Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University

HR Hlaðvarpið

HR-hlaðvarpið er mikilvægur hluti af vísindamiðlun Háskólans í Reykjavík til samfélagsins; allt frá nemendum og starfsfólki til kollega og almennings. Í hlaðvarpinu fjalla vísindafólk, kennarar og aðrir sérfræðingar háskólans um metnaðarfullar rannsóknir sínar og verkefni. HR-hlaðvarpinu er ætlað að næra starfsemi háskólans og miðla í leiðinni fjölbreyttri þekkingu út fyrir veggi hans. Samhliða er skyggnst inn í veröld nemenda og fróðleik miðlað um margvíslega starfsemi í skólanum. HR-hlaðvarpið er í umsjón samskiptasviðs HR (samskipti@hr.is).

Author

Háskólinn í Reykjavík / Reykjavik University

Category

Education

Podcast website

www.ru.is

Latest episode

Jun 29, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Sálfræðispjallið// Hlaðvörp nemenda í réttarsálfræði-fyrri hluti 23.01.2025

Í fyrsta þætti Sálfræðispjallsins, hlaðvarpi sálfræðideildar HR, fáum við að hlýða á hlaðvörp nemenda í réttarsálfræði þar sem þeir taka fyrir raunveruleg sakamál til umfjöllunar. Þetta er fyrir þáttur af tveimur. Réttarsálfræði er fræðigrein sem leitast við að skilja afbrot, af hverju þau eiga sér stað, hvernig sé hægt að grípa inn í og hvernig megi hagnýta sálfræðilega þekkingu í réttarkerfinu....

Verkfræðivarpið // 32. þáttur:Um umbætur á verkefnastjórnsýslu í Danmörku, á grunni árangurs sem náðst hefur í Noregi -Dr. Per Svejvig 11.12.2024

Helgi Þór Ingason ræddi við Per Svejvig Dr. Per Svejvig er prófessor við Háskólann í Árósum í Danmörku og leiðir þar rannsóknir og kennslu á sviði verkefnastjórnunar. Bakgrunnur hans er á sviði upplýsingatækni og verkfræði en hann hefur mikla reynslu af verkefnastjórnun í dönsku atvinnulífi og er með alþjóðlega B vottun. Per er afkastamikill vísindamaður og vel þekktur fyrir sitt framlag og hin se...

Verkfræðivarpið // 31. þáttur: Gilbert Silvius -Um sjálfbærni, sem lykilhugtak í verkefnastjórnun 02.12.2024

Helgi Þór Ingason ræddi við Gilbert Silvius. Dr. Gilbert Silvius prófessor við HU háskóla í Hollandi er reyndur fyrirlesari, ráðgjafi og vísindamaður sem lagt hefur áherslu á verkefnastjórnun og upplýsingastjórnun. Gilbert hefur gefið út yfir 100 fræðigreinar og nokkrar bækur og hefur umsjón með fræðilegum rannsóknum við nokkra háskóla víðsvegar um Evrópu. Hann átti frumkvæði að og þróaði fyrsta v...

HR hlaðvarpið // Pössum púlsinn og veskið í desember 02.12.2024

 Gestir dagsins í HR hlaðvarpinu eru þau Sigrún Þóra Sveinsdóttir og Valdimar Sigurðsson. Sigrún Þóra er sálfræðingur sérhæfð í lífeðlislegri sálfræði. Hún er doktorsnemi í sálfræðideild Háskólans í Reykjavík og hefur starfað sem leiðtogi sálfræðiþjónustu fullorðinna hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu og sálfræðingur lögreglu. Valdimar er prófessor við Viðskipta- og hagfræðideild og forstöðum...

Verkfræðivarpið // 30 þáttur - Stórvirkið Samgöngusáttmáli 27.11.2024

Gestir Verkfræðivarpsins eru þeir Þorsteinn R. Hermannsson og Dr. Þröstur Guðmundsson frá Betri samgöngum. Þeir eru reyndir verkfræðingar sem leiða m.a. undirbúningsvinnu við Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins sem fullyrða má að sé eitt flóknasta og mest krefjandi verkefni seinni tíma.  Raunar er Samgöngusáttmáli safn margra verkefna og Betri samgöngur hafa mikilvægu hlutverki að gegna við áætl...

