RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 episodes

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Norðurlandaráðsþing, Úkraína og Rússland 28.10.2024

Þátturinn er helgaður Norðurlöndunum og Úkraínu, því þing Norðurlandaráðs verður formlega sett í Reykjavík á þriðjudag og Úkraínuforseti er þar heiðursgestur. Zelensky fundaði með Bjarna Benediktssyni, starfandi forsætisráðherra, og forsætisráðherrum hinna Norðurlandanna á Þingvöllum og við heyrum í Birtu Björnsdóttur sem er á vettvangi. Yfirskrift þings Norðurlandaráðs í ár er Friður og öryggi á...

Þrælahald Breta og mikilvægar kosningar í Georgíu 25.10.2024

Kosningarnar í Georgíu á morgun gætu orðið þær afdrifaríkustu síðan þetta fyrrum Sovétlýðveldi lýsti yfir sjálfstæði fyrir meira en þrjátíu árum. Framtíð landsins er í húfi, segir Salome Zourabichvili forseti Georgíu. Bretar státa sig gjarnan af því að eiginlegt þrælahald hafi aldrei tíðkast á Bretlandi. Þeir tala minna um það, að þegar mest lét voru þeir allra þjóða umsvifamestir í þrælakaupmenns...

Alvarleg ecoli-hópsýking, læknisþjónusta á landsbyggðinni, væringar innan norsku ríkisstjórnarinnar 24.10.2024

27 börn hafa greinst með eiturmyndandi Ecoli í hópsýkingu á leikskólanum Mánagarði í Reykjavík. Verið er að rannsaka hvernig börnin veiktust en grunurinn hefur einna helst beinst að nautahakki. Þetta er alvarlegasta hópsýking af þessu tagi frá því fyrir fimm árum, og þá sem nú voru það börn sem veiktust. Freyr Gígja Gunnarsson kynnti sér málið og ræddi við Vigdísi Tryggvadóttur sérgreinadýralækni...

100 umsagnir um fjárlagafrumvarpið og misvægi atkvæða 23.10.2024

Helsta verkefni þingsins er að afgreiða fjárlögin og yfir hundrað stofnanir, félaga- og íþróttasamtök og einstaklingar hafa sent fjárlaganefnd umsögn við fjárlagafrumvarp næsta árs. Í þeim eru gerðar margvíslegar athugasemdir við frumvarpið og bent á að það vanti fé í þetta og það vanti fjármagn í hitt. Formaður fjárlaganefndar segir geta reynst erfitt að bregðast við þessum óskum í ljósi þess að...

Spennan magnast vestanhafs og af hverju True Detective kom til Íslands 22.10.2024

Kosningabaráttan fyrir forsetakjör í Bandaríkjunum eftir tvær vikur harðnar. Litlu munar á frambjóðendum Demókrata og Repúblikana og þeir keppast við að ná hópum á kjörstað sem gætu ráðið úrslitum. Umdeild mál eins og þungunarrof setja mark sitt á kosningabaráttuna en efnahagsmálin eru þó það sem flestir kjósendur segja að ráði vali sínu. Anna Kristin Jónsdóttir ræðir við Silju Báru Ómarsdóttur. Þ...

Félagsskiptin í stjórnmálunum og er eftirsóknarvert að vera þingmaður? 21.10.2024

Ennþá hafa framboðslistar ekki tekið á sig lokamyndina en áberandi tal um nýtt fólk á listum og að þó nokkrum sitjandi þingmönnum hafnað í uppstillingu segir prófessor í stjórnmálafræði. Það geti verið glænýjum stjórnmálamönnum áskorun að fóta sig bæði á þingi og í innra starfi flokkanna. Anna Kristín Jónsdóttir ræddi við Evu H. Önnudóttur. Síðustu dagar hafa sýnt að það er enginn hörgull á fólki...

Æfing hjá neyðarstjórn, tetrakerfið og Tom Hagen 18.10.2024

Neyðarstjórn Reykjavíkurborgar kom saman á dögunum til æfingar. Búið var til raunhæft verkefni fyrir embættismenn borgarinnar til að æfa, kvikuhlaup og eldgos í nágrenni borgarinnar, þannig að rýma þurfti heimili 6000 manna í efri byggðum. Ragnhildur Thorlacius forvitnaðist um æfinguna, sem er innblásin af veruleika Grindvíkinga. Forsvarsmenn Neyðarlínunnar telja TETRA-talstöðvakerfið, sem viðbrag...

Kosningabaráttan hafin, mikil þingmannavelta fyrr og nú, örbirgð og átök í heiminum 17.10.2024

Þingmenn mættu til starfa á Alþingi í morgun í fyrsta skipti frá því að ríkisstjórnin sprakk. Eitt mál var á dagskrá - umræða um þingrofstillögu forsætisráðherra. Eftir ræðuhöldin fóru kjörnir fulltrúar hver til síns heima, flestir til að undirbúa sig fyrir komandi átök og koma sér á framfæri við flokksapparötin í þeirri von að fá ásættanlegt sæti á framboðslista. Ræður þeirra sem tóku til máls bá...

