RÚV

Spegillinn

News IS ↓ 823 episodes

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Author

RÚV

Category

News

Podcast website

www.ruv.is

Latest episode

Jul 10, 2026

Where to listen?

Podcasts in the app Replaio Radio Coming soon

Podcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts

Get it on Google Play Install for free Android 5M+ downloads · 4.8 rating iOS soon

Episodes

Fíkniefnum smyglað um hafnir, kosningar í Brandenburg og fílar 23.09.2024

Óttast er að minni hafnir í Evrópu verði í meira mæli notaðar til að smygla stórum sendingum af fíkniefnum í vöruflutningagámum. Á Íslandi er aðeins brotabrot af öllum þeim þúsundum gáma sem hingað eru fluttir gegnumlýstir í rúmlega sextán ára gömlum skanna. Jafnaðarmannaflokkur Olafs Scholz kanslara Þýskalands, SPD, slapp kannski með skrekkinn í kosningum í Brandenburg um helgina en Scholz ekki,...

Afbrotatölfræði og valdatafl - í Brussell og hjá Murdoch 20.09.2024

Síðustu daga og vikur hefur mikið verið rætt um ofbeldi í samfélaginu í ljósi voðaverka sem framin hafa verið í ár. Ekki síst er mikið rætt um ofbeldi meðal ungs fólks. Rannveig Þórisdóttir félagsfræðingur og samskiptastjóri hjá ríkislögreglustjóra segir það skiljanlegt en að þótt skráðum ofbeldisbrotum hafi fjölgað sýni þolendakannir ekki að fleiri verði fyrir brotum. Tuttugu og sex nýjir framkvæ...

Hvítabjörn, Líbanon og sígarettusmygl rafrettukónga 19.09.2024

Fyrsti hvítabjörninn sem gengið hefur á land síðan 2016 var felldur í fjörunni á Höfðaströnd í Jökulfjörðum skömmu fyrir klukkan fjögur í dag. Helgi Jensson, lögreglustjóri á Vestfjörðum, segir dýrið hafa verið aflífað eins snyrtilega og hægt var en vill ekki gefa upp hverjir það voru sem felldu björnin en bæði lögreglumenn frá lögreglunni á Vestfjörðum og séraðgerðardeild Landhelgisgæslunnar voru...

Nýr kafli í stríðinu og samskiptaforritið Ghost 18.09.2024

Tólf létust og hátt í 3.000 særðust þegar þúsundir símboða sprungu nánast samtímis í Líbanon í gær og minnst níu hafa látist síðan að labb-rabb-tæki og sólarsellur á þökum íbúðarhúsa tóku að springa líka síðdegis í dag. Og fyrir stundu lýstu Ísraelar því yfir að nýr kafli í stríðinu fyrir botni Miðjarðarhafs væri hafinn, með áherslu á norðurvígstöðvarnar - sem eru við landamæri Líbanons. Evrópsku...

Réttindagæsla fatlaðra um mál Yazans Tamimi og læsisþjálfun 17.09.2024

Áfram ríkir talsverð óvissa um hver örlög hins ellefu ára gamla Yazans Tamimi frá Palestínu verða. Til stóð að fljúga með hann og foreldra hans til Spánar í gærmorgun en brottflutningi þeirra var frestað eftir að dómsmálaráðherra barst beiðni þar um frá félagsmálaráðherra. Málið var síðan rætt á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun þar sem ráðherrarnir gáfu óljós svör um næstu skref. Á laugardag færi...

Brottvísun verður hápólitísk og leiðtogakjör í Japan 16.09.2024

Mál Yazans Tamimi, sem er með vöðvahrörnunarsjúkdóm, er orðið hápólítískt eftir að formaður Vinstri grænna og félagsmálaráðherra bað dómsmálaráðherra um að fresta brottvísun hans. Ríkisstjórnin fundar á morgun eins og venja er og dómsmálaráðherra segir brottvísun fjölskyldunnar standa þótt aðeins séu fimm dagar þar til forsendur fyrir máli Yazan gjörbreytast. Metfjöldi býður sig fram til forystu í...

