RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 episodes

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Borað eftir olíu, mataræði Íslendinga, Snerting mögulega tilnefnd til Óskarsverðlauna 22.01.2025

Donald Trump Bandaríkjaforseti kallar eftir stóraukinni framleiðslu og útflutningi á bandarísku jarðefnaeldsneyti. Með þessu ætlar hann að lækka verð á eldsneyti, draga úr verðbólgu og gera Bandaríkin að auðugri þjóð að nýju. Umdeilt er hversu líklegt er að þessi stefna skili tilætluðum árangri. Ævar Örn Jósepsson rýnir í þetta. Alls kyns kúrar og kenningar um æskilega næringu skjóta reglulega upp...

Trump byrjar með látum. Hvernig stóðu viðræður Íslands og ESB? 21.01.2025

Hvernig stóðu aðildarviðræður við Evrópusambandið, þegar þær voru settar á ís margt fyrir löngu. Freyr Gígja kannaði það. Ævar Örn kynnti sér forsetatilskipanir sem Trump forseti undirritaði á fyrsta degi í embætti á sínu seinna kjörtímabili. Tilskipanirnar eru jafn ólíkar og þær eru margar og áhrif þeirra og afleiðingar mismiklar fyrir Bandaríkjamenn, Bandaríkin, og heimsbyggðina alla. Og það er...

Hjón í hesthúsi vegna snjóflóðahættu á Seyðsifrði og Donald Trump tekur við embætti 20.01.2025

Grípa þurfti til umfangsmikilla rýminga á Austfjörðum vegna snjóflóðahættu í því óveðri og ofankomu sem gengið hefur yfir landshlutann síðasta sólarhringinn eða svo. Rafmagnsbilanir kom upp þegar loftlínur slitnuðu eftir að ís hlóðst utan á þær og rafmagnsstaurar brotnuðu. Hjón i Neskaupstað kusu frekar að sinna hrossum en gista hjá dóttur sinni. Donald Trump segir gullöld Bandaríkjanna hafna, nú...

Sviss tekur líka afstöðu til ESB og samsæriskenningar um skógarelda 17.01.2025

Ísland er ekki eina ríkið í Evrópu þar sem ætlunin er að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um tengsl við Evrópusambandið á næstu árum . Það sama mun gerast í Sviss - mögulega um svipað leyti og hér á landi - eftir að stjórnvöld þar samþykktu nýjan heildarsamning um samskipti og viðskipti Sviss og Evrópusambandsins. Ekki eru allar kenningar um upptök eldana í Los Angeles jafn vel rökstuddar og á samfélag...

Hvammsvirkjun og Danir saka Norðmenn um græðgi 16.01.2025

Þegar Þorsteinn Magnússon, dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur, felldi í gær úr gildi virkjanaleyfi Hvammsvirkjunar má segja að nýr kafli í nærri þriggja áratuga sögu þessarar framkvæmdar hafi verið skrifaður. Þetta var í fyrsta skipti sem virkjanaleyfi var fellt úr gildi með dómi og í fyrsta skipti þar sem látið var reyna á lög um stjórn vatnamála fyrir dómi. Og prófessor í umhverfisrétti við Háskól...

ESB-umsókn, árásir Ísraelshers á „örugg svæði“ á Gaza, meðferð utankjörfundaratkvæða 15.01.2025

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir jákvætt að Evrópusambandið líti þannig á að aðildarumsókn Íslands frá 2009 sé enn virk. Talsmaður framkvæmdastjórnar ESB staðfesti þetta í dag - en Þorgerður átti síðdegis fund með Maros Sefcovic, einum af framkvæmdastjórum ESB, sem fer með viðskiptamál og samskiptin við EES ríkin, Ísland, Noreg og Lichtenstein. Þorgerður hitti einnig Kaju Kal...