Þingstörf á óvissutímum, brestur í almannavarnakerfinu og málefni flóttafólks í Evrópu. 16.10.2024

Þingflokksformenn Framsóknar og Viðreisnar eru nokkuð bjartsýnar á að þingið afgreiði fjárlagafrumvarpið. Þær segja að ekkert verði hefðbundið við þingstörf næstu daga. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við þær Ingibjörgu Isaksen og Hönnu Katrínu Friðrikson. Fjarskiptakerfi á norðan- og austanverðu landinu lágu niðri í um tuttugu mínútur um miðjan dag í gær. Netið fór, það var ekki hægt að hringja og t...

Hægt að bjóða fram til 30.október. Harris reynir að sækja atkvæði til svartra karla. Líffræðilegur fjölbreytileiki hnignar. 15.10.2024

Það verður kosið 30. nóvember eftir að forseti Íslands féllst á beiðni forsætisráðherra um þingrof. Þetta er sú tímalína sem Landskjörstjórn hefur unnið með og þetta þýðir að flokkarnir hafa tíma til 30. október til að skila inn framboðslistum. Það verður víðar kosið í nóvember en á Íslandi, til að mynda í Bandaríkjunum þar sem baráttan harðnar með hverjum degi. Kamala Harris reynir nú að sækja at...

Sitjandi stjórn er ekki starfsstjórn og flokkarnir í blóðspreng fyrir væntanlegar kosningar 14.10.2024

Aðdragandi þess að forsætisráðherra vill rjúfa þing. Forseti Íslands ætlar síðar í vikunni að gera grein fyrir afstöðu sinni til tillögu forsætisráðherra um þingrof, verði fallist á hana er líklegt að 30. nóvember verði kjördagurinn. Forsætisráðherra hefur ekki beðist lausnar fyrir ráðuneyti sitt og það er ekki nema hann geri það sem starfsstjórn tekur við. Rætt við Ragnhildi Helgadóttur lagaprófe...

Staðan í Sjálfstæðisflokknum, friðarverðlaun og átök í Brussel 11.10.2024

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundaði í dag, skyndilega eða ekki, um stöðu ríkisstjórnarinnar og næstu skref. Það kvað við svolítið nýjan tón eftir fund ríkisstjórnarinnar í morgun þar sem ráðherrar virtust ekki útiloka að kosningar væru handan við hornið. Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og Sigríður Á. Andersen, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, f...

Guðmundur hringdi ríkislögreglustjóra en ekki dómsmálaráðherra og aðstöðumunur í framhaldsskólum 10.10.2024

Sex framhaldsskólar í landinu geta ekki boðið þær einingar í stærðfræði sem þarf til að komast í verkfræði og raungreinanám. Þetta hefur gerst í kjölfar breyinga sem urðu fyrir rúmum tíu árum, á námsskrá og námsbrautum framhaldsskólanna og svo styttingunni. Breytingar sem erfiðara er að takast á við í smærri skólum, ekki síst á landsbyggðinni. Við fjöllum líka um málaferli sem Orkubú Vestfjarða st...

Afskipti ráðamanna af máli Yazans Tamimi og fellibylurinn Milton 09.10.2024

Ný gögn varpa ljósi á að það var Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sem tók ákvörðun um að stöðva brottflutning hins tólf ára gamla Yazans Tamimi í síðasta mánuði, innan við klukkustund áður en til famkvæmdar brottvísunarinnar kom. Þáverandi formaður Vinstri grænna hafði þá verið í beinum samskiptum við hvorutveggja forsætisráðherra og ríkislögreglustjóra um málið. Freyr Gígja Gunnarsson kafar o...

Hverjir ætla að hætta á þingi? Hvernig verður kosningaveturinn? Opinber heimsókn Höllu. 08.10.2024

Það er farið að bera á kosningaskjálfta ; talað um að kjósa í vor frekar en næsta haust þegar og að áhugaverður vetur og átök séu framundan í pólitíkinn. Spegillinn ræddi við Bergþór Ólason, þingmann Miðflokks og Bryndísi Haraldsdóttur þingmann Sjálfstæðisflokks um veturinn framundan. Spegillinn spurði alþingismenn hvort þeir ætluðu að gefa kost á sér á fyrir næstu þinkosningar. Og það er bara ein...

Utanríkisráðherra og þingmenn í utarnríkismálanefnd um stríðið fyrir botni Miðjarðarhafs 07.10.2024

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segir að þótt hryðjuverkaárás Hamaz hafi ekki verið einhver upphafspunktur að átökunum hafi allt breyst á þeim degi. Síðastliðnir tólf mánuðir hafi haft mikil áhrif á alla utanríkismálapólitík, Evrópa sé klofin og jafnvel Norðurlöndin, sem alla jafna eru mjög samstíga, fylgi ekki sömu línunni. Birgir Þórarinsson, Sjálfstæðisflokki og Logi Ei...

