RÚV
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Biden eða ekki Biden? Demókratar í úlfakreppu 12.07.2024 10:00
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, sækist eftir endurkjöri. Biden hefur ár um áttrætt, og þrátt fyrir nokkrar efasemdaraddir um að svo aldraður maður ætti erindi í Hvíta húsið í fjögur ár til viðbótar fór hann í gegnum forvalið hjá Demókrötum án minnstu mótspyrnu og er frambjóðandi flokksins til þessa valdamikla embættis - ennþá. Á hátíðarfundi NATO í gær kynnti hann heiðursgestinn Volodymyr Zelens...
Aðför að réttindum til friðsamlegra mótmæla 11.07.2024 9:48
Mannréttindasamtökin Amnesty International birtu á mánudag skýrslu um stöðu réttarins til friðsamlegra mótmæla í tuttugu og einu Evrópuríki og niðurstöðurnar eru sláandi: Þessi grundvallarréttur borgara í lýðræðisríkjum á undir högg að sækja, og það eru stjórnvöld sem sækja að honum, leynt og ljóst, með margvíslegum hætti. Ævar Örn Jósepsson fjallar um þetta og ræðir við Önnu Lúðvíksdóttur, framkv...
Varnir Norðurlanda, þróun og stjórnsýsla í skólamálum 10.07.2024 10:08
Varnarmálaráðherrar Norðurlandanna hafa skrifað undir viljayfirlýsingu um að NATÓ ríkin fái bætt aðgengi að loftrými Norðurlandanna til aðgerða og æfinga. Þetta segir Jónas Gunnar Allansson skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins í viðtali við Ragnhildi Thorlacius. Skólaþjónusta hefur þróast hægt á Íslandi síðustu áratugi. Pólitískur óstöðugleiki hefur þar mikið að segja. Sigr...
Búvörulög og hæfi þingmanna, gróðureldar í Brasilíu 09.07.2024 10:00
Alþingi samþykkti í mars búvörulög. Lögin veita miklar undanþágur frá samkeppnislögum og vegna þessara laga getur Kaupfélag Skagfirðinga keypt Kjarnafæði Norðlenska - stærsta kjötvinnslufyrirtæki landsins. Meðferð meirihluta atvinnuveganefndar Alþingis á málinu hefur verið gagnrýnd. Lagafrumvarpið gjörbreyttist í meðförum nefndarinnar. Gunnhildur Kjerúlf birgisdóttir ræðir við Hafstein Dan Kristjá...
Skúffaðir nágrannar í Frakklandi, flókin stjórnarmyndun framundan 08.07.2024 10:00
Lára Benjnouh býr í 800 manna þorpi í blómlegu landbúnaðarhéraði í Cher-dalnum Mið-Frakklandi. Það er óhætt að segja að meirihluti nágranna hennar hafi sennilega búist við sigri síns fólks í gær. 56% kusu Þjóðarfylkingu Le Pen og hún gerir ráð fyrir að margir séu skúffaðir. Sjálf býst hún allt eins við stjórnarkreppu, en segir það betra en að öfgafólk nái stjórnartaumunum í Frakklandi. Eirkur Berg...
Hver er Keir Starmer og hvaða verkefni bíða? 05.07.2024 10:00
Hvaða verkefni bíða hins nýja forsætisráðherra Bretlands og nýrrar ríkisstjórnar hans? Halla Gunnarsdóttir hefur lengi fylgst vel með breskum stjórnmálum og starfaði um tíma innan þeirra. Hún bendir á að auka þurfi hagvöxt í landinu og lagfæra mikilvæga innviði, Bretland sé að mörgu leyti illa statt. Ævar Örn Jósepsson fjallar um fortíð Keirs Starmers, lögfræðings sem var öflugur verjandi og barát...
Farsóttir og bólusetningar, kosningar í Bretlandi 04.07.2024 10:00
Dræm þátttaka eldra fólks í covid- og flensubólusetningum er áhyggjuefni. Hún jókst í faraldrinum en hefur fallið aftur og er komin undir 50%. Barnabólusetningar, til dæmis við mislingum, eru líka nokkuð undir viðmiðum sóttvarnalæknis. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Kamillu Sigríði Jósefsdóttur, yfirlækni á sóttvarnasviði landlæknis. Sinn er siður í landi hverju, segir máltækið, og það á líka v...
Kynsjúkdómar og flóðhestar á fljúgandi ferð 03.07.2024 10:00
Sýklalyf höfðu nánast útrýmt kynsjúkdómum eins og lekanda og sárasótt hérlendis en á síðustu árum hafa þeir færst mjög í aukana. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Kamillu Sigríði Jósefsdóttur, yfirlækni hjá Landlæknisembættinu. Fljúgandi skeið eða harðastökk er ekki það fyrsta sem manni dettur í hug þegar maður sér myndir af flóðhestum, enda flóðhestar með þyngstu og þunglamalegstu skepnum sem gan...