Von um vopnahlé. Bárðarbunga ræskir sig. 14.01.2025

Búið er að ryðja öllum helstu hindrunum úr vegi og minna ber í milli nú en nokkru sinni fyrr. Þetta segir Majad al-Ansari, talsmaður utanríkisráðuneytisins í Katar og lykilmaður í viðræðum þar sem reynt hefur verið mánuðum saman - og árangurslaust - að fá fulltrúa Ísraelsstjórnar og Hamas til að koma sér saman um vopnahlé. Freysteinn Sigmundsson segir að ekki sé hægt að anda léttar þó að hætt sé a...

Ekki hægt að framselja samþykki og varnar- og öryggismál 13.01.2025

Það er ekki hægt að framselja samþykki sitt, segir Brynhildur Flóvenz fyrrverandi dósent við lagadeild Háskóla Íslands. Hún undrast að saksóknari skuli ekki hafa látið á það reyna að ákæra fleiri í umtöluðu kynferðisbrotamáli. Öryggis- og varnarmál á norðurslóðum hafa mikið verið rædd upp á síðkastið, ekki síst eftir að Donald Trump verðandi Bandaríkjaforseti viðraði aftur hugmyndir um kaup Bandar...

Birta Líf um skógareldana í Los Angeles, raforkuverð til garðyrkjubænda og strandveiðar 10.01.2025

Í Los Angeles eru heilu hverfin rjúkandi rústir og önnur standa enn í björtu báli í ógnarmiklum skógar- og gróðureldum sem færast enn í aukana. Minnst tíu hafa látið lífið í eldunum, tugir þúsunda hafa misst heimili sín, hátt í tvö hundruð þúsund manns hefur verið gert að yfirgefa heimili sín og hundruð þúsunda hafa fengið tilmæli um að búa sig undir að þurfa að flýja með litlum fyrirvara. Ævar Ör...

Andlát ungrar konu á Skeggjagötu, nýr orkumálaráðherra um orkumál, öfgahægristjórn í kortunum í Austurríki 09.01.2025

Tveir dómkvaddir matsmenn telja að læknisfræðileg rannsókn vegna andláts ungrar konu eftir handtöku lögreglu hafi verið ófullkomin. Lögmaður fjölskyldu hennar segir ríkið verða að bera hallann af því. Andlát hennar megi að líkindum rekja til samspils tveggja þátta; ástands ungu konunnar og aðgerða lögreglu - en ómögulegt sé að segja til um umfang áhrifa hvors orsakaþáttar fyrir sig. Freyr Gígja Gu...

Trump og Grænland, rafeldsneyti og fjármál fangelsismálastofnunar 08.01.2025

Í gær átti Donald Trump yngri stutt stopp í Nuuk á Grænlandi. Þessi litla heimsókn hefur aðallega vakið athygli vegna yfirlýsinga föðurins, Donalds Trumps verðandi Bandaríkjaforseta fyrir nokkrum vikum um að það væri alveg nauðsynlegt fyrir öryggi Bandaríkjanna og frið í heiminum að Grænland tilheyrði Bandaríkjunum. Slíkar hugmyndir hafði Trump viðrað áður 2019 og ekki voru undirtektir jákvæðar í...

Forstjóri Haga bjartsýnn á að vöruhúsið leysist og staðan í Úkraínu 07.01.2025

Borgarstjórn samþykkti á fundi sínum í dag tillögu Sjálfstæðisflokks og Flokks fólksins um að fram fari stjórnsýsluúttekt á skipulagsferlinu í kringum græna vöruhúsið við Álfabakka 2 sem byrgir íbúum við Árskóga sjö sýn. Forstjóri Haga er bjartsýnn á að málið leysist. Daglega berast fréttir af því að Rússar hafi sölsað undir sig fleiri þorp, fleiri bæi og meira land í austanverðri Úkraínu, eyðilag...

