RÚV
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Kennarasamningar, áhrif og viðbrögð 26.02.2025 20:00
Kennarar skrifuðu í gær undir nýjan kjarasamning við ríki og sveitarfélög, samningurinn á að gilda til ársins 2028. Þessi kjaradeila hefur verið löng og ströng, það hefur ríkt vantraust, en nú hefur samist um 24% hækkun. Það er áhyggjuefni að mati Unu Jónsdóttur, aðalhagfræðings Landsbankans að hækkunin sé meiri en í stöðugleikasamningunum í fyrra. Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB fagnar sam...
Biðlaun verkalýðsforkólfa, varnir Evrópu í breyttum heimi, minnisblað um Reykjavíkurflugvöll 25.02.2025 20:00
Spegillinn fjallar um varnir Evrópu í breyttum heimi en líka um þrætueplið eilífa - Reykjavíkurflugvöll. Isavia sendi Samgöngustofu minnisblað í byrjun september þar sem var lagt til að austur/vestur-flugbrautinni yrði lokað í október. Minnisblaðið var rætt í innviðaráðuneytinu en enginn hjá borginni vissi af tilvist þess fyrr en í byrjun janúar. Stjórn VR hefur ákveðið að setja inn skilyrði um að...
Þrjú ár frá innrás Rússa í Úkraínu, kosningar í Þýskalandi 24.02.2025 20:00
Þrjú ár eru í dag frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Þótt ógerlegt sé að fá áreiðanlegar upplýsingar um mannfall í þessu stríði er ljóst að tugir og að líkindum hundruð þúsunda rússneskra og úkraínskra hermanna hafa fallið á þessum þremur árum og enn fleiri særst, auk þess sem á annan tug þúsunda almennra borgara hið minnsta hafa verið drepin í árásum Rússa á borgaraleg skotmörk í Úkraínu. Ey...
Nýr meirihluti og sameining bankanna 21.02.2025 20:00
Nýr fimm flokka meirihluti í Reykjavík leit dagsins ljós í dag. Heiða Björg Hilmisdóttir fékk borgarstjórastólinn í afmælisgjöf en líka mótmæli frá kennurum. Það er ekkert nýtt að banka sjái hagræði í því að sameinast. Það er hins vegar ólíklegt að yfirvöld líti á það sem hagræðingu fyrir neytendur. Og rýnt verður í þýsku kosningarnar sem verða sunnudag. Útlit er fyrir að úrslitin verði söguleg og...
Skattsvik, reikningaverksmiðjur og landsfundur Flokks fólksins 20.02.2025 20:00
Skatturinn og héraðssaksóknari réðust um miðjan síðasta mánuð í umfangsmiklar aðgerðir í tengslum við rannsókn á þaulskipulögðum skattsvikum - sem kölluð hafa verið reikningaverksmiðjur. Flokkur fólksins heldur landsfund sinn á laugardaginn. Flokkur sem bauð fyrst fram fyrir níu árum tók sæti á þingi fyrst 2017. sæti í ríkisstjórn fyrir áramót og allt útlit fyrir að sé líka kominn í borgarstjórn....
Rammaáætlun, sparnaðarhugmyndir ráðuneyta, kosningar í Þýskalandi 19.02.2025 20:00
Í síðustu viku var sérstök umræða á þingi um alvarlega stöðu í orkumálum, flestir tóku undir að staðan væri það sannarlega og viku líka að rammaáætlun og viðruðu um hana efasemdir. Mikilvægt væri að sameinast um næstu skref en þau yrðu ekki tekin á grundvelli rammaáætlunar sagði málshefjandinn. Orkumálaráðherra sagði að núverandi stjórn ætlaði að rjúfa kyrrstöðu sem ríkt hefði. Rammaáætlun hefur o...