Samkeppni um heilbrigðisstarfsmenn og vinnuumhverfi skiptir máli við mönnun 02.07.2024 10:00
Álags vegna gætir víða á Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, það er erfitt að fá tíma og húsnæði hennar mætti líka víða vera betra. Ekki bætir úr skák að í mörgum hverfum hefur byggð þést þar sem heilsugæslustöðvarnar voru þegar sprungnar. Sigríður Dóra Magnúsdóttir, forstjóri Heilsugæslunnar segir að húsnæði og aðstæður á stöðvunum skipti miklu þegar kemur að mönnun, það sé samkeppni um hvern ei...
Vöntun á heimilislæknum og stjórnmálaleiðtogar hvor af sínum pólnum í Frakklandi 01.07.2024 10:00
Óskandi væri að hver heimilislæknir sinnti ekki fleirir en tólf hundruð 1.200 skjólstæðingum, segir Margrét Ólafía Tómasdóttir, formaður félags heimilislækna en í raun er hlutfallið á höfuðborgarsvæðinu næstum helmingi hærra. Kornungur leiðtogi Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi og gamalreyndur foringi Óbugaðs Frakklands eigast við í seinni umferð þingkosninga á sunnudaginn.
Kappræður, enski boltinn og gin frá norskri prinsessu 28.06.2024 20:00
Við fjöllum um hin verðmæta sýningarrétt að enska boltanum og af hverju Síminn og Sýn eru reiðubúin að greiða himinháar upphæðir fyrir hann. Það verður líka fjallað um afskipti norsku áfengiseinkasölunnar af bleiku gini sem norsk prinsessa ætlaði að framleiða. Gísli Kristjánsson með pistil frá Noregi. Byrjum samt á forsetakosningunum í Bandaríkjunum og fyrstu kappræðuðunum milli Joe Biden og Donal...
Verðbólgan tregðast við, kosið í Frakklandi og ungir Akureyringar í Vísindaskóla 27.06.2024 20:00
Það gengur hægt að vinda ofan af verðbólgunni sem er þó komin undir 6% í fyrsta sinn um langt skeið - þingkosningar standa fyrir dyrum í Frakklandi og sumir telja að valið standi milli pestar og kóleru- þessa dagana eru nemendur í skólastofum Háskólans á Akureyri yngri en allajafna. Tregbreytanleg er orðið sem greiningardeildir bankanna nota til að lýsa þróun hennar næstu mánuði. Róbert Farestveit...
Kosningar á Bretlandi, hvalveiðar og losun frá dönskum landbúnaði 26.06.2024 20:00
Eftir rúma viku rennur upp kjördagur á Bretlandi og í kvöld mætast Keir Starmer leiðtogi Verkamannaflokksins og Rishi Sunak forsætisráðherra Íhaldsflokksins í sjónvarpskappræðum í Nottingham. Kosningaspár gera ráð fyrir stórsigri Verkamannaflokksins. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Höllu Gunnarsdóttur alþjóðastjórnmálafræðing, sem stödd var í Lundúnum. Forstjóri Hvals kvartaði undan stjórnsýslue...
Assange laus, ákvarðanatökuferli um hvalveiðar 25.06.2024 20:00
Julian Assange var leystur úr Belmarsh öryggisfangelsinu í Lundúnum í morgun, þar sem honum hafði verið haldið meira og minna í einangrun í rúm fimm ár án dóms og eiginlegrar málsmeðferðar, með framsal til Bandaríkjanna yfirvofandi. Sigríður Dögg Auðundsdóttir formaður blaðamannafélagsins fagnar frelsun Assange, en segir málalyktir þó ekki geta talist sigur fjölmiðla- og tjáningarfrelsis. Spegilli...
Netárásir og misræmi milli skóla 24.06.2024 20:00
24. júní 2024 Sviðsstjóri netöryggissveitarinnar Certis segir að tölvukerfi liggi undir sleitulausum árásum sem langflestum sé hrundið, það sé mikilvægt að uppfæra kerfi stöðugt til að verjast þeim en þáttur notenda skipti líka miklu. Skólar á landsbyggðinn glíma ekki við sömu áskoranir og skólar á stærri stöðum en þó getur líka verið mikill aðstöðumunur milli skóla á stærri stöðum segir mennta-og...
Afstaðan til flóttafólks og staðan í Grindavík 21.06.2024 20:09
Árið 2023 var tólfta árið í röð sem flóttafólki í heiminum fjölgaði. Hartnær 120 milljón manns voru á flótta í fyrra, þar af um 47 milljónir barna undir 18 ára aldri. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Í gær, á alþjóðlegum degi flóttafólks, kynnti Flóttamannastofnunin niðurstöður alþjóðlegrar könnunar, þar sem ríflega 33 þúsund manns í 52 löndum víðsvegar um...
Vantraust á matvælaráðherra, deilur í ESB og friðlýsingar og ágangur á ferðamannastöðum 20.06.2024 19:45
Tillaga um vantraust á matvælaráðherra var felld í morgun. Aðeins eru nokkrar vikur síðan ríkisstjórnin í heild stóð af sér síka tillögu. Ráðherra segir tíma þingsins betur varið í annað en stjórnarliði sem sat hjá efast um erindi VG á þingi og segir eðlilegt að ráðherra sem misbeitir valdi sínu víki. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur fréttakonu um málið og við heyrum...