Formannsslagur framundan í Sjálfstæðisflokki 06.01.2025

Nokkuð óvænt tilkynning Bjarna Benediktssonar um miðjan dag um að hann ætlaði ekki að taka sæti á þingi og gæfi ekki kost á sér í formannskjöri Sjálfstæðisflokksins verður viðfangsefni þáttarins og rætt verður við þær Evu H. Önnudóttur prófessor og Jóhönnu Vigdís Hjaltadóttur fréttamann. Þingmönnum sjálfstæðisflokksins flokksins var brugðið þegar Bjarni sagði þeim frá ákvörðun sinni í dag, líklega...

Sparnaður í samráðsgátt og klamydía ógnar kóalabjörnum 03.01.2025

En það vakti nokkra athygli þegar Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, fór þá leið að óska eftir ábendingum frá almenningi um hvernig væri hægt að spara í ríkisrekstrinum. Ekki stóð á viðbrögðunum; nærri fimmtán hundruð athugasemdir hafa verið sendar inn á samráðsgátt stjórnvalda og þar má sjá allskonar hugmyndir; leggja niður RÚV, loka landinu fyrir hælisleitendum, hætta að veita áfengi í vei...

Sparnaðarráð frá almenningi til stjórnvalda, hryðjuverk í Louisiana og Holtavörðulína 1 02.01.2025

Um miðjan dag birtist í samráðsgátt stjórnvalda ósk frá ríkisstjórninni um tillögur frá almenningi um hvernig megi hagræða í ríkisrekstri. Tekið verður á móti ábendingum til 23. janúar og þá verður farið yfir þær allar af starfshópi á vegum forsætisráðuneytisins. Og ekki stóð á viðbrögðum, á nokkrum klukkutímum voru komnar hátt í þrjúhundruð umsagnir. Rætt við Evu Marín Hlynsdóttur, prófessor í op...

Öfgar í veðri 2024, röddun að hverfa en höggmæli sækir á 30.12.2024

Árið 2024 verður það heitasta frá upphafi mælinga, enn heitara en 2023 sem rústaði fyrir hitametum sagði Celeste Saulo, framkvæmdastjóri Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar þegar hún kynnti skýrslu um öfgar í veðrurfari í ár. Antonio Guterrez framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna sagði þá að jörðin hefði mátt þola mannskaðahita í áratug. Varla er hægt að tala um mállýskur á Íslandi en staðbundin einkenn...

20 ár frá flóðbylgjunni 27.12.2024

Þátturinn í kvöld er að þessu sinni helgaður einu efni, flóðbylgjunni í Suðaustur-asíu fyrir tuttugu árum. Fyrir jól settist umsjónarmaður niður með Pétri Ásgeirssyni, nú sendiherra í Danmörku, sem var á þessum tíma yfir því sem kallað er borgaraþjónustan í dag og Friðriki Sigurbergssyni, lækni, sem fór á vegum íslenskra stjórnvalda ásamt hópi heilbrigðisstarfsfólks, til Taílands að sækja slasaða...

Hverjir verða ráðherra og svört Lúsía kallar fram það versta og besta í Finnum 20.12.2024

Ný ríkisstjórn verður kynnt á morgun, ríkisráðsfundur verður á Bessastöðum og lyklaskipti á sunnudag. Fáir vita hins vegar hverjir verða ráðherrar nema kannski leiðtogar stjórnarflokkanna þriggja. Andrés Ingi Jónsson og Eva H Önnudóttir stóðust ekki freistinguna og rýndu í ráðherrakapal og hvernig stjórnarsáttmálinn kemur til með að líta út. Og svo er það Lúsían í Finnlandi sem hefur kallað fram þ...

Réttarhöld í kynferðismálum, stríðsglæpir Ísraela og jólaleg jólalög 19.12.2024

Meginregla er að réttarhöld eru opin en venjan hér í kynferðisbrotamálum er að þau séu lokuð til að verja persónulega hagsmuni. Kolbrún Benediktsdóttir saksóknari segir sterk rök fyrir því að opna slík réttarhöld, vilji brotaþoli senda þau skilaboð að hann hafi ekkert til að skammast sín fyrir, líkt og hin franska Giselle Pélicot gerði. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Kolbrúnu. Alþjóðlegu mannré...

