RÚV
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Öryggismál og hafið umhverfis Ísland, áhrif veiðigjalds í sjávarbyggðum, tollastefna Bandaríkjaforseta 02.04.2025 20:00
Íslendingar hafa sýnt af sér ákveðna værukærð hvað varðar eftirlit með hafinu og auðlindum þess. Þótt ekki sé hægt að segja að við höfum trassað ábyrgð okkar í varnarmálum þurfa menn að stíga upp og tryggja við séum verðugir bandamenn í alþjóðlegu samstarfi, segir Auðunn Kristinsson, aðgerðastjóri Landhelgisgæslunnar, í samtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Fyrirhugaðar breytingar á veiðigjaldi gæ...
Hvað er að gerast í iðrum jarðar 01.04.2025 20:00
113 dagar voru liðnir frá síðasta gosi á Sundhnúksgígaröðinni þegar byrjaði að gjósa á tíunda tímanum í morgun. Það virðist hafa verið stutt og laggott af , einhverjir vilja meina að þetta sé stysta gosið og þá vakna spurningar; var þetta stóra gosið sem allir voru að bíða eftir eða forleikur að einhverju meira? Og hvað með Grindvíkinga; það sjáust áþreifanleg merki þess í morgun að þeir íbúar sem...
100 daga ríkisstjórn og eftirlitslaus ungmenni á netinu 31.03.2025 20:00
Gengið hefur á ýmsu fyrstu 100 daga ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins en engan bilbug var að finna á formönnunum þegar blásið var til fundar. Fjármálaráðherra kynnti í morgun 5 ára fjármálaáætlun og þar boðuð aukin útgjöld til öryggis- og varnarmála og framkvæmda í vegamálum tekjur á meðal annars að sækja með veiðigjaldi, kílómetragjaldi og gjaldtöku af ferðamönnum. Kristrú...
Rándýrar viðgerðir á sumarbústað forsætisráðherra og borgarstefna 28.03.2025 20:00
Framkvæmdir og viðgerðir á forsætisráðherrabústaðnum á Þingvöllum kostuðu 609 milljónir. Þegar framkvæmdir hófust haustið 2021 áttu þær aðeins að standa í nokkra mánuði - en þeim lauk ekki fyrr en síðasta sumar. Tillögur um Borgarstefnu Íslands hafa færst verulega frá þeirri upphaflegu framtíðarsýn að Akureyri verði svæðisborg. Þetta er álit lektors við Háskólann á Akureyri. Engin þörf sé fyrir hö...
Samkeppnislagabrot sem fyrnast, gagnrýni á strandveiðar og umdeildir gestir á ísraelskri ráðstefnu um gyðingahatur 27.03.2025 20:00
Rannsókn héraðssaksóknara á samkeppnislagabrotum fjögurra starfsmanna Samskipa og Eimskips var hætt í desember þar sem of langt hlé hafði verið gert á rannsókninni og hún taldist því fyrnd. Fjórir voru með réttarstöðu sakbornings í nærri sjö ár. Héraðssaksóknari og Samkeppniseftirlitið ætla að ræða stöðuna við dómsmálaráðherra. Formaður Neytendasamtakana segir samkeppnislagabrot hafa lítinn fæling...
Sjómenn og veiðigjöld, mótmæli í Tyrklandi, aðstæður úkraínskra barna 26.03.2025 20:38
Fiskverð skiptir sjómenn öllu, segir Valmundur Valmundsson, formaður Sjómannasambandsins. Ef verð á uppsjávarfiski hefur verið vanmetið árum saman eiga sjómenn inni hjá útgerðinni og hljóta að sækja það aftur í tímann - þó ekki sé enn ljóst hvernig. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Valmund. Mótmæli brutust út í Istanbúl og fleiri borgum Tyrklands í liðinni viku, þegar út spurðist að borgarstjórin...