Lýðræði vestra í hættu, Quang Le vildi komast í brúðkaup 18.02.2025 20:00
Í Bandaríkjunum situr nú forseti sem lætur sér ekkert óviðkomandi, hvort sem það eru örnefni, fjöldi kynja eða stjórn og dagskrá einnar helstu menningarstofnunar landsins. Spegillinn ræðir málið við Silju Báru Ómarasdóttur prófessor í stjórnmálafræði. Quang Le sem handtekinn var í umfangsmiklum aðgerðum í mars í fyrra freistaði þess síðasta sumar að fá leyfi hjá yfirvöldum til að fara í brúðkaup d...
Brestir í Atlantshafsbandalagi og hávaxin og hápólitísk tré 17.02.2025 19:49
Áberandi brestir eru komnir í samstöðu Bandaríkjanna og Evrópuríkja sem eru þó helstu stoðir Atlantshafsbandalagsins. Á öryggisráðstefnu í Þýskalandi um helgina var endanlega staðfest að bandarísk stjórnvöld hygðust semja beint við Rússa um lok Úkraínustríðsins, án svo mikið sem sýndarsamráðs við bandamenn sína í Evrópu og NATO, og án aðkomu Úkraínu að auki. Nærri sex hundruð dagar liðu frá því að...
Kristrún í München og Guðrún segist ekki vera í fylkingu 14.02.2025 20:00
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir kom í Spegilinn þegar hún tilkynnti um sitt formannsframboð og í þættinum verður rætt við hinn formannsframbjóðandann, Guðrúnu Hafsteinsdóttur. Sjálfstæðisflokkurinn er á stað sem hann er ekki vanur að vera á og það hefur verið talað um átök milli fylkinga. Við spyrjum Guðrúnu út í það. Við byrjum á öryggisráðstefnunni í München þar sem margir helstu ráðamenn eru sama...
Trump, Úkraína, Evrópa og Nató, mögulegar hagræðingaraðgerðir á Landspítalanum og í heilbrigðiskerfinu öllu 13.02.2025 19:40
„Við áttum gott símtal, yfir klukkutíma langt, og ég átti líka gott símtal við Zelensky eftir það,“ sagði Donald Trump á fréttafundi í gær, aðspurður um símtal þeirra Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta. Þetta símtal og yfirlýsingar Trumps og varnarmálaráðherra hans um friðarviðræður við Rússa, útlokun á NATO-aðild Úkraínu og fleira, vöktu mikil viðbrögð meðal bandamanna Bandaríkjanna í NATO. Ævar Ö...
Meirhlutaviðræður í Reykjavík, óvissa um vopnahlé á Gaza, sérstök umræða á Alþingi um orkumál 12.02.2025 20:00
Fimm flokkar hafa ákveðið að hefja viðræður um nýjan meirihluta í Reykjavík. Þetta er líklega eini meirihlutinn sem kemur til greina en það er ekkert í sveitastjórnarlögunum sem kveður á um það þurfi að vera meiri- og minnihluti. Og tíminn er naumur fyrir nýjan meirihluta, því kjósa þarf til borgarstjórnar innan fimmtán mánaða. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir þessa stöðu við Evu Marín Hlynsdóttur, pr...
Ísland og Noregur leggja áherslu á sérstöðu og sameining sveitarfélaga 11.02.2025 20:00
Íslenskir og norskir embættismenn, sendiherrar og ráðherrar leggjast þessa dagana á eitt og minna Evrópusambandið á sérstöðu ríkjanna tveggja og að þau séu órjúfanlegur hluti af Evrópska efnahagssvæðinu. Óttinn er að Ísland og Noregur lendi á einhvern hátt í skotlínunni, þegar og ef til þess kemur að viðskiptastríð brjótist út fyrir alvöru milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna. Ljóst þykir að f...
