RÚV
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Skeytasendingar hjá ráðherrum ríkisstjórnarinnar og öldrun 19.08.2024 20:00
Það hefur ekki farið framhjá neinum sem fylgist með stjórnmálum að það hafa verið skeytasendingar milli stjórnarflokkanna síðustu daga og vikur; þær hófust með umræðu um ókeypis skólagögn, fóru svo yfir í umræðuna um orkumál og þá sérstaklega vindorkuna, síðan útlendingamálin og náðu eiginlega hámarki þegar flokksráð VG ákvað að samþykkja ályktun þar sem ákvörðun Bjarna Benediktssonar um að frysta...
Bág staða láglaunakvenna, orlof og orðræða Trumps 16.08.2024 20:00
Heimsk, brjáluð, kommmúnísk og stórkostlega vanhæf kona sem hlær furðulega. Þetta er meðal þess sem Donald Trump hefur sagt um Kamölu Harris, mótherja sinn í forsetakosningunum vestanhafs. Við ætlum að rýna í talsmáta Trumps og þær áhyggjur sem samflokksmenn hans hafa af orðfæri hans. Við fjöllum líka orlof hjá æðstu embættismönnum eins og sveitastjórum, borgarstjóra og fyrrverandi forsætisráðherr...
Vindorka, skemmdarverk á gasleiðslu og norska konungsfjölskyldan 15.08.2024 20:00
Frumvarp umhverfis- og orkumálaráðherra um breytingar á rammaáætlun vegna vindorkuvera náði ekki fram að ganga í vor, og vakti raunar nokkrar deilur og gagnrýni, innan þings sem utan. Ráðherra vísar allri gagnrýni um samráðsleysi á bug og segir að nú sé að hrökkva eða stökkva - ef fólk vill græna orku, þá þurfi að virkja vindinn. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Guðlaug Þór Þórðarson. Þýsk yfirvöl...
Ofbeldi í nánum samböndum, hitametaregn og kvikmynd um leiðtogafundinn 14.08.2024 20:00
Nauðungarstjórnun getur best spáð fyrir um alvarlegt ofbeldi eða manndráp í nánum samböndum, samkvæmt rannsókn breska afbrotafræðingsins Jane Monckton-Smith. Hún kortlagði hegðun geranda og útbjó líkan; tímalínu til að meta hættuna á manndrápi. Lögregla hér á landi hefur tímalínuna til hliðsjónar við hættumat og vinnur nú að innleiðingu nýs áhættumats Hitamet hafa verið slegin á tugum þúsunda veðu...
Ráðuneyti gerði ekki athugasemd við áminninguna, Rússar í vanda, Normenn ofbeldisfullir en Danir í bissnes 13.08.2024 20:00
Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, var í samskiptum við dómsmálaráðuneytið í aðdraganda þess að Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, var áminntur fyrir ummæli sín um hælisleitendur og homma sumarið 2022. Ráðuneytið gerði aldrei neinar athugasemdir við áminninguna. Rússar hafa áttt í stökustu vandræðum með að stöðva sókn innrásarhers Úrkaínumanna - innrásin kom Rússum í opna skjöldu...
Bóluefnin björguðu mannslífum í COVID og hver eru áhrif gervigreindar á tónlist? 12.08.2024 20:00
Fjallað verður um nýja rannsókn sem rennir enn frekari stoðum um hversu mikilvæg bóluefnin voru í baráttunni gegn COVID-19 - sóttvarnalæknir telur neikvæða umræðu um þau ekki hafa átt rétt á sér, hún hafi ekki verið byggð á gögnum eða góðum rökum. Síðar í þættinum verður sagt frá gervigreind í tónlist og hvaða áhrif hefur hún haft. Tónlistarfólk, útgefendur og samtök höfundarréttarhafa víða um hei...