Hörð viðbrögð SFS um veiðigjaldsfrumvarp atvinnuvegaráðherra 25.03.2025 20:00
SFS er harðort í garð stjórnvalda eftir að frumvarp um hækkun veiðigjalds var kynnt á blaðamannafundi í dag. Skortur á samráði, segir framkvæmdastjóri SFS. Í þættinum verður líka fjallað um sívaxandi óánægju og reiði Serba í garð stjórnvalda og æ fjölmennari mótmæli í helstu borgum Serbíu undanfarna mánuði.
Afsögn barnamálaráðherra rædd á þingi, heimsókn bandarískra ráðamanna til Grænlands og umsáturseinelti 24.03.2025 20:00
Forsætisráðherra heyrði af orðrómi skömmu fyrir fund leiðtoga ríkisstjórnarinnar á fimmtudag að fyrrverandi menntamálaráðherra hefði bæði hringt og heimsótt konu í Kópavogi sem sagði ráðherra hafa eignast barn með unglingspilti fyrir rúmum þremur áratugum. Mennta- og barnamálaráðherra gekkst við þessari hegðun á krísufundi með formönnunum skömmu síðar. Þetta staðfestir forsætisráðuneytið. Ágangi b...
Stjórnarandstaðan beinir spjóti sínu að ríkisstjórninni 21.03.2025 20:00
Þingflokksformenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks segja máli Ásthildar Lóu Þórsdóttur, barna-og menntamálaráðherra, ekki lokið og forsætisráðherra eigi eftir að skýra mál sitt betur. Fjölmörgum spurningum sé áfram ósvarað. Síðar í þættinum heyrum við af því, hvernig spænskum hægrimönnum tókst að tryggja skotleyfi á spænska úlfa í nafni baráttunnar gegn matarsóun
Barnamálaráðherra í vanda, landgrunn Íslands 20.03.2025 20:00
Ásthildur Lóa Þórsdóttir barnamálaráðherra eignaðist barn 23 ára, með sextán ára pilti, sem heldur því fram að sambandið hafi hafist þegar hann var fimmtán ára. Hann segir hana hafa leitt trúarlegt unglingastarf, sem hann tók þátt í. Fyrir viku fékk forsætisráðuneytið erindi á sitt borð, þar sem forsætisráðherra er upplýstur um málavexti. Sendandi þess segist hafa fengið á sama tíma upplýsingar um...
Málefni barna í vanda, Ísraelar rjúfa vopnahlé og grásleppukvóti 19.03.2025 20:00
Spegillinn fjallaði í gær ítarlega um meðferðarheimili fyrir börn sem til stóð að reisa í Garðabæ. Þar kom meðal annars fram að Barna- og fjölskyldustofa hefði gefist upp á biðinni og viljað að húsið yrði reist í Mosfellsbæ. Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, sem hefur mikla reynslu af þessum málum, segir umfjöllunina í gær hafa eiginlega staðfest tilfinningu sem hún hafi haft lengi....
Ísraelar rjúfa vopnahlé á Gaza, utanríkisráðherra fordæmir árásirnar og meðferðarheimilið sem aldrei reis í Garðabæ 18.03.2025 20:00
Utanríkisráðherra fordæmir loftárásir Ísraelshers á Gaza í nótt sem bundu enda á tveggja mánaða vopnahlé. Hún tekur undir með Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna, að stríðsrekstur Ísraela á Gaza beri öll einkenni þjóðarmorðs. Nærri þrjú hundruð blaðsíður af gögnum varpa ljósi á hvers vegna nýtt meðferðarheimili fyrir börn hefur enn ekki risið í Garðabæ. Bygging heimilisins virðist hafa verið svæf...
