RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 episodes

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Útboð á hlut ríkisins í Íslandsbanka, verð á laxveiði og gleyminn síldarstofn 14.05.2025

Ekki er mikill ágreiningur um sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka á þingi en menn eru ekki alveg á einu máli um tímasetningu og hvað sé ásættanlegt verð. Verð á laxveiðileyfum vekur á stundum furðu og hneykslan en eftirspurnin er mikil og auðlindin takmörkuð segja þeir sem selja. Fyrir fjórum árum færðust hrygningarstöðvar norsk-íslenska síldarstofnsins skyndilega 800 kílómetra norður með ströndum...

Indverskir hakkara herjuðu á lögmannsstofu og „sextortion“ í viku hverri 13.05.2025

Indverskir tölvuhakkarar herjuðu á lögmannsstofu sem sá meðal annars um hópmálsókn gegn Björgólfi Thor. Stór kúnni þessarar lögmannsstofu var það líka og það hvaða einstaklinga helst var herjað á í þeim innbrotstilraunum, varð blaðamönnum Reuters tilefni til að vangaveltna um hvort einhver Íslendingur, þriðji íslenski aðilinn, tengdist málinu; hvort hann hefði ráðið málaliðana indversku til starfa...

Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum, Karl Wernersson ákærður fyrir skilasvik og framkvæmdir hjá Landsneti 12.05.2025

Fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag liggur mál um skyldur Ísraels samkvæmt alþjóðalögum til að tryggja íbúum á hernumdum svæðum í Palestínu nauðþurftir, skyldur sem Ísland líkt og meginþorri ríkja sem sendu inn skriflega greinargerð til dómstólsins telja að Ísrael sé brotlegt við. Karl Emil Wernersson, einn umfangsmesti fjárfestir á árunum fyrir hrun, sonur hans og sambýliskona hafa verið ákærð af embæ...

Fyrstu umræðu um veiðigjaldið lýkur á laugardegi 09.05.2025

Þingfundur stóð fram til klukkan eitt í nótt þegar fyrstu umræðu um veiðigjaldsfrumvarp atvinnuvegaráðherra var haldið áfram. Það var gert hlé á þessari umræðu á miðvikudag til að samþykkja sölu á hlutabréfum í Íslandsbanka en hafist var handa við að kryfja þetta eldfima málefni klukkan hálf eitt á hádegi í gær - og umræðan stóð fram yfir miðnætti. Reynt var að finna lausn á því hvenær ætti að ljú...

Hleranir og gagnastuldur - Sigurður G. Guðjónsson, Víðir Reynisson og Ingibjörg Isakssen 08.05.2025

Aðeins eitt mál komst að í Speglinum að þessu sinni. Hleranir eftirhrunsáranna og gagnastuldur frá sérstökum saksóknara. Rætt er við Sigurð G. Guðjónsson lögmann, sem var verjandi Sigurjóns Árnasonar fyrrverandi bankastjóra og þingmennina Víði Reynisson og Ingibjörgu Isakesen.

Stórhuga ferðaþjónusta og laskaður kanslari 07.05.2025

Norðurland getur orðið eitt af mest vaxandi ferðaþjónustusvæðum í Norður-Evrópu ef rétt er á málum haldið. Þetta fullyrðir talsmaður ferðaþjónustunnar fyrir norðan og segir þau uppskera núna eftir margra ára undirbúning. Aukin fjárfesting og beint millilandaflug hafi skapað fjölda nýrra tækifæra. Friedrich Merz, nýr kanslari Þýskalands hitti forseta Frakklands í dag í París, á sínum fyrsta fundi s...

Bæjarstjóri spáir í veiðigjöld, Norðmenn fylgjast með dómsmáli afreksfjölskyldu, hagsmunaskráning og dagbækur ráðherra 06.05.2025

Fyrsta umræða um frumvarp um veiðigjöld hófst í gær og stendur enn. Bæjarstjórinn í Snæfellsbæ fagnar því að ráðherra hafi hlustað á varnaðarorð sveitarfélaga sem reiða sig á lítil og meðalstór sjávarútvegsfyrirtæki. Glæpir geta leitt til réttarhalda og dóma. En hvað ef meintur glæpur snýst um metnað og hörku við að gera syni sína að heimsfrægum afreksmönnum. Um þetta fjalla frægustu réttarhöld í...

Utanríkisráðherra um Gaza og veiðigjaldið 05.05.2025

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir mikilvægt að Ísland noti rödd sína á alþjóðavettvangi og knýi fram aðgerðir vegna ástandsins þar. Hún segir ljóst að aðrir hagmsunir vegi meira hjá mörgum stórþjóðum, sem láti þar af leiðandi lítið til sín taka. Ísrael sé að fremja stríðsglæpi á Gaza. Atvinnuvegaráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi sínu um breytingar á veiðigjaldi á Alþingi í...

