjörg Loftsdóttir sviðsstjóri forvarna hjá Virk er hér í mjög fræðandi viðtali um það hvernig starfsumhverfi hefur áhrif á líðan og afköst starfsmanna. Hvaða leiðir stjórnendur geta farið til að viðhalda trausti og opnum samskiptum og hvernig hægt er að bregðast við ef starfsmaður þarf stuðning til að takast á við erfiðleika.

Heimsmeistaramót ungra bakara, með Finni Ívarssyni og Haraldi Þorvaldssyni 29.09.2022

Ísland átti tvo fulltrúa á heimsmeistaramóti ungra bakara, þá Finn Guðberg Ívarsson og Matthías Jóhannesson. Mótið fór fram í Berlín og höfnuðu þeir félagar í 4. sæti. Þetta var í fyrsta skipti sem Ísland tók þátt í mótinu. Ólafur Jónsson spjallar hér við Finn og þjálfara liðsins, Harald Árna Þorvaldsson fagkennara í bakaraiðn um tildrög keppninnar, undirbúning og gott gengi.

Myndlæsi, gervigreind og útgáfa bóka með Bergrúnu Írisi mynd- og rithöfundi 22.09.2022

Bergrún Íris Sævarsdóttir mynd- og rithöfundur ræðir um blómlega útgáfu barna- og unglingabóka, gervigreind og list og skort á stuðningi stjórnvalda við íslenska teiknara. Myndlæsi sé afar mikilvægt vaxandi kynslóð í heimi þar sem úir og grúir af fölskum fréttum, myndskeiðum og upplýsingum.

Heimsmeistaramótið í kjötskurði með Jóni Gísla Jónssyni, kjötiðnaðarmanni 15.09.2022

Landslið kjötiðnaðarmanna er nýkomið heim frá því að taka þátt í heimsmeistaramóti í kjötskurði sem fór fram í Sacaramento í Bandaríkjunum. Þrettán þjóðir keppa á mótinu og er íslenska liðið eina Norðurlandaþjóðin sem tekur þátt. Jón Gísli Jónsson landsliðamaður er hér í skemmtilegu og fræðandi viðtali um aðdraganda, keppnina sjálfa og þá möguleika sem hún gefur.

Hvernig nýtast giggarar iðnfyrirtækjum með Hörpu Magnúsdóttur framkvæmdastjóra Hoobla 02.09.2022

Harpa Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Hoobla er hér í skemmtilegu og fræðandi spjalli um möguleika lítilla og meðalstórra iðnfyrirtækja að ráða til sín stjórnendur í tímabundið starf eða lágt starfshlutfall. Hún nefnir að studnum skapist álagspunktar í rekstri eða þörf fyrir tímabundna ráðningu og þá sé gott að geta leitað til þjónustu eins og Hoobla.

Netöryggi og öryggismat með Sigurmundi P. Jónssyni ráðgjafa hjá Origo 04.07.2022

Það geta öll fyrirtæki orðið fyrir barðinu á tölvuþrjótum segir Sigurmundur Páll Jónsson ráðgjafi hjá Origo, líka iðnfyrirtæki. Hann fer hér yfir af hverju mikilvægt er að hafa tölvuöryggsimál á hreinu og kynnir til sögunnar öryggismat sem metur stöðu hvers fyrirtækis. Með því fæst yfirsýn yfir tölvuöryggi og hvar mögulegir öryggisbrestir liggja. Tölvuþrjótar eru nefnilega, að hans sögn, ekkert að...

Samtök íslenskra eimingarhúsa með Evu Maríu Sigurbjörnsdóttur formanni samtakanna 23.06.2022

Samtök íslenskra eimingarhúsa voru stofnuð til að standa vörð um íslenska áfengisframleiðslu. Eva María Sigurbjörnsdóttir líffræðingur er formaður samtakanna og er hún hér í einkar fræðandi spjalli um tilburð samtakanna, markmið þeirra og íslenska áfengisframleiðslu. Einnig er Eva María mjög fróð um sögu áfengisframleiðslu og neyslu Íslendinga í gengum árin. Skemmtilegt og líflegt spjall.

Nýsköpun í málaraiðn - alþjóðaverkefni þrettán landa. 13.06.2022

Þau Rakel Steinvör Hallgrímsdóttir náms- og starfsráðgjafi, Ólafur Ástgeirsson, leiðtogi bygginga- og mannvirkjagreina og Ásgeir Valur Einarsson verkefnastjóri á bygginga- og mannvirkjasviði eru fulltrúar alþjóðaverkefnis um nýsköpun í málariðan. Að verkefninu koma 23 aðilar frá 13 löndum. Hér fjalla þau um verkefnið og þá möguleika sem koma út úr slíku samstarfi.

Stafræn hæfni með Evu Karen Þórðardóttur framkvæmdastjóra Stafræna hæfniklasans 31.05.2022

Eva Karen Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Stafræna hæfniklasans, er sannfærð um að stafrænar lausnir eigi erindi við fyrirtæki í iðnaði. Hún segir iðnaðinn mislangt á veg kominn í innleiðingu stafrænna lausna og bendir á að Stafræni hæfniklasinn bjóði iðnfyrirtækjum upp á að greina og koma auga á möguleika til innleiðingar, en einnig að greina stafræna hæfni starfsmanna.

