RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 episodes

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Staða innflytjenda í Reykjavík, öfgar og umræða 28.07.2025

Haldinn var aukafundur í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar fimmtudaginn 24. júlí. Tilefnið var það sem í fundargerð er kallað nýjar vendinga í umræðunni um stöðu innflytjenda í borginni. Með því er vísað til þess, þegar hópur manna fylkti liði í miðborg Reykjavíkur um næstliðna helgi, allir klæddir samskonar bolum með áletruninni Skjöldur Íslands og þýskum járnkrossi, sem er alþekkt tákn í heimi...

Spegillinn 25. júlí 2025 25.07.2025

Stjórnarandstöðuflokkarnir urðu viðskila við kjósendur sína í afstöðu til veiðigjaldsfrumvarpsins, að mati stjórnmálafræðings. Ný könnun Maskínu sýnir að ánægja með stjórnarandstöðuna hefur aldrei verið minni. Krónan hefur styrkst mikið síðustu mánuði og gengi hennar er i sögulegum hæðum. Almennir borgarar fagna því að innfluttar vörur verða ódýrari en útflutningsfyrirtæki gætu orðið undir í samke...

Flóttamannaþorpið á Bifröst 24.07.2025

Í ársbyrjun 2022 voru rétt um 100 manns skráðir til heimilis á Bifröst - en þeim fjölgaði umtalsvert þegar stjórnvöld sömdu við háskólann og Borgarbyggð um að opna þar móttökustöð fyrir flóttafólk frá Úkraínu, eftir að Rússar réðust þar inn. Í dag búa þar 305 manneskjur, þar af 228 með úkraínskt ríkisfang. Ekki voru og eru allir jafn sannfærðir um að þetta sé heppilegt athvarf fyrir fólk á flótta...

Hernaður Ísraels á Gaza - þjóðernishreinsanir og/eða þjóðarmorð? 23.07.2025

Það líður ekki sá dagur að ekki berist fréttir af grimmdarverkum Ísraelshers gegn almenningi á Gaza , framin að fyrirskipan ísraelskra stjórnvalda, með vopnum og stuðningi frá Vesturlöndum. Ísraelsher hefur drepið nær 60.000 Palestínumenn frá því að nýjasti kaflinn í stríði Ísraela og Palestínumanna hófst í október í fyrra, langflesta almenna borgara og meirihlutann konur og börn. Herinn hikar end...

Málefni Kvikmyndaskóla Íslands 22.07.2025

Háskólaráðherra finnst hann ekki skulda fyrrverandi stjórnarformanni Kvikmyndaskólans frekari svör og segir niðurstöðu um að veita skólanum ekki háskólaviðurkenningu á sínum tíma hafa verið rétta. Fyrrverandi stjórnarformaður skólans telur skólann hafa staðist úttekt um háskólaviðurkenningu; annað séu rangfærslur um starfsemina. Freyr Gígja Gunnarsson fjallar um þetta og ræðir við Loga Einarsson h...

Gosmóða og gasmengun 21.07.2025

Mikil gosmóða og gasmengun hefur legið yfir stórum hluta landsins í dag og undanfarna daga og hún liggur líka yfir Speglinum. Þótt yfirstandandi eldgos á Sundhnúksgígaröðinni standi betur undir lýsingunni „óttalegur ræfill“ en gosið sem mætur jarðvísindamaður gaf þá einkunn fyrir fjórum árum, þá er mengunin frá því töluvert meiri, víðförlari og þaulsætnari en áður hefur sést frá gosstöðvunum á Rey...

Ísraelsher heldur árásum sínum á almenna borgara í Gaza áfram af fullum þunga 18.07.2025

OCHA er stofnun innan Sameinuðu þjóðanna, sem hefur það hlutverk að samræma hjálparstarf á átaka- og hamfarasvæðum, þar sem margar stofnanir og samtök eru að störfum samtímis, auka skilvirkni hjálparstarfsins, bæta dreifingu og forgangsröðun með það fyrir augum að hjálpargögn berist þangað sem þörfin er mest hverju sinni. Hernumdu svæðin í Palestínu; Vesturbakkinn og Gaza, eru á meðal þeirra staða...

Lögregla vill að vændiskaupendur séu alltaf ákærðir 17.07.2025

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill afnema þá vinnureglu að refsing fyrir fyrstu vændiskaup skuli jafnan vera fjársekt og að falla skuli frá ákæru ef vændiskaupandinn fellst á sektargerðina og greiðir hana með skilum. Reglan ætti frekar að vera sú, að ákæra alla sem staðnir eru að vændiskaupum og fara fram á fangelsisdóm, eins og lög leyfa.

