RÚV
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Eldfimur Kastljósþáttur, þorskkvótinn og aðstoðarmenn borgarstjóra 02.09.2025 20:00
Óhætt er að segja að orðaskipti Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, og Þorbjargar Þorvaldsdóttur, verkefnastýru hjá Samtökunum 78, í Kastljósinu í gær hafi kallað fram sterk viðbrögð. Biskup, Landlæknir, atvinnuvegaráðherra og þingmenn eru í hópi þeirra sem hafa blandað sér í umræðuna á samfélagsmiðlum. Það eru vonbrigði að hefja nýtt fiskveiðiár með tíu þúsund tonna niðurskurði í þorskafla....
Breytingar á örorkukerfinu, friðun Eyjafjarðar, milljarða félagsskipti 01.09.2025 20:00
Breytingar á örorku- og endurhæfingarkerfinu sem tóku gildi í dag leggjast vel í formann ÖBÍ, sem óttast þó að hærri ráðstöfunartekjur skili sér misvel í vasa fólks. Fylgi Framsóknarflokksins heldur áfram að dragast saman og mælist hann nú með fjögur og hálft prósent í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Forsætisráðherra Spánar boðar átak eftir mestu gróðurelda í sögu landsins í sumar. Stjórnvöld voru ekki...
Réttarhöldin í Þorlákshafnarmálinu og bæklunarlæknirinn sem hætti 29.08.2025 20:00
Fjögurra daga aðalmeðferð í Þorlákshafnarmálinu svokallaða lauk í dag þegar saksóknari og verjendur sakborninga fóru yfir málflutning sinn. Fimm eru ákærð, þrír menn fyrir manndráp, frelsissviptingu, rán og fjárkúgun. Á ýmsu hefur gengið við rannsókn þessa umfangsmikla máls, til að mynda reyndi einn sakborningur að fá annan til að taka alla sökina á sig og skipta um lögmann á meðan þeir sátu í gæs...
Innviðaráðherra vill byrja að bora og grafa og Menntavísindasvið flytur á Sögu 28.08.2025 20:00
Kennaranámið er í stöðugri deiglu og hlusta verður á gagnrýnisraddir stúdenta um uppbyggingu þess segir Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Skólarnir eru að byrja þessa dagana og í vesturbæ Reykjavíkur stendur Menntavísindasviðið á tímamótum, starfsemi þess er að hefjast á nýjum stað á Sögu. Iðnaðarmenn eru enn að störfum hér og þar í húsinu en Kolbrún Þorbjörg...
Sögunni um Grænland ekki lokið og franska konan fékk að vera viðstödd kistulagningu 27.08.2025 20:00
Grænland er aftur komið í kastljós fjölmiðla; DR, danska ríkisútvarpið, greindi frá því í morgun að þrír Bandaríkjamenn hefðu verið á Grænlandi til að efla samband við þá Grænlendinga sem hugnast sú hugmynd Bandaríkjaforseta að innlima Grænland, afla upplýsinga um þá sem eru henni andvígir og finna leiðir til að reka fleyg milli Danmerkur og Grænlands. Víðtæk mótmæli og vinnustöðvanir hafa verið b...
Stígamót um dóm Mannréttindadómstóls Evrópu og frammámaður úr Samfylkingu aðstoðar ráðherra Flokks fólksins 26.08.2025 20:00
Dómur Mannréttindadómstóls Evrópu staðfestir að enn þarf mörgu að breyta þegar kemur að meðferð kynferðisbrota og heimilisofbeldis að mati Drífu Snædal talskonu Stígamóta. Stígamót studdu níu konur sem leituðu til dómstólsins og dómur er fallinn í tveimur málum en 7 bíða efnislegrar meðferðar. Það er óvanalegt að fyrrverandi varaformaður eins af meginstjórnmálaflokkum Íslands skuli vera fenginn ti...
Þorlákshafnarmál, hættumat vegna Bárðarbungu og banvænar refsiaðgerðir 25.08.2025 20:00
Aðalmeðferð hófst í Héraðsdómi Suðurlands í Þorlákshafnarmálinu, 5 sakborningar báru vitni og ákæruvaldið sýndi myndskeið úr eftirlitsmyndavélum og bíl eins sakbornings frá kvöldinu í mars þegar maður var sviptur frelsi í Þorlákshöfn, honum misþyrmt og hann skilinn eftir helsærður í Gufunesi. Veðurstofan hefur gert nýtt hættumat vegna jarðhræringa í einni öflugustu eldstöð landsins, Bárðarbungu þa...
Hungursneyð á Gaza, hrun í fálkastofni og skemmdarverk Rússa 22.08.2025 20:00
Sameinuðu þjóðirnar lýstu formlega yfir hungusneyð í Gaza-borg og nágrenni hennar í morgun. Talið er að allt að hálf milljón manna eigi í hættu að deyja úr hungri sem er lýst sem manngerðri hörmung. Skemmdarverk sem rakin eru til rússneskra stjórnvalda og árásir þeirra á mikilvæga innviði í Evrópu hafa færst í aukana á undanförnum árum. Fjöldi þessara atvika hefur næstum fjórfaldast síðan 2023. Fá...