Besta eða versta borgin? 02.05.2025

Ársreikningur Reykjavíkurborgar var kynntur í dag, þar kom fram að borgin var rekin með rúmlega tíu milljarða króna afgangi, þremur milljörðum krónum betri niðurstaða en áætlanir gerðu ráð fyrir - þetta er nokkuð sérstakur ársreikningur, hann er frá tíð meirihlutans sem sprakk með eftirminnilegum hætti í byrjun árs. Nú er komin nýr borgarstjóri og nýr meirihluti og honum fylgja væntanlegar nýjar á...

Njósnir í viðskiptalífinu og traust til lögreglu 30.04.2025

Fyrirtæki sem taka að sér að afla upplýsinga um keppinauta eða andstæðinga í viðskiptalífinu þekkjast víða og hafa sum teygt anga sína hingað. Njósnir á vegum viðskiptamanna voru umfjöllunarefni Kveiks, hvaða áhrif hefur þáttur lögreglu í þessu á traust til hennar, hvernig er fylgst með störfum lögreglu og hvaða skorður eru við aukavinnu lögreglu. Rætt við þingmennina Vilhjálm Árnason (D) og Ásu B...

Veiðigjaldið og fyrstu hundrað dagar Donalds Trumps 29.04.2025

Donald Trump forseti Bandaríkjanna hefur skrifað undir rúmlega 140 forsetatilskipanir á fyrstu 100 dögum sínum í embætti. Enn er þó ekki víst að allar tilskipanir TRumps gangi eftir og tekist er á um fjölda þeirra fyrir dómstólum. En við byrjum fyrst á umdeildasta málinu á þessu vorþingi - veiðigjaldinu. Það var afgreitt úr ríkisstjórn í morgun og á því hafa orðið nokkrar breytingar. Hanna Katrín...

Umdeildar þjálfunaraðferðir, kosið í Kanada og íslenska birkið 28.04.2025

Samskiptaráðgjafi íþrótta- og æskulýðsstarfs fer hörðum orðum um aðferðir sem körfuboltaþjálfarinn Brynjar Karl Sigurðsson hefur beitt í sinni þjálfun. Brynjar segir álitið vera eina af ástæðum þess að hann er í forsetaframboði hjá ÍSÍ, og kallar það nornaveiðar. Milljónir Kanadamanna kjósa í kosningum sem eru sagðar þær mikilvægustu í sögu landsins - en snúast ekki aðeins um ástandið í Kanada hel...

Meira um leigubíla, vanskil eldri borgara og vistrækt 25.04.2025

Samgönguráðherra vill breyta lögum um leigubílaakstur en gerir það líklega í tveimur skrefum. Starfshópur um endurskoðun laganna átti að skila tillögum í byrjun þessa mánaðar en gerir það ekki heldur verður að störfum fram á haust. Einmanaleiki, tilgangsleysi og skömm ýta eldra fólki í að taka dýr skyndilán sem það á í erfiðleikum með að greiða til baka. Vilborg Oddsdóttir, félagsráðgjafi hjá Hjál...

Telur ástandið á leigubílamarkaði óviðunandi og hvernig verða 48 daga strandveiðar? 23.04.2025

Tæp 28 þúsund tonn af þorski þyrfti til að stunda 48 daga standveiðar í sumar miðað við sama fjölda báta og gerðir voru út í fyrra. Þetta kemur fram í minnisblaði til stjórnarflokkanna við stjórnarmyndun fyrr í vetur. Talið er ólíklegt að hægt væri að sækja þessar veiðiheimildir án þess að skerða kvóta annarra útgerða. Talsmaður smábátaeigenda segir þetta fráleitar tölur. Reynslan sýni allt önnur...

Dramatík á leigubílamarkaði og hver verður næsti páfi 22.04.2025

Átök eru í heimi leigubílstjóra þar sem ásakanir um sviksamlega há gjöld fyrir akstur annars vegar og kynþáttafordóma hins vegar, ganga á víxl. Kristín Sigurðardóttir brá sér í bæinn aðfaranótt laugardags fyrir páska. Þegar útför Frans páfa lýkur á laugardag hefur Giovanni Battista Re, djákni kardínálaráðsins, allt að tuttugu daga til að kalla til Rómar þá 135 kardínála sem kosið geta næsta páfa....

Dómsmálaráðherra um skipulagða brotastarfsemi og garðyrkjubóndi og himinhátt rafmagnsverð 16.04.2025

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir stjórnvöld getað gripið til margra aðgerða í baráttu sinni gegn skipulagðri brotastarfsemi; fjölga lögreglumönnum, efla fræðslu og auka heimildir lögreglu. Hún viðurkennir að staðan í fangelsismálum sé mjög slæm og það séu eins röng skilaboð og hugsast getur þegar maður hlýtur dóm en þarf aldrei að sitja hann af sér. Freyr Gígja Gunnarsson r...

Trumpstjórnin setur háskólum stólinn fyrir dyrnar og borgarstyrjöld í Súdan 15.04.2025

Stjórnvöld í Bandaríkjunum krefjast þess að háskólar vestra geri breytingar sem háskólamenn segja ganga út yfir rannsókna- og tjáningarfrelsi. Valdabarátta tveggja herforingja í Súdan hefur hrakið milljónir sveltandi landsmanna á flótta í eigin landi og lítið hefur verið gert til að binda enda á blóðuga borgarastyrjöld sem hefur staðið þar í tvö ár. Á Akureyri undirbúa menn gerð samfélagssáttamála...