Órói minnkar en enn gýs og ómögulegt að segja hve lengi 16.07.2025

Tólfta gosið á Reykjanesskaga hófst í nótt og gýs enn. Í nótt opnaðist sprunga norðaustan við Stóra- Skógfell og úr henni rennur hraun til austurs og vesturs. Benedikt Ófeigsson fagstjóri aflögunarmælinga segir óróa við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga fara hægt minnkandi.

Vændismansal á Íslandi og í Evrópu 15.07.2025

Lögregla og tollgæsla á Íslandi tóku á dögunum þátt í umfangsmiklum, alþjóðlegum aðgerðum gegn mansali á vegum Interpol. Europol og Frontex. Í þessum aðgerðum fór lögregla inn í á þriðja tug húsa og heimila og kannaði aðstæður um það bil 250 manns. Af þeim telur lögregla sig vita að 36 séu þolendur mansals, þar af þrjátíu og fjögur þolendur mansals í kynferðislegum tilgangi - það er að segja neydd...

Þinglok loksins 14.07.2025

Mikið hefur gengið á í þinginu undanfarna daga og vikur, stjórnarandstaðan setti á málþóf um veiðigjaldið og svo fór að forseti Alþingis ákvað fyrir helgi að ljúka umræðunni og að gengið skyldi til atkvæða um málið. það svo samþykkt í dag. Stjórn og stjórnarandstöðu sýnist að vonum ekki það sama um þetta.

Frumvarp um veiðigjaldið hafi farið að snúast um lýðræðið 11.07.2025

Umræðan um veiðigjaldsfrumvarp ríkisstjórnarinnar var stöðvuð í morgun af forseta Alþingis. Þetta er í fyrsta skipti síðan 1989 sem þetta er gert og þung orð voru látin falla á Alþingi í framhaldinu. Forsætisráðherra vonaði fram á síðustu stundu að það næðist samkomulag um afgreiðslu málsins en þegar á hólminn hafi verið komið hafi verið nauðsynlegt að sýna að lýðræðið væri að virka

Ástand á Alþingi 10.07.2025

Skömmu fyrir miðnætti í gær sleit Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins og fimmti varaforseti Alþingis, þingfundi, án samráðs við forseta Alþingis. Þetta varð til þess að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti sérstakt ávarp við upphaf þingfundar í morgun, þar sem hún sagði nýja og fordæmalausa stöðu komna upp í íslenskum stjórnmálum, þar sem stjórnarandstaðan neitað...

Kvikmyndaskóli Íslands 09.07.2025

Þegar Kvikmyndaskóli Íslands var að verða gjaldþrota á vormánuðum vaknaði spurning hjá embættismanni í menntamálaráðuneytinu um hvað ætti að gera við nemendurna? Væri endilega gott að þeir héldu áfram námi sínu undir merkjum Kvikmyndaskóla Íslands? Hvers konar prófgráðu væru þeir að útskrifast með? Hvers virði væri hún og hvað stæði á námskírteininu? Freyr Gígja Gunnarsson kannaði málið. Umsjón: Æ...

Krókódílabúðir Trumps 08.07.2025

„Það heitir Alligator Alcatraz, sem er afar viðeigandi, því ég kíkti á umhverfið og þetta er ekki staður sem mig langar að fara í útilegu á á næstunni,“ sagði Donald Trump, Bandaríkjaforseti í skoðunarferð um nýjustu fangabúðir Bandarískra yfirvalda fyrir óskráða innflytjendur. Þær eru í sólarríkinu Flórída, á eyju í Everglades, fenjasvæðinu mikla syðst á Flórídaskaganum. Ævar Örn Jósepsson segir...

Ekkert sem kallar á leyniþjónustu 07.07.2025

Ríkislögreglustjóri segir engar vísbendingar um að gögnum sé haldið frá Íslandi þótt hér sé ekki starfandi nein leyniþjónusta. Og hún sjái ekki í fljótu bragði ástæðu til að setja á fót slíka stofnun.