Landsfundur VG og risarollur í Montana 04.10.2024

Fátt ef nokkuð getur komið í veg fyrir að Svandís Svavarsdóttir verði næsti formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs þegar kosið verður um embættið á Landsfundi flokksins um helgina. Svandís tekur við stöðunni af Guðmundi Inga Guðbrandssyni sem varð formaður þegar Katrín Jakobsdóttir hætti í stjórnmálum. VG er í erfiðri stöðu og hefur ekki mælst með þingmann í síðustu könnunum. Fundurinn um...

Öryggi ferðafólks, handhafar forsetavalds og samskipti Breta og ESB 03.10.2024

Í síðustu viku fórust tveir útlendingar sem voru hér á ferðalagi, annar í bílslysi á Skaga, hinn féll í Hlauptungufoss á Suðurlandi og í sumar dó maður í íshellaferð á Breiðamerkurjökli. Þetta eru þrjú nærtæk dæmi um banaslys erlendra ferðamanna. Hingað koma í ár um tvær milljónir ferðamanna. Er nóg að gert til að tryggja öryggi þeirra gesta sem hingað koma? Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Lilju...

Stýrivextir, Líbanon og ný Ölfusárbrú 02.10.2024

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tók í dag varfærin skref í átt að lækkun stýrivaxta þegar þeir voru lækkaðir úr níu komma tuttugu og fimm prósentum í níu. Greiningardeildir bankanna höfðu flestar spáð því að stýrivextir yrðu óbreyttir. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, segir ákvörðun peningastefnunefndar hafa komið á óvart og það hafi mátt sjá þess merki þegar ákvörðunin var kyn...

Magnús Þorkell um stöðuna í Miðausturlöndum og íbúðarkaup ungs fólks 01.10.2024

Ísraelar hafa gert fjölda loftárása á Líbanon síðustu daga og innrás Ísraelshers á jörðu niðri er hafin. Hátt í þúsund manns hafa fallið í Líbanon á síðustu dögum og hundruð þúsunda eru á flótta. Eins og fram kom í fréttum hefndu Íranir árásanna á Hezbollah og drápsins á leiðtoga samtakanna með eldflaugaárás síðdegis í dag. Ólöf Ragnarsdóttir fréttamaður ræddi við Magnús Þorkel Bernharðsson sérfræ...

Farþegum Strætós fækkar á landsbyggðinni og skjálftavirkni víða um land 30.09.2024
Netsvik færast í aukana, hrottalegt morð í Bretlandi og vinsælt lag á Tiktok 27.09.2024

Almennt og gegnumgangandi traust Norðurlandabúa til stofnana og næsta manns gerir þá berskjaldaða gagnvart netþrjótum. Þetta kemur fram í nýju sameiginlegu áhættumati norrænna löggæsluyfirvalda. Rætt verður við Ólaf Þór Hauksson, héraðssaksóknara. Fjallað verður um hrottalegt morð á Bretlandseyjum þar sem drengir á þrettánda aldursári voru sakfelldir. Fjölskyldan fórnarlambsins er ósátt með lengd...

Umboðsmaður Alþingis kveður, Pútín hótar kjarnorkuvopnum 26.09.2024

Skúli Magnússon lætur af störfum sem umboðsmaður Alþingis á þriðjudag og sest í dómarasæti í Hæstarétti Íslands. Við starfi hans tekur Kristín Benediktsdóttir sem Alþingi kaus í dag. Skúli hefur sem umboðsmaður slegið á putta ráðherra, meðal annars í Íslandsbankamálinu, sem varð til þess að þáverandi fjármálaráðherra sagði af sér - þó með þeim orðum að hann væri ósammála áliti umboðsmanns. Freyr G...

Fjármálastöðugleiki, tafir á upplýsingagjöf stjórnvalda ámælisverðar og deilur Norðmanna og Evrópusambandsins 25.09.2024

Vextir verða ekki lækkaðir nema verðbólga hjaðni segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Hún stendur í sex prósentum en markmiðið sem að er stefnt er 2,5%. Hann segir að hækkandi fjármagnskostnaður geti haft áhrif á greiðslubyrði vissra hópa en almennt sé eiginfjárstaða heimila góð og vanskil hafi lítið aukist. Umboðsmaður Alþingis gerði í vikunni athugasemdir við hversu lengi úrskurðarnefnd um upp...

Ekki útilokað að Svandís fái mótframboð, siðferðisspurningar vegna fósturskimana 24.09.2024

Eitt verst geymda leyndarmálið í íslenskum stjórnmálum var opinberað í dag þegar Svandís Svavarsdóttir tilkynnti að hún vildi verða næsti formaður Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs. Hún sagðist um leið vera fylgjandi því að kosið yrði í vor en ekki í haust þegar kjörtímabili ríkisstjórnarinnar lýkur. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við Evu H. Önnudóttur, stjórnmálafræðiprófessor, um hvort kosnin...

Listen to the Spegillinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.