Búseti og skemman stóra, Ísland og Úkraína, svakalega sveiflukennt rafmagnsverð á Norðurlöndum 18.12.2024

Búseti fór þess á leit við byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar um miðjan nóvember að framkvæmdir við vöruhúsið sem nú rís við Álfabakka yrðu stöðvaðar. Þetta kemur fram í gögnum sem Spegillinn fékk afhent í dag. Vöruhúsið byrgir íbúum fjölbýlishúss við Árskóga sjö sýn, blokk sem Búseti byggði. Í bréfi Búseta frá í nóvember kom meðal annars fram að á lóðinni væri verið að reisa fjögurra hæða hús, t...

Hægt að breyta vöruhúsinu en borgin þarf að borga, 13% kusu taktískt 17.12.2024

Það er hægt að gera breytingar á græna vöruhúsinu sem byrgir íbúum fjölbýlishúss við Árskóga sjö í Reykjavík sýn. Þetta segir annar af hönnuðum hússins. En það er borgarinnar að greiða fyrir það. Ólöf Örvarsdóttir sviðsstjóri skipulagssviðs Reykjavíkur segist engu geta lofað öðru en samtali. Það hefur mikið verið rætt um taktískar kosningar í ár, fyrst í forsetakosningunum og svo í Alþingiskosning...

Vöruhúsið og Búsetablokkin í Breiðholti og orkusveitarfélög um breytingar á Rammaáætlun 16.12.2024

Eðlilegt hefði verið að borgin kynnti næstu grönnum vöruhúss í Breiðholti þegar lagi þess var breytt segir Ásdís Hlökk Theódórsdóttir, aðjúnkt og fyrrverandi forstjóri Skipulagsstofnunar. Nágrannar skemmunnar eru mjög ásáttir við skemmuna sem byrgir þeim birtu og útsýni. Orkumálaráðherra hefur kynnt tillögur um breytingar á lögum um Rammaáætlun meðal annars að stytta þann tímafresti og takmarka áh...

Hvað þarf ný ríkisstjórn að hafa í huga og nýi franski forsætisráðherrann? 13.12.2024

Francois Bayrou nýr forsætisráðherra Frakklands tók formlega við keflinu nú síðdegis. Hans bíður það vandasama verkefni að koma saman ríkisstjórn og afgreiða fjárlög franska ríkisins - að ekki sé nú minnst á að standa af sér mögulega tillögu um vantraust á franska þinginu. Fátt ef nokkuð virðist geta komið í veg fyrir að ríkisstjórn Samfylkingarinnar,Viðreisnar og Flokks fólksins verði mynduð, það...

Katrín Jakobsdóttir og Bashar al-Assad 12.12.2024

Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra og fyrrverandi formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs mætti í viðtal í dag, reyndar bæði á RÚV og stöð2. Fyrstu viðtölin að segja má frá því í forsetakosningunum í vor. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir ræddi við hana fyrr í dag. Það hefur ekki heyrst mikið í Katrínu síðustu mánuði en það er ekki vegna þess að ekki hafi verið eftir því falast....

Ofbeldi gegn konum, veldi Assad-feðga, gervistéttarfélög 11.12.2024

Síðustu daga og vikur hafa birst óhugnanlega fréttir um ofbeldi karla gegn konum. Kynbundið ofbeldi gegn konum er ekkert nýtt en stundum verða frásagnirnar yfirþyrmandi, eins og þessar fréttir bera vitni um. Samkvæmt embætti ríkislögreglustjóra var í fyrra óskað eftir 97 nálgunarbönnum, í langflestum tilvikum eru þetta konur að verja sig gegn körlum sem hóta þeim líkamlegu og andlegu ofbeldi. Það...

Listen to the Spegillinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.