Breytingar á endurgreiðslum og hringferð bænda og ráðherra 14.04.2025

Fyrirhugað er að gera breytingar á því hvernig endurgreiðslum fyrir kvikmynda-og sjónvarpsverkefni verður háttað. Markmiðið á að vera að draga úr ófyrirséðum útgjaldavexti. Ef líkum lætur verður nýtt met slegið á þessu ári í endurgreiðslum; áætlað er að þær nemi sex milljörðum Afkoma bændastéttarinnar, nýliðun, tollvernd og stuðningur við íslenskan landbúnað, var það sem helst brann á bændum í hri...

Óttast nýja kvótastétt og gamlar byggingar 11.04.2025

Forstjóri Landsvirkjunar óttast að til verði ný kvótastétt ef áherslum verður breytt varðandi greiðslur fyrir vatnsréttindi vegna virkjanaframkvæmda og landsréttindi vegna fyrirhugaðra raforkuvera. Sérstaða íslenskrar byggingarsögu er að stærstur hluti bygginga er frá tuttugustu öld segir Pétur H. Ármannsson, arkitekt og sviðsstjóri húsverndarsviðs á Minjastofnun Íslands. Til stendur að aflétta um...

Veiðigjald og Trump bakkar 10.04.2025

Sérfræðingar í atvinnuvegaráðuneytinu töldu strax í desember að sú breyting að miða verð á uppsjávarfiski við verð á uppboðsmörkuðum í Noregi væri einföld í útfærslu, lagatæknilega séð. Ef vel væri haldið á spilunum væri hægt að koma fram með frumvarp strax á vorþingi. Þeir lögðu líka áherslu á mikilvægi samráðs og að hafa þyrfti í huga að fyrirkomulag veiða og vinnslu í Noregi væri ólíkt því sem...

Forsætisráðherra ræðir um tollaskjól og skipulögð brotastarfsemi 09.04.2025

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra ræddi í dag við forystu Evrópusambandsins um tollamál og hvernig Ísland gæti komist hjá því að lenda á milli í tollastríði Evrópu og Bandaríkjanna. Hún segir að sín skilaboð hafi komist skýrt og milliliðalaust til skila. Kristrún hefur áhyggjur af áhrifum þess á íslenskan útflutning ef ESB bregst hart við því ef vörur sem ekki eigi greiða leið inn á Bandaríkj...

Fjármálaráðherra um tollastríðið og Kennedy ráðleggur bólusetningar 08.04.2025

Tollastríðið sem skollið er á hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgst hefur með fjölmiðlum síðustu daga, Bandaríkjaforseti hleypti öllu í bál og brand með verndartollum sem hann lagt á byggð og óbyggð ból; Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, sagði í Morgunútvarpinu í morgun að tollastefna Bandaríkjastjórnar myndi áfram koma illa við hagkerfi heimsins og það væri ákveðin hætta á heimskreppu. Daði...

Tollastríðið magnast, Landsvirkjun og ríkið takast á og stjórnarmenn af landsbyggðinni vantar 07.04.2025

Bandaríkjaforseti linnir ekki yfirlýsingum um frekari tollheimtu. Hann ætlar að leggja 50% viðbótartolla á kínverskar vörur ef Kínverjar leggja refsitolla á bandarískar vörur. Verð á hlutabréfamörkuðum féllu um allan heim, líka þeim bandaríska eftir nokkrar sveiflur á deginum. Landsvirkjun og ríkið hafa ekki náð saman um hvernig eigi að greiða fyrir vatnsréttindi Hvammsvirkjunar og landsréttindi v...

Nýtt húsnæði geðdeildar ekki á fjármálaáætlun og Carbfix daðrar við Húsavík 04.04.2025

við heyrum í Húsvíkingum eftir íbúafund með Carbfix, verkefni sem Hafnfirðingar vildu ekki sjá í bakgarðinum hjá sér, heyrum af atburðum í Úkraínu og á Gaza síðasta sólarhringinn en byrjum á geðheilbrigðismálum - Ekki er fyllilega ljóst hvar ný bygging undir geðþjónustu Landspítala verður og hennar er hvergi getið í þeirri fjármálaáætlun sem kynnt var í vikunni.. Kostnaður við að reisa bygginguna...

Tollheimta Trumps og óviss áhrif á íslenskan iðnað og magnleysi alþjóðastofnana gagnvart stríðsglæpum 03.04.2025

Tilkynningar Donalds Trumps um tolla á innfluttar vörur til Bandaríkjanna var beðið nokkuð lengi. Bandaríkin eru mikilvægur markaður fyrir íslenskar vörur þó að mestur vöruútflutningur héðan sé til Evrópu. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir enn erfitt að átta sig á hver áhrif tollheimtunnar verða, þó sé jákvætt að dregið hafi úr óvissu og að íslenskar vörur lendi í lægst...

Listen to the Spegillinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.