Verkfræðivarpið // 29. þáttur: Gervigreind við sjálfvirknivæðingu viðskiptaferla (RPA) 22.11.2024

Gestur Verkfræðivarpsins er Hanna Kristín Skaftadóttir lektor við Háskólann á Bifröst. Í spjalli við Þórð Víking segir Hanna Kristín frá “háskólanum í skýinu” eins og Bifröst skilgreinir sig í dag. Hanna er nú að leggja lokahönd á doktorsritgerð sína um sjálfvirknivæðingu viðskiptaferla eða RPA. RPA er talið geta lækkað kostnað og aukið skilvirkni svo um munar ekki síst í dag þegar að gervigreind...

Lagadeildin // 1. þáttur: Helga Kristín Auðunsdóttir, lektor við lagadeild 05.11.2024

Helga Kristín Auðunsdóttir er lektor við lagadeild HR. Hún hvetur laganema til að skoða námstækifæri erlendis og hugsa út fyrir boxið. Sjálf lauk hún doktorsgráðu í lögfræði frá Fordham háskóla í New York og nam lögfræði við Aristotle háskólann í Thessaloniki í Grikklandi. Hún lauk BS gráðu í viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Bifröst árið 2004 og ML gráðu í lögfræði árið 2006 frá sama skóla. Lauk...

Verkfræðivarpið // 28. þáttur: Anna Sigríður Islind og Stefán Ólafsson 31.10.2024

Í Verkfræðivarpinu að þessu sinni taka tali þeir Þórður Víkingur og Helgi Þór, tvo fræðimenn og kennara á sviði gervigreindar. Það eru þau Anna Sigríður Islind  dósent og Stefán Ólafsson lektor. Bæði eru þau með allra fróðasta fólki um gervigeind og notkun mállíkana bæði í fræðilegum og hagnýtum tilgangi. Af þessu hlaust skemmtileg, áhugavert  og fræðandi spjall sem gefur leikum sem lærðum innsýn...

Íþróttarabb HR // 20. þáttur: Rob Duffield 24.10.2024

Professor Rob Duffield works in the School of Sport, Exercise & Rehabilitation at the University of Technology Sydney. He is also the Head of Research & Development at Football Australia. Today he discusses his research with Professor Hugh Fullagar of Reykjavik University. Rob talks about his main research interests, including fatigue and recovery in sports science, specifically short and...

Verkfræðivarpið // 27. þáttur Agnes Hólm Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Verkefnastjórnunarfélags Íslands 18.10.2024

Agnes Hólm Gunnarsdóttir er gestur verkfræðivarpsins. Agnes er MSc í iðnaðarverkfræði og hefur starfað sem sérfræðingur og stjórnandi í hugbúnaðariðnaði, stóriðjunni og á verkfræðistofu. Nú hefur hún hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Verkefnastjórnunarfélags Íslands og ræðir í þættinum um hlutverk félagsins og ýmsar spennandi nýjungar í starfsemi þess, auk þess sem haustráðstefna félagsins k...

HR hlaðvarpið// Dr. Þórhildur Halldórsdóttir, dósent við sálfræðideild 15.10.2024

Í tilefni af geðheilbrigðisviku HR, sem fór fram í áttunda sinn nú í byrjun október, fengum við Dr. Þórhildi Halldórsdóttur, dósent við sálfræðideild, í hlaðvarp HR. Þórhildur er klínískur barnasálfræðingur og hefur í rannsóknum sínum einblínt á geðheilbrigði ungs fólks. Hún hefur m.a. rannsakað afleiðingar samkomutakmarkana á tímum Covid-19 heimsfaraldursins á líðan ungmenna og rannsakar nú áhrif...

Íþróttarabb HR // 19. þáttur: Rick Howard 01.10.2024

Rick Howard, gestaprófessor við Háskólann í Reykjavík, ræðir um rannsóknir sínar við Dr. Peter O'Donoghue. Rannsóknir Rick snúa að íþróttum barna og ungmenna, langtímaþróun íþróttamanna, styrktar- og þrekþjálfun í íþróttum barna og ungmenna, og líkamlegt læsi. Hann ræðir einnig um hvernig rannsóknir hans nýtast við þjálfun, með áherslu á bætta frammistöðu íþróttamanna, og þær hindranir sem ge...