Rannsókn á andláti og sögusagnir, Afríkuríki býður Bandaríkjunum aðgang að auðlindum fyrir aðstoð 17.03.2025 20:00
Lögreglan á Suðurlandi rannsakar andlát manns sem var saknað í Þorlákshöfn fyrir viku og fannst þungt haldinn í Reykjavík morguninn eftir. Grunur eru um manndráp, fjárkúgun og frelsissviptingu. Sex eru í gæsluvarðhaldi. Prófessor í afbrotafræði segir málið um margt óvenjulegt ekki síst sá miklu fjöldi sem tengist því. Krafa Bandaríkjaforseta um aðgengi að auðlindum Úkraínu í skiptum fyrir hernaðar...
Nær ómögulegt fyrir ráðherra að skilja persónu sína frá embættinu, ofbeldi í skólum og rángeitungar 14.03.2025 20:00
Það er mjög erfitt, allt að því ómögulegt fyrir ráðherra að aðskilja sig og sína persónu frá embættinu segir Kári Hólmar Ragnarsson dósent við lagadeild HÍ. Rætt við hann um orð mennta-og barnamálaráðherra sem sagðist ekki gera ráð fyrir réttlæti hjá dómstólum. Þó að ráðherra hafi beðist afsökunar á þessu er ekki víst að það dugi til. Ofbeldi meðal barna er ekki nýtilkomið en tilfelli koma upp hjá...
Morðmál, ÍL-sjóður og tollastríð 13.03.2025 20:00
Fjórir eru í haldi lögreglunnar á Suðurlandi, þar af þrjú í gæsluvarðhaldi í tengslum við rannsókn á manndrápi, fjárkúgun og frelsissviptingu. Sá fjórði var handtkeinn í dag; þau sem eru í gæsluvarðhaldi eru landsþekktur ofbeldismaður, kona á fertugsaldri og piltur um tvítugt. Málið hefur vakið óhug en maðurinn, sem er á sjötugsaldri, var skilinn eftir á göngustíg í Gufunesi. Hann var fluttur á sj...
Hungri beitt sem vopni og kosningaúrslit á Grænlandi 12.03.2025 20:00
Engir trukkar fá að fara með lífsnauðsynlega mannúðaraðstoð til stríðshrjáðra og hungraðra Gazabúa, engan mat, engin sjúkragögn eða lyf, ekkert eldsneyti, ekkert drykkjarvatn, engin hjálpargögn af neinu tagi. Forstjóri UNRWA sagði í vikunni að verið væri að vopnvæða mannúðaraðstoð. Miklar sviptingar urðu í grænlenskum stjórnmálum í gær. Stjórnin féll og frjálsyndur hægri flokkur varð stærstur í fy...
Erum við of háð Bandaríkjunum? Bjarga aukar strandveiðar blæðandi byggðum? 11.03.2025 20:00
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra segir ekkert í varnarsamningi leyfa Bandaríkjunum að koma hingað með tuttugu þúsund manna her án þess að spyrja kóng né prest. Önnur Evrópulönd spyrji sig sömu spurningar og Ísland; erum við of háð Bandaríkjunum? Ný ríkisstjórn ætlar að tryggja fleiri daga á strandveiðum í sumar. Inga Sæland, formaður flokks fólksins sem er félags...
Vegakerfi Íslands og vígbúnaður Evrópu 10.03.2025 20:00
Þetta er langhlaup, segir Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, um ástandið í vegakerfinu. Komið sé að krossgötum en vandinn verði ekki leystur með einu pennastriki heldur þurfi fimm til tíu ára átak. Samgönguráðherra hefur bent ríkisstjórninni á að núverandi ástand feli í sér alvarlegan veikleika fyrir íslenskt samfélag. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Bergþóru. Ráðamenn í Evrópu st...
Lokakaflinn hafin á Sundhnúksgígaröðinni og hernaðarandstæðingur um óróann í Evrópu 07.03.2025 20:00
Lokakaflinn á Sundhnúksgígaröðinni er líklega hafinn, segir Benedikt Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur og fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands. Sennilega er innistæða fyrir einu eldgosi í viðbót, hvenær það verður er erfiðara að spá fyrir um. Og hvað gerist svo næst og hvenær? Í jarðfræðinni eru hundrað ár eins og eitt augnblik, segir Benedikt. Það er óhætt að fullyrða að allir - eða í þa...
