RÚV
Spegillinn
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Where to listen?
Podcasts in the app Replaio Radio Coming soonPodcasts are coming to the app soon. Install now and be the first to see a whole new take on podcasts
Episodes
Vandi drengja í skólum landsins, lífeldsneyti úr matarafgöngum og dauði Dauðahafsins 06.06.2024 20:00
6. júní 2024 Það kom á óvart hvað tungumálið er stór breyta, segir Tryggvi Hjaltason, höfundur nýrrar skýrslu um stöðu drengja í menntakerfinu sem unnin var að beiðni menntamálaráðuneytisins. Þótt staðan sé vond er botninum sennilega ekki náð en það er hægt að ná miklum og mælanlegum árangri með ákveðnum aðgerðum, segir Tryggvi, í samtali við Frey Gígju Gunnarsson. Tilraunir með lífeldsneyti skilu...
Grindavík, Evrópuþingkosningar, Úkraína og Rússland 05.06.2024 20:00
5. júní 2024 Það eru um sjö mánuðir síðan Grindavík var rýmd, jarðhræringarnar halda áfram og verkefnin sem við blasa eru mörg og krefjandi. Atvinnu- og húsnæðismálin kannski mest aðkallandi segir Árni Þór Sigurðsson, formaður nýrrar framkvæmdanefndar um málefni Grindavíkur, í viðtali við Önnu Kristínu Jónsdóttur. Um þrjú hundruð og sjötíu milljónir eru á kjörskrá fyrir kosningar til Evrópuþingsin...
VG leiti í róttækar rætur sínar, hungursneyð vofir yfir Gaza, upplifun af ofbeldi 04.06.2024 20:00
Það er ekkert sem bendir til þess að dimmur og ofbeldisfullur veruleiki fylgi hinu svokallaða nýja Íslandi, segir afbrotafræðingur. Upplifun af ofbeldisbrotum fólks af erlendum uppruna mótast oft af því hvort viðkomandi sé gerandi eða þolandi. Meirihluti Gazabúa hefur verið sviptur aðgangi að mannúðaraðstoð og hungursneyð vofir yfir á Gaza öllu, segja alþjóðlegu hjálparsamtökin Oxfam. Hér heima er...
Þýðing nýrra miðla í kosningabaráttu, fjölgun fanga í gæsluvarðhaldi og stuðningur við hinsegin börn 03.06.2024 19:58
Hve mikinn þátt í sigri Höllu Tómasdóttur átti sókn hennar á nýjum miðlum þar sem sérstaklega var höfðað til yngri kjósenda? Breytingar á íslensku samfélagi endurspeglast í fangelsum landsins, í fyrra sættu 242 frá 40 löndum gæsluvarðhaldi og hafa aldrei verið fleiri. Fangelsismálastjóri segir þróun samfélagsins endurspeglast í fangelsunum og það þarf að hlúa betur að hinsegin nemendum í smærri by...
Talning atkvæða, umgengni frambjóðenda um íslenska tungu og Trump 31.05.2024 20:21
Á morgun ganga Íslendingar að kjörborðinu og kjósa sér sjöunda forseta lýðveldisins. Tólf frambjóðendur eru á kjörseðlinum, tæplega tvö hundruð sextíu og sjö þúsund á kjörskrá og kjörstaðir eru í kringum hundrað og fjörutíu Þegar búið er að loka kjörstöðum eykst spennan eftir fyrstu tölum og kastljósið beinist að talningarstöðunum. Allt þarf þetta þó að gerast eftir kúnstarinnar reglum. Spegillinn...
Litlu munar á vinsældum efstu frambjóðenda, kosið í Suður-Afríka og nýtt fasteignamat 30.05.2024 20:08
30. maí 2024 Kjörfundur í forsetakosningunum hefst á laugardagsmorgun og miðað við skoðanakannanir sem birst hafa í dag er erfitt að spá fyrir hver verður sjöundi forseti Íslands. Þingkosningar voru í Suður-Afríku í gær. Allt bendir til þess að Afríska þjóðarráðið, flokkur Nelsons Mandela, missi meirihluta sinn á þingi í fyrsta skipti í 30 ára sögu lýðræðislegra kosninga í landinu. Áhrifin af innk...