Erlendir glæpahópar nýta sér gloppur í íslenskum lögum 04.07.2025

Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur lögreglustjórans á Suðurnesjum sendi á síðasta ári dómsmálaráðuneytinu nokkur minnisblöð þar sem bent var á gloppur í kerfinu og varað við því að skipulagðir brotahópar hér á landi misnotuðu kerfi landsins, sérstaklega þau kerfi sem fengust við málefni útlendinga. Spegillinn fékk þessi minnisblöð afhent nýverið og Freyr Gígja Gunnarsson ræddi innihald þei...

Forstjóri Landspítalans um skýrslu Ríkisendurskoðunar 03.07.2025

Ríkisendurskoðun birti í gær skýrslu um stöðu Landspítalans þar sem dreginn er upp kunnugleg en um leið alvarleg mynd af stöðunni á stærstu heilbrigðisstofnun landsins; Landspítalanum. Í skýrslunni eru heilbrigðisyfirvöld sökuð um úrræðaleysi þegar kemur að mönnunarvanda spítalans sem er áfram í þeim vanda að of margir sjúklingar hans væru betur settir á hjúkrunarheimili - í þeim efnum er skuldinn...

170 hjálparsamtök fordæma GHF á Gaza og það vantar hundruð sjúkraliða á LSH 02.07.2025

Fólk á ekki að þurfa leggja líf sitt að veði til að sækja sér neyðaraðstoð, en þannig er staðan á Gaza. 170 hjálparsamtök fordæma hvernig hjálpargögnum er dreift og krefjast þess að GHF hætti þar störfum. Það vantar sárlega fólk til starfa í heilbrigðiskerfinu og ekki síst vantar sjúkraliða á Landspítalann. Í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar á spítalnum, mönnun og flæði sjúklinga kemur fram að 50 s...

315 milljónir í öryggisgæslu fyrir erlend fyrirmenni 01.07.2025

Kostnaður embættis ríkislögreglustjóra við öryggisgæslu í tengslum við erlend fyrirmenni sem hingað koma nemur 315 milljónum króna frá árinu 2023. Kröfurnar eru sífellt að verða meiri sem meðal annars má rekja til aukinnar óvissu í heimsmálum. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Sigríði Björk Guðjónsdóttur, ríkislögreglustjóra.

Breyskjuhiti í Evrópu og hálendisvaktin byrjuð 30.06.2025

Suðurhluti Evrópu er að skrælna í hitabylgju og hitamet hafa fallið á Spáni og í Portúgal. Um fimmtíu þúsund manns hafa flúið að heiman undan eldum í Izmir héraði í Tyrklandi. Í El Granado, nærri landamærum Spánar og Portúgals, fór hitinn í 46 stig á laugardaginn og hefur aldrei mælst hærri í júní og enn heitara varð í Mora í Portúgal. Hálendisvakt Landsbjargar hófst í gær þegar Björgunarfélag Árb...

Alþingi í vanda og hræðileg staða á Gaza 27.06.2025

Steingrímur J. Sigfússon sat um áratugaskeið á þingi fyrir Alþýðubandalagið og svo VG. ; ósjaldan ræðukóngur og var forseti Alþingis á árunum 2016 til 21. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem brestur á með löngum umræður undir þinglok og hnikar þeim til. Steingrímur telur að vandann megi rekja til breytinga sem gerðar voru 2007. Vatnsskorturinn á Gaza er kominn á lífshættulegt stig, þar sem einungis 40...

26.06.2025
NATO, kynleg þróun háskólamenntunar, ræktun á riðuþolnu sauðfé 25.06.2025

Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins, NATO, skuldbinda sig til að verja fimm prósentum af vergri landsframleiðslu til varnar- og öryggismála á ári hverju frá og með 2035 eða fyrr. Yfirlýsing þessa efnis var samþykkt á leiðtogafundi bandalagsins í den Haag í Hollandi 25. júní. Leiðtogar NATO-landanna fagna þessu, aðrir eru gagnrýnni - en allir virðast sammála um að fundurinn og niðurstaða hans marki...

Leiðtogafundurinn í Haag og morðmálið á Edition 24.06.2025

Leiðtogafundur Nato í Haag hefst með formlegum hætti á morgun en í kvöld snæða leiðtogarnir saman kvöldverð. Björn Malmquist er í Haag og hefur fylgst með því sem þar hefur gerst og ræddi líka við forsætisráðherra. Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á manndrápsmálinu á Edition - hótelinu fyrir tíu dögum er flókin og mörgum mikilvægum spurningum er enn ósvarað. Maðurinn sem var myrtur ásamt...

Listen to the Spegillinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.