Íþróttarabb HR // 18. þáttur: William Low 05.09.2024

Í íþróttarabbi HR að þessu sinni er rætt við William Low sem er aðstoðarprófessor í íþróttasálfræði í Herion Watts háskólanum í Skotlandi. William er gestafyrirlesari í mastersnámi íþróttafræðideildar HR og er sérfræðingur í álagsþjálfun (pressure training). Í álagsþjálfun vinna þjálfarar og íþróttasálfræðingar markvisst að því að auka andlegt álag á æfingum til að undirbúa íþróttafólk undir álag...

Íþróttarabb HR // 17. þáttur: Egill Ingi Jónsson 02.09.2024

Ingi Þór Einarsson lektor við íþróttafræðideild HR ræðir við Egil Inga Jónsson íþróttafræðing og skíðaþjálfara um skíðaþjálfun á Íslandi. Egill hefur þjálfað skíðafólk á öllum stigum allt frá byrjendum upp í Ólympíufara. Nýverið gerði Egill verkefni þar sem hann fjallar um hæfileikamótun skíðafólks og mikilvægi þess að hafa heildræna stefnu í skíðaþjálfun á Íslandi UM ÍÞRÓTTAFRÆÐI Nám í íþróttafræ...

Íþróttarabb HR // 16. þáttur: Hjördís Ólafsdóttir 14.06.2024

Við settumst niður með Hjördísi Ólafsdóttur sem útskrifaðist úr MEd í kennsluþjálfun og heilsu vorið 2022, og ræddum við hana um áhugavert lokaverkefni þar sem hún gerði fræðsluefni um blæðingar og svo um sýn hennar á íþróttakennsluna sérstaklega sundkennslu. UM ÍÞRÓTTAFRÆÐI Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr nemendur fyrir störf á fjölmörgum sviðum íþrótta, líkams- o...

Íþróttarabb HR // 15. þáttur: Endurheimt, svefn og næring íþróttafólks - Dr. Hugh Fullagar 07.06.2024

Peter  O´Donoghue prófessor við íþróttafræðideild HR ræðir við nýjan starfsmann íþróttafræðideildar Prófessor Hugh Fullagar. Hugh sérhæfir sig í rannsóknum á svefn, endurheimt og næringu íþróttafólks, allt mikilvægir þættir í frammistöðu íþróttafólks og fjalla þeir um þessi efni í samhengi við íþróttir og rannsóknir.  UM ÍÞRÓTTAFRÆÐI Nám í íþróttafræði við HR er fjölbreytt og krefjandi og undirbýr...

Verkfræðivarpið // 23. þáttur: Nýr Landspítali Háskólasjúkrahús 07.06.2024

Nýr Landspítali Háskólasjúkrahús, NLSH verkefnið, er eitt stærsta og flóknasta verkefni seinni tíma. Þjóðarsjúkrahúsið mun breyta heilbrigðisþjónustunni til hins betra. Gunnar Svavason verkfræðingur hefur leitt verkefnið frá byrjun  Þetta mikla verkefni hefur verið mikil áskorun fyrir þau sem að því standa og gagnrýni hefur verið höfð uppi. Í mjög áhugaverðu spjalli í Verkfræðivarpinu fer Gunnar S...

Frumkvöðlavarp HR // 7. þáttur: Kristinn Þorleifsson - Kerecis 14.05.2024

Í þessum þætti ræðir Ásgeir Jónsson við Kristinn Þorleifsson, yfirmann vörustjórnunar, markaðsmála og vörumerkja hjá Kerecis vorið 2023. Frumkvöðlavarp HR er gefið út í tilefni af Nýsköpunarviku 2024. Í Frumkvöðlavarpinu er að finna viðtöl við 18 frumkvöðla og sérfræðinga sem voru tekin upp vorið 2023 og 24. Viðtölin eru hluti af kennsluefni áfangans Nýsköpun og stofnun fyrirtækja, sem er stærsti...

Frumkvöðlavarp HR // 8. þáttur: Guðbjörg Rist - Atmonia 14.05.2024

Í þessum þætti ræðir Ásgeir Jónsson við Guðbjörgu Rist, framkvæmdarstjóra Atmonia vorið 2023. Frumkvöðlavarp HR er gefið út í tilefni af Nýsköpunarviku 2024. Í Frumkvöðlavarpinu er að finna viðtöl við 18 frumkvöðla og sérfræðinga sem voru tekin upp vorið 2023 og 24. Viðtölin eru hluti af kennsluefni áfangans Nýsköpun og stofnun fyrirtækja, sem er stærsti nýsköpunarvettvangur háskólanema á Íslandi,...