Utanríkisráðherra fordæmir innrás í Gazaborg, traust til lögreglu og hnúðlax 21.08.2025 20:00
Innrás Ísraelshers í Gazaborg og landtaka á Vesturbakkanum gerir út um möguleika á friði fyrir botni MIðjarðarhafs til skemmri og lengri tíma, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Refsiaðgerðir gegn Ísrael séu til skoðunar. Traust til lögreglunnar á Íslandi er mikið, en karlmenn og yngra fólk ber þó minna traust til hennar en konur og þeir sem eldri eru. Þetta eru niðurstöður ný...
Baráttan við verðbólgu og vexti og börnin á Gaza 20.08.2025 20:00
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir 7,5% vexti vera háa, en vonar að vaxtastefna bankans leiði til minni verðbólgu og þannig lægri vaxta. Fasteignaverð er hátt og hann veltir því fyrir sér hvort rétt sé að seljendur slái af verðinu. Sleggjan á vextina hefur ekki enn verið dregin fram, segir Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Verði ekki breytt um kúrs g...
Breytingar á Menningarnótt og vextir, húsnæði og atvinna 19.08.2025 20:00
Menningarnótt verður haldin í Reykjavík á laugardaginn. Í skugga hörmulegs atburðar á hátíðinni í fyrra, þegar 17 ára stúlka var stungin til bana, hefur Reykjavíkurborg ákveðið að standa fyrir sérstöku átaki undir slagorðinu "Verum klár". Vaxtaákvörðun verður kynnt á morgun, Finnbjörn Hermannsson forseti Alþýðusambands Íslands telur að svigrúm sé til að lækka háa vexti en fleira þurfi til að leysa...
Fundir um Úkraínu í Hvíta húsinu 18.08.2025 20:00
Evrópskir leiðtogar að Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu meðtöldum gengu á fund Donalds Trumps forseta Bandaríkjanna í Washington í dag. Trump sagði fyrir fund sinn með Zelensky að mögulegt væri að þeir settust niður fljótlega með Vladimir Pútín forseta Rússlands til að ræða leið til varanlegs friðar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir að stríðið í Úkraínu sé efst á baugi á f...
Samkeppniseftirlitið rannsakar Storytel og breskar knæpur að hverfa 15.08.2025 20:00
Rithöfundasambandið hefur kvartað undan Storytel og Samkeppniseftirlitið rannsakar hvort efnisveitan hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína. Rætt við Margréti Tryggvadóttur formann rithöfundasambandsins og Heiðar Inga Svansson um bækur. Á þriðja þúsund kráa hefur verið lokað í Englandi og Wales síðustu ár. Kráardauðinn var hafinn fyrir COVID en jókst í faraldrinum og hefur ekki dregið úr síðan.
Strokulaxar og leiðtogafundur í Alaska 14.08.2025 19:58
Bann við sjókvíaeldi er eina leiðin til að koma í veg fyrir erfðamengun lax í íslenskum ám, að dómi Jóhannesar Sturlaugssonar líffræðings, sem lengi hefur rannsakað laxfiska og var kallaður til þegar eldislax fannst í Haukadalsá í gær. Anna Kristín Jónsdóttir talar við hann. Forsetar Bandaríkjanna og Rússlands funda í Alaska í Bandaríkjunum á föstudag. Efni fundarins: Innrásarstríð Rússa í Úkraínu...
Sveitarstjórnarkosningar og hitnandi heimur 13.08.2025 20:00
Þeir sem bjóða sig fram og kjósa í sveitarstjórnarkosningum verða að eiga lögheimili í því sveitarfélagi og þar af leiðandi ólíklegt að brottfluttir Grindvíkingar geti kosið þar í vor segir Eva Marín Hlynsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði og sérfræðingur í sveitarstjórnarmálum. Nokkuð lengi hefur verið rætt um að fækka sveitarfélögum og stefnt að því af mörgum að í hverju þeirra búi ekki færri e...
Talning á strokulöxum og hitnandi heimur 12.08.2025 20:00
Enginn strokulax sást í fyrra í myndavélateljurum sem Hafrannsóknastofnun hefur komið fyrir í þrettán ám. 30 strokulaxar sem veiddust voru greindir og hægt var að rekja til strokstaða með samanburði á arfgerðum strokulaxa og klakhænga. 42 blendingar greindust í 15 ám og eldri erfðablöndun fannst hjá seiðum í 23 ám. Flestir blendingarnir fundust í ám nærri eldissvæðum en þó voru dæmi um blendinga s...