Eldgos á Reykjanesskaga og áreiðanleiki skoðanakannana 29.05.2024 20:00
29. maí 2024 - Eldgos og skoðanakannanir Eldgos sem hófst á Sundhnúksgígaröðinni laust fyrir klukkan eitt miðvikudaginn 29. maí er það fimmta á rúmu hálfu ári eða síðan Grindavíkurbær var rýmdur 10. nóvember þegar kvikugangur myndaðist undir bænum. Þrjár vikur voru þá liðnar frá því að lokum fjórða gossins var formlega lýst yfir. Í millitíðinni höfðu um tuttugu milljónir rúmmetra af kviku safnast...
Losun Íslands á uppleið, 36 þúsund drepnir á Gaza, hætta ef Íslendingar hætta að hugsa á íslensku 28.05.2024 20:00
Losun frá íslenska samfélaginu er enn þá á uppleið. Þetta sýna nýjar tölur sem kynntar voru á árlegum loftslagsdegi í Hörpu í dag. Halldór Þorgeirsson, formaður Loftslagsráðs, segir alvarleg mistök hafa verið gerð þegar felldir voru niður hagrænir hvatar á rafbílum. Ísraelsher hefur nú drepið ríflega 36.000 manns á Gaza í hefndarstríði sínu vegna mannskæðs hryðjuverks vígasveita Hamas í Ísrael 7....
Kynningar frambjóðenda á lokaspretti forsetakosninga og sárlega vantar nýtt hús fyrir Konukot 27.05.2024 20:00
Það herðist baráttan hjá forsetaframbjóðendum; aðeins nokkrir dagar þar til gengið verður til kosninga og ljóst hver gegnir embætti forseta næstu árin, þá ríður á að skera sig úr hópnum. Ekkert húsnæði er í sjónmáli undir Konukot þótt tvö ár séu að verða liðin síðan borgaryfirvöld sögðu það sprungið og henta illa undir starfsemina.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, íslensk tunga og skotsvæðið í Álfsnesi 24.05.2024 20:00
Nýlega samþykkti Alþingi áætlun í málefnum íslenskrar tungu þar sem taldar eru upp 22 aðgerðir stjórnvalda til að vernda og þróa tungumálið, og gildir áætlunin til 2026. Rætt verður við Ármann Jakobsson, formann íslenskrar málnefndar. Þá verður einnig fjallað um skotsvæðið á Álfsnesi sem verður þar næstu fjögur til fimm árin við litla hrifningu íbúa. Fyrst er þó viðtal við forsetaframbjóðanda og a...
Ástþór Magnússon, gleymda stríðið í Mjanmar og væringar hjá evrópskum hægrimönnum 23.05.2024 20:00
Síðar í Speglinum verður fjallað um væringarnar á hægri væng evrópskra stjórnmála sem gætu ógnað velgengni harðlínuflokka í kosningum til Evrópuþingsins, sem haldnar verða eftir hálfan mánuð. Það verður líka fjallað um gleymda stríðið í Mjanmar sem hefur geisað í þessu lokaða landi síðan herinn hrifsaði til sín völdin á ný fyrir þremur árum. En fyrst er það næstsíðasti forsetaframbjóðandinn - Ástþ...
Forsetakosningar, sjálfstæði Palestínu, fjármögnun lögreglunnar 22.05.2024 20:00
22. maí 2024 Spegillinn heldur áfram viðtölum við forsetaframbjóðendur - að þessu sinni er rætt við Helgu Þórisdóttur, sem Ragnhildur Thorlacius hitti fyrir á göngum Útvarpshússins. Stjórnvöld þriggja Vestur-Evrópuríkja, Noregs, Írlands og Spánar, lýstu því yfir í gær, að þau hygðust viðurkenna sjálfstæði Palestínu. Hallgrímur Indriðason spurði Jón Orm Halldórsson alþjóðastjórnmálafræðing hvaða þý...
Eiríkur Ingi Jóhannsson, Pétur Jökull ákærður fyrir 100 kg kókaínsmygl, sýndarveruleiki í dómsal 21.05.2024 20:00
Rætt er við Eirík Ingi Jóhannsson, forsetaframbjóðanda. Pétur Jökull Jónasson, 45 ára gamall Íslendingur, hefur verið ákærður fyrir aðild að innflutningi á nærri hundrað kílóum af kókaíni til landsins, í timbursendingu fyrir tveimur árum. Fjórir hlutu þunga dóma vegna málsins. Það getur valdið þolendum miklum kvíða að mæta gerendum sínum fyrir dómi. Nemendur í tölvunarfræði hafa hannað dómsal í sý...