Kaldur blettur í hitnandi heimi, tímamótadómur yfir Google 09.08.2024 10:00
Kuldapollur, eða blár blettur, sem myndast hefur í hafinu suður af landinu er ein helsta ástæða þess að þau methlýindi sem geisað hafa á Jörðinni að undanförnu hafa að mestu sneitt hjá Íslandi í sumar. Kuldapollurinn er afleiðing óstöðugleika í svokallaðri veltihringrás hafstrauma, eða AMOC, einskonar blöndunartækjum hafsins sem blanda heitum yfirborðssjó við kaldandjúpsjó. Halldór Björnsson fagst...
Kaldur blettur í hitnandi heimi, Puigdemont snýr aftur til Barcelona 08.08.2024 10:00
Samkvæmt evrópsku loftslagsþjónustunni Kópernikus var 22. júlí síðastliðinn heitasti dagur á Jörðinni frá upphafi mælinga, og sló þar með fyrra hitamet - sem var frá deginum áður. Hlýnun Jarðar er staðreynd, og það á jafnt við um andrúmsloftið sem hafið - nema á stöku stað. Einn þessara stöku staða er heljarinnar kuldapollur eða blár blettur í hafinu suðvestur af Íslandi, sem hefur mikil áhrif á v...
Óeirðir í Bretlandi, ásókn suðrænna ferðamanna í kuldann og ódýru krónuna í Noregi 07.08.2024 10:00
Á fimmta hundrað manns hafa verið handtekin og yfir eitt hundrað ákærð í tengslum við óeirðir sem brotist hafa út í Bretlandi í kjölfar morðs á þremur telpum í borginni Southport í fyrri viku. Óeirðaseggirnir beina reiði sinni einkum að innflytjendum, löglegum jafnt sem ólöglegum, þrátt fyrir að fyrir liggi að ódæðismaðurinn sé fæddur í Bretlandi. Hallgrímur Indriðason ræðir við Sigrúnu Davíðsdótt...
Breytt hlutverk gagnavera, Tim Walz, varaforsetaefni Kamölu Harris 06.08.2024 10:00
Þrjú fyrirtæki, Borealis Data Center, atNorth og Verne Global, reka sjö gagnver hér á landi. Vern rekur eitt, atNorth þrjú og Borealis þrjú. Miklar breytingar eru að verða á starfsemi gagnaveranna - þau eru að færa sig úr hinum umdeilda rafmyntagreftri. Ragnhildur Thorlacius ræðir þessa þróun við Bergþóru Halldórsdóttur, einn stjórnenda Borealis, sem rekur gagnaver við Korputorg, Fitjar og Blönduó...
Hungursneyð í Súdan og strandveiðar við Ísland 02.08.2024 10:00
Hungursneyð ríkir í Zamzam-flóttamannabúðunum í Norður-Darfurhéraði í Súdan, þar sem áætlað er að um 600.000 manns hafist við. Þetta kemur fram í tilkynningu Sameinuðu þjóðanna og greiningarstofnunarinnar IPC, en IPC er samvinnuvettvangur Sameinuðu þjóðanna og nokkurra alþjóðlegra hjálparsamtaka, sérhæfir sig í greiningu á fæðuöryggi í heiminum og skorti á því, samkvæmt samnefndum, alþjóðlega viðu...
Væringar í Venesúela 01.08.2024 10:00
Minnst 11 manns hafa látið lífið í hörðum og fjölmennum mótmælum í Venesúela síðustu daga, vegna ætlaðra vélráða við talningu atkvæða í nýafstöðnum forsetakosningum. Þar var Nicolás Maduro útnefndur sigurvegari og rétt kjörinn forseti, þriðja skiptið í röð, en stjórnarandstaðan telur sig hafa vissu fyrir því að sinn frambjóðandi, Edmundo González, hafi unnið yfirburðasigur, og ber fyrir sig hvorut...
