RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 episodes

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Utanríkisráðherra um Íran og NATO-fund. Sveitarfélög á norðausturhorninu vilja samtal um veiðigjald 23.06.2025

Utanríkisráðherra segir fara verði að alþjóðalögum og hugnast ekki að fyrirferðarmeiri ríki gangi ekki af virðingu og varlega um þau. Sjálf hefði hún kosið aðra leið en að ráðast á Íran þótt ekki megi gleyma hver rótin sé. Íran er sagt eiga 400 kíló af 60% auðguðu úrani og hve mikil hætta stafar af því þegar kjarnorkustöðvar eru skotmark loftárása. Ekki hafa komið fram merki um aukna geislun eftir...

Leiðtogafundur Nato og afdrifarík hárspöng frá TEMU 20.06.2025

Leiðtogar ríkja í Atlantshafsbandalaginu koma saman á fundi í Haag í Hollandi í næstu viku. Við blasa erfið verkefni; stríðið í Úkraínu hefur geisað í þrjú ár og ógnin frá Rússlandi er mikil. Innan bandalagsins hefur verið tekist á um framlög ríkja til varnarmála og Donald Trump forseti Bandaríkjanna verið óspar á gagnrýni á önnur aðildarríki sem verði að leggja meira til öryggis- og varnarmála. S...

Sameining sveitarfélaga, fækkun offituaðgerða og hvað gerir Trump? 19.06.2025

Það stefnir í tvennar kosningar um sameiningu sveitarfélaga í ár. Sú fyrri er ákveðin í Skorradalshreppi og Borgarbyggð og þá er stefnt að kosningum um sameiningu Dalabyggðar og Húnaþings vestra. Offituaðgerðum hefur snarfækkað á síðustu árum með tilkomu þyngdarstjórnunarlyfja. 2021 voru 1.000 slíkar aðgerðir gerðar en í ár stefnir í að þær verið 150 til 200. Írönsk kona sem búsett er á Íslandi se...

Stefnir í sögulega umræðu um veiðigjöld og skrúfað fyrir gas frá Rússlandi 18.06.2025

Önnur umræða um veiðigjaldsfrumvarp atvinnuvegaráðherra hófst á Alþingi klukkan þrjú í dag. Þetta er langstærsta málið sem eftir er á þessu þingi og framhald þingstarfa ræðst að miklu leyti af því hvort formenn nái samkomulagi um hvernig það verður afgreitt. Þingflokksformaður Flokks fólksins býst allt eins við að önnur umræða standi í heila viku. Evrópusambandið stefnir að því að skrúfa alveg fyr...

Rannsókn lögreglu teygir sig yfir landamæri, flokkaflakk og hundruð þúsunda gesta við Dettifoss 16.06.2025

Rannsókn lögreglu á fjölskylduharmleik á fimm stjörnu lúxushóteli við Austurbakka í Reykjavík teygir sig bæði til Frakklands og Írlands. Henni miðar vel en er á byrjunarstigi. Ekki er útilokað að frönsk yfirvöld sendi hingað lögreglumenn til að fylgjast með rannsókn málsins. Flokkshollusta virðist ekki lengur hafa áhrif á val kjósenda eins og hún gerði, um helmingur kjósenda kaus ekki sama flokk í...

Forstjóri Play og leynifundur í Stokkhólmi 13.06.2025

Í vikunni hefur gustað um flugfélagið Play, forstjórinn ásamt öðrum vill yfirtaka það, skrá það af markaði og skila inn íslensku flugrekstrarleyfi, svo fátt eitt sé nefnt. Efasemdir hafa heyrst um áform yfirtökuhópsins og starfsmennirnir eru uggandi. Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play, hefur trú á verkefninu en viðurkennir að eins og staðan sé í dag sé ljóst að hluthafar í Play, meðal annars lífey...

Djörf ákvörðun að henda Stöðvar2-merkinu og mófugli fækkar 12.06.2025

Vörumerkið Stöð 2 heyrir sögunni til, því hefur verið skipt út fyrir Sýn sem verður yfir og allt um kring í rekstri félagsins. Djörf ákvörðun - voru fyrstu viðbrögð hjá doktor í vörumerkjastjórnun. Helmingur allra lóa í heiminum og um þriðjungur spóa verpir á Íslandi og þeim hefur fækkað síðustu ár. Ísland ber ábyrgð á því að vernda þessa stofna og uppbygging þrengir að varplöndum þeirra segir fug...