Kópavogur vill hagræða en önnur sveitarfélög bíða og hvað er málið með Grænland? 06.03.2025 19:53
Í þættinum verður fjallað um kosningar á Grænlandi, sem sjaldan hafa vakið jafnmikla athygli út fyrir landsteinana og nú, vegna fjölmargra frétta sem borist hafa um allan heim, um viðvarandi ásælni Donalds Trumps, Bandaríkjaforseta, í landið og auðlindir þess. Yfirlýsingar forsetans hafa hleypt illu blóði í ráðamenn á Grænlandi, í Danmörku og víðar á Vesturlöndum, en líka nýjum og auknum krafti í...
Ólga í alþjóðastjórnmálum og stjórnarandstæðingar um hagræðingartillögur 05.03.2025 20:08
Donald Trump fór mikinn í stefnuræðu sinni á Bandaríkjaþingi í gær, þar sem hann talaði lengur en nokkur annar Bandaríkjaforseti hefur gert við slíkt tækifæri, hartnær 100 mínútur. Um alþjóðamál talaði forsetinn tiltölulega lítið. Hann minntist þó á mikilvægi þess að Bandaríkin fengju full yfirráð yfir Grænlandi og Úkraínustríðið nefndi hann nánast í framhjáhlaupi. Ævar Örn Jósepsson ræðir við Ing...
Milljarða sparnaður, sjúklingar í gáma og stóra te hneykslið 04.03.2025 20:00
Tillögur um tugmilljarða sparnað í ríkisrekstri upp úr ábendingum almennings voru kynntar í dag. Sameiningra stofnana, niðurlagning sjóða, breytingar á lögum um opinbera starfsmenn og jafnlaunavottun eru á meðal tillagnanna. Í byrjun þessa árs lágu fimmtíu og fimm sjúklingar á bráðamóttökunni sem hefðu átt að vera farnir annað. Spítalinn hefur fengið grænt ljós á að reisa gámastæðu þar sem verða t...
Varnir Íslands í breyttum heimi 03.03.2025 20:00
Það má eiginlega segja að vísir að nýrri heimsmynd blasi við þennan mánudag eftir að forseti og varaforseti Bandaríkjanna húðskömmuðu forseta Úkraínu fyrir allra augum í Hvíta húsinu á föstudagskvöld, sökuðu hann um vanvirðingu og vanþakklæti og sögðu hann vera að leika sér að eldinum með því að verjast innrás Rússa. Við ætlum að ræða þetta við utanríkisráðherra eftir nokkrar mínútur; hvar stendur...
Bjarni kveður og stjórnarmyndun í Þýskalandi 28.02.2025 20:00
Bjarni Benediktsson kveður stjórnmálasviðið um helgina þegar hann hættir sem formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundi flokksins í Laugardalshöll. Hver verður næsti formaður og hvað ætlar Bjarni að gera? Þá til Þýskalands, þar sem viðræður um myndun nýrrar ríkisstjórnar hófust í dag með fundi fulltrúa frá Kristilegum Demókrötum og Sósíaldemókrötum. Friedrich Merz, leiðtogi Kristilegra demókrata v...
Auðlindir Úkraínu og Skessukaup Hafnarfjarðar 27.02.2025 20:00
Það vakti furðu og reiði þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti setti fram kröfu um að Úkraínumenn greiddu - eða endurgreiddu - Bandaríkjunum veitta og framtíðar hernaðar- og efnahagsaðstoð með aðgangi að auðlindum landsins að andvirði 500 milljarða dollara, jafnvirði um 70.000 milljarða króna, að öðrum kosti yrði allri aðstoð hætt. Þessi upphæð er miklum mun hærri en verðmæti þeirra úkraínsku auðli...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.