Stríð og friður í Miðausturlöndum 31.07.2024 10:08
Hefndarstríð Ísraela gegn Palestínumönnum vegna mannskæðrar hryðjuverkaárásar vígasveita Hamas í fyrra haust hefur staðið í tæpa tíu mánuði. Á þessum tíma hafa Ísraelar drepið um 40.000 almenna borgara, að meirihluta til konur og börn, og lagt stóran hluta allra mannvirkja á Gaza í rúst. Þrátt fyrir mikinn og vaxandi þrýsting frá alþjóðsamfélaginu eru engin teikn á lofti um að lát verði á þessum s...
Nýorka toppar jarðefnaeldsneyti í ESB, klukkuþreyta og svefnmynstur ungmenna 30.07.2024 10:00
Orkuskipti eru forsenda þess að Evrópusambandið - og Ísland reyndar líka - nái loftslagsmarkmiðum sínum um kolefnishlutleysi fyrir 2050. Þótt nokkuð vanti upp á að þessi umskipti gangi nógu hratt fyrir sig hefur góður árangur náðst á síðustu misserum og fyrstu sex mánuðir þessa árs voru fyrsta hálfa almanaksárið, þar sem meira var notað af vind- og sólarorku heldur en jarðefnaeldsneyti við framlei...
Nýr forseti í Íran og ísbjarnafár á Grænlandi 29.07.2024 10:00
Nýr forseti tekur við völdum í ÍRan á þriðjudag. Hann hefur lofað breytingum sem Magnús Þorkell Bernharðsson, prófsesor í Mið-Austurlandafræðum, segir að gæti orðið erfitt að standa við. Ólöf Ragnarsdóttir ræðir við Magnús Þorkel. Ísbirnir eru til vaxandi vandræða í byggð á Grænlandi. Lögum hefur verið breytt til að auðvelda fólki að skjóta svokallaða vandræðabirni, sem láta sér ekki segjast þótt...
Gliðnun á sprungum frá Krýsuvík til Hólmsheiðar, Ólympíuleikar, útilokanir og öryggisgæsla 26.07.2024 10:00
Áhrif umbrotanna á suðvestanverðum Reykjanesskaganum síðustu misseri teygja sig víða, eins og Benedikt Sigurðsson komst að þegar hann hitti Halldór Geirsson jarðeðlisfræðing að máli í Búrfellsgjá, skammt suðaustur af Vífilsstaðavatni, sem liggur þvert á það sem kallast sprungusveimur Krýsuvíkureldstöðvakerfisins. Í honum eru virkar gliðnunarsprungur sem teygja sig nokkra tugi kílómetra til norðaus...
Barnaníðingur á Ólympíuleikum og fólksfækkun í Japan 25.07.2024 10:00
Ólympíuleikarnir verða settir við hátíðlega athöfn í París á föstudag. Leikarnir eru stærsti íþróttaviðburður heims og fjölmiðlar keppast við að segja frá öllu sem þeim við kemur. Ljót fortíð hollenska strandblakarans Steven van de Velde er eitt þeirra mála sem fjallað er um. Það hefur varpað skugga á gleðina í aðdraganda leikana og vakið miklar deilur, því van de Velde er dæmdur barnaníðingur. Ev...
Rannsóknarnefnd samgönguslysa og banaslys 24.07.2024 10:00
Fyrir sex árum 2018 létust 15 i umferðinni árið allt, sá fjöldi er þegar kominn í 11 í ár og slíkt vekur spurningar um orsakir slysanna. Rannsóknarnefnd samgönguslysa kannar þær og leggur til úrbætur til að reyna að koma í veg fyrir að slys endurtaki sig. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Helga Þorkel Kristjánsson og Björgvin Þór Guðnason frá rannsóknarnefndinni um starf hennar.
100 dagar í kosningar vestan hafs og Paul Watson í haldi á Grænlandi 23.07.2024 10:00
Kamala Harris hefur 100 daga til að fylkja bandarískum kjósendum að baki sér og vinna upp forskotið sem Trump hefur í kosningabaráttunni. Repúblikanar hafa sama tíma til að bregðast við gjörbreyttum forsendum í kapphlaupinu um Hvíta húsið. Paul Watson, aðgerðasinni sem eitt sinn var með umdeildustu mönnum á Íslandi situr í fangelsi á Grænlandi og bíður þess að verða mögulega framseldur til Japans.