Aðdragandi slita meirihlutans í borgarstjórn og verkföll kennara dæmd ólögmæt 10.02.2025 20:00
Það liðu 17 dagar frá því að Dagur B. Eggertsson var kvaddur og talað um þau góðu verk sem unnist hefðu í borginni þar til arftaki hans í borgarstjórastólnum var búinn að slíta meirihlutasamstarfinu, ákvörðun sem virtist hafa legið í loftinu síðustu dag en kom samt flestum öðrum í meirihlutanum á óvart. Nýr meirihluti, sem enn er ekki búið að mynda fær ekki langan tíma til að setja mark sitt á bor...
Útþensla Trumps og aðstoðarmenn ráðherra 07.02.2025 20:00
Óútfærðar, óábyrgar og ævintýralega óraunhæfar hugmyndir sem almennt væri auðvelt að afgreiða sem hverja aðra óra, er ekki alveg jafn einfalt þegar þær eru settar fram af valdamesta manni heims. Ævar Örn Jósepsson ræði við Bjarna Má Magnússon, prófessor og deildarstjóra lagadeildar háskólans á Bifröst. Hvert leita ráðherrar þegar þeir eru á höttunum eftir aðstoðarmönnum? Líklega ekki langt yfir sk...
Reiknar með miklu eignatjóni eftir óveðrið 06.02.2025 20:00
Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarnarsviðs ríkislögreglustjóra, reiknar með að eignatjónið verði meira en menn geri sér grein fyrir eftir óveðrið sem gekk yfir landið í gær og í dag. Hann telur viðvaranakerfi Veðurstofu Íslands og Almannavarna hafa gert sitt gagn. Seðlabankinn lækkaði í gær stýrivexti um 0,5 prósentustig og eru meginvextir hans 8,0%. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar ke...
Aftakaveður á Íslandi öllu 05.02.2025 20:00
Aftakaveður gengur yfir allt Ísland. Veðurstofa Íslands hefur gefið út rauða viðvörun sem nær yfir allt landið nema hluta Vestfjarða, þar sem appelsínugul viðvörun er í gildi. Veðrið gengur heldur niður seint í kvöld og nótt, en magnast svo aftur með morgninum og verður enn verra á fimmtudag, gangi spár eftir. Mikil úrkoma fylgir óveðrinu, sem eykur hættu á skriðuföllum. Björgunarsveitir höfðu þeg...
Skotárás í skóla í friðsælli borg, SI með áhyggjur af hindrunum í alþjóðaviðskiptum, Samkeppniseftirlitið heldur búvörlagamáli til streitu 04.02.2025 20:00
Karlmaður á fertugsaldri skaut minnst níu til bana í skóla í Örebro í Svíþjóð í dag. Ódæðismaðurinn er sá tíundi sem dó, en það hefur ekki verið staðfest hvernig hann lést. Guðmundur Arnarsson hefur verið bústtur í borginni frá 2014 og er frændi Svanfríðar Birgisdóttur sem er einn skólastjóranna í Risbergska skólanum, sem er nokkurs konar símenntunarmiðstöð fyrir fullorðna. Spegillinn ræddi við Gu...
Rúmlega hundrað mál á þingmálaskrá og tveir forsetar í Níkaragúa 03.02.2025 20:00
Yfir hundrað mál eru á þingmálalista ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins sem kynntur var í dag. Lögum um strandveiðar og veiðigjöld verður breytt, herða á eftirlit með skammtímaleigu húsnæðis, stofna sérstakan sjóð sem fer með hlutdeildarlán, og innleiða bókun þrjátíu og fimm við EES-samninginn að fullu. Það bar til tíðinda suður í Ameríku í síðustu viku, að forsetastóllinn í...
Þingið framundan og sænsk börn sem sprengja sprengjur 31.01.2025 20:00
Guðmundur Ari Sigurjónsson og Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformenn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins - tókust á um hvað er framundan. Það má kannski segja að forsmekkurinn að þingvetrinum hafi fengist í gær þegar deilt var um hver ætti að fá hvaða herbergi í þinghúsinu; skrifstofustjóri Alþingis er búinn að kveða upp sinn dóm, Sjálfstæðisflokkurinn heldur sínu herbergi en málinu virðist...