Nám í bíliðngreinum með þeim Ólafi og Hreini fagstjórum í Borgarholtsskóla 15.05.2022

Í þessum þætti ræðir Sigurður Svavar Indriðason leiðtogi bílgreina hjá Iðunni við þá félaga Hrein Á. Óskarsson og Ólaf G. Pétursson fagstjóra í bíliðngreinum við Borgarholtsskóla. Þeir hafa þurft að aðlaga sig gríðarlega að heftandi skipulagi síðustu ára og segja bíliðngreinarnar koma vel undan þeim tíma. Framundan séu spennandi tímar þar sem atvinnulifið og skólinn þurfa að taka heiðarlegt samtal...

Stjórnendur sem horfa inn á við ná árangri, með Thor Ólafssyni eiganda Strategic Leadership 08.05.2022

Thor Ólafsson er reynslumikill stjórnendaráðgjafi og stofnandi fyrirtækisins Strategic Leadership sem er með starfsemi víða um heim. Í þessu fróðlega viðtali kynnir Thor okkur fyrir hugmyndum sínum um stjórnun og mikilvægi þess að starfsmenn og stjórnendur geri sér grein fyrir eigin „egói“ og áhrifum þess. Thor er um þessar mundir að gefa út bókina Beyound Ego. The inner compass of counscious lead...

Notaði krísur til að efla reksturinn. Viðtal við Pál Ketilsson, útgefanda Víkurfrétta 02.05.2022

Grímur Kolbeinsson ræðir við Pál Ketilsson útgefanda Víkurfrétta um ferilinn, fjölmiðlun og tækniþróun í útgáfu.

Er þín viðskiptalausn í skýinu? Viðtal við Andra Má Helgason vörustjóra hjá Advania 22.04.2022

Andri Már Helgason, vörustjóri hjá viðskiptalausnum Advania, spjallar við okkur um viðskiptalausnir í skýinu.

AutoDesk forritin með Finni Fróðasyni arkitekt hjá Cad teiknistofu 13.04.2022

Í þessu hlaðvarpi ræðir Gústaf A. Hjaltason ábyrgðarmaður suðumála hjá IÐUNNI við Finn Fróðason arkitekt. Þeir ræða meðal annars um möguleika AutoDesk forritanna fyrir iðnaðinn og hvernig á að nýta möguleika hvers forrits sem best.

Rekstur og hönnun með Hjalta Karlssyni hönnuði í New York 30.03.2022

Hjalti Karlsson fór til náms til Bandaríkjanna og rekur nú hönnunarfyrirtæki í New York. Hann er hér í spjalli við Grím Kolbeinsson um námið, fyrirtækjarekstur, búsetuna erlendis og þau tækifræri sem liggja í hönnun.

Rafeldsneyti með Jóni Heiðari Ríkharðssyni, vélaverkfræðingi hjá EFLU 24.03.2022

Hér ræðir Sigurður Svavar Indriðason sviðstjóri bilgreinasviðs IÐUNNAR við Jón Heiðar Ríkharðsson vélaverkfræðingu um hvað rafeldsneyti er og hversu stóran þátt mun það eiga í orkuskiptum hér á landi. Umræðan hefur snúist mikið til um bíliðnaðinn og skiptin frá brunaheyfilsbílum yfir í rafbíla. En hvað með allar aðrar samgöngur og flutningsmáta og hver er framtíðin í þeim efnum?

Raki og mygla í húsum með Sylgju Dögg Sigurjónsdóttur líffræðingi 13.03.2022

Í þessum þætti fjallar Sylgja Dögg Sigurjónsdóttir um raka og myglu í húsum. Sylgja hefur starfað við byggingariðnaðinn í hartnær 16 ár og vinnur nú sem ráðgjafi hjá Eflu verkfræðistofu ásmt því að kenna á námskeiðum hjá Iðunni. Sylgja er sérfræðingur í raka- og mygluskemmdum og þekkir það af eigin raun að búa í rakaskemmdu húsnæði. Sú lífsreynsla varð m.a. til þess að hún sérhæfði sig á þessum ve...

Kjötiðn og landslið kjötiðnaðarmanna með Jóhanni Frey Sigurbjarnasyni landsliðsmanni 11.03.2022

Hér ræðir Ólafur Jónsson, sviðstjóri Matvæla- og veitingasviðs IÐUNNAR, við Jóhann Frey Sigurbjarnason kjötiðnaðarmann, en hann á sæti í landsliði kjötiðnaðarmanna. Jóhann er bjartsýnn á gott gengi landsliðsins og telur iðngreinina vera í mikilli sókn. Hann leggur áherslu á samvinnu matreiðslumanna og kjötiðnaðarmanna og segir hana geta aukið vöruúrval þar sem viðskiptavinir eru alltaf að leita að...

Listen to the Hlaðvarp Iðunnar podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.