Kamala Harris líklegt forsetaefni Demókrata 22.07.2024 9:48
Í rúmar þrjár vikur dundu á Joe Biden áskoranir um að draga sig í hlé úr kosningabaráttunni, hann virtist hvergi ætla að hvika og síðast á laugardag sagði hann að það væri - áfram ekkert stopp við sína - nánustu samstarfsmenn. En síðar sama dag eftir samtöl við ráðgjafa var annað hljóð komið í strokkinn og á sunnudag í gær lýsti Biden því yfir að hann væri hættur. Það hafi verið mesti heiður sem h...
Truflanir í tölvukerfum heimsins og ófrjósemisaðgerðum fjölgar í Bandaríkjunum 19.07.2024 10:00
Það var ringulreið á flugvöllum heimsins, mörgum hverjum, í dag, raðirnar hlykkjuðust um og biðin var löng; um miðjan dag var búið að aflýsa á annað þúsund flugferðum sem og fjölda skurðaðgerða, truflun varð á sjúkrahúsum, í fjármálastarfsemi og hjá fjölmiðlum vegna galla í hugbúnaðaruppfærslu frá fyrirtækinu Crowdstrike sem hafði svo áhrif á stýrikerfi frá Microsoft. Birna Íris Jónsdóttir framkvæ...
Núverandi kerfi olíu- og bensíngjalda skilar ekki lengur nægum tekjum 18.07.2024 10:00
Hærra hlutfall rafmagnsbíla og sparneytnari dísil-og bensínbíla hefur orðið til þess að tekjur stjórnvalda af olíu- og bensíngjöldum hafa dregist saman um 30% frá 2012, á sama tíma og umferð hefur aukist um 50% og álag á vegi að sama skapi. Nánast ekkert var greitt fyrir akstur á rafmagns- og tengiltvinnbílum en það breyttist um áramótin þegar tekið var upp gjald, 6 krónur á kílómetra fyrir rafmag...
J.D. Vance, vatnsfrek starfsemi og stjórn vatna 17.07.2024 10:00
Donald Trump kynnti í gær varaforsetaefni sitt og, ef nýjustu skoðanakannanir ganga eftir, að öllum líkindum næsta varaforseta Bandaríkjanna. Sá heitir James David Vance, iðulega kallaður J.D., og er öldungadeildarþingmaður Repúblikana fyrir Ohio. Hann hefur ekki alltaf verið aðdáandi Trumps, eins og Ævar Örn Jósepsson rekur. Ísland er ríkt af vatni en sókn eftir því til ýmissar starfsemi, ekki sí...
Aldrei fleiri strokulaxar greinst en í fyrra og þeir fóru víða. 16.07.2024 10:00
Aldrei hafa jafn margir strokulaxar af norskum uppruna greinst og árið 2023 og aldrei hafa strokulaxar veiðst í jafn mörgum ám segir í skýrslu Hafrannsóknastofnunar. Tíðni stroka úr sjókvíaeldi og fjöldi fiska var mun meiri en gert hafði verið ráð fyrir bæði við mat á umhverfisáhrifum laxeldis og áhættumati erfðablöndunar. segir líka. Rætt við Guðna Guðbergsson, sviðsstjór Ferskvatns- og eldissvið...
Tilræðið við Trump og landsþing Repúblikana 15.07.2024 10:00
Landsfundi Repúblikana, hófstí borginni Milwaukee í Wisconsin-ríki í Bandaríkjunum laust fyrir klukkan átján að íslenskum tíma, Landsfundurinn stendur í fjóra daga. Búist er við að allt að 50.000 manns, þar af eru rúmlega 2.400 kjörmenn, sem hafa það hlutverk að útnefna forsetaframbjóðanda flokksins, Donald Trump, með formlegum hætti, á fimmtudag. Fundurinn er haldinn í skugga banatilræðis við Tru...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.