RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 episodes

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Sýrlandsstríðið örsök uppgangs öfgaafla í Evrópu, stutt síðan stokkað var upp í stjórnkerfinu 10.12.2024

Uppgangur öfgaafla og daður evrópskra stjórnmálaforingja við samsæriskenningar um yfirtöku Íslam má að miklu leyti rekja til styrjaldarinnar Sýrlandi og flóttamannakrísunnar í Evrópu sem náði hámarki árið 2015. Rætt er við Eirík Bergmann Einarsson prófessor í stjórnmálafræði. Leiðtogar flokkanna sem eiga í stjórnarmyndunarviðræðum stefna að því að fækka ráðuneytum. En það er stutt síðan skipan ráð...

Fall Sýrlandsforseta og viðbrögð á alþjóðavettvangi 09.12.2024

Flótta Bashars al-Assads Sýrlandsforseta og fjölskyldu hans til Rússlands um helgina bar brátt að. Assad og faðir hans höfðu ríkt þar í hátt í hálfa öld og á tíu dögum tókst liðsmönnum Ayat Tahrir al-Sham að losa landið undan oki þeirra. En er friðvænlegt í Sýrlandi eftir nærri fjórtán ára borgarastyrjöld. Sýrlendingar fagna falli Assads og mikilvægt er að tími fáist til að halda þar kosningar og...

Skattar skapa ekki verðmæti og meira frá skýrslu Amnesty 06.12.2024

Þær tvær atvinnugreinar sem oftast eru nefndar þegar það þarf að ná pening inn í ríkiskassann eru sjávarútvegurinn og ferðaþjónustuna. Á síðasta ári sköpuðu þessar tvær atvinnugreinar meira en helming útflutningsverðmæta landsins. Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar, og Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, komu í hljóðver ti...

Amnesty segir Ísraela seka um þjóðarmorð og utanríkisráðherra á Natófundi 05.12.2024

Alþjóðlegu mannréttindasamtökin Amnesty International saka Ísraelsmenn um að fremja hópmorð, eða það sem í daglegu tali er kallað þjóðarmorð, í hefndarstríðinu sem þeir hófu á Gasa í kjölfar hryðjuverkaárásar Hamas í Ísrael 7. október í fyrra. Þetta er afrakstur viðamikillar rannsóknar samtakanna á framgöngu Ísraelshers og ísraelskra yfirvalda frá fyrsta degi og fram í júlíbyrjun, og rennir stoðum...

Þingmenn B, D og M um viðræður C, S og F, skammlíf herlög í Suður-Kóreu 04.12.2024

Þrjár þingkonur stjórnarandstöðunnar segja það ekki hafa komið á óvart að Samfylkingin, Viðreisn og Flokkur fólksins skyldu hefja samtal um myndun ríkisstjórnar. Þingkona Framsóknarflokksins vonar að þeim takist ætlunarverkið en þingkonur Miðflokks og Sjálfstæðisflokks telja aðra möguleika í stöðunni. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Ingibjörgu Isaksen, Diljá Mist Einarsdóttur og Nönnu Margréti Gu...

Valkyrjur hefja viðræður, 33 nýir á þingi, valdefling drengja í framhaldsskólum 03.12.2024

Kristrún Frostadóttir, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Inga Sæland eða Valkyrjurnar eins og sú síðastnefnda kallar þær hefja stjórnarmyndunarviðræður af fullum krafti á morgun. 33 nýir þingmenn setjast á þing eftir kosningarnar, af þeim hafa sex áður setið á þingi. Þetta er mesti fjöldi nýrra alþingismanna og þeir fá kynningu á þingstörfum fyrir jól. 33 þingmenn fara á biðlaun, þar með taldir fy...

Viðreisn og Flokkur fólksins eru jafngamlir flokkar en ólíkir um margt, Þingmenn S og F um úrslitin á laugardag 02.12.2024

Viðreisn og Flokkur fólksins eru lykilstöðu þegar kemur að myndun næstu ríkisstjórnar eftir sögulegar þingkosningar á laugardag. Flokkarnir tveir eru næstum jafngamlir, voru stofnaðir með mánaðarmillibili vorið 2016 og skarta báðir ótvíræðum leiðtogum sem eru samofnir sögu þeirra en þeir eru ólíkir um margt. Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði ræðir stöðu þeirra þegar kemur að stjórnarmyn...

Lokasprettur fyrir kosningar 29.11.2024

Lokaspretturinn fór fram í kvöld fyrir kosningarnar á laugardag þegar forystufólk flokkanna mættist í sjónarpssal. Ný könnun Gallup bendir til spennandi kosninga. Stefán EInar Stefánsson, umsjónarmaður spursmála á mbl.is, og Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði, rýna í stöðuna í Speglinum.