Vaxandi spenna í innrásarstríði Rússa og engin ánægður með ákvörðun ráðherra 13.09.2024

Við ætlum að ræða við formann dómarafélags Íslands um umdeilda breytingu á dómskerfinu í Mexikó sem kveður á um að allir dómarar í landinu verða kosnir í beinni útsendingu. Svo er það mál vararíkissaksóknara og ákvörðun dómsmálaráðherra sem engin virðist ánægður með en ráðherrann ákvað að verða ekki við ósk um að leysa hann tímabundið frá störfum. En við byrjun á vaxandi spennu í kringum innrásars...

217 þingmál, kenning um Skaftárelda hrakin 12.09.2024

Spegillinn rýndi í þingmálaskránna nýju og skoðaði hvað ráðherrar ríkisstjórnarinnar ætla að setja á dagskrá í vetur. Á skránni eru 217 mál. Þetta eru frumvörp, tillögur og skýrslur. Sum eru endurflutt, önnur eru ný af nálinni. Fjármálaráðherra er með flest, forsætisráðherra fæst. Og það er ekki þannig að þetta séu málin sem ríkisstjórnarflokkarnir eru sammála um. Við segjum frá nýrri rannsókn sem...

Kappræður Trump og Harris, ferðasumarið á Norðurlandi 11.09.2024

Fyrstu - og mögulega einu - kappræður Donalds Trumps og Kamölu Harris fóru fram í nótt. Eins og við var búist voru stóru orðin hvergi spöruð, ásakanir gengu á víxl, þar á meðal um lygar og blekkingar, og töluvert var um persónuárásir - en málefnin fengu líka sitt pláss. Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir og Benedikt Jóhannesson ræða kappræðurnar við Ævar Örn Jósepsson. Tuttugu til þrjátíu prósent færri...

Fjárlagafrumvarp og forsetakappræður 10.09.2024

Spegillinn er auðvitað með hugann við fjárlagafrumvarpið sem kynnt var í morgun. Una Jónsdóttir forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans spáir í frumvarpið og áhrif á verðbólgu og vexti. En það er ekki bara rætt um frumjöfnuð í Speglinum. Forsetaefnin Harris og Trump mætast í sínum fyrstu kappræðum í kvöld - Ævar Örn Jósepsson og Birta Björnsdóttir sá í spilin.

Fjárlagafrumvarp, sameiningarmál Skorrdælinga, ofsóknir á hendur rússneskum vísindamönnum 09.09.2024

Sigurður Ingi Jóhannsson kynnir á morgun , klukkan níu, sitt fyrsta fjárlagafrumvarp. Þetta verður söguleg stund í íslenskri stjórnmálasögu því Sigurður Ingi er fyrsti Framsóknarmaðurinn í nærri hálfa öld til að vera fjármálaráðherra. Freyr Gígja Gunnarsson reifar það helsta sem búast má við í frumvarpinu og ræðir það við Finnbjörn Hermannsson, formann ASÍ. Skorradalshreppur er eitt af fámennustu...

Atvinnuleysi hjá innflytjendum, viðhorf til ferðamanna og málið sem Frakkar eiga erfitt með að trúa 06.09.2024

Meira en helmingur þeirra um 7.200 sem voru á atvinnuleysisskrá í júlí voru erlendir ríkisborgarar. Hlutfallið var þá 53% og hefur sigið upp á við undanfarið - var 48% fyrir ári. Atvinnuþátttaka útlendinga er mikil hérlendis en þetta háa hlutfall þeirra sem eru atvinnulausir var meðal þess sem til var tekið í nýlegri úttekt Efnahags- og framfarastofnunarinnar OECD sem kynnt var í vikunni. Rætt ver...