Rannsókn á rútuslysi, mýtur um mansal og spænskum gersemum skilað 19.06.2024 20:00
Nokkrir úr hópi tékkneskra ferðalanga sem lentu í alvarlegu bílslysi í Öxnadal í síðustu viku hafa verið útskrifaðir af sjúkrahúsi, en tveir eru enn á gjörgæslu. Bílstjórinn hefur réttarstöðu sakbornings, umfangsmikil rannsókn er þó skammt á veg komin. Hlekkirnir þurfa ekki að vera áþreifanlegar til að það sé mansal, segir sendisaksóknari Íslands hjá Eurojust, og mansal þrífst ekki aðeins hjá skip...
Vantrauststillaga, mansalsmál, umdeild umhverfislöggjöf 18.06.2024 20:00
Vantrauststillaga í garð matvælaráðherra. Rætt við þingflokksformann Miðflokksins Bergþór Ólason og þingflokksformann Framsóknarflokksins Ingibjörgu Isaksen. Af hverju gengur svona illa að sakfella í mansalsmálum? Rætt við Kolbrúnu Benediktsdóttur saksóknara. Ráðherraráð Evrópusambandsins hefur staðfest viðamikla og umdeilda löggjöf um endurheimt lífríkis, vistkerfa og náttúru eftir harðar deilur...
Þjóðerniskennd á lýðveldisafmælinu, öryggisgæslan á EM og sendiherrabústaður fær grænt ljós 14.06.2024 20:00
Fyrir áttatíu árum þegar lýðveldið var stofnað og valinn forseta í staðinn fyrir kóng var ekki bara verið að setja lokapunktinn á sambandið við Dani en þá voru líka mikilvæg tímamót í lýðræðislegri þróun landsins. Þjóðerniskennd getur verið jákvæð en víða er höfðað til hennar til að ala á sundrungu. Anna Kristín Jónsdóttir ræðir við Ragnheiði Kristjánsdóttur sagnfræðing. Þýskaland og Skotlands mæt...
Þingveturinn með Jóhanni Páli og Bryndísi og nýtt skipulag rjúpnaveiða 13.06.2024 20:00
Í þættinum verður farið yfir þingveturinn sem á að vera ljúka en óvist er hvenær það verður. Stjórnarandstaðan hvessti sig við upphaf þingfundar í morgun og húðskammaði stjórnarflokkanna. Ríkisstjórnin segir mikilvæg mál verða sett á oddinn; fjármálaáætlun og útlendingamál þar efst á baugi. Í þættinum verður einnig sagt frá nýju skipulagi við rjúpnaveiðar sem sátt virðist ríkja um.
Hvalveiðar og þingkosningar í Frakklandi 12.06.2024 20:00
12. júní 2024 Forstjóri Hvals hf sagðist í morgun vera efins um að fyrirtækið myndi veiða hval á þessari vertíð vegna seinagangs matvælaráðherra. Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata, telur orð forstjórans vera viðbrögð við minni eftirspurn á Japansmarkaði og Þórarinn Ingi Pétursson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, segir Hval hafa nægan tíma til stefnu. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við þá....
Vonast eftir vopnahléi, ekkert grín að veiða langreyði, staða drengja í skólum 11.06.2024 20:00
Enginn virðist ánægður með ákvörðun um að heimila hvalveiðar í ár. Matvælaráðherra ákvað í dag að heimila veiðar í ár. Edda Elísabet Magnúsdóttir hvalasérfræðingur segir að það sé ekkert grín að veiða dýr sem er fjörutíu tonn og tuttugu metrar að lengd. Þjóðarleiðtogar og alþjóðasamtök fagna ályktun öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um að Ísraelar og Hamas skuli semja um vopnahlé á grundvelli samkomu...
Kosningar til Evrópuþings og akstur undir áhrifum slævandi lyfja 10.06.2024 20:00
Rúmlega helmingur af þeim 360 milljónum Evrópusambandsbúa sem voru á kjörskrá neyttu atkvæðisréttar síns og kusu í Evrópuþingskosningunum. Helsta niðurstaðan er sú að flokkar sem skipa sér nálægt miðju og til hægri við hana fengu mest fylgi en þjóðernissinnaðir hægriflokkar styrktu stöðu sína, mest í Frakklandi þar sem flokkur forsætisráðherrans galt afhroð. Hann hefur boðað til þingkosninga eftir...
Strákar í skóla, ketamín og verkföllin í Færeyjum 07.06.2024 20:00
Fyrir tveimur árum hófst vinna í barna- og menntamálaráðuneytinu til að finna leiðir til að styrkja stöðu drengja í skólakerfinu. Stöðu sem er um margt alvarleg og getur enn versnað, eins og fram kom í máli Tryggva Hjaltasonar höfundar úttektar og skýrslu sem kynnt var í gær og fjallað um í Speglinum. Þar voru lagðar til fjölmargar aðgerðir og lausnir til að sporna við því að námsárangri drengja h...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.