Kjörseðillinn á laugardag, barnsrán Rússa í Úkraínu og spenna vegna forsetakjörs í Rúmeníu 28.11.2024

Hvað þarf kjósandi að hafa með sér á kjörstað í Alþingiskosningum og hvað ber að forðast ef ekki á að ógilda kjörseðilinn. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Ástríði Jóhannesdóttur framkvæmdastjóra Landskjörstjórnar. Víst þykir að Rússar hafi numið tæplega 20.000 úkraínsk börn á brott síðan þeir réðust inn í Úkraínu og rökstuddur grunur er um að þau séu mun fleiri. Tetiana Fedosiuk er úkraínskur sér...

Kosningamálin á Íslandi, umdeilt vindorkuver á Austurlandi og tölfræðin á bak við sigur Trumps 27.11.2024

Flestir settu heilbrigðismál í efsta sæti þegar Félagsvísindastofnun kannaði í síðustu viku hvað skipti fólk mestu fyrir kosningarnar á laugardaginn - og er það svo í öllum sex kjördæmum. Áherslur fólks í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Suðvesturkjördæmi, það er höfuðborgarsvæðinu eru nánast alveg eins, en samgöngur eru kjósendum í Norðvesturkjördæmi hugstæðar. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við...

Allt kapp lagt á að verja orkuverið, snörp en neikvæð kosningabarátta. 26.11.2024

Hinir tröllslegu varnargarðar sem umlykja orkuverið í Svartsengi og Bláa lónið hafa vafalítið komið í veg fyrir að ekki varð heitavatnslaust á Reykjanesskaganum í eldsumbrotunum núna. Og það verður allt kapp lagt á að verja orkuverið, segir Ari Guðmundsson verkfræðingur sem leiðir innviðahóp Almannavarna. Kosingabaráttan í ár hefur verið stutt, snörp og um margt neikvæðari en þegar kosið var 2021...

Kosningaveður, aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, fordómar gegn grænlenskum foreldrum 25.11.2024

Fimm dagar eru þar til kjörstaðir verða opnaðir um allt land. Þótt einhverjir kjósi utan kjörfundar eru langflestir sem fara í sína kjördeild til að greiða atkvæði - þær loka klukkan tíu um kvöldið og þá fyrst má byrja að telja. Allt bendir til að kosninganóttin verði spennandi en fólk ætti líka að vera undir það búið að hún dragist langt fram á sunnudagsmorgun - sérstaklega ef verstu spár um veðu...

Eldgos hluti af hinu daglega líf, loftslagsráðstefnan í Bakú og Noregur með annað augað á Íslandi 22.11.2024

Þótt eldgos verði seint hversdagsleg hafa eflaust einhverjir yppt öxlum þegar byrjaði að gjósa á Sundhnúksgígaröðinni á miðvikudagskvöld. Gosstrókarnir voru vissulega tilkomumiklir í vetrarmyrkrinu en þetta var nú einu sinni sjöunda gosið þarna, það sjötta bara á þessu ári. Íslandsstofa vinnur að því að segja við erlenda ferðamenn og ferðaþjónustufyrirtæki að eldgos séu bara hluti af hinu daglega...

Öryggi sæstrengja, stigmögnun Úkraínustríðsins 19.11.2024

Biden Bandaríkjaforseti gaf Úkraínumönnum um helgina grænt ljós á að nota langdrægar bandarískar eldflaugar - flaugar sem hægt er að senda nokkuð langt yfir landamærinn og inn til Rússalands. Og svo slitnuðu sæstrengir á milli Finnlands og Þýslalands. Og á milli Svíþjóðar og Litáen. Er þetta tilviljun? Eða eru þetta skemmdarverk Rússa. Það er ekki komið í ljós. Það tekur einfaldlega tíma að finna...

Uppgjör við blogg, verkföll og lýðræðið í Þýskalandi 15.11.2024

Gömul bloggskrif Þórðar Snæs Júlíussonar, frambjóðanda Samfylkingarinnar, sem birtust undir dulnefni á bloggsíðu fyrir rúmlega tuttugu árum hafa vakið upp umræðu um hvort nauðsynlegt sé að gera upp það tímabil þegar nafnlaus skrif viðgengust í athugasemdakerfum fjölmiðla og bloggheimum. Skrif sem oft beindust að nafntoguðum konum og þeir sem þannig skrifuðu þurftu fæstir að bera á þeim ábyrgð. Þar...

Jón Gunnarson og dularfulli tengingurinn, íslensk æska á uppleið 12.11.2024

Freyr Gígja reifar reifarakennda málið sem hverfist um Jón Gunnarsson, hvalveiðar og ísraelska einkaspæjarafyrirtækið Black Cube. Ragný Þóra Guðjohnssen segir Ragnhildi Thorlacius frá niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar. Þær benda til þess að líðan grunnskólabarna fari batnandi, þó að ýmislegt megi bæta. Nýsjálenski forsætisráðherrann hefur beðist afsökunar á illri meðferð á fólki á visth...