Eldhúsdagur og nýjar refsiaðgerðir gegn Rússlandi 11.06.2025

Eldhúsdagsumræður eru á Alþingi í kvöld og marka alla jafna þinglok - en þau eru ekki í augsýn Fjöldi mála er enní nefnd eftir fyrstu umræðu. Þórarinn Ingi Pétursson, Framsóknarflokki og Lilja Rafney Magnúsdóttir Flokki fólksins eru þó bæði á því að samkomulag náist um þingstörfin það geri það alltaf. Þeim sýnist þó sitt hvoru um eitt stærsta mál þingsins, veiðigjaldið. Víðtækar refsiaðgerðir gegn...

Play, Los Angeles og stóru málin hjá lögreglunni suður með sjó 10.06.2025

Í minnisblaði setts lögreglustjóra á Suðurnesjum um stöðuna á landamærunum og baráttuna gegn skipulagðri glæpastarfsemi er dregin upp býsna skýr mynd af stöðunni; það vantar menntaða lögreglumenn þar sem embættið hefur að sumu leyti lent undir í samkeppninni við önnur lögregluembætti; Við fjöllum líka um þá ákvörðun Donalds Trump forseta Bandaríkjanna sem sendi þjóðvarðalið og landgönguliða til að...

Starfsáætlun tekin úr sambandi og stóru málin eftir 06.06.2025

Það er vandséð hvernig á að ljúka þingstörfum og nánast hægt að fullyrða að þinglok verða ekki á föstudag í næstu viku; það er ekki búið að afgreiða stærsta málið á yfirstandandi þingi úr nefnd; veiðigjaldið og í dag var sett á dagskrá bókun 35 við litla hrifningu sumra þingmanna stjórnarandstöðunnar. Þegar menn voru að setja sig í stellingar bárust svo tíðindi af nýrri ráðgjöf Hafrannsóknarstofnu...

05.06.2025
Gaza verra en helvíti á jörð, Alþingi og ríkisborgararéttur og gervigreind 04.06.2025

Gaza er verra en helvíti á jörðu - segir forseti alþjóðaráðs Rauða krossins og það sem þar gerist er í trássi við öll viðmið alþjóðalaga, mannúðar og siðferðis. Það þarf mikið til að Rauði krossinn taki svo djúpt í árinni segir framkvæmdastjóri RKÍ og það sýnir hve brýnt er að brugðist verði við. Milljónir stríðshrjáðra íbúa sveltur á Gaza. Þingmenn stjórnarandstöðu gagnrýndu framgang formanns all...

Samskipti Víðis og snjómokstur í júní 03.06.2025

Forstjóri Útlendingastofnunar taldi sig þurfa skýr svör frá formanni allsherjar- og menntamálanefndar um hvort Alþingi ætlaði sér að veita sautján ára kólumbískum dreng íslenskan ríkisborgararétt. Til að gæta jafnræðis yrði annars að fresta brottflutningi átján annarra umsækjenda sem hafa sótt um ríkisborgararétt en á að flytja úr landi. Formaður nefndarinnar var í samskiptum við ríkislögreglustjó...

Snemmsumarshvellur og mótmæli gegn útlendingum 02.06.2025

Norðanóveður er í spánni. Óvissustigi hefur verið lýst yfir á Austurlandi, Austfjörðum og Suðuarusturlandi og gildir langt fram á morgundaginn. Katrín Agla Tómasdóttir, veðurfræðingur tekur undir að þetta sé ekki einsdæmi snemmsumars en mjög óvenjulegt á þessum tíma. Hret á þessum árstíma getur bitnað illa á bændum, þeir þurfa að vera fljótir að stökkva til og koma kindum og nýfæddum lömbum í skjó...

Lokaspretturinn framundan hjá þinginu 30.05.2025

Síðustu dagarnir á Alþingi eru oftar en ekki spretthlaup þar sem mörg mál eru afgreidd á skömmum tíma. Í sumar gæti þetta orðið langhlaup eða jafnvel utanvegahlaup því vísir að einhvers konar samkomulagi um þinglok virðist ekki innan seilingar.

Varnarbúnaður á norðurslóðum 28.05.2025

Aukinn varnarbúnaður á norðurslóðum var meðal þess sem Kristrún Frostadóttir, forsætirráðherra og Mark Rutte, framkvæmdastjóri Nato, ræddu á blaðamannafundi sínum í dag. Í Háskólanum á Akureyri var einnig fjallað um norðurslóðir í dag og þau miklu áhrif sem breytt heimsmynd hefur haft innan Norðurskautsráðsins meðal annars. Þá er spurt hvort ríkisstjórnin eigi að stöðva málþóf sem komið er fram úr...