Frumkvöðlavarp HR // 9. þáttur: Garðar Stefánsson - GOOD GOOD 14.05.2024

Í þessum þætti ræðir Svava Björk Ólafsdóttir við Garðar Stefánsson, framkvæmdarstjóra og meðstofnanda GOOD GOOD vorið 2023. Frumkvöðlavarp HR er gefið út í tilefni af Nýsköpunarviku 2024. Í Frumkvöðlavarpinu er að finna viðtöl við 18 frumkvöðla og sérfræðinga sem voru tekin upp vorið 2023 og 24. Viðtölin eru hluti af kennsluefni áfangans Nýsköpun og stofnun fyrirtækja, sem er stærsti nýsköpunarvet...

Frumkvöðlavarp HR // 10. þáttur: Ragnhildur Ágústsdóttir - Lava Show 14.05.2024

Í þessum þætti ræðir Atli Björvinsson við Ragnhildi Ágústsdóttur, athafnakonu og meðstofnanda Lava Show vorið 2023. Frumkvöðlavarp HR er gefið út í tilefni af Nýsköpunarviku 2024. Í Frumkvöðlavarpinu er að finna viðtöl við 18 frumkvöðla og sérfræðinga sem voru tekin upp vorið 2023 og 24. Viðtölin eru hluti af kennsluefni áfangans Nýsköpun og stofnun fyrirtækja, sem er stærsti nýsköpunarvettvangur...

Frumkvöðlavarp HR // 11. þáttur: Íris E. Gísladóttir - Evolytes 14.05.2024

Í þessum þætti ræðir Atli Björvinsson við Íris E. Gísladóttur, markaðsstjóra og meðstofnanda Evolytes vorið 2023. Frumkvöðlavarp HR er gefið út í tilefni af Nýsköpunarviku 2024. Í Frumkvöðlavarpinu er að finna viðtöl við 18 frumkvöðla og sérfræðinga sem voru tekin upp vorið 2023 og 24. Viðtölin eru hluti af kennsluefni áfangans Nýsköpun og stofnun fyrirtækja, sem er stærsti nýsköpunarvettvangur há...

Frumkvöðlavarp HR // 12. þáttur: Karl Ágúst Matthíasson - DTE 14.05.2024

Í þessum þætti ræðir Ásgeir Jónsson við Karl Ágúst Matthíasson, framkvæmdarstjóra og meðstofnanda DTE vorið 2023. Frumkvöðlavarp HR er gefið út í tilefni af Nýsköpunarviku 2024. Í Frumkvöðlavarpinu er að finna viðtöl við 18 frumkvöðla og sérfræðinga sem voru tekin upp vorið 2023 og 24. Viðtölin eru hluti af kennsluefni áfangans Nýsköpun og stofnun fyrirtækja, sem er stærsti nýsköpunarvettvangur há...

Frumkvöðlavarp HR // 13. þáttur: Soffía Kristín Þórðardóttir - PaxFlow 14.05.2024

Í þessum þætti ræðir Atli Björvinsson við Soffíu Kristínu Þórðardóttur, stofnanda og framkvæmdarstjóra PawFlow vorið 2024. Frumkvöðlavarp HR er gefið út í tilefni af Nýsköpunarviku 2024. Í Frumkvöðlavarpinu er að finna viðtöl við 18 frumkvöðla og sérfræðinga sem voru tekin upp vorið 2023 og 24. Viðtölin eru hluti af kennsluefni áfangans Nýsköpun og stofnun fyrirtækja, sem er stærsti nýsköpunarvett...

Frumkvöðlavarp HR // 14. þáttur: Haukur Scott Hjaltalín - Álfur brugghús 14.05.2024

Í þessum þætti ræðir Sunna Halla Einarsdóttir við Hauk Scott Hjaltalín, meðstofnanda og framkvæmdarstjóra Álfs brugghúss vorið 2024. Frumkvöðlavarp HR er gefið út í tilefni af Nýsköpunarviku 2024. Í Frumkvöðlavarpinu er að finna viðtöl við 18 frumkvöðla og sérfræðinga sem voru tekin upp vorið 2023 og 24. Viðtölin eru hluti af kennsluefni áfangans Nýsköpun og stofnun fyrirtækja, sem er stærsti nýsk...

Listen to the HR Hlaðvarpið podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.