Baldur Þórhallsson, gagnslaus herskip og greining Deloitte á Grindavík 17.05.2024 20:00
Í þættinum er haldið áfram að ræða við forsetaframbjóðendur og nú er röðin komin að Baldri Þórhallssyni. Það verður einnig fjallað um nýja greiningu Deloitte á stöðunni í Grindavík. Er hægt að gæða bæinn lífi á ný og hvað kostar það? Rúmlega fimmtungur innviða er skemmdur og óvissa ríkir um framhaldið, bæði ofanjarðar og neðan. Þá er einnig sagt frá dönskum herskipum á norðurslóðum sem sinntu varn...
Forsetaframboð, Georgía og kaffihús á Þingvöllum 16.05.2024 20:00
16. maí 2024 Viðtöl Spegilsins við frambjóðendur til embættis forseta Íslands halda áfram. Í þessum þætti ræðir Freyr Gígja Gunnarsson við Höllu Hrund Logadóttur. Utanríkisráðherrar Íslands og þriggja Evrópusambandsríkja; Eistlands, Lettlands og Litáens, héldu til Georgíu í gær til að ræða við ráðamenn úr stjórn og stjórnarandstöðu og sýna samstöðu með þeim sem mótmælt hafa umdeildum lögum sem Geo...
Halla Tómasdóttir forsetaframbjóðandi, utanríkisráðherra í Georgíu og áhyggjur Norðmanna af eignarhaldi Fagurfjarðar á Svalbarða 15.05.2024 20:00
15. maí 2024 Spegillinn hefur tekið og birt viðtöl við frambjóðendur til embættis forseta Íslands og mun gera það áfram. Að þessu sinni ræðir Freyr Gígja Gunnarsson við Höllu Tómasdóttur. Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð er í opinberri heimsókn í Tiblisi í Georgíu ásamt utanríkisráðherrum Eistlands, Lettlands og Litáens. Tilgangurinn er að styðja georgísku þjóðina í viðleitni sinni til að auka...
Jón Gnarr býður sig fram, talskona Stígamóta um brottflutning og mótmæli í Georgíu 14.05.2024 20:00
Flutningur fólks sem sætt hefur mansali héðan til Afríku er merki um þá hörku sem færst hefur í útlendingamál, segir talskona Stígamóta Mikill hiti var í mótmælendum í miðborg Tiblisi í morgun, þegar þingið samþykkti afar umdeild lög, sem sögð eru grafa undan lýðræði og fjölmiðlafrelsi í landinu. Framkvæmdastjóri samtaka um vestræna samvinnu segir lögin greiða götu stjórnvalda til alræðis og enn e...
Katrín Jakobsdóttir í framboði, opna á sendiráð á Spáni og starfsmannaflótti frá grænlenska ríkisútvarpinu 13.05.2024 20:00
Forsetinn á að sameina þjóðina og beita sér fyrir því þáttökur allra í samfélaginu, hlú að tungu, sögu og menningu þjóðarinnar og vera sá sem hún getur hallað sér að þegar á móti blæs segir Katrín Jakobsdóttir. Utanríkisráðuneytið leggur til að opnað verði sendiráð í Madrid höfuðborg Spánar, á næsta ári. Gríðarlegt álag hefur verið á kjörræðismönnum Íslands undanfarin ár Mannekla hjá grænlenska rí...
Viktor Traustason og almyrkvi á Íslandi 2026 10.05.2024 19:39
Það verður almyrkvi á vesturhluta landsins miðvikudaginn 12. ágúst 2026. Þótt það sé enn langt í þennan atburð eru erlendir ferðamenn þegar farnir að sýna því áhuga að koma til landsins. Látrabjarg gæti orðið vinsælasti staðurinn þar sem almyrkvinn stendur hvað lengst. Fjallað verður um þetta í Speglinum og meðal annars rætt við Sævar Helga Bragason. Fyrst verður hins vegar rætt við Viktor Trausta...