Þingmenn setja sig í stellingar og forstjóri Landsvirkjunar 05.09.2024

Alþingi verður sett á þriðjudag og þingmenn eru að setja sig stellingar. Við ræðum við þingflokksformenn og Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur, fréttamann, um þingveturinn framundan. Forstjóri Landsvirkjunar bindur vonir við að Búrfellslundur verði kominn í gagnið 2026. Landsvirkjun hafi reynt að flýta fyrir með útboðum samhliða leyfisveitingunni sem sé óvanalegt. Kæra Skeiða- og Gnúpverjahrepps breyti...

Tungumálið er lykillinn að samfélaginu, neyðarástand í Súdan og Landsvirkjun og tafir á leyfisveitingum 04.09.2024

Hlutfall útlendinga af landsmönnum hefur tvöfaldast á skömmum tíma, atvinnuþátttaka þeirra er meiri en innfæddra en styðja þarf betur við íslenskufærni þeirra og barna af erlendum uppruna til að tryggja aðgang að samfélaginu.... Það er mjög slæmt að Landsvirkjun skuli vera milli steins og sleggju í deilum orkusveitarfélaganna við ríkið, segir forstjóri Landsvirkjunar. Þótt Landsvirkjun hafi talað...

Ákveða hvort leyfi fyrir Búfellslundi verður kært, pólitík í Þýringalandi og Saxlandi, verðsamráð í Noregi 03.09.2024

Sveitastjórn Skeiða-og Gnúpverjahrepps tekur á morgun ákvörðun um hvort leyfi Orkustofnunar fyrir Búrfellslundi verði kært til úrskurðarnefndar umhverfis-og auðlindamála. Sveitastjóri hreppsins segir komið að skuldadögum hjá ríkisstjórninni. Að vera annars flokks borgarar og mismunað, þannig líður mörgum Þjóðverjum sem búa í austurhluta landsins og þessa líðan létu íbúar í Þýringalandi og Saxlandi...

Aukinn hnífaburður og flakkandi félagsmiðstöð 02.09.2024

Tíðindin af því að ung stúlka, sautján ára nemandi við Verslunarskóla Íslands hafa væri látin eftir að hafa verið stungin á Menningarnótt hafa vakið sterk viðbrögð og umræðu um ofbeldi og vopnaburð ungmenna. Barnaverndaryfirvöld hafa bent á að börn með þroska-, hegðunar- og geðvanda fái ekki viðeigandi stuðning og þjónustu. Þau eru líklegri en önnur börn til að vera bæði gerendur og þolendur í ein...

Handtaka Durov atlaga að tjáningarfrelsinu? Konunglegt brúðkaup í Noregi og smokkanotkun 30.08.2024

Ný rannsókn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, bendir til þess að smokkanotkun ungmenna um allan heim hafi dregist saman. Könnun WHO var gerð í Evrópu, Mið-Asíu og Kanada, náði til nemenda í sjötta, áttunda og tíunda bekk og sýndi að hlutfall óvarinna kynmaka hefur ekki verið hærra í þessum aldursflokki síðan 2014. Rætt verður við Ársæl Má Arnarsson, prófessor við menntavísindasvið HÍ. Fyl...

Átakavetur framundan í pólitíkinni en stjórnarslit vart í augsýn og úræði skortir fyrir börn sem beita ofbeldi 29.08.2024

Ný skoðanakönnun Maskínu í gær um fylgi flokkanna hefur vakið mikla athygli. Fimmtán prósent sögðust myndu kjósa Miðflokkinn ef gengið yrði til kosninga nú en fjórtán prósent Sjálfstæðisflokkinn - sem verða að teljast töluverð tíðindi í íslenskum stjórnmálum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður MIðflokksins býst við átökum í vettvangi stjórnmálanna í vetur. Fallandi gengi Sjálfstæðisflokksins ve...