Átök í litlum flokkum og forsætisráðherra hittir framkvæmdastjóra Nató 27.05.2025

Síðustu daga hafa væringar á vinstri vængnum verið áberandi í fréttum. Miklar sviptingar urðu hjá Sósíalistaflokknum um helgina og jafna má til hallarbyltingar. Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði, segir erfiðara að vera í litlum en stórum stjórnmálaflokki. Forsætisráðherra hittir á morgun framkvæmdastjóra Nato. Fundurinn er liður í undirbúningi fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsin...

Bætur vegna símhlustunar og áhrif veiðigjalds á litla báta 26.05.2025

Íslenska ríkið greiddi tæpar 10 milljónir króna í skaðabætur vegna símhlustana sérstaks saksóknara í hrunmálum og fjórar milljónir í lögmannskostnað. Þetta kemur fram í tölum frá ríkislögmanni. Tuttugu og átta kröfðust bóta. Í tuttugu og fjórum tilvikum var samið um bætur. Þrjú mál fóru fyrir dóm, þar sem tveimur lauk með dómsátt og einu með dómi. Einni kröfu var hafnað. Fyrirhuguð hækkun veiðigja...

Gervigreind hjá skipulögðum glæpahópum, stækkunarstjóri ESB og niktótínpúðar 23.05.2025

Halla Hrund Logadóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, kallaði í vikunni eftir hertari aðgerðum gegn Nikótínpúðum. Hlutfall ungmenna sem nota slíka níkótínpúða er hvergi hærra á Norðurlöndum en á Íslandi - Á stóru blaði sem hangir á veggnum á skrifstofunni hjá stækkunarstjóra Evrópusambandsins í í Brussel, eru nöfn níu ríkja sem sótt hafa um aðild að ESB og yfirlit yfir hvernig viðræðurnar ganga -...

22.05.2025
Utanríkisráðherra um Gaza, stýrivaxtalækkun og menning í ferðaþjónustu 21.05.2025

Staðan á Gaza og aðgerðir Evrópusambandsins var umræðuefni á ráðherrafundi EES ríkjanna í Brussel í dag, þar sem Kaja Kallas utanríkismálastjóri ESB var meðal þátttakenda. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tók þátt í þessum fundi; hún segir það ánægjulegt að aðildarríki ESB séu að ná samstöðu um harðari aðgerðir gagnvart Ísrael. Viljayfirlýsing um nánara samstarf á sviði utanríkis og öryggismála var...

Leigubílafrumvarp, alþjóðastjórnmál og ágenga trjátegundin stafafura 20.05.2025

Innviðaráðherra mælti á Alþingi í dag fyrir frumvarpi um breytingar á lögum um leigubílaakstur. Stöðvarskylda verður innleidd á ný og bílstjórum gert að skrá allar ferðir sínar rafrænt. Ráðherra segir að traust almennings til leigubílstjóra hafi algjörlega hrunið og við því verði að bregðast. Nauðsynlegt sé að tryggja betur öryggi farþega. Bandaríkjaforseti heldur áfram þeirri stefnu að draga Band...

Matvælaverð hækkar í hverjum mánuði, leiðtogafundur í London og sólarorkubylting 19.05.2025

Verð á matvælum hefur hækkað í hverjum einasta mánuði frá áramótum samkvæmt verðlagseftirlit ASÍ. Nautakjöt hefur hækkað mest og í einstaka tilfellum um allt að 20 prósent á ársgrundvelli. Það eru að verða níu ár síðan meirihluti breskra kjósenda samþykkti útgöngu úr Evrópusambandinu - og rúm fimm ár síðan útgangan tók formlega gildi - en á leiðtogafundi sem haldinn var í Lundúnum í morgun var hin...

Vill fúskara burt og áhrif á sveitarfélög af hækkun veiðigjalds 16.05.2025

Hækkun veiðigjalds getur haft afdrifarík áhrif á einstaka byggðakjarna og breytingin gæti náð langt út fyrir útgerðina, snert samfélög í heild og umhverfi þeirra. Þetta kemur fram í drögum að umsögn samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem þau kynntu fyrir þingmönnum á fundi í morgun. 141 fyrirtæki verður fyrir verulegum áhrifum af hækkun veiðigjaldsins, tuttugu og sex þeirra eru á Vestfjörðum. Húsnæ...

Fimm stóru og enginn fundur 15.05.2025

Brim, Samherji, Síldarvinnslan, Ísfélagið og Fisk-Seafood greiddu meira en þriðjung af heildarupphæð veiðigjalds á síðasta ári, eða 3,7 milljarða. Eignir þessara félaga hlaupa á hundruðum milljarða króna. Ekkert varð af fundi forseta Úkraínu, Rússlands og Bandaríkjanna í Tyrklandi til að ræða um hvernig mætti binda enda á stríðið í Úkraínu en sendinefndir Rússa og Úkraínumanna ræðast við í Istanbú...

Listen to the Spegillinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.