Forsetaframboð, vopnahlésviðræður og óbreyttir stýrivextir 08.05.2024 20:23
8. maí 2024 Arnar Þór Jónsson er einn tólf frambjóðenda til embættis forseta Íslands, en forsetakosningar fara fram í júní. Freyr Gígja Gunnarsson ræðir við Arnar um hvað það er sem knúði hann til framboðs, sýn hans á forsetaembættið og fleira. Síðustu daga hafa sendinefndir Hamas og Ísraelsstjórnar fundað í Kaíró, til að ræða vopnahléssamkomulag sem Egyptar og Katarar lögðu fram á dögunum og Band...
Guðrún nýr biskup, Ásdís Rán í framboði, Pútín enn settur í embætti enn á ný 07.05.2024 20:00
Ásdís Rán ætlaði að gera raunveruleikasjónvarp um að hún færi í forsetaframboð. Þættirnir duttu upp fyrir en Ásdís ákvað að bjóða sig fram. Næstu vikur verður rætt í Speglinum við alla þá sem eru í framboði til forseta. Vladimír Pútín var formlega settur í embætti Rússlandsforseta í morgun, fimmta sinni. Í innsetningarræðu sinni sakaði Pútín Vesturlönd enn um yfirgang og sviksemi og sagði þau bera...
Vonarglæta á Gaza, áfram virkjað við Þeistareyki og niðurstaða rannsóknarnefndar samgönguslysa um flugslys á Þingvöllum 2022 06.05.2024 20:00
Innrás Ísraela í Rafahborg vofir yfir og hefur gert lengi þúúsundir hafa þegar lagt á flótta en hafa að engu að hverfa. Síðdegis samþykktu leiðtogar Hamas skilyrði fyrir vopnahléi á Gaza en ísraelsk stjórnvöld hafa enn ekki tekið í þann streng. Birna Þórarinsdóttir framkvæmdastýra UNICEF á Íslandi segir aðstæður á Gaza og í Rafah ömurlegar en vont geti enn versnað. Afar brýnt sé að greiða fyrir þv...
Mótmæli, kosning í sameinuðu sveitarfélagi og leiðtogaumræðurnar 03.05.2024 20:00
Spegillinn verður vestur á fjörðum og forvitnast um sveitastjórnarkosningar sem fara fram í nýsameinuðu sveitarfélagi Tálknafjarðar og Vesturbyggðar á morgun. Hann heldur líka vestur um hafi og heldur áfram umfjöllun um stúdentamótmælin í bandarískum háskólum. Þá verður rætt við Stíg Helgason, ritstjóra kosningaumfjöllunar RÚV um forsetakosningarnar, en fyrstu leiðtogaumræðurnar eru í kvöld.
Lög um fiskeldi, mótmæli í Bandaríkjunum og nýr formaður Samtaka ferðaþjónustunnar 02.05.2024 20:00
2. maí 2024 Frumvarp að nýjum lögum um lagareldi styrkir sjókvíaeldi í sessi en herðir kröfur til fyrirtækja í geiranum. Eftirlitsaðilar segja nýju lögin bragarbót en náttúruverndarsinnar mótmæla frumvarpinu. Gréta Sigríður Einarsdóttir rýnir í lögin og ræðir við Hafstein Dan Kristjánsson lektor við lagadeild HR, Hrönn Ólínu Jörundsdóttur, forstjóra Matvælastofnunar og Jón Kaldal, talsmann Íslensk...
Hvað er í gangi í gosinu? Vandræði í Skotlandi. Höll og kastali í Gufunesi. 30.04.2024 20:00
Hvað er í gangi í Sundhnúksgígaröðinni? Þrýstingur eykst og augu jarðvísindamanna eru á mælitækjunum. Rætt var við jarðeðlisfræðinginn Halldór Geirsson. Fyrsti ráðherra Skotlands boðaði afsögn sína í gær, eftir afdrifarík, pólitísk mistök. Við segjum frá áframhaldandi vandræðum Skoska þjóðarflokksins. Við heimsækjum Westminster-höll Játvarðs konungs og kastala Vilhjálms sigursæla, í Normandi - en...
Similar podcasts
Replaio is not a podcast publisher; show names, artwork and audio belong to their authors and are distributed through public RSS feeds.