Ferðalög forseta, norska stjórnin springur, aftökur í Bandaríkjunum 30.01.2025 20:00
Forsetaskrifstofan veitti óskýr svör við fyrirspurnum um hvar Halla Tómasdóttir, forseti íslands, hefði verið þegar minningarathöfn um helförina í Auschwitz fór fram á mánudag. Freyr Gígja Gunnarsson fann svarið í Stjórnartíðindum. „Þetta er ekki niðurstaðan sem ég hefði óskað mér,“ sagði Jónas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, á fréttafundi eftir að ljóst var að stjórn hans var sprungin. Hann...
Deilt um rafmagnslínur, gervigreind og ritskoðun, grisjun sjóða og sjálfseignarstofnana 29.01.2025 20:00
Síðan 2024 hefur verið heimild í lögum til að skipa raflínunefndir sem eiga að einfalda skipulagsmál í tengslum við flutningskerfi rafmagns. Nú vill Landsnet að fyrsta nefndin af þessu tagi verði skipuð um Holtavörðuheiðarlínu eitt. Þrjú af fjórum sveitarfélögum sem línan á að liggja um leggjast gegn skipun nefndarinnar. Gréta Sigríður Einarsdóttir kynnti sér málið. Þær fréttir bárust á dögunum að...
Fjármálaráðuneytið borgaði án þess að skoða skráningu flokka og Grænland og vestnorræna ráðið 28.01.2025 20:00
Fjármálaráðuneytið kannaði ekki hvort þeir flokkar sem áttu rétt á framlagi úr ríkissjóði væru skráðir á stjórnmálaskrá ríkisskattstjóra. Ráðuneytið kallar þetta misbrest á verklagi sem bætt hafi verið úr. Ríkisendurskoðandi hvetur til þess að lögin verði tekin til endurskoðunar. Forsætisráðherra Danmerkur fór víða um Evrópu í dag til að treysta samstöðu með bandamönnum sínum og fáum duldist að þa...
Símtal frá ömmu eða ráðherrra, Áslaug Arna Sigubjörnsdóttir vill verða formaður og stjórnarkreppa í Noregi 27.01.2025 19:59
Er það frétt ef amma hringir í framhaldsskóla og grennslast fyrir um skó barnabarns síns? Já, ef amman er ráðherra og vísar til þess í samtalinu. En getur ráðherra einhvern tímann kastað af sér skikkju valdsins og orðið bara amma í leit að týndum skóm? Það er mánuður í landsfund Sjálfstæðisflokksins og Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir varð í gær fyrst til að lýsa því yfir að hún vildi verða formaður,...
Hagræðingar í ríkisrekstri og skilnaðarmál fyrir MDE 24.01.2025 20:10
Nærri fjögur þúsund tillögur bárust um hvernig hægt væri að hagræða í ríkisrekstrinum. Gylfi Ólafsson, sem á sæti í hagræðingarhópnum, fer yfir vinnu hópsins og í hljóðver ræða þau Guðrún Hafsteinsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Ólafur Stephensen, formaður FA, um þetta útspil forsætisráðherra og hvaða vonir sé hægt að gera sér um það. Síðar í Speglinum verður fjallað um sérstakt skilnað...
Samskipti vegna bygginga grænu skemmunnar, ríkisstjórn Noregs riðar til falls og verkföll kennara 23.01.2025 20:00
4. orkupakkinn er við það að sprengja norsku stjórnina og það hriktir í stjórnarsamstarfi Verkamannaflokksins og Miðflokksins; Verkföll kennara vofa yfir um mánaðamótin og ekkert miðar áfram í deilunni., Mikil samskipti voru milli þeirra sem byggðu græna, stóra vöruhúsið við Álfabakka og starfsmanna borgarinnar í aðdraganda framkvæmdarinnar. Þau samskipti snerust þó að mjög litlu leyti um útlit og...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.