Tollmúrar Trumps og kosningar í skugga óvinveittra ríkja 08.11.2024

Donald Trump hefur sagst ætla að loka landamærunum í suðri og moka út fleiri ólöglegum innflytjendum en dæmi eru um - og hann ætlar ekki bara að reisa áþreifanlegar landamæragirðingar og -múra, heldur líka tollmúra, enn hærri en hann innleiddi í fyrri forsetatíð sinni, og þá allra helst til að hamla gegn kínverskum innflutningi. Í Slóvakíu sáust greinileg merki þess þegar óvinveitt ríki reyndu að...

Þungur dómur, stjórnarkreppa í Þýskalandi og ungir kjósendur 07.11.2024

Þyngsti dómur yfir konu í heila öld féll í Héraðsdómi Reykjaness í gær, móðir var dæmd í átján ára fangelsi fyrir að verða barni að bana og tilraun til manndráps. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir slíkt afar fátítt. Fjármálaráðherra Þýskalands var látinn taka pokann sinn í gær og kanslarinn sparaði honum ekki kveðjurnar, lítilsigldur og huglaus voru einkunnirnar og við blasir stjórnar...

Forsetakjör í Bandaríkjunum 06.11.2024

Donald Trump, sem vann sigur í forsetaskosningum í Bandaríkjunum í gær segir það árangur stórkostlegrar stjórnmálahreyfingar og nú taki við að græða Bandaríkin og laga það sem misfarist hafi síðustu ár. Til þess þurfi að sameina Bandaríkjamenn. Kamala Harris frambjóðandi Demókrata ætlar að ávarpa stuðningsfólk sitt í kvöld. Hún hefur enn ekki brugðist við sigri Trumps. Sigur Trumps var ekki beinlí...

Forsetakosningar, fjárhagsáætlun og verkföll kennara 05.11.2024

Formaður kennarasambandsins óttast að dragist kjaradeila kennara við ríki og sveitarfélög enn á langinn segi margir upp, löngu sé tímabært að fjárfesta í kennurum. Rætt verður við hann síðar í Speglinum og líka fjallað um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar - hagræðing eða ekki hagræðing, þar liggur efinn. En fyrst eru það forsetakosningarnar í Bandaríkjunum, Björn Malmquist er staddur í Fíladelfíu,...

Kosningar í Bandaríkjunum og á Íslandi 04.11.2024

Það fer ekki framhjá neinum að á morgun verða haldnar forsetakosningar vestur í Bandaríkjunum. Þar takast þau á, Kamala Harris, frambjóðandi Demókrata, og Donald Trump, frambjóðandi Repúblikana. Nú er innan við sólarhringur þar til fyrstu kjörstaðir verða opnaðir og enn er allt í járnum, varla tölfræðilega marktækur munur á frambjóðendunum, hvorki á landsvísu né í hinum svokölluð sveifluríkjum. Æv...

Er kosningabaráttan eins og kappleikur? 01.11.2024

Framboðslistar stjórnmálaflokkanna liggja fyrir, leiðtogaumræður eru framundan og kosningabaráttan er að hefjast fyrir alvöru. Þórhallur Gunnarsson, fjölmiðlaráðgjafi, og Eva H. Önnudóttir, prófessor í stjórnmálafræði, rýna í stöðuna, nýjan þjóðarpúls Gallup og hvað flokkarnir þurfa að gera til að tryggja sér sem flest þingsæti á kosningunum.

Framboð í Hörpu, flóð á Spáni og morðalda á Íslandi 31.10.2024

Rætt verður við aðstoðaryfirlögregluþjón hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu um þau erfiðu morðmál sem hafa komið inn á hennar borð, hvernig slík mál eru rannsökuð og hvaða áhrif þau hafa á rannsókn annarra mála. Við fjöllum líka um hörmungarnar á Spáni, aðallega í Valencia, meira en hundrað og sextíu eru taldir hafa farist í miklum hamfaraflóðum sem gengu yfir á suðaustanverðum Spáni á þriðjudag...

Dánaraðstoð og vaxandi losun gróðurhúsalofttegunda 30.10.2024

Umræðu um dánaraðstoð skýtur reglulega upp kollinum hér á landi, þingsályktunartillögur, frumvörp og skýrslur hafa litið dagsins ljós og í fréttaskýringaþættinum Kveik í gærkvöld var fjallað um Jón Grímsson sem sótti um dánaraðstoð í Washington-ríki í Bandaríkjunum. Steinunn Þórðardóttir, formaður læknafélagsins, segir að það verði ekki aftur snúið verði þetta skref tekið. Reynsla frá þeim löndum...

Löggjöf Ísraelsþings fordæmd, E.coli-hópsýking og skoðanakannanir 29.10.2024

Lög sem ísraelska þingið í samþykkti í gær gætu orðið til þess að starfsemi Palestínuflóttamannahjálparinnar, UNRWA, leggist af á Gaza. Ef það gerist getur allt hjálparstarf á Gaza fallið um sjálft sig. Þetta segir Gréta Gunnarsdóttir skrifstofustjóri UNRWA í New York, Ólöf Ragnarsdóttir ræddi við hana. Á fimmta tug barna hefur veikst eftir E.coli hópsýkingu á leikskóla í Reykjavík í síðustu viku....

Listen to the Spegillinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.