Slysið á Breiðamerkurjökli og hnífaburður ungmenna 28.08.2024

Umræða um aukin hnífaburð hefur verið hávær síðustu daga eftir lífshættulega árás sextán ára drengs á jafnaldra sína við Skúlagötu eftir menningarnótt. Við ræðum við yfirlögregluþjón hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og lækni á bráðamóttöku Landspítalans. Banaslysið á Breiðamerkurjökli hefur vakið upp mikla umræðu um ferðaþjónustuna, hvort græðgisvæðing hafi þar náð yfirhöndinni og hvort farið...

Eftirlit og öryggi með skipulögðum ferðum á hættuslóðir 27.08.2024

Slysið á Breiðamerkujökli hefur vakið upp spurningar um eftirlit og öryggi með skipulögðum ferðum á hættuslóðir. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við Arnar Má Ólafsson, ferðamálastjóra, sem eitt sinn var fjallaleiðsögumaður og Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar.

Öryggi ferðmanna og þolmörk Öskju 26.08.2024

Talið var að 25 hefðu verið í íshellaskoðun á Breiðamerkurjökli þegar ishrun varð. Bandarískt par varð undir ísnum, karlinn lést og konan slasaðist illa en er ekki í lífshættu. Búið var að gera grein fyrir 23 í gær og var leit því haldið áfram en í dag kom í ljós að það voru 23 í ferðinni ekki 25. Lögreglan segir að skráning og utanumhald hafi ekki verið nákvæmt og upplýsingar um fjölda misvísandi...

Önnur eldkerfi á Reykjanesi í biðstöðu og Össur áberandi á Ólympíumóti fatlaðra 23.08.2024

Ármann Höskuldsson ræðir við Spegilinn um stöðuna á Reykjanesskaga eftir að sjötta eldgosið á Sundhnúksgígaröðinni hófst í gærkvöld. Verulega hefur dregið úr krafti gossins en Ármann telur tímabært að skoða varnir fyrir Reykjanesbraut og Voga. Bjarnaveiðitímabilið byrjaði í Svíþjóð á miðvikudag. Samkvæmt vefsíðu Sænsku rándýrasamtakanna, sem láta sig velferð, viðgang og afkomu rándýra landsins var...

Verðbólga og vextir, innrás Úkraínumanna í Rússland 22.08.2024

Ákvörðun Seðlabankans í gær um að halda stýrivöxtum óbreyttum hefur verið gagnrýnd og hagfræðingar hafa lýst efasemdum um að hátt vaxtastig skili lengur árangri í baráttunni við verðbólguna. Aðalhagfræðingur Íslandsbanka sagði í hádegisfréttum RÚV að trúverðugleiki Seðlabankans væri laskaður. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Ágúst Bjarna Garðarsson, þingmann Framsóknarflokksins, og Ásthildi Lóu Þó...

Stýrivextir, enskir óeirðaseggir og orlofsgreiðslur sveitarstjóra 21.08.2024

Seðlabankinn ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum, í 9,25 prósentum. Finnbjörn A. Hermannsson forseti ASÍ segir það vonbrigði að Seðlabankinn skuli ekki hafa þorað að stíga inn í þann spíral sem við erum í. Anna Hrefna Ingimundardóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir marga krafta halda verðbólgunni uppi. Freyr Gígja Gunnarsson ræddi við þau um tíðindi dagsins. Búið er...

Gosið gæti hafist með krafti, sveifluríkin sex, bakteríuveirur í stað sýklalyfja 20.08.2024

Kristín Jónsdóttir jarðeðlisfræðingur segir að vísindamenn búist við að eldgosið sem vofir yfir hefjist með miklum krafti. Opnist gosrásin sunnarlega gæti hraun runnið út í sjó á nokkrum klukkustundum. Það er hægt að nota bakteríuveirur sem valkost við sýklalyf, segir nýdoktor í örveruerfðafræði. Sýklalyfjaónæmi er ein mesta ógn sem heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir. Spáð er í sveifluríkin sv...

Listen to the Spegillinn podcast in Replaio

Radio and podcasts in one app - free, with no sign-up. Install today and do not miss the launch

Get it on Google Play

Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.