Dráp blaðamanna er stríðsglæpur og öryggi ferðamanna 11.08.2025 20:00
Ísraelsher drap fimm fréttamenn Al-Jazeera á Gaza í gær með sprengjuárás. Árásir og dráp á fréttamönnum flokkast sem stríðsglæpir, líkt það að Ísraelsstjórn hindri það að lífsnauðsynleg hjálpargögn berist til Gazabúa. Ísraelsher segir að einn fréttamannanna hafi verið hryðjuverkamaður. Formaður Blaðamannafélags Íslands segir ömurlegt að Ísrael beini árásum sérstaklega að blaðamönnum og reyni að ko...
Úrbóta er þörf í fangelsiskerfinu segir forstjóri Fangelsismálastofnunar 08.08.2025 10:00
Samfélagsbreytingar síðustu ára kalla á viðbrögð í fangelsiskerfinu. Landsmönnum og alvarlegum málum hefur fjölgað og fangelskerfið verður að haldast í hendur við það. Dómsmálaráðherra hefur boðað lagasetningu til að koma megi á fót lokaðri brottvísunarstöð og vista útlendinga sem ákveðið hefur verið að skuli yfirgefa landið, í stað þess að vista þá í fangelsum. Birgir Jónasson forstjóri Fangelsis...
Kjarnorkuvá í heiminum vex á ný 07.08.2025 10:00
Áttatíu árum eftir að kjarnorkusprengjum var varpað á Hiroshima og Nagasaki vara sérfræðingar og eftirlifendur við því að kjarnorkuvopnakapphlaupið sé að hefjast á ný, eftir margra ára og áratuga tímabil, þar sem markvisst var unnið að því að fækka kjarnavopnum og draga úr spennu og hættu á notkun þeirra.
GRÓ - þróunarsamvinna Íslands 06.08.2025 10:00
Í fyrra komu hátt í hundrað sérfræðingar á vegum GRÓ - þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu til landsins. GRÓ starfrækir fjóra skóla, um jafnrétti, jarðhita, landgræðslu og sjávarútveg undir hatti UNESCO, Mennta-, vísinda- og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Nína Björk Jónsdóttir forstöðumaður miðstöðvarinnar segir þetta starf eiga sér langa og merka sögu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir vi...
Vígvæðing bitnar á mannúðaraðstoð 05.08.2025 10:00
Bandaríkjaforseti krefst þess af aðildarríkjum NATO að þau verji fimm prósentum af vergri landsframleiðslu til varnar- og öryggismála eins og það er oftast orðað. Bandaríkin voru til skamms tíma nánast eina NATO-ríkið sem lagði meira en tvö prósent af vergri landsframleiðslu til þessa málaflokks, en nú stefna nánast öll aðildarríki Evrópusambandsins og NATO að fimm prósenta markinu. Þetta er rökst...
Tollar Trumps á íslenskan innflutning hækka 01.08.2025 10:00
Nýjasta útgáfan af lista Trumps yfir verndartolla á innflutningi varnings frá hátt í eitt hundrað ríkjum til Bandaríkjanna var birt að kvöldi 31. júlí. Í flestum tilvikum hækkuðu tollarnir nokkuð frá því sem áður hafði verið tilkynnt og Ísland er þar ekki undanskilið. Tíu prósenta tollur var lagður á íslenskan innflutning til Bandaríkjanna í apríl, en það er lágmarkstollur á innflutning þangað. Hv...
Menntastefna á Íslandi og mælikvarðar á skólastarf 31.07.2025 10:00
Mælikvarðar á skólastarf eru nauðsynlegir og gagnrýni á það ber að taka alvarlega, svo sem þeirri sem tengist slöku gengi íslenskra nemenda í Pisa prófinu, segir Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarsambands Íslands. Þó má ekki láta slík próf stjórna of miklu og forðast verður að festast í ákveðinni bóklegri og afmarkaðri greind, segir Magnús Þór í viðtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Umsjón: Ævar...
Staða og horfur fyrir botni Miðjarðarhafs - er tveggja ríkja lausnin enn möguleg? 30.07.2025 10:00
Á nýafstaðinni ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um svokallaða tveggja ríkja lausn til að binda enda á áratuga blóðug átök Ísraela og Palestínumanna sagði aðalframkvæmdastjóri samtakanna, Antonio Guterres, að hún væri það eina sem gæti tryggt frið og öryggi þjóðanna tveggja - en um leið fjarlægari en nokkru sinni fyrr. Ólöf Ragnarsdóttir spurði Magnús Þorkel Bernharðsson, prófessor í nútímasögu Miðaust...
Hungursneyð á Gaza 29.07.2025 10:00
Ísraelsher hefur drepið yfir 60.000 Palestínumenn á Gaza frá því að hann hóf árásir sínar 7. október 2024, til að hefna mannskæðrar hryðjuverkaárásar Hamas í Ísrael þann sama dag. Árásir hersins, bæði úr lofti og á jörðu niðri, hafa staðið linnulítið allar götur síðan, ef undan er skilið tveggja mánaða vopnahlé sem hófst 19. janúar og Ísraelar rufu 18. mars. Í mars lokuðu Ísraelar líka á nánast al...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.